Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 40
rUíiI/YSINíiASÍMJNN EK:
22480
2H*rjjnnl>Tní>iÍ>
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978
Stríðsyf-
irlýsing
— segir formaður
Sambands grunn-
skólakennara
Gangbrautin yfir Suðurlandsbraut. Þarna var ekið á Ingibjörgu Sólveigu — Gangbrautin yfir Strandgötu. Þarna var ekið á
Hlöðversdóttur. Gígju Magnúsdóttur.
Gangbrautarslysin ógnvekjandi:
Tvær 11 ára telpur
látast á tæpri viku
ELLEFU ára giimul stúlka,
Gígja Magnúsdóttir, Kvíholti 10,
Ilafnarfirði, lézt í Borgarspítal-
anum í fyrrinótt af vnldum
mciðsla. sem hún hlaut þegar
bifreið ók á hana á gangbraut í
Ilafnarfirði á fimmtudaginn.
Þetta slys verður tæpri viku
eftir að jafnaldra Gígju heitinn-
ar. Ingibjörg Sólveig Illöðvers-
dóttir. beið bana í gangbrautar
siysi á Suðurlandsbraut í
Reykjavík.
Hin tíðu og alvarlegu slys
undanfarna daga hafa vakið ugg
og óhug fólks. Framundan er
skammdegið, hættulegasti tími
umferðarinnar. Umferðarráð og
lögregluyfirvöld hafa þungar
áhyggjur vegna slysanna í um-
ferðinni og hafa skorað á vegfar-
endur að gæta ýtrustu varúðar í
umferðinni svo að takast megi að
stemma stigu við hinum tíðu og
Ingibjörg Sólveig Hlöðversdóttir.
alvarlegu umferðarslysum. í frétt
frá Umferðarráði eru ökumenn
hvattir til þess að gefa gang-
Gígja Magnúsdóttir.
brautum sérstakan gaum og
gangandi vegfarendur hvattir til
þess að nota þær rétt.
Gígja heitin var á leið vestur
yfir Strandgötuna í Hafnarfirði
um fjögurleytið á fimmtudaginn
þegar fólksbifreið bar að og ók á
hana á gangbrautinni, sem liggur
frá íþróttahúsinu yfir að strætis-
vagnabiðskýli. Hlaut hún svo
alvarleg meiðsli, að lífi hennar
varð ekki bjargað. A þessum stað
eru slys tíð að sögn lögreglunnar
og hafa komið fram óskir um að
færa biðskýlið á annan stað, til
þess að draga úr umferð
gangandi vegfarenda og þá fyrst
og fremst barna og unglinga yfir
þessa miklu umferðargötu.
Vegna slyssins í Hafnarfirði
hefur lögreglan þar óskað eftir
því að ökumaður rauðrar bif-
reiðar, sem átti leið um Strand-
götu á sama tíma og slysið varð,
gefi sig fram, þar sem vitni
vantar að slysinu.
Flugleiðir kaupa DC-10 breið-
þotu — Afhent um áramótin
ALVARLEGUR ágreiningur
virðist nú upp kominn milli
grunnskólakennara og fram-
haldsskólakennara vegna kjara-
deilu hinna fyrrnefndu við ríkið
og aðgerða þeirra að neita að
taka við kcnnaranemum á þriðja
ári til æfingakennslu. Ileíur
stjórn Landssamhands fram-
haldsskólakennara hvatt félaga
sína til þess að neita ekki að taka
við kcnnarancmum í æfinga-
kennslu ef þess væri óskað.
Valgeir Gestsson, formaður
Sambands grunnskólakennara,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkveldi, að grunnskólakennarar
litu á þessa yfirlýsingu stjórnar
LSFK sem hreina stríðsyfirlýs-
ingu, sem hafa myndi ófyrirsjáan-
legar afleiðingar f.vrir samskipti
kennarasamtakanna í framtíðinni.
„Þetta er einn ljótasti leikur, sem
ég hef séð í samskiptum stéttarfé-
laga í landinu fyrr og síðar. Þetta
er eitt alvarlegasta mál, sem hent
hefur kennarastéttina félagslega
frá upphafi," sagði Valgeir
Gestsson.
Sjá „Harka færist í kennara-
deiluna" á bls. 3.
