Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 11 450.000 og 600.000. Þá blandaði Diderot sér í málið og tjáði keisaraynjunni, að Falconet væri reiðubúinn til að taka að sér verkið fyrir 25.000 liveres árlega, sem var mjög hagstætt tilboð. Falconet var þó í 12 ár að fullgera verkið (!) og er það var afhjúpað var skaparinn ekki viðstaddur, — hafði fallið í ónáð hjá keisaraynj- unni. — Diderot heimsótti St. Pétursborg til að líta á safn keisaraynjunnar, en þó öðru frem- ur til að hitta hana sjálfa. Frá 8. okt. 1773 — 5. marz 1774 bjó hann í höll kammerherra nokkurs Narischin að nafni. Hann fékk 60 sinnum áheyrn hjá keisaraynjunni og þau ræddu um sameiginleg áhugamál; m.a. barst þá í tal að stofna rússneskan háskóla — í augum Katrínar var Diderot öðru fremur trúnaðarmaður hennar og vinur. Það er ævintýraleg lesning að lesa um listaverkakaup Katrínar og annarra er sátu á veldisstóli á þeim tímum og gæti vísast orðið efni í sérstaka grein — umsvifin voru svo mikil. Einnig er fróðlegt að lesa um viðhorf manna til listaverk og mat á verðgildi þeirra, t.d. mátu menn verðgildi málverka Gerard Dou með því að vikta þau á móti gulli! Fullyrt hefur verið að Katrín safnaði málverkum fyrir glysið eitt og að í raun og veru hafi hún hér haft jafnlítið vit á hlutum og — Og hvernig skyldi Katrín hafa farið að því að fjármagna öll þessi kaup? — Menn hafa reiknað það út að tekjur hennar námu um 17 milljónum rúblna á ári. Nú átti Katrín í styrjöldum og þessar styrjaldir gieyptu ómældan pen- ing. Fyrsta stríðið við Tyrki kostaði ríkið 47 milljónir og það næsta 90 milljónir rúblna — en vildarmenn hennar fengu 1V4 milljón rúblna árlega. Með hlið- sjón af þessum upphæðum var vægi þessara útgjalda ekki mikið. Hvernig fór Katrín að því t.d. síðasta ár sitt í veldisstóli að eyða 80 milljónum rúblna þrátt fyrir að tekjur hennar námu einungis örlitlu broti þessar upphæðar og lán dugðu skammt? — Svarið liggur í því, að val- kyrjan lét einungis þrykkja banka- seðla! Þrátt fyrir skamma setu eiginmanns hennar í veldisstól hafði honum þó gefist tími til að stofna Rússlandsbanka og hefja framleiðslu pappírsseðla og Katrín þrykkti áfram af miklum móð og ástríðu! Menn hafa reiknað það út, að hún hafi komið 158 milljónum pappírsrúblna í umferð og tekið 300 milljónir að láni. Öll önnur lönd álfunnar hefðu orðið gjaldþrota með slíku framferði. Þegnar Katrínar kvörtuðu þó aldrei yfir þessum ráðstöfunum hennar né fjármálastjórnsýslu. — Og þótt pappírspeningar hennar hlytu ekki jafnan æskilegt gengis- Eremitagesafnið séð að innan. tónlist, — en hún á eitt sinn að hafa sagt, „að í sínum eyrum hljómaði gelt hinna níu hunda hennar betur en nokkur tónlist!" Sjálfsagt leit hún ekki sömu augum á málverk og fagmenn, henni var frásagnargildið fyrir mestu og hver mynd átti í hennar augum að hafa menntunargildi, og í því skyni líkaði henni vei að fá skýrslu um þá hlið málsins hverju sinni, áður en hún keypti listaverk. Að slík afstaða sé engan veginn óvenjuleg sanna rit Diderots. Þó er miklu sennilegra að hún hafi í raun og veru haft dálæti á málverkum og þannig viðurkenndi hún oft að sér væri fyrirmunað að sjá ýmsa fegurð í málverkum. Slík vitneskja um eigin takmörk veit á þroskaða skapgerð og Katrínu var vissulega ljóst, að takmarkað vit hennar á myndlist gaf henni ekki rétt til að dæma. Hún skrifaði eitt sinn í bréfi, „augu mín sjá ekki