Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Þung verk eiga betur við Norð- urlandabúa Rætt við Toril Gording, norska leikkonu, sem hér var fyrir skömmu Toril Gording íyrir utan Hótel Sögui Ibsen er alltaf jafnmikið í takt við tímann. NÝLEGA var hér á ferð norska leikkonan Toril Gording og flutti dagskrá um leikritun Henriks Ibsens í Norræna hús- inu. Þar var húsfyllir. Daginn eftir ræddi leikkonan við blaða- mann Mbl. um norrænt leikhús, Ibsen og sjálfa sig. Toril Gording er fastráðin við norska þjóðleikhúsið. Þar, sem víðar, er nú minnzt 150 ára afmælis þessa norska leikrita- skálds, sem kallaður hefur verið „faðir nútímaleikritunar". Leik- konan játti því, að áhugi leik- húsa víða um heim á verkum Ibsens gengi sífellt í bylgjum. „Þegar Ibsen er tekinn til sýninga á ný eftir nokkurt hlé, kemur alltaf í ljós, að hann er jafnmikið í takt við tímann og hann var,“ sagði hún. „Hann dregur mál sitt svo mikið saman. Ég held þetta nakta, blátt-áfram mál persónanna orsaki, hvað verk hans höfða til okkar nú. Og svo fjallar hann um þvílíka árekstra manna, sem alltaf munu eiga sér stað. í Þjóðníðingi er deilt um sýkingu í almenningsbaði, en þar er í rauninni verið að fjalla um þennan eilífa einstakling, sem alltaf mun rísa upp gegn fjöld- anum.“ Að grafa í sálarlíf sitt Toril Gording gerði grein fyrir eigin túlkun á leikritun Ibsens: „I dagskrá minni geng ég út frá ákveðnum þætti í fjöl- mörgum verka Ibsens, sem er köllun manna til einhvers ákveðins verks. Þar má nefna prestinn Brand, Pétur Gaut eða Sólr.es byggingarmeistara. Þörf slíkra manna fyrir að sinna lífskölluninni kemur oft hart niður á samskiptum við annað fólk og nánasta umhverfi þeirra getur orðið sviptingasamt. A síðari tímum hafa komið upp slíkir menn, eins og Albert Schweitzer, Solzhenitsyn eða Sakharov, sem sýna okkur, hvað leikrit Ibsens halda gildi sínu. Það eru líka margar konur nú sem líður eins og Nóru (Brúðu- heimilið), finnst þær verða að yfirgefa heimili sitt til að geta lifað eigin lífi.“ „Ég kalla dagskrá mína um Ibsen „Bergmannen i norsk digtning", vegna þess að í ljóði sem hann orti og kallaði Berg- mannen speglar hann í rauninni einkenni sitt sem rithöfundar. Ljóðið fjallar um mann, sem grefur sig sífellt dýpra og dýpra í bjargið í leit að dýrum málmum. Ibsen sjálfur var stöðugt að grafa dýpra í sitt eigið sálarlíf, svo honum mætti takast betur að skilja mannlífið í kringum sig. Á legsteini hans er einmitt vitnað í ljóðið Berg- mannen. — Þetta á auðvitað líka að vera regla leikarans í starfi sínu; að kryfja sífellt sjálfan sig og það sem hann sér til þess að skilja betur samfélag- ið og læra af því. Leikari má ekki standa kyrr. Tíminn rennur stöðugt áfram, og ef leikarinn fylgir honum ekki, fer honum aftur. Þetta á við um alla listamenn, já, í raun alla menn.“ Sjálf hefur Toril Gording ekki leikið mikið í Ibsen-sýningum. Hún hefur leikið í Brandi og Pétri Gaut á frönsku, fyrir franska skólanema, og nýverið tók hún ásamt einum öðrum leikara þátt í grímuklæddri uppfærslu á Brandi í þjóðleik- húsinu. En hún hefur aðallega leikið í hvers kyns nútímaleik- ritum. „Því miður," sagði hún, „því að ég hef miklu betri tengsl við tíma Shakespeares eða klassísku frönsku leikjanna en okkar tíma. Ég á léttara með að setja mig inn í menningu þeirra tíma. Eg er sennilega ekki dæmigerð 1978 manneskja." 