Morgunblaðið - 23.09.1978, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.09.1978, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978 Skákáhugi er mikill á Bolungarvík, og fer vaxandi eins og víöa annars staöar á landinu. Þar koma menn á öllum aldri saman til skákæfinga oft í viku, og í Ungmennafélagi Bolungarvíkur er starfandi sérstök tafldeild. Tafldeildin hefur ágæta aöstööu í Sjómannastofunni á Bllungarvík, þar sem fyrir hendi eru taflmenn og borö, klukkur og skákskýringaborö og annaö sem til þarf. Mikill skákáhugi á Bolungarvík Ljósm: Anders Hansen. Sæbjörn Guðfinnsson, t.v. brosleitur á svip yfir góðum leik sem hann sá á einu borðinu. Sæbjörn er formaður Tafldeildar Ungmennafélagsins á Bolungarvík. Er blaðamaður Morgunblaðs- ins var á ferð í Bolungarvík fyrir stuttu, leit hann við á Sjómannastofunni, og ræddi þar við nokkra unga skákmenn sem þar voru að tefla. Þar fundum við meðal ann- arra Sæbjörn Guðfinnsson, sem er formaður Tafldeildarinnar. Sæbjörn sagði, að geysimikill skákáhugi væri á Bolungarvík, og væru margir góðir skákmenn í kaupstaðnum. Sagði Sæbjörn, að skákmenn hefðu löngum notið mikils velvilja forráða- manna Sjómannastofunnar, og væri það öllu skáklífi á Bolung- arvík ómetanlegt. Aðallega sagði Sæbjörn að teflt væri á veturna, en einnig eitthvað yfir sumarmánuðina. Nú í sumar hefði til dæmis verið óvenju mikið teflt, og væri ástæðan sú, að í Bolungarvík hefðu dvalist nokkrir sterkir skákmenn úr Reykjavík í sumar, og væri heimamönnum mikill akkur í að fá að reyna hæfni sína í keppni við þá. Það eru þeir Guðni Sigurbjarnarson, Ásgeir Þ. Árnason, Þorsteinn Þor- steinsson og Bjarni Hjartarson, sem hafa verið við vinnu fyrir vestan í sumar, og sagði Sæ- björn að Bolvíkingar hefðu mikið lært af þeim. Meðal helstu viðburða í skák- lífi Bolvíkinga, er hin árlega bæjarkeppni við Isafjörð. Þá er teflt á 20 borðum, og hafa Bolvíkingar verið sigursælir í þeim tveimur bæjarkeppnum sem fram hafa farið. Árið 1976 sigruðu Bolvíkingar með 18 vinningum gegn tveimur, og árið eftir sigruðu þeir með 11 'h vinningi gegn 8‘/2. Þá má geta þess, að Bolvíking- ar urðu efstir í undanúrslitum Ungmennafélags Islands, þegar teflt var að Núpi, en ekki gekk eins vel þegar komið var á aðalkeppnina á landsmótinu á Selfossi. Núna dagana 15. til 17. september verður svo haldið Vestfjarðamót einstaklinga á Bolungarvík, og eru skákmenn í Bolungarvík bjartsýnir á árang- ur sinna manna. Meðal viðburða í skáklífi þeirra á Bolungarvík undan- farna mánuði má nefna, að þeir Friðrik Ólafsson stórmeistari og bandaríski stórmeistarinn Lom- bardy komu vestur með skömmu millibili og tefldu fjöltefli. Þá má nefna, að Gunnar Gunnarsson hefur komið vestur og þjálfað skákmenn, og hefur allt þetta orðið til að ýta undir þann áhuga sem er fyrir, að sögn Sæbjörns. Þá má ennfremur nefna, að árlega eru haldin ýmis innan- sveitarskákmót á Bolungarvík, svo sm skólamót, firmakeppni, og Bolungarvíkurmót. Að sögn Sæbjörns Guðfinns- sonar eru það milli 12 og 16 manns sem reglulega stunda skákíþróttina í Sjómannastof- unni á Bolungarvík, flestir á aldrinum 11 til 35 ára. Hinir eldri koma svo einnig fram á sjónarsviðið þegar mikið liggur við. - AH. Séð yfir nokkur borð f Sjómannastofunni, þar sem skákáhuga- menn hafa athvarf. Þarna koma saman til skákæfinga 12 til 16 manns að meðaltali, enda eru Bolvfkingar meðal bestu skákmanna á Vestf jörðum. Þeir eru þungt hugsandi þessir skákmenn, þar sem þeir sátu að tafli f Sjómannastofunni á Bolungarvfk. BLÓM VIKUNNAR ® xs£f) UMSJÓN: ÁB. Bláklukkur IV (Campanula) Hvítar klukkur VAXKLUKKA (Camp- anula alliariifolia.) er ættuð frá Kakásus eins og margar af okkar bestu garðplöntum. Hún er lík- lega mjög lítið þekkt hér á landi en hefur þó lengi verið í ræktun í Lysti- garði Akureyrar. Hún blómstrar þar vel, en seint, eftir miðjan ágúst. Blómin eru í löngum gisnum klösum um 30 sm. háum. Þau eru hang- andi og snjóhvít en bik- arblöð og stönglar eru brúnleit. Laufblöðin eru flest í hverfingu við jörð, aði sumarið eftir og síðan og hefur reynst álíka skriðul og höfuðklukka svo frekar hefur þurft að halda henni í skefjum en hitt. Hún er langt að komin eða frá A-Síberíú og N-Japan og býsna ólík öðrum tegundum sem við þekkjum. Blómklukkurn- ar eru allt að 5 sm á lengd, jafnvíðar og hang- andi, gulhvítar að lit. Að innan eru þær allar rauð- dröfnóttar. Stundum eru þær einnig rauðleitar að utan en eru þá ekki eins fallegar. Blómstönglarnir verða um 30 sm. Kínverj- Dröfnuklukka C. punctata nokkuð stór, breiðhjarta- laga og hærð. Þetta er ljómandi skemmtileg tegund. RÚSSAKLUKKA (C. sarmatica) er náskyld vaxklukku og því nefnd hér þó blómin séu ljós- fjólublá eða blágrá. Hún er svipuð að stærð og vaxtarlagi en stönglarnir liggja meira til hliðar. Laufblöðin eru minni og gráloðin. Hún hefur einn- ig reynst vel í Lystigarði Akureyrar. DRÖFNUKLUKKA (C. punctata — C. nobilis) var alin upp af fræi í Lystigarði Akureyrar vorið 1974. Hún blómstr- ar eru sagðir hafa ræktað þessa tegund og haft á henni mikið dálæti. Mun hún hafa borist frá þeim til Evrópu um miðja síðustu öld. Hennar er að engu getið í þýskum garðyrkjubókum en bæði í Danmörku og Englandi er hún talin viðkvæm, að hún lifi ekki nema í sendnum jarðvegi og með vetrarskýli. í Lystigarð- inum hefur hvorugt verið gert og er það merkilegt ef þessi austurlenska þokkadís ætlar að kunna betur við sig og gera minni kröfur hér norður við íshaf heldur en í suðrænari löndum. H.S.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.