Morgunblaðið - 08.09.1978, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1978
Kólnandi
eldfjöll
ENGU er líkara en að eldmóðurinn sé að renna af hinum
miklu meisturum á Filippseyjum eftir 19. skákinni að
dæma sem þeir tefldu í gær. Skákin var nánast án
nokkurra sviptinga og loksins þegar Karpov virtist vera
kominn með örlítið hagstæðara tafl dregur hann í land
og taflið jafnast. Jafntefli er að sjálfsögðu enginn sigur
fyrir Karpov því hann þarf að vinna tvær skákir í viðbót
til þess að endurheimta titilinn, en kannski býr hann við
þá von að því lengur sem einvígið dregst á langinn þeim
mun meira þreytist andstæðingur hans sem er 20 árum
eldri.
Skák
19. einvígisskákin
Hvítti Kortsnoj
Svarti Karpov
Katalan byrjun
1. c4 — (Enn sem fyrr byrjar
Kortsnoj taflið með enska leikn-
um og er engu líkara en hann
kunni ekkert annað. Slík ein-
hæfni í byrjanavali hlýtur að
auðvelda til muna allan undir-
búning hjá andstæðingi hans og
lítt til þess fallið að koma á
óvart. Hinsvegar er ekki réttlátt
að gagnrýna Kortsnoj fyrir
þetta núna þegar hann er
eflaust enn í sárum eftir hinar
miklu ófarir í 13. og 14. skák. Til
upprifjunar má minna á
byrjunarleikina í einu vinnings-
skák Kortsnojs í 11. skákinni en
hún byrjaði talsvert óvenjulega:
Kortsnoj (hvítt) Karpov (svart):
1. g3! - c5, 2. Bg2, 3. e4!) 1. ...
Rf6, 2. g3 - e6, 3. Bg2 - d5,
4. Rf3 - Be7, 5. d4 - 0-0, 6.
Rbd2 (Frekar hægfara byrjun
hvíts er ekki til þess fallin að
veita honum neitt frumkvæði
enda er Katalan byrjunin, þó
traust sé, ákaflega hægfara og
setur svörtum engin vandamál
að glíma við. I 15. skák þeirra
félaga féllu leikir í svipaðan
farveg: 1. c4 — Rf6, 2. Rc3 — e6,
3. Rf3 - d5, 4. d4 - Be7, 5. g3
- 0-0) 6. ... b6, 7. 0-0 - Bb7,
8. cxd5 — exd5,9. Re5 — Rbd7,
10. Rdf3 (Nú kemur að sjálf-
sögðu í ljós kosturinn við Rbd2
og tilgangur hvíts að treysta sig
í sessi á e5) 10.... c5,11. b3 —
a5, 12. Bb2 — Re4, (Svartur
hefur án mikilla erfiðleika
fullkomlega jafnað taflið. Eins
og fyrr segir teflir Kortsnoj
þessa skák ekki af miklum
Gunnar Gunnars-
son skrifar um
19. einvígisskákina
eldmóði sem gefur kannski
sumum tilefni til að halda að nú
fari að koma í ljós þreytumerki
eldri mannsins í einvíginu.
Vissulega gæti það verið, en á
hitt veröur að líta að Kortsnoj
hefur á stundum teflt prýðisvel
í þessu einvígi og veitt Karpov
harða keppni).
13. Hcl - He8 14. Rxd7 -
Dxd7 15. Re5 — De6 (Staðan er
næstum samloka og hjá hvorug-
um veika bletti að finna) 16.
Rd3 - Bd6 17. dxc5 - Bxc5,
18. e3 (Peðsrán á c5 hlyti illan
endi hjá hvítum eftir 18. Bxe4?
— Dxe4, 19. Rxc5 — Bxc5, 20.
Hxc5 — d4, 21. f3 — De3 og
síðan e3 og svartur vinnur). 18.
... A4 19. bxa4 (Hvítur vill
frekar hafa st'akt peð á a2 en b3
þótt textaleikurinn sýnist engu
að síður óeðlilegur) 19. .. .Ba6
(Peð svarts á c5 og d5 eru í
slíkum stöðum ákaflega vand-
meðfarin. T.d. má svartur ekki
leika 19. ... c4? vegna 20. Rf4 og
hvítur hefur fengið ákjósan-
legan reit á d4 fyrir menn sína).
20. Hel — Bxd3 (Svartur
fórnar sínum góða drottningar-
biskup fyrir riddara hvíts enda
fær svartur núna gott spil fyrir
hrókana) 21. Dxd3 — Hxa4, 22.
Db3 — Haa8? (Miklu öflugri
leikir virðast standa Karpov til
boða eins og t.d. 22. ... Hb4 eða
Hea8.) 23. Bxe4 - dxe4 (Eftir
23... Dxe4 24; Hedl getur
svartur ekki valdað d5 peðið).
24. Dxe6 — Hxe6, 25. a3 —
Ha4, 26. Hedl - f6 (Eftir
drottningauppskiptin hefur tafl-
ið koðnað niður í jafntefli og
næstu leikir sem á eftir fara eru
hrein tímasóun því keppendur
gætu hæglega samið hér strax.)
