Morgunblaðið - 23.09.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978
19
Bandaríkin:
Skattamál einkenna
alla kosningabaráttu
Washington. 22. scptomber. AP.
SKATTAMÁL verða helzta
bitbein bandarísku þing-
kosninganna í haust og
búist er einnig við að þau
verði snar þáttur í kosn-
ingabaráttunni vegna for-
setakosninganna 1980.
Skattamálin eru einnig
ofarlega á baugi við
kosningar fylkisstjóra.
Megn óánægja ríkir um öll
Bandaríkin með skattana og virð-
ast stjórnmálamenn, einkum
repúblikanar, ætla að færa sér
þessa óánægju í nyt í kosningabar-
áttunni. Repúblikanaflokkurinn
hefur þegar hafið mikla áróðurs-
herferð fyrir áætlunum sínum í
skattamálum og taka þátt í henni
helztu framámenn flokksins. I
tillögunum er m.a. gert ráð fyrir
33% lækkun tekjuskatts.
Demókratar, sem löngum hafa
verið talsmenn mikilla ríkisum-
svifa, haga nú seglum eftir vindum
og boða skattalækkanir. Þeir ráða
lögum og lofum á þingi, en það
samþykkti nýverið skattalækkanir
sem nemur 16.3 milljörðum
Bandaríkjadala.
Olympíuskákmótió:
Heimsmeistarasveit
Rússa sigurstrangleg
Buenos Aires, 22. sept. Reuter.
BÚIZT er við, að yfir 500
keppendur frá rúmlega 60
þjóðum taki þátt í Olympíu-
mótinu í skák, sem fram á að
fara í Buenos Aires dagana
25. október til 12. nóvember
n.k. Rússar, sem fyrirfram
eru taldir sigurstranglegir í
karlaflokki, hafa enn ekki
tilkynnt endanlega um þátt-
töku eða skipan karlasveitar
sinnar, en talið er að hún
verði skipuð þeim Mikael
Tal, Tigran Petrosjan, Boris
Spassky, sem allir eru
fyrrverandi heimsmeistarar
og núverandi og ef til vill
næsta heimsmeistara í skák,
Anatoly Karpov. Helzt er
talið að sveitir Bandaríkj-
anna, V-Þýzkalands, Ung-
verjalands og Tékkóslóvakíu
muni veita Rússum ein-
hverja keppni.
Þetta er í 23. sinn, sem Olympíu-
skákmótið fer fram og hafa
Rússar sigrað langoftast í karla-
flokki og einnig kvennaflokki,
þegar teflt hefur verið í honum.
Væntaniegt Olympíumót fer fram
við River Plate leikvanginn í
Buenos Aires, þar sem heims-
meistarakeppnin í knattsgyrnu fór
fram fyrr í sumar. Áætlaður
kostnaður við mótið er um einn
milljarður dollara.
Sovézki útlaginn Vicktor
Korchnoi, sem nú teflir um
heimsmeistaratitilinn við Karpov
mun tefla með svissnesku sveit-
inni, en hann er svissneskur
ríkisborgari. Ekki er útséð enn
hvort þeim Karpov muni takast að
útkljá einvígið áður en Olympíu-
mótið hefst, en Max Euwe
núverandi forseti FIDE hefur
farið þess á leit við þá að þeir geri
hlé á einvíginu til að taka þátt í
Olympíumótinu, verði einvígi
þeirra ekki lokið.
Eins og fram hefur komið fer
fram forsetakjör FIDE í Buenos
Aires meðan á mótinu stendur og
þar er Friðrik Ólafsson meðal
frambjóðenda.
Maður fórst
í sprengingu
Hackberry, Louisiana. — 22. sept. Reuter.
EINN maður lézt og tveir særðust í
sprengingu á olíuvinnslusvæði um
250 mflur austur af New Orleans í
gær.
Mikiar eldtungur stigu til himins
er sprengingin varð og ekki hafði
tekizt að hefta eldinn síðdegis í gær
nokkrum klukkustundum eftir að
hann braust út. Sprengingin varð er
hinn látni og mennirnir tveir er
særðust voru að dæla olíu í geymi,
sem rúmar sjö milljónir tunna af
olíu. Ekki er vitað hvað olli spreng-
ingunni.
