Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 5 Athugasemd frá Jóhanni S. Hannessyni Til ritstjórnar Morgunblaðsinsi Ég hefi fylgst með skrifum Hannesar Gissurarsonar í Morgunblaðið um allalngt skeið og velt þeim mikið fyrir mér, ekki síst undanfarnar vikur. Hannes segist vera málefnalegur í þessum grein- um sínum og ekki vega að persónum. Ég held honum skjátl- ist um sjálfan sig. Ég held hann sé þar ámóta málefnalegur og ámóta sanngjarn — og fari ámóta rétt með — og ég í þessari afbökuðu vísu sem ég hefi látið mér detta í hug að leggja honum í munn: Ék hof stolift æru manns. rr því sjálfumnlartur. Svona er a<) vanta vit ok sans ok vera hlartamaður. Ólafur Magnús í málefnalegri anda vil ég bæta því við, að ég lít svo á, að sá hugmyndafræðilegi málstaður, sem stundum grillir í einhvers staðar langt á bak við orð Hannesar í þessum skrifum, verð- skuldi betri tjáningu og túlkun en hann hlýtur þar. Og ekki nóg með það, heldur tel ég að öllum sem um þjóðmál deila á þessu landi bráðliggi á að þessi málstaður öðlist betri málsvara. Um það þykist ég vita að margir séu mér sammála, sem, eins og ég, eru hvorki ofurseldir þeim málstað né andstæðu hans. Vinsamlegast, Jóhann S. Hannesson Jóna Sigrún Hvatarfundur um kjaramál IIVÖT. félag sjálfstæðiskvenna, heldur fund í Valhöll, Háaleitis- braut 1, mánudaginn 25. septem- ber og hefst fundurinn klukkan 20.30. Fundurinn fjallar um kjaramál. Frummælendur á fundinum verða Olafur Björnsson, prófessor, sem tjalla mun um vísitölu og kaupmátt launa, og Magnús L. Sveinsson, skrifstofustjóri, sem fjalla mun um nýjustu launabreyt- ingar. Fundarstjóri verður Jóna Sigurðardóttir og fundarritari Sigrún G. Jónsdóttir. Kaffiveij;ing- ar verða á fundinum, sem er opinn öllu sjálfstæðisfólki. Héraðsfundur Húna- vatnsprófastsdæmis HÉRAÐSFUNDUR Húnavatnsprófastsdæmis var haidinn fyrir nokkru og flutti sr. Pétur Þ. Ingjaldsson prófastur yfirlitsræðu yfir kirkjulega viðburði í prófastsdæminu í lok messu í Bólstaðarhlíðar- kirkju. Kom fram í henni m.a., að sr. Pálmi Matthíasson hefði verið kjörinn prestur í Melstaðarpresta- kalli og væri nú aðeins eitt brauð laust í prófastsdæminu, Arnes í Strandasýslu. Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Haukur Guðlaugsson, valdi um tíma í Austur-Húnavatnssýslu og hafði samæfingar fyrir kirkjukórana í hverju prestakalli og fræðslutíma fyrir oragnista og presta. Þá kom fram að ávallt er verið að endur- bæta kirkjur í prófastsdæminu og hefur m.a. farið fram viðgerð á Melstaðarkirkju, Hofskirkju og stendur nú yfir á Þingeyrarkirkju og Holtastaðakirkju og gert hefur verið söngloft í Hvammstanga- kirkju. Að lokinni yfirlitsræðunni fluttu framsöguerindi um kirkju söng sr. Jón Tryggvason organisti í Artúnum og sr. Hjálmar Jónsson. Að þeim loknum voru almennar umræður og tóku þá margir til máls, m.a. Klemens Guðmundsson kvekari er um áratugi var eigandi Bólstaðarhlíðarkirkju og er þar hringjari enn. Fundinn sóttu um 25 manns, þar á meðal 5 prestar og 14 safnaðarfulltrúar. I fundarlok þágu fundarmenn kvöldverð í boði prestshjónanna á Bólstað, þeirra sr. Hjálmars Jóns- sonar og Signýjar Bjarnadóttur. Ein af einstaklingsfbúðunum í Hátúni 12. Fjáröflunardagur Sjálfsbjargar er á morgun: 18 af36 nýjum íbúðum voru teknar í notkun í vor FJÁRÖFLUNARDAGUR Sjálfsbjargar er á morgun, sunnudaginn 24. september. Þennan dag er leitað eftir stuðningi landsmanna til eflingar starfsemi Sjálfsbjargar og hinna einstöku félagsdeilda innan sambandsins. I þeim tilgangi verða seld merki Sjálfsbjargar og ársritið Sjálfsbjörg 1978. í ár verður merkja- og blaðasalan með öðrum hætti cn vanalega, þ.e.a.s. nú verður hún í höndum félaga og velunnara Sjálfsbjargar en ekki f höndum skólabarna eins og undanfarin ár. Blaðið og merkin verða seld um allt land og hefst salan kl. 11 á morgun. Sjálfsbjargarfélög eru