27. Kfl - KÍ7, 28. Hc2 - Be7,
29. IId7 - Hb6, 30. g4 - Ke6,
31. Hc7 - Ila8, 32. Hd2 - g6,
33. Kg2 - Í5, 34. g5 - Hd6,
35. Hc2 (Kortsnoj forðast hér
réttilega hrókakaup sem hefðu
verið Karpov í hag) 35.... Hda6
36. h4 - H8a7, 37. Hc8 - Ha8,
38. Hc7 — H8a7, 39. Hc8 og hér
sömdu þeir félagar á sinn þögla
hátt um Jafntefli. Heldur til-
þrifalítil skák með vissum
þreytumerkjum hjá báðum.
Nú kom jógi
með Korchnoi
Baguio — 7. aept. — AP
NITJÁNDU einvígisskák þeirra
Karpovs og Korchnois, sem tefld
var í dag, lauk með jafntefli
eftir 39 leiki. Höfðu þeir þá
þráleikið hrókum sínum tvisvar
sinnum og sömdu að því búnu
um jafntefli.
Korchnoi hafði hvítt í þessari
skák og hóf taflið með því að
leika c-4, en skákin beindist
síðar inn á brautir Katalónsaf-
brigðisins. Upp úr því kom upp
áþekk staða og í 15. skák þeirra,
sem endaði með jafntefli í 25
leikjum.
I nokkru stappi stóð við
innganginn að keppnisstaðnum
rétt áður en skákin hófst. Petra
Leeuwerik, einn aðstoðarmanna
Korchnois, hótaði öllu illu ef
jógi nokkur sem var í för með
henni fengi ekki inngöngu í
keppnissalinn, og varð endirinn
sá, að jóganum var hleypt inn.
Korchnoi sterkari
í tímahrakinu
Han if (rolom bek
skrifar fijrir
Mortjunblaöiö
NÍTJÁNDA skákin, sem frest-
að var á þriðjudag að beiðni
Karpovs og tefld var í dag, var
að mörgu leyti sp.ennandi.
Korchnoi, sem stýrði hvítu
mönnunum, beitti byrjun, sem
ieiddi til Katalónsafbrigðis. En
í stað þess að leika riddara tii
c3 í 2. leik eins og hann gerði
í 15. skákinni iék hann riddara
til d2 í 6. leik. Þessi ieikur
gefur hvítum ekki mikla sókn-
armöguleika ef svartur bregð-
ur skjótt við og um miðbik
skákarinnar var fullkomið
jafnræði með þeim Korchnoi og
Karpov.
Karov gerði tilraun til sóknar
á drottningarvæng hvíts með
því að leika peði fram og í 21.
leik virtist hann vera að ná
frumkvæðinu í sínar hendur. En
í stað þess að leika hnitmiðað
lék Karov nú nokkrum „róleg-
um“ leikjum, sem gerðu
Korchnoi kleift að jafna stöð-
una. Þegar leiknir höfðu verið 33
leikir voru báðir komnir í
nokkurt tímahrak og átti hvor
um sig eftir 10 mínútur á átta
leiki. Og í fyrsta sinn í þessu
einvígi var Korcnoi nú sterkari
í tímahrakinu og gat neytt
andstæðing sinn til að þráleika
í lokin og þar með var jafnteflið
í höfn. Næsta skák verður tefld
á laugardag.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINTJ
AI GIA SING \
SIMINN KK:
22480
Slær í brýnu með
verkfallsmönn-
um og lögreglu
Lima 7. sept. Rcuter. AP.
HÁLFGERT neyðarástand ríkti í
Lima, höfuðborg Perú, í dag er í
odda skarst með lögreglu og
verkfallsmönnum. Verkfallsmenn
fylktu þúsundum saman liði í
verslunarhverfum borgarinnar,
trufluðu umferð og grýttu lögregl-
una og flestum verzlunum var
lokað í skyndingu með slagbrönd-
um er átökin brutust út. Lögreglan
beitti táragassprengjum og
sprautaði vatni úr háþrýstislöng-
um til að dreifa verkfallsmönnum.
Ekki ber fregnum saman um hvort
einhverjir hafi látizt í þessum
átökum, en fjölmargir munu hafa
særzt og lögreglan handtók einnig
fjölda manns. Þessar aðgerðir
komu í kjölfar yfirlýsingar vinstri
hreyfingarinnar um tveggja sólar-
hringa verkfall til að mótmæla
ráðstöfunum stjórnarinnar, sem
þeir telja að muni svipta 100.000
verkamenn atvinnu sinni á næstu
þremur árum.
Nkomo býst við inn-
rás herja Rhódesíu
Salisbury — 7. sept. — Reuter
JOSHUA Nkomo forvígismaður
Föðurlandsfylkingarinnar í Zam-
bíu sagði í útvarps- og sjónvarps-
ræðu í dag, að hann hefði gildar
ástæður til að ætla að herir
Rhódesíu myndu ráðast inn í
Zambíu á næstunni og hefna
flugslyssins á sunnudag og morð-
anna á farþegunum 10, sem
björguðust úr því, sem skærulið-
ar tengdir Föðurlandsfylking-
unni eru sterklega grunaðir um
að hafa átt sök á.