það við þessi málverk, sem yðar augu sjá“. Katrín lét opna kisturnar er geymdu málverkin jafnóðum og þær bárust til þess a geta skoðað þau í einveru, — og eitt sinn sagði hún stolt: „Aðeins ég og rotturnar erum þeirrar ánægju aðnjótandi að geta notið þessarar dýrðar!" Katrínu tókst vissulega með örlæti, kænsku og góðum sam- böndum að auðga rússnesku þjóð- ina að ótal listaverkum höfuðsnill- inga álfunnar, — keypti ósjaldan heilu einkasöfnin fyrir stórfé og þótt þjóðin sjálf hefði betur mátt njóta þessara peninga, þá gæti hún í dag margfaldlega notið þessarar söfnunaráráttu keisara- ynjunnar, beitti hún sömu kænsku og hún. Verk þau er hún keypti hafa ávaxtað sig þúsundfalt og eru í dag ótal milljarða gulldollara virði. verð þá datt engum í hug að álíta Rússland gjaldþrota! Gjaldmiðill- inn var allstaðar viðurkenndur og þannig gat Katrín án erfiðleika innréttað Eremitage-safnið. Þegar Katrín lést, kom upp spurningin, hvernig haga ætti stjórnsýslu safnsins. Meðlimir akademíunnar voru kallaðir sam- an og þeir ákváðu að láta gera heildarskrá yfir öll málverk í eigu safnsins. Þá kom í ljós að keisara- lega safnið í St. Pétursborg taldi 3396 málverk. Á minna en 30 árum var safn rússnesku hirðarinnar orðið að jafn umfangsmiklu mál- verkasafni og bestu söfn Evrópu! — Það er sagt, að ríkisarfinn sonur hennar, Páll stórfursti, hafi orðið svo glaður við fréttina um andlát móður sinnar, að hann sæmdi sendiboðann er kom með skiláboðin orðu! Páll I var öðru fremur þekktur fyrir að vera alltaf að semja skrítin lög. Páll var mjög sérstæður í útliti og var því í miklu dálæti hjá skopteiknurum. Það var einkum ein skopmynd í St. Pétursborg er hlaut mikla út- breiðslu og vinsældir — í annarri hendi hélt Páll á pappírsblaði og á því stóð „Reglur", — í hinni hendinni hélt hann á pappírsblaði er á stóð „Gagnreglur", — en í enni hans var letrað „Ruglingur"! Þrátt fyrir að Páll I væri vari með öllum mjalla svo sem hin ýmsu lagafyrirmæli hans sýna, t.d. „að sérhver er ætti leið framhjá Vetrarhöllinni bæri skylda til að heilsa og að sérhver ferðamaður er æki framhjá keisaranum og fyldarliði hans bæri skylda til að stíga út úr vagni sínum og heilsa á meðan hersingin færi hjá og að allir karlmenn ættu ... að púðra sig, — þá hélt hann áfram listapólitík móður sinnar. Páll I hlaut dapurlegan dauða- daga eftir aðeins fimm ára valda- feril, — hann var kyrktur í Michaelovskij höll sinni. Alexander I, sonur Páls, ríkti í 25 ár, eða frá 1801—1825. Gagn- stætt því að faðir hann hafði reynt að loka fyrir öll sambönd við vestrið leyfði Alexander list- stúdentum aftur að stunda nám við fagurlistaskólann í París eftir því sem stjórnmálastaðan leyfði hverju sinni. Hann hafði mikinn áhuga á listum og fylgdist vel með því sem var að gerast í París, hann hafði og hlotið franskt uppeldi í anda Rousseaus. — Það var margt að gerjast í franskri list á valdatíma Alexanders og þá ekki síður í stjórnmálum, þetta voru tímar uppgangs og falls Napoleons Bonaparti og spilin voru stokkuð upp i allri Evrópu. Slíkum örlaga- tímum fylgdi jafnan gróska í listum, því að þá ríkti samkeppni á öllum sviðum. Alexander auðgaði Eremitage-safnið að miklum fjár- sjóðum og á þessum tímum var stöðugur straumur listaverka á leið til Rússlands, m.a. komst hann yfir safn Beauharnais-fjölskyld- unnar, sem hún hafði sankað að sér á stórveldistíma Napoleons. Nikulás