Morgunblaðið - 23.09.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978
3
Bandarísku björgunarsveitarmennirnir bera rússneska sjómanninn úr þyrlunni út í sjúkrabííinn.
Ljósm. RAX ojí Ól. K. Matf.
B jörgunarsveit varnar-
liðsins sótti rússneskan
sjómann 150 mílur á haf út
VARNARLIÐIÐ sótti í gær-
morgun rússneskan sjómann.
sem talinn var hafa veikst mjög
alvarlega um borð í rússnezka
frystitogaranum Vemajtiya. en
hann var staddur 300 sjómílur
norð-austur af Langanesi er
hann sendi hjálparbeiðnina.
Ferðin gekk í alla staði vel og
var lent í Reykjavík nokkru
eftir hádegi í gær og maðurinn
lagður á Landspítalann.
Rússneski sjómaðurinn. sem
heitir Ivan Grinehark og er 46
ára gamall. var í rannsókn
þegar Mhl. hafði síðast af
honum fréttir. Ilonum leið eftir
atvikum og voru veikindi hans
jafnvel ekki talin jafn alvarleg
og haldið var í fyrstu.
Samkvæmt upplýsingum
Oskars Þórs Karlssonar hjá
Slysavarnafélagi Islands barst
hjálparbeiðni frá rússneska
skipinu kiukkan 20.55 á fimmtu-
dagskvöld. Var þá talið að Ivan
Grinchark væri með lungna-
bólgu og hefði auk þess fengið
hjartaáfall og álitin mikil þörf á
að koma honum á sjúkrahús hið
fyrsta. Slysavarnafélagið sneri
sér til varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli og var auðsótt mál að
senda björgunarsveit eftir
manninum. Klukkan 5 á föstu-
dagsmorgun lagði björgunar-
þyrla af stað frá Keflavíkurflug-
velli og henni til aðstoðar tvær
Herculesflugvélar, en þar sem
ferðin var mjög löng, 900
sjómílur, var nauðsynlegt að
fylla hana eldsneyti annað
slagið. Þegar björgunarþyrlan
kom að rússneska togaranum
var hann kominn nær landinu
eða 150 mílur. Gekk vel að ná
manninum um borð í þyrluna og
sömuleiðis gekk ferðin til
Reykjavíkur vel. Þar lenti þyrl-
an klukkan 13.20.
Rússneski sjómaðurinn Ivan Grinchark.
_r
Formaður FII um gylliboð brezku
stjórnarinnar:
„Vonaaðmenn
þreyi þorr-
annoggóuna”
FYRIR nokkrum árum hófu tvö íslensk íyrirtæki starfsemi sína í
Skotlandi og var þar um að ræða verkstæði, sem unnu úr framleiðslu
þessara fyrirtækja hér heima. Þessi fyrirtæki voru Prjónastofa
Borgarness, sem hóf rekstur saumastofu fyrir 4 árum og er hún enn
starfrækt. Þar vinna að staðaldri milli 25 og 30 manns en enginn
fslendingur starfar þar nú. Hitt fyrirtækið var samsetningarverkstæði,
sem fyrirtækin Gamla kompaníið og Stáliðjan hf. ráku og voru þar sett
saman húsgögn, sem þessi fyrirtæki framleiddu hér heima. Starfrækslu
þessa samsetningarverkstæðis hefur nú verið hætt fyrir all nokkru.
Eins og fram hefur komið í
fréttum blaðsins dvaldi hér í sl. viku
iðnaðarerindreki frá bresku stjórn-
inni, James H. Wood, og hefur hann
kynnt íslenskum iðnrekendum hvað
þeim standi til boða ef þeir vilja
flytja starfsemi sína að einhverju
leyti eða öllu leyti til Bretlands.
Meðal þeirra sem Wood ræddi við
voru forsvarsmenn Félags íslenskra
iðnrekenda og sagði Davíð Scheving
Thorsteinsson, formaður félagsins,
að það væri ekki nýtt að hingað
kæmu slíkir erindrekar frá löndum,
sem hefðu markaða iðnþróunar-
stefnu, því eins og í þessu tilviki
notuðu Bretar stefnumótun sína á
þessu sviði til að auka iðnaðarfram-
leiðslu sína og fjölga starfstækifær-
um. „Þeir hafa einmitt farið þá leið
aö byggja sérstaka iðngarða þar sem
iðnrekendur geta fengið inni með
starfsemi sína en um þetta höfum
við verið að tala her síðustu 10 árin.
En við horfum nú fram á bjartari
tíma og maður verður að vona að
unnið verði hér að uppbyggingu
framleiðsluiðnaðar," sagði Davíð.