Hann sagði ennfremur, að hann
hefði haft samband við brezkan
sendiherra og beðið hann að gera
allt sem í hans valdi væri til að
koma í veg fyrir slíka innrás.
Hann benti einnig á, að aðeins
væri ár síðan rhódesískir herir
hefðu ráðist inn í Zambíu af
svipuðu tilefni og haldið þremur
borgum í umsátri.
Þessi yfirlýsing Nkomos kemur
aðeins degi eftir að Smith forsæt-
irráðherra lét svo um mælt, að
stjórn hans myndi engan veginn
una slíkum ódæðisverkum og grípa
til róttækra aðgerða í stað orða-
gjálfurs. Búist er við, að Smith
muni kunngera nánar á sunnudag
í hverju aðgerðir stjórnar hans
verði fólgnar.
Ummæli samgönguráðherra
Rhódesíu í dag, er hann tilkynnti
að rannsókn á flugslysinu á
sunnudag hefði leitt í ljós, að hún
hefði verið skotin niður með
eldflaug, þar sem hann lét þess
getið í leiðinni, að þessara voða-
verka yrði grimmilega hefnt,
Danir
dæmdir í
Hollandi
Amsterdam 7. sept. AP.
HOLLENZKUR dómstóll dæmdi í
dag tvo Dani í fimm og tveggja og
hálfs árs fangelsi fyrir að reyna að
smygla tíu þúsund morfíntöflum
út úr landinu. Miðlari sá sem hafði
selt þeim töflurnar, Pakistani er
býr í Amsterdam, fékk 6 ára dóm.
Danirnir tveir komu til Amster-
dam þann 22. maí sl. til að ganga
frá viðskiptum sínum við
Pakistanann en lögreglan í Hol-
Isindi hefur lengi haft hann
grunaðan um að fást við sölu
eiturlyfja. Annar Dananna, sem
var á þrítugsaidri; játaði sekt sína
umyrðalaust. Hann var handtek-
inn skammt frá Amsterdam og
hafði hluta morfínsins í bílnum.
Hinn Daninn sem fékk þyngri dóm
bar við minnisleysi og var lítt
samvinnuþýður. Hann er um
fimmtugt og var handtekinn á
Schipolflugvelli um svipað leyti.
þykja styrkja yfirlýsingar Smiths
og virðast benda til, að stjórn hans
muni vera fúlasta alvara með að
láta til skarar skríða von bráðar.
Portúgal:
Fátt nýtt 1
stefnuskrá
da Costa
Lissabon, 7. sept.
AP — Reuter
ALFREDO Nobre Da Costa for-
sætisráðherra Portúgals sagði í
dag að stjórn hans myndi sýna
viðleitni til að koma landinu út úr
því efnahagsöngþveiti sem það
hefur verið í að undanförnu.
Hann sagðist þó reiðubúinn að
afhenda stjórnmáiaflokkunum
völdin ef þeir gætu komið sér
saman um betri stjórn.
Da Costa sgði í ávarpi á þingi
um stefnuna að stjórnin tæki mið
af aðgerðum fyrri stjórna, og
þykir fátt nýmeti vera í stefnu-
skránni að sögn AP. Stjórnin
heitir inngöngu í EBE hún ætlar
að efla byggingu íbúðarhúsnæðis,
skóla og heilsugæzlustöðva auk
þess sem stefnt er að minnkun
atvinnuleysis og lækkun erlendra
skulda. Þá mun stjórnin taka þátt
í störfum Atlantshafsbandalags-
ins, NATO. Loks gaf Da Costa í
skyn að hugsanlega yrði einhverj-
um kvöðum létt af landsmönnum
á næstunni þó að erlendir lána-
drottnar hefðu mikil áhrif á
aðgerðir í efnahagsmálum lands-
ins.
Carlos Brito fulltrúi kommún-
ista sagði á þiriginu í dag að í
stjórn Da Costa væru of margir
afturhaldssamir menn og kapítal-
istar. Hann dró og í efa að Da
Costa mundi láta af völdum ef
flokkarnir kæmu sér saman um
stjórn.
Adelino Amaro, talsmaður Mið-
demokrata líkti stjórn Da Costa
við líkama án sálar þar sem hún
hefði ekki stuðning neins flokks.
Þá sagði Jose Meneres, þingmaður
jafnaðarmanna, að hann sæi
engan mismun á 411 síðna stefnu-
skrá stjórnar Da Costas og stefnu-
skrám síðustu ríkisstjórna sem
sósíalistar hefðu veitt forystu, en
þeim hefðu jafnaðarmenn hafnað.
Loks sagði Jaime Gama, fulltrúi
sósíalista, að stjórn Da Costas
hefði aðeins stuðning Eanesar
forseta, og þar sem forsetinn væri
einnig yfirmaður herafla landsins
gæti hann leikið sér með lýðræðið
ef honum sýndist svo.