I, yngri bróðir Alexand- ers, er tók við völdum að honum látnum ríkti í heil 30 ár. Honum var það mikið kappsmál að fylla upp í myndina af því sem Eremitage-safninu vantaði, t.d. af ítalskri myndlist, — en einnig af myndum úr öllum áttum því að eyðurnar voru margar. Það var í valdatíð hans, þ.e. 5. febrúar 1852, sem Eremitage-safnið var opnað almenningi með mikilli viðhöfn og hafði undirbúningurinn þá staðið yfir í 12 ár. Arið 1837 hafði Vetrarhöllin brunnið svo sem fyrr getur — aðeins framhliðin og nokkrir salir stóðu upp úr rústun- um. Nú varð að endurbyggja nærri alla höllina og þá ákvað Nikulás að reisa einnig hina löngu fyrirhug- uðu viðbótarsafnbyggingu. í því skyni réð hann byggingarmeistar- ann Leo von Klenze frá Munchen til að skipuleggja bygginguna ásamt Rússunum Efimow og Stassow. Það er því lítil furða, að Eremitage-byggingin svipar til Alte Pinakotek og Glyptoteksins í Múnchen, sem höfðu verið opnuð 15 og 22 árum áður af Ludwig I. Bæjarkonungi, en bæði þessi söfn hafði von Klenze skipulagt. — Eremitage-safnið taldi á þeim tíma 4500 málverk. Sonur Nikulásar, Alexander II, settist í valdastól árið 1855. Hann hlaut illan endi 21 ári síðar, er hann var drepinn í sprengjutil- ræði, — hann stóð þó fyrir ýmsum markverðum endurbótum, t.d. afnámi ánauðar. Hann mun hafa haft lítinn áhuga á Eremitage-safninu en það var heldur ekki nauðsyn að svo komnu máli, því að nú var safnið orðið að sjálfstæðri stofnun og safnstjórn- in réð kaupum á listaverkum og endurbótum á byggingunni. Um- fangsmikil skrá var gerð yfir safnið og hún svo endurbætt verulega og kom þá þar m.a. við sögu Thoré-Bilrger, sá hinn sami og uppgötvaði Vermeer frá Delft. Það var minna keypt til safnsins en á dögum Nikulásar en meðal listaverka er voru föluð þá má nefna hina frægu mynd Leonardo da Vinci „Madonna Litta“, sem gegnir þar sama hlutverki pg Mona Lisa í Louvre, sem mynd er allir vilja augum líta enda er hún undurfögur. Næstu tveir keisarar, Alexand- er III og Nikulás II, komu ekki tcljandi við sögu Eremitage-safnsins, en það stækkaðr stöðugt og varð eitt besta og nafntogaðasta safn veraldar, sem flesta þá er unna góðum málverkum dreymir um að heimsækja. Hér hefur verið stiklað á stóru um uppruna, þróun og viðgang Eremitage-sfnsins og er þetta frjálsleg samantekt eftir lestur formála Pierre Descargues í bók um helstu verk safnsins. Næsta grein fjallar um ferð til Lenin- grad, heimsókn á safnið, Sumar- höll Péturs mikla, Vetrarhöll og Isaks-kirkju. Það er óhætt að segja, að nýju haustflíkurnar líti út fyrir að vera sæmilega skjólgóðar, þ.e.a.s. ef klæðst er hverri flíkinni yfir aðra, eins og sýnt er á þessum nýju tízkumyndum frá London. Vestin halda velli, eins og sjá má, enda er það mjög klæðileg flík fyrir allan aldur. Vestin eru af öllum gerðum og stærðum, allt frá litlum „bolero" vestum til stórra, sem hægt er að fara í utan yfir jakkann eða kápuna. Efnin eru allt frá silki yfir í þykk ullarefni og flauel, sömuleiðis þykir vel hæfa að vera í „quilteruðum" vestum yfir blússur eða kjóla. Hér eru sem sagt örlítið sýnishorn af því, sem í vændum er í tízkuheimin- um, og er víst engin hætta á öðru, en að við höfum þessar dagskipanir hæst- ráðenda í huga, ef við ætlum að hressa eitthvað upp á klæðnaðinn fyrir veturinn. Umsjón: B&rgljót Ingólfsdóttir Hver flíkin yfir annarri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.