Þetta gerðist 23. september
1976 — Sarkis tekur við em-
bætti forseta Líbanons undir
vernd sýrlenzka hersins.
1973 — Peron kemst aftur til
valda i forsetakosningum í
Argentínu.
1969 — ísraelskar loftárásir á
Egypta við Súez-skurð.
1960 — Krúsjeff ávarpar Alls-
herjarþingiö.
1955 — Lonardi hershöfðingi
verður forseti í stað Peróns.
1952 — Nixon varaforseti neit-
ar ásökunum um fjármálamis-
ferli í kosingabaráttunni.
1951 — Liðsafli SÞ tekur
„Heartbreak Ridge“ í Kóreu.
1926 — Gene Tunney vinnur
heimsmeistaratitilinn í hnefa-
leikum af Jack Dempsey.
1822 — Portúgaiar fá stjórnar-
skrá og þingbundna konungs-
stjórn.
1817 — Spánverjar gera samn-
ing við Breta um afnám þræla-
verziunar.
1780 — Brezki útsendarinn
John Andre afhjúpar samsæri
Benedict Arnolds um að láta
West Point af hendi við Breta.
1779 — Bandaríski flotaforing-
inn John Paul Jones sigrar
brezka herskipið „Countess of
Scarborough".
Afmæli dagsinsi Ágústus keis-
ari Rómverja (63 f.Kr. — 14
e.kr.) — John de Witt, hoilenzk-
ur stjórnmálaleiðtogi
(1625-1672) - Jeremy Collier,
enskur rithöfundur
(1650-1726).
Innlenti Veginn Snorri Sturlu-
son í Re.vkholti 1241. — Fyrir-
heit konungs um þjóðfund 1848.
— Rektor Skálholtsskóla,
Magnús Jónsson, drukknar á
Örfiriseyjargranda 1702. —
Smíði skólahúss á Möðruvöllum
lýkur 1879. Verkfall ASÍ 1946. —
Hótel Borgarnes brennur 1949.
— F. Einar Ágústsson 1922. —
Stefán Pjetursson þjóðskjala-
vörður 1898.
Orð dagsinsi Flestir fresta til
morgun því sem þeir hefðu átt
að gera í gær — Ed Howe,
bandarískur blaðamaður
(1853-1937).
Ileilsuhæli N.L.F.Í. í Ilveragerði. Þar dvelja nú um 170 manns á dag. og komast mun færri að en vilja.
Hátíðisdagur náttúrulækn-
ingamanna á morgun
Náttúrulækningadagurinn. há-
tíðisdagur náttúrulækninga-
manna. verður haldinn hátíðleg-
ur á Heilsuhælinu í Hveragerði á
morgun. Dagurinn er kynningar-
dagur náttúrulækningastefnunn-
ar. og á þeirri starfsemi sem hún
hefur tekið sér fyrir hendur.
Hátíðin á morgun hefst á því, að
snæddur verður hátíðamatur í
borðsal Heilsuhælisins, en síðan
verður sérstök hátíðardagskrá í
samkomusalnum. Að því loknu
verður gestum gefinn kostur á að
skoða Heilsuhælið. Öllum er heim-
ill aðgangur, og verður verði
veitinga mjög stillt í hóf.
Á Heilsuhælinu í Hveragerði
geta nú dvalið 170 manns í einu, og
eru hundruð manna á biðlista þar
allt árið. Þá er þar rekin stór
garðyrkjustöð, og unnið er að
stækkun Heilsuhælisins. Þá reka
náttúrulækningamenn matsölu og
bakarí í Reykjavík, og á döfinni er
að koma upp heilsuhæli á Akur-
eyri.
Iþróttamenn sem reykja
eru 35% þrekminni
SAMSTARFSNEFND um reykinga-
varnir hefur í samvinnu við nokkra
íslandsmeistara í ýmsum íþrótta-
greinum staðið að útgáfu vegg-
spjalds sem nýlega er byrjað að
dreifa um landið. Er veggspjaldið
allstórt og yfirskrift þessi Við
reykjum ekki. en á það er einnig
letraði íþróttir og reykingar fara
ekki saman.