Aðspurður um það hvort hann
vissi til að íslensk fyrirtæki ætluðu
að flytjastarfsemi sína að einhverju
leyti til Bretlands, sagði Davíð, að
sér væri ekki kunnugt um að slíkt
stæði til. „Eg vona líka að menn fari
ekki að flytjast héðan en vona að
þeir þreyi þorrann og góuna. En ef
ástand efnahagsmálanna verður
ekki stöðugra og það tekst ekki að
draga úr verðbólgunni og ef svo
bætist þar við, að engin iðnþróunar-
stefna verður mótuð, þá fara menn
héðan rétt eins og forfeður okkar
gerðu fyrir 100 árum, þegar þeir fóru
til Ameríku," sagði Davíð.
Helgi Halldórsson framkvæmda-
stjóri hjá Stáliðjunni h.f. sagði að
þeir og Gamla kompaníið hefðu rekið
samsetningarverkstæði á þriðja ár
en þeir hefðu verið óheppnir, því þeir
hefðu lent í miðri orkukreppunni,
vinnuvikan hefði verið stytt í þrjá
daga og skömmu eftir að þeir
byrjuðu hefðu vextir í Bretlandi
hækkað úr 3% á nokkrum mánuðum
í 17% en nú væru þeir hins vegar
orðnir 6%. „Þetta gerði okkur erfitt
fyrir því rekstrareiningin hjá okkur
var ekki nógu stór og við ákváðum að
hætta. Það lá hins vegar ekkert
fyrir, sem benti til þess að það væri
ekki hægt að reka fyrirtækið þarna,
við höfðum bara ekki úthald í það
miðað við þetta ástand. En ef litið er
á þetta í samhengi við íslenskan
iðnað þá er ekki bara hægt að opna
möguleika fyrir innflutning á
iðnaðarvörum, það verður líka að
skapa möguleika til að flytja þær úr
landi. Það hefur gengið vel s.s. með
ullina en við þurfum að koma okkur
upp fleiri vörutegundum, sem við
getum flutt út með líkum hætti,"
sagði Helgi.
Sigurður Fjeldsted, framkvæmda-
stjóri hjá Prjónastofu Borgarness,
sagði að upphaf þess að þeir fluttu
hluta af starfsemi sinni til Skotlands
hefði verið vinnuaflsskortur. Þeir
hefðu í fyrstu flutt inn starfsfólk en
það hefði ekki kunnað við sig hér og
því hefðu þeir flutt hluta af
starfsemi sinni út. Saumastofan í
Skotlandi vinnur úr efni héðan að
heiman og selur til heildsala, sem
einnig annast sölu á vörum frá
Prjónastofunni hér heima.
„Okkur hefur líkað vel að hafa
saumastofuna þarna og það hefur
verið hagstætt fyrir okkur að vera
bæði með starfsemi hér heima og
þarna. Aðalmarkaður okkar er í
Bretlandi og með þessu erum við nær
markaðnum. Um þá fyrirgreiðslu,
sem þarna er að fá, er það að segja
að þeir bjóða húsnæði á leigu en
fjármagnsfyrirgreiðsla er engin
nema menn fá lán gegn tryggingu,
sem þú færð ekki hér heima," sagði
Sigurður.
Harka fœrist í kennaradeilu
Kennaranemar hætta stuðningsverkfalli og stjórn L.S.F.K. hvetur félaga sína til
að hafna ekki kennaranemum — Stríðsyfirlýsing — segja grunnskólakennarar
ALLT SITUR enn við það sama í kjaradeilu kennara á grunnskólastigi. Deilan snýst sem kunnugt er um
það, að kcnnarar úr Kennaraskóla Islands, sem útskrifuðust áður en sk/ilanum var breytt í Kennaraháskóla
Islands, vilja fá sömu laun og þeir sem hafa kennarapróf eftir breytinguna. Hafa kennarar í Sambandi
grunnskólakennara því neitað að taka við kennaranemum á þriðja ári í æfingakennslu.
Haukur Viggósson, talsmaður
kennaranema, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvötdi, að
megn óánægja ríkti þeirra á
meðal með þessar aðgerðir kenn-
ara. „Við tökum heilshugar undir
þær kröfur sem þeir hafa sett
fram,“ sagði Haukur, „en getum
ekki sætt okkur við þær baráttu-
aðferðir sem þeir nota. Það mun
vera einsdæmi í kjarabaráttu
hérlendis, að deiluaðili noti ein-
göngu þriðja aðila sem vopn í
baráttu sinni, eins og kennarar
gera nú. Þeir sitja áfram og hirða
sín laun, andstætt því sem al-
mennt gerist þegar einhverjar
starfsstéttir eiga í kjaradeilu."
Kennaranemar á þriðja ári hafa
verið í stuðningsverkfalli við
eknnara, á þann hátt að þeir sem
hafa átt að vera við nám í
Kennaraháskólanum hafa ekki
mætt til náms, en aðeins helming-
ur nema á þriðja ári átti að vera í
æfingakennslu. „Við höfum nú
aflétt þessu verkfalli," sagði
Haukur, „og munum við væntan-
lega hefja nám aftur á mánudag-
inn.“ Sagði Haukur að nokkur
þreyta hefði verið farin að gera
vart við sig hjá kennaranemum,
en þessar aðgerðir þeirra hafa nú
staðið yfir í þrjár vikur.
