Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.09.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Fyrrum CIA-for- ingi yfirheyrður Washinviton — 22. sept. Reuter. í DAG var til yfirheyrslu hjá nefndinni. sem nú fæst við endurrannsókn á Kennedy Bandaríkjaforseta. Iíichard llelms. einn af fyrrverandi yfir- miinnum CIA. Taliö er, að Helms hafi verið einn fárra manna innan CIA, sem hjó yfir mikiivæjíri vitneskju um áætlanir Kúbumanna um að ráöa Kennedy af döjium. Mun hann hafa verið þýfgaður um það af nefndinni, hvers vejína hann lét ekki Warren-nefndinni í té ýmsar upplýsinfíar um þetta atriði meðan hún var að rannsaka morðið a Kennedy. Þá átti einnig að spyrja Helms um, hvers vegna CIA hefði ekki á sínum tíma kannað tengsl Lee Harvey Oswalds við ýmsa Kúbani, bæði stuðningsmenn og andstæðinga Castrós. Gerald Ford fyrrum Banda- ríkjaforseti, sem sæti átti í Warren-nefndinni, sagði hins veg- ar í gær, að þótt Helms hefði ekki látið Warren-nefndinni í té þær upplýsingar, sem hann bjó yfir á sínum tíma, breytti það í engu þeirri niðurstöðu, sem nefndin komst að, að Oswald hefði einn staðið að morðinu á Kennedy. Prófsteinn launa- stefnu Callaghans Lond<»n. 22. scptomhor. Rcutcr. RÚMLEGA 3.000 starfs- menn brezku Ford-verk- smiðjanna lögðu niður vinnu í dag þegar stjórn verksmiðjanna bauð þeim 5% launahækkun í stað þeirra 30%, sem starfs- mennirnir fóru fram á. Litið er deiluna sem próf- stein á stefnu ríkisstjórnar James Callaghans í launa- málum, en stjórnin hefur bannað meiri launa- hækkanir en sem nemur 5 af hundraði til júlí 1979. Bæði stjórnvöld og verkalýðs- samtök munu fylgjast náið með deilunni sem nú er komin upp í Ford-verksmiðjunum. Verkalýðs- samtökin höfnuðu stefnu stjórnar- innar í launamálum á ársþingi sínu fyrir skömmu og stéttarfélög 56.000 starfsmanna Ford á Bret- landi hafa t.d. farið fram á 30% hækkun launa. Fulltrúar starfs- mannaðna sögðu í dag, að tilboð verksmiðjanna um 5%. hækkun, sem er í samræmi við stefnu stjórnarinnar, væri háðung. Talsmenn breskra stjórnvalda játuðu í dag, að ekki hefði tekist að koma í veg fyrir að laun hækkuðu meira en um 10 af hundraði síðustu 12 mánuðina eins og takmark stjórnarinnar var. Þeir sögðu að laun hefðu hækkað að jafnaði um 14,2 af hundraði á tímabilinu. Þá sagði Dennis Healy fjár- málaráðherra Breta í dag, að verðbólga tvöfaldaðist á næsta ári ef kröfur um 20% hækkun launa næðu fram að ganga. Andófsmenn í A-Evrópu: Reyna sameiginlega mannréttindabaráttu Varsjá. 22. scptcmbcr. Reutcr. SAMTÖK pólskra og tékk- neskra andófsmanna sendu tilkynningar frá sér sam- tímis í dag þar sem hvatt var til að andófsmenn í AusturEvrópu sameinuð- ust í baráttu sinni fyrir mannréttindum. í tilkynn- ingunni boðuðu andólfs- mennirnir til fundar aust- ur-evrópskra andófsmanna þar sem fjallað skyldi um sameiginleg málefni þeirra. Lögreglan virðist staðráðin í að láta þessar tilraunir ekki ná fram að ganga því hún hóf strax húsleit og gerði upptæk ýmis gögn andófs- mannanna, að því er Jacek Kuron, leiötogi pólskra andófsmanna, skýrði frá í dag. Pólsku og tékknesku andófs- mennirnir hittust á laun við landamæri landanna og ákváðu að sameinast í baráttu sinni fyrir auknum mannréttindum og m.a. gefa út ýmsar yfirlýsingar sam- tímis. Þá ákváðu þeir ennfremur að reyna að efna til samvinnu við skoðanabræður sína í öðrum lönd- um Varsjárbandalagsins. Andófs- mennirnir í Póllandi höfðu þegar Bridgctown. Barhados, 