Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Karfan af stað í dag REYKJAVÍKURMÓTIÐ í körfuknattleik hefst í dag. Ef dæma má liðin frá íslandsmótinu í fyrra, má búast við geysiharðri og spennandi keppni. Af þeim 6 liðum, sem þátt taka í mótinu, eru 4 sem leika í hinni nýstofnuðu úrvalsdeild. Þau eru ÍR, ÍS, Valur og núvejrandi Reykjavíkurmeistarar KR. Auk þeirra eru 1. deildar liðin Fram og Ármann. Öll eiga þessi lið það sameiginlegt, að innan vébanda þeirra eru Bandaríkjamenn, sem er ætlað, eins og skáldið sagði, að lyfta körfuknattleiknum „upp á æðra plan“. Mótið hefst í dag í Hagaskóla kl.l 14.00, með leik Armanns og Fram. Þarna leika þau lið, sem trúlega koma til með að berjast um sæti í úrvalsdeildinni að ári. Armenn- ingar tefla fram risanum Steu Jackson, en Framarar, sem eru nú með Bandaríkjamann í fyrsta skipti, hafa fengið til liðs við sig John Johnson, sem ætlað er að hæta úr bakvarðaleysi liðsins. Að leik Armanns og Fram loknum um kl. 15.30 leika erki- fjendurnir KR og ÍR. Nokkrar breytingar hafa átt sér stað hjá báðum liðum. Kolbeinn Kristins- son er á ný kominn til liðs við sína fyrri félaga, auk þess sem Banda- ríkjamaðurinn Paul Stewart mun leika með liðinu í vetur. Erlendur Markússon er hins vegar farinn norður og mun leika með liði Þórs í vetur. KR-ingar hafa hins vegar misst þá Kolbein Pálsson og Kristin Stefánsson, sem leggja nú skóna endanlega á hilluna. Sem kunnugt er leikur blökkumaðurinn John Hudson nú með KR-ingum og mun hann einnig sjá um þjálfun liðsins. Leikir þessara liðá hafa ætíð verið athygli verðir og er ekki að efa að svo verði einnig nú. Síðasti leikur dagsins verður milli IS og Vals og hefst hann um kl. 17. Báðum þessum liðum er spáð miklum frama í vetur og er skemmst að minnast viðureignar liðanna í úrslitum bikarkeppninn- ar í fyrra. Bæði liðin tefla fram nánast óbreyttum liðum frá fyrra misseri, nema hvað Kolbeinn Kristinsson hefur yfirgefið Stúd- enta. A sunnudaginn heldur mótið áfram og verður þá leikin heil umferð. Fyrsti leikurinn hefst kl. 13.30 og eigast þá við KR og Ármann. Að þeim leik loknum leika ÍR og ÍS og hefst sá leikur um kl. 15.00. 2. umferð lýkur síðan með leik Fram og Vals, sem hefst væntanlega um kl. 16.30. Allir leikir mótsins fara fram í íþrótta- húsi Hagaskóla. Framfarir körfuknattleiks- manna og tilkoma Bandaríkja- mannanna gefa góð fyrirheit um spennandi keppni og eru aðdáend- ur hvattir til að láta sig ekki vanta. Öster að stínga af Hörkuleik- ir á skján- um í dag — Landsleikurinn verður á dagskrá sjónvarpsins á sunnudagskvöldið klukkan 22.10. Fyrirhugað var að sýna hann í íþróttaþættin- um í dag, en hann kemst ekki til landsins í tæka tíð — sagði Bjarni Felixson í símtali í gær. Leikurinn verður sýndur í heild og verður merkilegt og fróðlegt að sjá brotið fræga hjá Krol gegn Pétri Péturssyni snemma í fyrri hálfleik. Þá lét Bjarni þess einnig getið, að í ensku knattspyrnunni yrði á dagskrá leikur Liver- pool og Tottenham, en leik- urinn sá hefur vakið hvað mesta athyglina í Englandi í haust, enda lauk honum með 7—0 stórsigri Liver- pool og sagði Bjarni að þar væri að sjá einhverja bestu knattspyrnu sem hann hefði séð. ÖSTER nálgaðist sænsku meistaratignina enn meira, er liðið vann öruggan sigur á útivelli gegn Hammarby um síðustu helgi. Forysta liðsins er nú 6 stig og þegar aðeins fáar umferðir eru eftir, virðist fátt geta