23 sögðu sig úr norsku leikarasamtökunum Toril Gording sagði aðalvanda norsks leikhúss nú vera skort á góðum leikstjórum. „Við eigum marga góða leikara, en það koma alltaf upp vandamál þegar velja á leikstjóra að sýningu. Það kemur sér mjög illa að geta ekki menntað leikstjóra. Svíar hins vegar búa vel, þar sem þeir hafa eignast heila kynslóð leik- stjóra, sem er arftaki þess „skóla" sem Ingmar Bergmann tilheyrði. — Svo er offramboð á leikurum auðvitað líka vanda- mál hjá okkur. Á hverju ári útskrifast 10 leiklistarnemar, og þetta er anzi stór hópur ungs fólks sem fær ekkert að gera. Að mínu áliti er þörf á því að kanna hverju sinni þörf leikhúsa fyrir unga leikara og laga námið að því.“ Nýlega sögðu 23 leikarar sig úr samtökum leikara í Noregi og stofnuðu sjálfstæðan hóp. Toril Gording var ein þeirra. „Ástæðan fyrir þessari úrsögn var óánægja með það, hvað samtökin voru farin að ræða mikið hvers kyns pólitísk mál, en minna mál sem beint snertu leikarastéttina og hagsmunamál hennar,“ sagði hún. „í lögum félagsins var tekið fram að það skyldi vera ópólitískt og fyrst og fremst koma fram sem hags- munasamtök leikara. Þessum lögum hefur nú verið breytt og félagið tekur pólitíska afstöðu til atburða í þjóðfélaginu, kjara- mála, verkfalla o.s.frv. Þessi 23 manna hópur vill einbeita sér að hagsmunamálum leikara. Fyrsta skrefið er að fá rétt til að skipta við ráðamenn sem full- trúi stéttarinnar, en síðan vonum við að fleiri bætist í hópinn. Það er mjög mikils virði að vera í starfi sem maður hefur áhuga á,“ sagði Gording. „Og þar sem leikhúsin eiga í erfið- leikum má ekki eingöngu hugsa um að fá meiri laun og lengra frí, — launin geta verið meiri í öðrum störfum, sem veita ekki sömu ánægju." Við ræddum leikhús á Norð- urlöndum, og Toril Gording sagði erfitt að ræða einhver sameiginleg einkenni á leik- menningu landanna. „Við erum svo ótrúlega ólíkir, þessir 5 bræður í norðri,“ sagði hún. „En vissulega erum við gjörn á að þyngja yfirbragð sýninganna. Við eigum oft gott með að túlka þung, raunsæisleg verk, en er ekki eins eiginlegt að leika i absúrd-leikritum eða þessum fisléttu frönsku gamanleikjum. Það fellur ekki jafnvel að eðlinu." Áformað að undirrita hafréttarsáttmála 1980 Fréttaritari stórblaðsins The Times, Marcel Berlins, sem fylgd- ist með nýlokinni hafréttarráð- stefnu í New York, segir í grein um ráðstefnuna að reikna megi með að undirritaður verði hafrétt- arsáttmáli í Caracas á árinu 1980. Eftir fjögurra vikna funda törn í New York sjáist nú fyrir endann á ráðstefnuhaldi um hafréttarmál. Því marki sé þá náð, þrátt fyrir takmarkaðan framgang mála á þessum mánuði, nema hvað varðar mengun hafsins. Ákveðinn sé sex vikna fundur í Genf 19. marz næstkomandi, sem eigi að Ijúka hinum óformlegu umræðum, er staðið hafi allar götur síðan ráðstefnan byrjaði fyrir fimm árum. Þá megi reikna með annarri sex vikna ráðstefnu í New York haustið 1979. Og ef allt fari að vonum, verði sáttmalinn loks undirritaður í Caracas 1980. — Almennt eru menn sammála um að ráðstefnan sé komin yfir mikilvæga sálræna hindrun með því að setja ákveðin markmið og tímamörk, skrifar hann. Einnig er orðið ljóst að komið var að því marki að þóf um aðgreinda þætti gæti lengur borið ávöxt og nauð- synlegt að líta á samningspakkann í heild og taka