22. septemher. Rcuter. RÍKISSTJÓRN Turks- og Caicoseyja í Karibíska hafinu skýrði frá því í dag, að Bandaríkjamenn hefðu ákveðið að leggja brátt niður herstöðvar sínar á eyjunum og á Antigua, Barbados og á Bahama. Tilkynningin virtist koma ritað bréf til andófsmanna í Búlgaríu, Austur-Þýzkalandi, Rúmeníu, Ungverjalandi og Sovét- ríkjunum þar sem hvatt var til sameiginlegrar baráttu, en lög- reglan gerði þau upptæk í dag. breskum, bandarískum og innlendum embættismönn- um á Barbados á óvart og sögðust þeir ekki kannast við málið. Utanríkisráðherra Barbados neitaði því að Bandaríkjamenn hefðu tilkynnt stjórn hans um lokun herstöðvanna. Hins vegar vildi bandaríski sendiherrann hvorki staðfesta né neita að Bandaríkjastjórn hefði tekið þessa ákvörðun. Bandaríkjamenn loka herstöðvum Brasilía: Stjómarskrá mjak- að 1 lýðræðisátt Palestínukonur hrópa ókvæðisorð um Jimmy Carter Bandaríkjaforseta og Anwar Sadat forseta Egyptalands á fundi í hverfinu Sabra í Beirút, þar sem samkomulaginu í Camp David var mótmælt. Myndin sýnir þegar tvaer AT—6 flugvélar rákust á í Iofti yfir Nevada-eyðimörkinni í Bandaríkjunum á laugardaginn var. Flugmennirnir. sem báðir lctust, tóku þátt í flugkeppni. Annar þeirra var í sinni fyrstu flugkeppni en hinn var þrautreyndur keppnismaður. Peir stóðu báðir á fertugu. Brasiiíu. 22. scpt. — AP. BRASILÍSKA þingið sam- þykkti á fimmtudag breyt- ingartillögu við stjórnar- skrá landsins, þar sem dregið er úr alræðisvaldi forseta herforingjastjórn- arinnar og henni mjakað í lýðræðisátt. Þessi nýju lög taka gildi 1. janúar 1979. Samkvæmt nýju lögunum verður vald forseta landsins á ýmsan hátt takmarkaðra. Til að mynda verður dregið mjög úr dauðadómum og öðrum refsing- um vegna pólitískra glæpa. Sam- kvæmt þessum lögum er forseta heimilt að lýsa yfir byltingar- ástandi í landinu, sem skerðir frelsi manna, en verður að fá samþykki þingsins v,ið slíka yfirlýsingu áður en fimm dagar líða, annars fellur hún úr gildi. Forsetanum verður áfram heimilt að lýsa yfir neyðar- ástandi í landinu án þess að samþykkt þingsins liggi fyrir, en herforingjaráðuneytið verður að samþ.vkkja slíka yfirlýsingu. Tillaga þesSi til breytingar á stjórnarskrá Brasilíu, þar sem herforingjastjórn hefur setið aö völdum frá 1964, var borin upp af forseta landsins, Ernestó Geisel, fyrr á þessu ári. Nú hefur verið ákveðið að kjósa eftirmann hans til næstu sex ára 15. október n.k. og verður það J.B. Figuerido, en hann gegndi embætti forsta á undan Ernesto. Hann er sagður afhuga auknum lýðréttindum. Þrátt fyrir þessi nýju lög þykir talsmönnum eina stjórnarand- stöðuflokksins í Brasilíu of skammt gengið í lýðræðisátt og að enn sé langt í land með að lýðræði komist á í landinu. Fylgi Carters eykst Ncw York. 22. sepícmhcr, AP. VINSÆLDIR Jimmy Cart- crs Bandaríkjaforseta hafa aukist gífurlega að undan- förnu, eða um 16 af hundr- aði frá því að fundinum í Camp David lauk, að því er fram kemur í skoðana- könnun AP og NBC. Band'aríkjamenn telja þó eftir sem áður, að Carter farist stjórn- un innanríkismála ekki vel úr hendi. Þess vegna er talið að hið aukna fylgi forsetans geti reynst brigðult, takist honum ekki að ná betri tökum á efnahags- og orkumálum Bandaríkjanna. Samkvæmt skoðanakönnunum AP og NBC nýtur Carter í dag svipaðra vinsælda og seint á síðasta ári, en 42% aðspurðra töldu hann leysa verk sitt vel af hendi. ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.