Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Minnisblað fyr- ir leigj endur frá leigjendasamtökum Fjölmargir leigjendur hafa leitaö ráöa hjá Leigjendasam- tökunum frá stofnun þeirra í vor. í því skyni að gefa sem flestum leigjendum íbúðarhúsnæðis til kynna réttarstöðu þeirra í dag, leyfir stjórn Leigjendasamtak- anna sér að senda öllum dagblöð- um eftirfarandi samantekt úr bók Björns Þ. Guðmundssonar, „Lög- bókin þín,“ sem gefin var út af Erni og Örlygi hf. árið 1973. Húsaleiga er meðal mikilvægari leigusamninga. Leigusala (þeas. eiganda eða umboðsmanni hans) er skylt að láta leigutaka leiguíbúð í té í leigufæru ástandi á tilskildum tíma. Honum er og skylt að halda íbúðinni í leigufæru ástandi allan leigutímann, nema hún eyðileggist af óviðráðanlegum ástæðum, s.s. jarðskjálfta, snjóflóði eða bruna. Verulegar vanefndir heimiia leigu- taka riftun og getur leigutaki þá flutt úr íbúðinni og þarf ekki að greiða leigu, nema fyrir þann tíma, sem hann hefur búið í íbúðinni. Leigutaki getur og, ef hann kýs það heldur, gert eða látið gera við galla á íbúðinni á kostnað leigusala. Getur hann síðan dregið kostnaðinn frá húsaleigunni. Um ástand íbúðar er öruggast að fá mat dómkvaddra manna, ef um það verður ágreiningur. Sá er vill fá framkvæmt mat (t.d. vegna galla á húsnæðinu) snýr sér til viðkomandi héraðs- dómara (í Reykjavík til borgar- dómaraembættisins) með beiðni um dómkvaðningu matsmanna. Leigjanda ber að fara vel með húsnæðið. Vanefndir í því efni geta varðað riftun leigusamnings og útburði úr húsnæðinu, en leigusali getur þó jafnframt krafið leigutaka um leigu fyrir það, sem er eftir leigutímabilsins, nema honum bjóðist annar tækur leigj- andi. Sé samningi þannig rift fyrir vanefnd leigjanda, er leigan öll fallin í gjalddaga. Þegar hús eða íbúð er tekin á leigu, er venja, að leigjandinn megi framleigja einstök herbergi, nema það sé sérstaklega bannað í húsaleigusamningi. Framleigutaki nýtur þá síns réttar aðeins í skjóli réttar þess, sem hefur íbúðina eða húsið á leigu. Verði því t.d. aðalleigjandi borinn út vegna vanskila, verður framleigutaki einnig að víkja, ef húseigandi krefst. Um leigu einstakra her- bergja gilda annars að öllu veru- legu sömu reglur og um íbúðaleigu. Húsaleigugjald getur verið miðað við allt leigutímabil eða styttri tíma, t.d. mánuð, eins og tíðast er. Hámark þess er bundið verð- stöðvunarlögum (bráðabirgðalög frá 9. september s.l.). Stundum er áskilið, að húsaleigugjald sé greitt fyrirfram, en sé ekki sérstaklega um það samið, mun litið svo á, að upphæðina eigi að greiða eftir á. Leigjandi á að færa leigusala leigugjaldið, nema öðru vísi sé um samið. Vanskil leigjanda varða riftun leigusamnings og útburði, séu vanskilin veruleg. Skatta og skyldur af hinu leigða húsnæði er leigjanda ekki skylt að greiða, nema svo sé um samið. Ilúsaleigusamningur. Um leigu húsnæðis er tryggast að gera skriflegan samning um öll leigu- kjör. Ekki er þörf á að þinglýsa venjulegum húsaleigusamningi, en séu þeir að einhverju leyti frá- brugðnir því, sem venjulegt er, t.d. óuppsegjanlegir af hálfu hús- eiganda, leigutími langur o.s.frv., er öruggara að láta þinglýsa samningi. Þó að eigendaskipti verði að húseign, heldur húsa- leigusamningur gildi sínu. Leigjanda verður ekki vikið úr húsnæði á leigutímanum, meðan hann stendur í skilum og fer Hafnarframkvæmdir í Bolungarvík: Fjárskortur tefur upp- setningu stálþilsins EFNI í stálþilið á nýja hafnar- garðinn í Bolungarvík var ný- lega skipað á land i Bolungarvík, en vegna fjárskorts mun ekki verða unnt að ganga frá því