starfandi á eftirtöldum stöðum á landinu: Siglufirði, Reykjavík, ísafirði, Akureyri, Árnessýslu, Bolungar- vík, Vestmannaeyjum, Húsavík, Suðurnesjum, Sauðárkróki, Stykk- ishólmi, Akranesi og Neskaupstað. Fimm þau fyrst nefndu minnast 20 ára afmælis síns á þessu ári. Sjö þessara félaga hafa eignast þak yfir höfuðið fyrir íélagsstarf- semi sína, þ.e. á Akureyri, Siglu- firði, Reykjavík, ísafirði, Sauðár- króki, Húsavík og Vestmannaeyj- um. Sex þeirra hafa auk þess rekið verndaðar vinnustofur í húsa- kynnum sínum. Þeim hefur þó flestum ekki orðið langra lífdaga auðvið vegna ófullnægjandi rekstrarmöguleika að því er kem- ur fram í fréttatilkynningu frá Sjálfsbjörgu. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Akureyri, hefur um árabil rekið Plastiðjuna Bjarg í húsi sínu að Hvannavöllum 10 og auk þess endurhæfingarstöð á sama stað. Mikil þrengsli hafa staðið starf- seminni fyrir þrifum og er nú verið að reisa nýja byggingu við Sindragötu í Glerárhverfi. Fyrsti áfangi hennar er endurhæfingar- stöð en síðan kemur húsnæði fyrir plastiðjuna Bjarg, félagsheimili og fleira. Framkvæmdir á vegum Sjálfs- bjargar við Hátún 12 í Reykjavík standa enn yfir. I vor sem leið voru teknar í notkun 18 íbúðir af 36 en þær eru í vesturálmu hússins. Reynt verður eftir því sem fjárhagur leyfir að flýta frágangi þeirra sem eftir eru að sögn forráðamanna Sjálfsbjargar. Þessar 18 íbúðir eru á tveimur hæðum. Þrjár tveggja herbergja og sex einstaklingsíbúðir eru á hverri hæð. I þessum íbúðum býr fólk sem að mestu getur séð um sig sjálft eða fær aðstöð hjá maka, aðstandendum eða kunningjum. Það er eingöngu um að ræða hreyfifatlað fólk sem þarna býr og getur það keypt sér eina máltíð á dag í matsal Sjálfsbjargar en verður að öðru leyti að hugsa um sig sjálft. Ibúðirnar eru allar sniðnar fyrir þarfir fólks í hjóla- stólum. Búist er við að næstu 9 íbúðirnar verði tilbúnar í haust og þær síðustu 9 verði langt komnar síðari hluta þessa árs. Hugmyndin er að hafa 2 af þessum 36 íbúðum fyrir fólk utan af landi sem kemur til Reykjavík- ur til þess að dveljast þar um lengri eða skemmri tíma til að leita sér læknis, til náms eða annars. í sambandi við íbúðirnar verða geymslur fyrir 4 bíla, þvottahús og rúmgóðar geymslur. Síðar er gert ráð fyrir að koma upp saunabaði og fullkomnu baði fyrir þá er þess þurfa. Leigan fyrir íbúðirnar er 26.822 fyrir einstaklingsíbúðirnar, 32 m2, og 45.218 fyrir tveggja- mannaíbúðirnar, 56 m2. Þá stendur fyrir dyrum að hefja í Sjálfsbjargarhúsinu rekstur dagvistunarheimilis fyrir fatlaða og er áætlað að sú starfsemi hefjist um áramótin. Fólk kemur þá á morgnana og eyðir deginum á staðnum við æfingar, föndur, létta vinnu o.fl. og fær kaffi og mat á staðnum. Forráðamenn Sjálfs- bjargar kváðu reynslu erlendis af slíkum stofnunum vera þá að fólk væri lengur í heimahúsum og létti þetta því á dvalarheimilunum. Húsrými í dagvistun verður fyrir 15—20 manns. Ennþá er eitt átak eftir við byggingu samtakanna að Hátúni 12 í Reykjavík. Það er sundlaugin. Grunnurinn bíður steyptur, en fjármagn vantar til farmhaldsins. Nú er kominn vísir að sundlaugar- sjóði en uppistaða hans eru framlög ýmissa velviljaðra ein- staklinga. Afgreiðsla merkja og blaða fer fram í félagsheimili Sjálfsbjargar, félags fatlaðra í Reykjavík, Há- túni 12 1. hæð laugardag 23. september frá 13—16 og á sunnu- dag frá kl. 10 árdegis. Merkið mun kosta 200 krónur en blaðið 300 krónur. Vegna breytts sMpulags við söluna og jafnréttisgöngunnar og þeirrar athygli sem hún vakti eru Sjálfsbjargarmenn vongóðir um að salan á sunnudaginn verði mikil og jafnvel að um 100% söluaukningu verði að ræða. Ml úsgagnasýning í Glæsibæ laugardag og sunnudag frá 2—6 Gamaldags húgsgögn frá Reprodux H Englandi o.fl. Húsgagnaverzlunin LAUFAS.<. Glæsibæ, sími 85160.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.