komið í veg fyrir að liðið verði sænskur meistari. Teitur Þórðarsen skoraði ekki mark í leiknum, en í sænskum blöðum er hann titlaður maður leiksins. Dagens Nyheter segir blá- kalt, að Teitur hafi verið yfirburðamaður á vellinum og kaup Östers á íslenska landsmiðsmiðherjanum sé stærsta skýringin á því að liðið siglir nú hraðbyri að sænskri meistaratign. Það voru þeir Thomas Nyman og Peo Bild sem skoruðu mörk Östers gegn Hammarby. Úrslit síðustu umferðar urðu þessii Elfsborg — Götehorg 4-2 Ilammarby — Öster 0-2 Kalmar — Atvidaberg 2-1 Landskrona — Malmö FF 1-1 Vasteras — Norrköping 2-1 Örebro — Ilalmstad 1-1 Staða efstu liðanna er þessii Öster 20 13 6 1 36-15 32 Kalmar 20 10 6 4 31-25 26 Göteborg20 11 3 6 34-22 25 Malmö FF 20 10 5 5 24-12 25 • Teitur Þórðarson, maður leiksins og yfirburðamaður á vellinum. að sögn sænskra hlaða. Rick Hockenos hefur nú sagt skilið við Valsmenn og cr farinn heim til Bandarfkjanna. KR-ingurinn Jón Sigurðsson verður hins vegar í eldlfnunni í dag og á morgun með fclögum sínum. Á myndinni má sjá þá Jón og Hockenos kljást um knöttinn í leik KR og Vals í Islandsmótinu í fyrra. en þær viðureignir voru æsispennandi svo sem ætla má um flesta leiki vetrarins. HOCKENOS FARINN HEIM! ÞJÁLFARI og burðarás Valsliðsins í körfuknatt- leik Rick Hockenos, hefur snúið baki við félögum sínum og fór heim til Bandaríkjanna án þess að kveðja kóng eða prest. Kom þetta verulega á óvart og ekki hvað síst Vals- mönnum, sem ætluðu sér stóra hluti í vetur undir stjórn hans. Það var í vikanni að Hockenos mætti ekki á æfingu og er Valsmenn hugðu að, hverju það sætti komu þeir að tómum kofan- um í orðsins fyllstu merkingu. Brottför Hockenosar mun vera vegna persónulegra vandamala hans heimafyrir, en ekki standa í neinum tengslum við körfuknatt- leikinn. Sem að líkum lætur er þetta mjög bagalegt fyrir Vals- menn, en í dag eiga þeir að leika gegn liði JS í Reykjavíkurmótinu. Verður það að segjast eins og er, að möguleikar Vals á góðum árangri minnkar verulega án Hockenos. Valsmenn ætla þó að kanna þetta mál nánar, enda vart búnir að átta sig á því hvað gerst hefur, en ef Hockenos er alfarinn, ætla þeir að leita fyrir sér með annan Bandaríkjamann. Slíkt er þó háð nokkrum annmörkum, svo sem miklu umstangi og einnig er það, að aðal markaðstímanum er lokið og bestu mennirnir búnir að ráða sig. Þá kemur þetta illa niður á öllum samleik Valsmanna, þar eð finna verður nýjar leikaðferðir með nýjum mönnum. Hvað Hockenos viðvíkur, þá er hann einn skemmtilegasti banda- ríski leikmaðurinn, sem hér hefur leikið og því sannarlega erfitt fyrir Valsmenn að fylla það skarð, sem hann skilur eftir sig. Sem menn muna, var Hockenos kosinn leik- maður íslandsmótsins í fyrra og því leitt að hann sjái sér ekki fært að verja þann titil, en þurfa að skilja við Valsmenn á svo óviður- kvæmilegan hátt. Gísli Dómarar á faraldsfæti ÍSLENSKIR handknatt- leiksdómarar hafa fengið boð um að koma til Nor- egs og Danmerkur í byrj- un nóvember og dæma tvo landsleiki á hvorum stað. Er þetta eitt af mörgum verkefnum sem íslenskir handknattleiksdómarar fá í vetur. í næstu viku heldur einn dómari til Færeyja og dæmir þar iandsleiki Islendinga og Færeyinga, ásamt eina milliríkjadómara Færey- inga. Þá munu þeir Hann- es Þ. Sigurðsson og Karl Jóhannsson dæma leiki í Englandi á næstunni. - þr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.