í frétt frá Samstarfsnefnd um
reykingavarnir segir að afreksfólk á
íþróttasviðinu vilji sýna öðru ungu
fólki gott fordæmi með því að reykja
ekki og til að leggja áherzlu á það
hafi verið gert fyrrgreint veggspjald.
„Sérstök rannsókn á áhrifum
reykinga á afreksgetu íþróttamanna
var nýlega gerð á vegum íþróttahá-
skóla í Vestur-Þýzkalandi og náði
hún til 750 íþróttamanna. 80 þeirra
reyktu.
Niðurstöðurnar urðu þær að þeir
sem reyktu, höfðu 35% minna þrek
en hinir sem ekki reyktu miðað við að
allir þátttakendur í rannsókninni
æfðu jafnmikið. Þetta þýðir með
öörum orðum að þeir sem reyktu
þyrftu að æfa rúmlega þriðjungi
meira til þess að ná sama árangri og
hinir sem ekki reyktu," segir í frétt
frá Samstarfsnefndinni.
Veggspjaidi þessu verður dreift á
næstunni út um land fyrir milligöngu
umboðsmanna Samstarfsnefndar um
reykingavarnir en þeir eru nú um 40.
Þá munu Krabbameinsfélag Reykja-
víkur og íþróttasamband Islands
taka þátt í dreifingunni.
Á veggspjaldinu er mynd af Hreini
Halldórssyni, 29 ára, Islandsmeist-
ara í kúluvarpi, Láru Sveinsdóttur,
23 ára, íslandsmeistara í fimmtar-
þraut, Huga Harðarsyni, 15 ára,
Islandsmeistara í 400 m baksundi,
Guðmundi Þorbjörnssyni, 21 áts,
íslandsmeistara með Val í knatt-
spyrnu og Þórunni Alfreðsdóttur, 17
ára, íslandsmethafi í öllum vega-
lengdum í skriðsundi, flugsundi og
fjórsundi kvenna.
íþróttafólkið á veggspjaldi Samstarfsnefndarinnar frá vinstrii Lára
Sveinsdóttir, Ilugi Harðarson. Ilreinn Halldórsson. Þórunn Alfreðs-
dóttir og Guðmundur Þorbjörnsson.
Trésmióafélag Reykjavíkur:
Hömlulaus innflutnmgur fullunn-
innar trévöru verði stöðvaður
TRÉSMIÐAFÉLAG Reykjavíkur
hefur í álvktun gert þá kröfu til
stjórnvalda að innflutningur verði
heftur á fuliunninni trévöru,' sem
stigmagnazt hefur á sama tíma og
atvinnuhorfur byggingarmanna
eru mjög óljósar. í ályktun
Trésmiðafélagsins segiri
„Félagsfundur Trésmiðafélags
Reykjavíkur, haldinn 20. september
1978 að Hallveigarstíg 1, gerir þá
kröfu til stjórnvalda, að nú þegar
verði stöðvaður sá hömlulausi
innflutningur á fullunninni tré-
vöru, sem staðið hefur síðustu ár,
og hefur stigmagnast á síðustu
mánuðum.
Á sama tíma og atvinnuhorfur
byggingamanna eru mjög óljósar,
eru fiuttar inn fullunnar trévörur,
sem samsvara vinnu fyrir nokkur
hundruð manns.
Því leggur fundurinn á það mikla
áherslu, að fyrirhuguðum sam-
drætti í ríkisframkvæmdum verði
mætt með stórbættri samkeppnis-
aðstöðu fyrir íslenskan iðnað, sem
mundi hafa það að markmiði, að
við íslendingar þyrftum ekki að
flytja inn vörur, sem við getum
sjálfir framleitt. Slíkur inn-
flutningur hefur engan annan
tilgang en að skapa fámennum hópi
innflytjenda versiunargróða, og
veldur stórfelidri sóun á dýrmæt-
um gjaldeyri, sem væri betur varið
á annan hátt en að flytja inn með
þessum hætti erlent vinnuafl."