til við að prútta og verzla. Verulegur árangur náðist á fundunum í New York um hindr- anir gegn sjavarmengun. Amoco-Cadiz slysið varð veruleg hvatning til þess að ná samkomu- lagi í stórum dráttum um að styrkja vald strandríkja t.il að vernda gegn mengun hafsvæði sín, allt að 200 mílum frá ströndinni. Þeim yrði veittur verulegur réttur til að skoða og stöðva skip, sekta þau og undir vissum kringumstæð- um fangelsa brotlega aðila. Ekki náðist neinn slíkur árang- ur varðandi ákvörðun um ytri mörk landgrunnsins, sem Bretum eru mjög mikilvæg. Öll strandríki munu fá 200 mílna efnahagslög- sögu, en landgrunn sumra þeirra Frá hafréttarráðstefnunni nær út fyrir þau mörk. Viðtekið er, að auðlindir milli 200 mílna og hvaða annarrar línu sem ákveðin kynni að verða, skuli skiptast milli strandríkja og fátækra landa heimsins. En deilt er enn um þaö hvar sú lína eigi að liggja. Arabaríkin vilja ekki að þetta nái út fyrir 200 mílurnar. Rússar hafa stungið upp á 300 mílna fjarlægð frá landi. Bretar styðja írska tillögu, sem er ákaflega flókin og byggir á þykkt setlaga. Annað ófrágengið mál, sem er mikilvægt fyrir Bretland, er réttur landluktra ríkja til hlutdeildar í fiskveiðum innan efnahagslögsögu strandríkja. Hann mundi þýða það að Bretar yrðu að láta af hendi „umframfisk" sinn til landa, sem ekki hafa sömu strandaðstöðu. Snarpir árekstrar milli þróunar- landanna og Bandaríkjanna vegna hugsanlegra réttinda einkafyrir- tækja til að hefja manganvinnslu á hafsbotni settu mjög svip á fundina í New York, en í hafdjúp- inu eru líka nikkel og kobalt, löggjöf um þess háttar rekstur bíður samþykkis í Bandaríkja- þingi. Á síðasta degi ráðstefnunn- ar hélt talsmaður 77-ríkja hópsins (sem að vísu nær nú yfir meira en 100 ríki), því fram að einhliða ákvörðun af því tagi færi í bága við alþjóðalög og væri andstæð stefnu Sameinuðu þjóðanna um að úthöfin séu „sameiginleg arfleifð mannkynsins“. Aðgerðir af þessu tagi mundu stofna allri hafréttar- ráðstefnunni í hættu með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. Hann hvatti Bandaríkin, svo og önnur ríki sem hugsanlega væru að hugsa til hreyfings, til að bíða þar til hafréttarráðstefna væri búin að ganga frá þessu atriði. Fengu þessar þjóðir stuðning Sovétríkj- anna og sumra Norðurlanda. Rök Bandaríkjanna voru þau, að ekki yrði hvort eð er mögulegt að hefjast handa fyrr en eftir fimm ár, þótt samþykkt yrðu lög, og þá mundi hafréttarsáttmáli liggja fyrir. Elliot Richardson fulltrúi Bandaríkjamanna, sagði líka, að stjórn Carters væri lögunum meðmælt vegna þess að fyrirtækin mundu ella hætta við allar fyrir- ætlanir sínar og leysa upp hópa tæknimanna, sem mundi leiða til þess að engir málmar yrðu unnir af hafsbotni. Fleiri lönd eru með löfCgjöf í undirbúningi um náma- vinnslu í úthöfunum, svo sem Japan, Vestur-Þýzkaland, Frakk- land og Holland og bresk fyrirtæki eru með í undirbúningnum. Þróun- arlöndin vilja að námufélögin greiði allt að einni milljón dala eða 510 þúsund pund fyrir námurétt- indin og að auki 10 hundraðshluta af málminum, sem unnin er. Þróuðu löndin telja aftur á móti ósanngjarnt að leggja slíka byrði á þau áður en svo mikið sem er vitað hvort hægt sé að vinna málma þarna. Þeir vilja að greiðslur verði fremur miðaðar við árangur og ágóða.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.