Börn safna
undirskrift-
um fyrir gang-
brautarljósum
NOKKRAR stúlkur í Laugar-
ncshverfi hafa hrundið af stað
undirskriítasöínun til þcss að
knýja á um að gangbrautar-
ljós verði sett upp á Suður-
landshraut við Hallarmúla. en
þar lét vinkona þeirra Ingi-
björg Sólveig Hlöðversdóttir.
lííið í umferðarslysi s.l.
laugardag. Ilafa undirtektir
verið mjög jákvæðar og marg-
ir skrifað nöfn sín undir
áskorunina.
Að sögn lögreglunnar er
mikil slysáhætta á þessum stað
því bílaumferð er þarna hröð og
mikil umferð gangandi fólks
yfir götuna. Börn og unglingar
úr Háaleitishverfi eiga þarna
leið um ef þau ætla í sundlaug-
arnar eða íþróttahúsin og
íþróttavellina í Laugardal og
börn úr Laugarneshverfi nota
þessa gangbraut mikið á haust-
in og veturna, en þá leggja þau
gjarnan leið sína í ritfanga-
verzlun í Hallarmúla og kaupa
þar skólavörur.
MORGUNBLADIÐ hafði í gær
samband við Vilhjálm Iljálmarsson
fyrrverandi menntamálaráðherra
og leitaði eftir umsögn hans um
samning pann um gagnkvæm sam-
skipti á íþróttasviðinu sem íslenzka
utanríkisþjónustan hefur undirrit-
að við Rússa. Undir slikan samning
hafði Geir Ilallgrímsson neitað að
undirrita síðastliðið haust.
STJÓRN Flugleiða hefur ákveðið
að kaupa DC-10 breiðþotu og hefur
félagið gert kaupleigusamning við
bandaríska fyrirtækið Seaboard um
kaup á einni vél. Douglas-verk-
smiðjurnar afhentu hana fyrir
Vilhjálmur kvaðst ekki muna
sérstaklega eftir þessari samnings-
gerð, en hann hefði verið rétt
orðaður við sig á sínum tíma. „Þetta
er einhver rammasamningurinn
mjög almennur að ég tei, en Rússar
eru sérlega ýtnir við að koma slíkum
samningum á. Það erfiðasta í þessu
fyrir okkar samningamenn er hins
nokkrum mánuðum til bandaríska
leiguflugfélagsins ONA, en það
hætti starfsemi fyrir skömmu og þá
bauð Seaboard Flugleiðum vélina
með svipuðum skilmálum og giltu
um fyrri vélar Loftleiða þ.e. leiga í
vegar það hve miklum vandkvæðum
það er bundið fyrir okkur að gera
gagnkvæma samninga og þeirra
keppikefli í slíkum málum er að
nema burtu ákvæði sem henta ekki
fyrir litla þjóð í fjárhagslegum
samskiptum við stórar þjóðir.
Að öðru leyti kvaðst hann ekki
þekkja þennan samning.
ákveðinn árafjölda gengur upp í
kaupverð. Samkvæmt upplýsingum
Sam Fondlier fuiltrúa Seaboard
sem Mbl. hafði samband við í
gærkvöldi, verður nýja breiðþotan
afhent Flugleiðum í janúarbyrjun,
en um miðjan desember verður
vélin máluð í hinum íslenzku litum
félagsins.
„Þetta er stórt skref hjá Flug-
leiðurn," sagði Fondlier í samtali við
Mbl. í gærkvöldi, „og við munum sjá
um viðhald vélarinnar, en við höfum
annast allar stærri skoðanir á öðrum:
vélum félagsins síðan 1970.“'
Áætlað er að DC-10 breiðþotan
fljúgi daglega milli Evrópu og
Bandaríkjanna ásamt DC-8 þotum
félagsins. DC-10 vélin getur haft allt
að 380 sæti fyrir farþega, en DC-8
vélar Flugleiða eru með 259 sæti.
Flugleiðir áætla að hafa 360 sæti í
vélinni. Breiðþota Flugleiða er
sérstaklega styrkt þannig að hún
getur stundað vöruflutninga.
Ekki er unnt að fá vélar af þessari
gerð keyptar frá verksmiðjunum
fyrr en árið 1980—1981 og þeir
samningar sem eru gerðir þar að
lútandi í dag miða við 46 milljónir
dollara eða um 14 milljarða
íslenzkra króna fyrir flugvélina og
síðan 5—6 milljónir dollara fyrir
tæki og annan útbúnað eða tæpa 2
milljarða að auki.
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Rússar eru ýtnir
í samningagerð
• -
m -iw'íia—r . x
Ein af DC-10 breiðþotum SAS, eins og vél Flugleiða.