á þessu ári eins og fyrirhugað hafði verið, að því er Guðmund- ur Kristjánsson bæjarstjóri tjáði Morgunblaðinu. í sumar hefur verið unnið að dýpkun hafnarinnar viö garð- inn, þannig að loðnuskip geti lagst þar að, en lokið var við gerð garðsins árið 1972, að sögn bæjarstjóra. Stálþilið mun verða um það bil 50 metra langt, Hafnargarðurinn í aðstæður skapist til Bolungarvík, en á hann miðjan á hið 50 metra langa stálþil að koma, þannig að loðnulöndunar. Dæluskipið Grettir til vinstri. Ljósm.i Anders Hansen. Hér er verið að taka á land efnið í stálþilið nýja á hafnargarðinn í Bolungarvík. og á það að koma á viðlegugarð- inn miðjan, en hann er 160 metra langur. Auk þess sem tilkoma stálþilsins mun auð- velda loðnulöndun eins og fyrr sagði, þá er gert ráð fyrir því að báðir togarar Bolvíkinga muni geta legið við þilið. Nú er loðnu landað við brim- brjótinn, og þarf að aka henni þaðan í verksmiðjuna, um það bil tveggja kílómetra leið, fram og til baka, að því er Guðmund- ur Kristjánsson bæjarstjóri sagði. Að sögn Guðmundar er áætlaður kostnaður við þessar miklu hafnarframkvæmdir um 140 milljónir króna, það er stálþilið og dýpkunarfram- kvæmdirnar, og hefur þegar verið kostað til um það bil 90 milljónum króna af þeirri upp- hæð, þegar eftir er að koma stálþilinu fyrir. Framkvæmdir við uppsetningu stálþilsins geta ekki hafist fyrr en á næsta ári, þar sem fjárveiting ríkifeins til þessara framkvæmda miðaðist við gamla kostnaðaráætlun, sem ekki dugði miðað við núverandi verðiag. Enn um sinn verða Bolvíking- ar því að aka loðnuaflanum frá brimbrjótnum að verksmiðj- unni, en eins og fyrr segir kvaðst bæjarstjóri vonast til að unnt yrði að ljúka uppsetningu þiisins á næsta ári. Ungir Sjálfstæðismenn: Afturvirk skattlagning er í fullkominni andstöðu við ríkjandi réttarhugmyndir STJÓRN Sambands ungra sjálf- stæðismanna samþykkti nýverið ályktun um aðgerðir vinstri stjórnarinnar í efnahagsmálum og fer ályktunin hér á eftir« „Stjórn S.U.S. lýsir eindreginni andstöðu við efnahagsstefnu ríkis- stjórnarinnar. Gildistaka kjara- samninganna að því marki, sem stjórnin hefur ákveðið er of kostnaðarsöm fyrir þjóðféiagið. Þessi ákvörðun hefur einnig leitt til þess, að þeir allra tekjulægstu fá nú lægri laun en maíráðstafanir fyrri ríkisstjórnar gerðu ráð fyrir. Fölsun vísitölunnar með afnámi söluskatts á sumum matvörum og auknum niðurgreiðslum hefur ekki í för með sér raunverulegar kjarabætur. Hækkun vörugjalds á vörum, sem ekki eru í vísitölu mun ásamt verðhækkunaráhrifum gengisfellingarinnar eyða þeirri kjarabót, sem ná átti með lækkun vísitöluvaranna. Vísitölufölsunin mun leiða til verulegs halla á ríkissjóði á þessu sæmilega með húsnæðið, enda þótt húsið sé selt eða leigusali verði gjaldþrota. Húsaleigutími. Leigutími íbúða fer eftir húsaleigusamningi eða venju. Uppsagnarfrestur leigu- samninga að íbúð er víðast hvar skv. venju 3 mánuðir miðað við 1. október og 14. maí. Uppsagnar- frestur leigusamninga um'einstök herbergi er þó almennt talinn styttri, hálfur mánuður eða einn mánuður. (hér lýkur ívitnun í „Löghókin þín") Ifúsaleigusamningur IIús- eigendafélags Reykjavíkur. í nýrri kennslubók sem lesin er í Háskólanum, segir Páll Sigurðs- son kennari í Lagadeild: „Á vegum Húseigend.afélags Reykjavíkur hefur verið samið staðlað form fyrir notkun húsaleigusamninga, og er notkun þess almenn hér í borg. Er hér að öllu leyti um einhliða skilmála að ræða en þó er iðulega vikið frá eftir atvikum. Skilmálarnir miðast mjög við hagsmuni leigusala og er þar m.a. kveðið á um rétt leigusala (eða eigandans) til