Menntamálaráðherra, Ragnar
Arnalds, og Birgir Thorlacius,
ráðuneytisstjóri, hafa báðir verið
erlendis að undanförnu, en þeirra
mun von til landsins í dag.
Þorsteinn Geirsson, deildarstjóri
launamáladeildar fjármálaráðu-
neytisins, sagði hins vegar í
samtali Morgunblaðið í gærkvöldi,
að hann vissi ekki til þess að neitt
hefði gerst í málinu, og kvaðst
hann ekki vita til að kennarar
ættu von á neinu tilboði eða boði
um viðræður frá ráðuneytinu.
Kennarar víðs vegar að á
Reykjavíkur- og Reykjanessvæð-
inu hafa að undanförnu sent
menntamálaráðherra áskorunar-
bréf, þar sm hann er hvattur til að
hafa forgöngu um að leysa yfir-
standandi deilu.
Fulltrúaráð Sambands grunn-
skólakennara hefur verið boðað til
fundar á mánudagskvöldið. Er
ætlunin að reyna að samræma þar
afstöðu kennara, og ef til vill að
leita hófanna um nýjar baráttuað-
gerðir, þó ekki sé talið að þeir
muni fallast á að taka við þriðja
árs kennaranemum til æfinga.
Kennarar hafa hins vegar tekið
við nemum á fyrsta ári, en þeir
eiga að sitja í kennslustundum í
áheyrn hjá kennurum í eina viku.
Munu kennarar ekki hafa talið sér
stætt á því að hafna þeim, þar sem
þessi vika er aðeins fyrsti hluti af
átta vikna námi þeirra nú í
vetrarbyrjun, og grundvallast
námið næstu tvo mánuði á þessari
viku.
Stjórn Landssambands fram-
haldsskólakennara hefur gert
samþykkt, þar sem þeirri skoðun
er lýst, að óeðlilegt sé að aðgerðir
grunnskólakennara bitni á kenn-
aranemum. Hvetur stjórn L.S.F.K.
félaga sína til þess að neita ekki
að taka við kennaranemum ef þess
væri óskað að þeir færu í æfinga-
kennslu til þeirra. Staðfestu þeir
Haukur Viggósson og Hilmar
Ingólfsson, í stjórn L.S.F.K., efni
þessarar samþykktar í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Valgeir Gestsson, formaður
Sambands grunnskólakennara,
hafði þetta um vinnudeiluna að
segja, þegar Morgunblaðið leitaði
til hans í gærkveldi: „Það er allt
óbreytt frá okkar hendi, en núna
síðustu daga hafa gengið undir-
skriftaiistar meðal kennara, þar
sem skorað hefur verið á mennta-
málaráðherra og fjármálaráð-
herra að ganga í að leysa málið.
Gífurleg þátttaka hefur verið í
þessari undirskriftasöfnun og
mun láta nærri, að um 90%
kennara í Reykjavík og á Reykja-
nesi hafi skrifað undir. Eru þar
bæði kennarar úr okkar samtök-
um og öðrum. Það næsta, sem
gerist hjá okkur, er fundur
fulltrúaráðs SGK á mánudags-
kvöldið, þar sem teknar verða
stórar ákvarðanir um frekari
aðgerðir. Það fer eftir viðbrögðum
stjórnvalda, hverjar þessar að-
gerðir verða.
Varðandi þá gagnrýni, að að-
gerðir okkar bitni fyrst og fremst
á kennaranemum, þá vil ég segja
það, að hjá því verður aldrei
komizt í kjaradeilu, að saklausir
þurfi að líða. Þetta á jafnt við um
hvort heldur við erum að ræða um
verkfall kennara, BSRB-manna
eða útflutningsbann. Á það má
benda, að vegna þess, hve skólar
byrja á misjöfnum tíma, eru
kennarasamtökin ekki í stakk
búin til að gera neinar aðrar
ráðstafanir fyrr en síðla í septem-
ber.
Varðandi það að kennaranemar
hafa nú ákveðið að hefja nám að
nýju vil ég segja það, að þeirra
afstaða er mjög skiljanleg og þeir
eiga þakkir skildar fyrir þann
stuðning og baráttuvilja, sem þeir
hafa sýnt í verki.
Varðandi yfirlýsingu stjórnar
LSFK vil ég segja, að hún er
einsdæmi í sögu þessara félaga og
við hljótum að líta á hana sem
hreina stríðsyfirlýsingu. Hún mun
hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar
fyrir samskipti kennarasamtak-
anna í framtíðinni og þetta er einn
ljótasti leikur, sem ég hef séð í
samskiptum stéttarfélaga í land-
inu fyrr og síðar. Þetta er eitt
alvarlegasta mál sem hent hefur
kennarastéttina félagslega frá
upphafi."