að víkja leigutaka fyrirvaralaust úr hinu leigða húsnæði, ef leigutaki efnir eigi ákvæði samningsins." í nýlegu blaðaviðtali um þennan samning segir Ragnar Aðalsteins- son hæstaréttarlögmaður m.a.: „Þetta er staðlaður samningur og svo einhliða saminn, að dómstólar mundu aldrei beita ýmsum ákvæð- um samningsins eins og þau eru þar orðuð. Einhliða, staðlaðir samningar, samdir af sterkari aðila í samningssambandi, eru að jafnaði túlkaðir þröngt af dóm- stólum og gagnaðila í hag. Samningsform Húseigendafélags- ins gefur leigjandanum enga möguleika á að semja, hann verður ári. Hallarekstur ríkissjóðs mun nú eins og áður leiða til aukinnar verðbólgu. Áform um að ná jöfnuði í ríkisfjármálum síðar breyta engu um verðbólguáhrif vegna þess hallareksturs, sem nú er stefnt í. Þá fordæmir stjórn S.U.S. harð- lega þá afturvirku skattlagningu, sem ákveðin hefur verið. Hún er í fullkominni andstöðu við ríkjandi réttarhugmyndir. Skattlanging á atvinnureksturinn lýsir skilnings- leysi stjórnvalda á þeim atvinnu- legu vandamálum, sem við höfum átt við að stríða. Stjórn S.U.S. átelur, að ríkis- stjórnin skuli áfram áforma að nota Verðjöfnunarsjóð fisk- iðnaðarins sem verðbólgustyrktar- sjóð í stað þess að búa fiskvinnsl- unni þau rekstrarskilyrði að geta greitt í sjóðinn þegar verðlag á 23 annaðhvort að skrifa undir eða ekki.“ „Almenna reglan er sú, að leigutaki ber ábyrgð á því tjóni sem hann veldur, en viðhaldið er á kostnað leigusala (eigandans). I samningseyðublaði Húseigenda- félagsins er gengið of langt, því ekki er hægt að ætlast til að leigutakar sjái um viðhald á húseign, sem getur numið miklum fjárhæðum." „í fjölbýlishúsum er gert ráð fyrir í samningsformi Húseig- endafélagsins að leigutaki greiði fyrir eigin reikning hlut íbúðar- innar í sameiginlegum kostnaði húseignarinnar. í framkvæmd mundi þetta þýða, að þar sem lögð eru á húsgjöld sem taka ekki aðeins til rekstrar heldur líka til viðhalds á sameign og jafnvel til framkvæmdahluta á sameign, þyrfti leigutaki að borga fyrir það. Þetta er ósanngjarnt og stæðist ekki fyrir dómi.“ Veruleg vanskil af hálfu leigjandans eru í samningsform- inu of þröngt túlkuð og of þungar kvaðir lagðar á leigjandann ef hann kæmist í vanskil. Önnur ákvæði eru bersýnilega ósann- gjörn, og hafa dómstólar beina heimild til þess samkvæmt lögum, að víkja til hiiðar samningsákvæð- um sem eru á þann hátt bersýni- lega ósanngjörn. „Ákaflega mörgum atriðum í þessu samningsformi yrði vikið til hliðar vegna þess hversu einhliða og ósanngjörn þau eru,“ sagði Ragnar Aðalsteinsson að lokum í viðtalinu. Leigjendasamtökin hafa tekið á leigu skrifstofuhúsnæði að Bók- hlöðustíg 7 í Reykjavík, og munu á næstunni auglýsa símanúmer og skrifstofutíma. afurðum okkar erlendis er í hámarki eins og nú á sér stað. Fráleitt er að halda áfram þeirri stefnu sem fylgt hefur verið, að miða gengi krónunnar við núll- rekstur helztu útflutningsgreina. Við slíkar aðstæður verður fisk- vinnslan aldrei annað en olnboga- barn í faðmi ríkisvaldsins og allir möguleikar til að efla útflútnings- iðnað eru heftir. Bráðabirgðaráðstafanir ríkis- stjórnarinnar duga í besta falli í nokkra mánuði til þess að koma í vég fyrir stöðvun atvinnuveganna. Og þegar til lengdar lætur munu þær auka þá efnahagslegu ringul- reið, sem hér hefur ríkt undanfar- in ár. Ríkisumsvifin vaxa en réttur einstaklingsins verður minni. Vísi- tölufölsunin nú er sama eðlis og beitt var af f.vrri vinstri stjórn. Það hefur hræðilegar afleiðingar að endurtaka nú þann leik.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.