Morgunblaðið - 23.09.1978, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
íbúö til leigu
4ra herb. íbúö til leigu viö Bergstaöastræti
Reykjavík. Þarfnast lagfæringar.
Tilboö óskast send á afgreiöslu Mbl. fyrir
fimmtudagskvöld 28.9. merkt: „Bergstaöa-
stræti — 3949“.
Til sölu — leigu
274 fm. salur við
Háaleitisbraut
Til sölu eöa leigu er 274 fm. jaröhæö undir
bílskúrum, malbikuö aökeyrsla og mögu-
leiki fyrir bílastæöum.
Húsnæöiö er gert úr steinsteypu. Aö mestu
fokhelt (einn salur).
Þeir sem áhuga hafa á þessu leggi nöfn sín
meö símanúmeri inn á afgreiöslu blaösins
merkt: „Húsnæöi — 3997“ fyrir mánaöar-
mót sept./okt. 1978.
Skip til sölu
6-8-9-10-11-12-14-15-18-22
-29-30-38-45-48-51 -53-54-55-59
-62-64-65-66-85-86-87-88-90-92
- 120 - 140 tn.
Einnig opnir bátar af ýmsum stæröum.
Aðalskipasalan
Vesturgötu 17
símar 26560 og 28888
Heimasími 51119.
Skotveiðimenn
Stofnfundur Skotveiöifélags íslands, veröur
haldinn í Árnagaröi, stofu 201 laugardaginn
23. sept. kl. 14.
Dagskrá:
Drög aö lögum og siöareglum félagsins.
Áhugamenn um skotveiöar fjölmenniö.
Undirbúningsnefndin.
Heimdallur
Aukaþing S.U.S.
Heimdallarfélagar aukaþing S.U.S. veröur haldiö aö Þingvöllum 30.
september og 1. október. Þeir Heimdallartélagar, sem hata áhuga á
þingsetu, vinsamlega hafiö samband viö Stefán Stefánsson i
Sjálfstæöishúsinu í síma 82900.
Bessastaðahreppur
Garðabær —
Hafnarfjörður
Sameiginlegur fulltrúaráös- og trúnaöarmannafundur Sjálfstaaöis-
manna veröur haldinn, mánudaginn 25. sept. kl. 20.30 í
Sjálfstæölshúsinu Hafnarfiröl.
Fundarefnl:
Ný vtöhorf á vettvangi atjómmálanna
á fundinn mæta alþinglsmennirnir Matthfas Á. Mathiesen, Oddur
Ólafsson og Ólafur G. Einarsson.
Stlórn fulltrúaráOslns.
„N ú skal afnuminn sá vísir
að frjálsum markaðsbúskap
sem landsmenn hafa búið við”
- segir í stjórnmálaályktun HeimdaUar, þar sem meðal
annars er vikið að hinum nýju bráðabirgðalögum
Á síðustu mánuðum hafa miklar
breytingar orðið á vettvangi ís-
lenzkra stjórnmála. Sjálfstæðis-
flokkurinn er nú einn flokka í
stjórnarandstöðu bæði á Alþingi
og í borgarstjórn Reykjavíkur.
Að undanförnu hafa landsmenn
getað fylgst óvenju vel með
ófyrirleitnu valdatafli svokallaðra
vinstri flokka. í þeim hráskinns-
leik sást glögglega að ríkisstjórn-
arseta sem slík skipti foringja
svokallaðra vinstri flokka öllu
máli. Þegar svokölluð vinstri
stjórn hafði loks verið mynduð tók
ekki betra við. Stjórnin hóf störf
með því að svíkja helzta kosninga-
loforð Alþýðuflokks og Alþýðu;
bandalags: „samningana í gildi“. í
stað þess eru gerðar efnahagsráð-
stafanir sem í raun skerða dag-
vinnulaun mjög stórra launþega-
hópa. í blekkingarskyni er verðlag
í landinu og vísitala fölsuð enn
frekar með stórfelldum niður-
greiðslum og skattabreytingum.
Fjár til ríkissjóðs er aflað með
afturvirkum skattalögum þannig
að álagning síðasta skattaárs er
endurupptekin. Slík skattheimta
brýtur í bága við réttlætistilfinn-
ingu þorra manna og er fordæm-
anleg. Jafnframt tekur ríkis-
stjórnin upp viðbótarálögur á
svonefndan „lúxusvarning" eins og
tannsápu, þvottaefni og hljómplöt-
ur, og innleiðir tvöfalt gengi á
íslenzku krónunni. Allar ráðstaf-
anir stjórnarinnar í efnahagsmál-
um bera þess merki að þar fer
stjórn, sem fylgir opinberri forsjár
stefnu á öllum sviðum. Nú skal
afnuminn sá vísir að frjálsum
markaðsbúskap, sem landsmenn
hafa búið við. Pólitískir úthlutun-
arstjórar skulu framvegis ráða
jafnt yfir opinberum framkvæmd-
um sem yfir einkaneyzlu. Verði
haldið áfram á þessari braut er
skammt í biðraðir og skömmtun-
arseðla og alla þá spillingu sem
slíku fylgir. Ríkisstjórnin kýs að
hafna varanlegum baráttuaðferð-
um við verðbólguvandann en beitir
í staðinn skammtímaráðstöfunum,
sem auka vandann og hnýta
þjóðfélagið í bönd einokunar og
hafta.
I viðbót við alranga stefou í
efnahagsmálum er stjórnin greini-
lega sjálfri sér sundurþykk í
flestum málum. Vart hefur liðið
svo dagur að ráðherrarnir og
þingmenn stjórnarflokkanna hafi
ekki gefið gagnstæðar yfirlýsingar
um sömu málin. Á þrjú mál má
benda: Endurskoðun vísitölukerf-
isins fyrir 1. desember.: Alþýðu-
flokkurinn segir það ákveðið.
Alþýðubandalagið segir það
ómögulegt. Sams konar ágreining-
ur er um byggingu nýrrar flug-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli. Loks
segir Alþýðubandalagið að bráða-
birgðalögin um efnahagsmál hafi
sett kjarasamningana ígildi en
forsætisráöherra Framsóknar-
flokks segir: „Bráðabirgðalögin
setji í sjálfu sér enga kjarasamn-
inga í gildi“. Stjórnarsamstarf af
þessu tagi er vart farsælt fyrir
þjóðina og ekki furða þótt margir í
þingflokkum stjórnarflokkanna
hafi ekki treyst sér til að styðja
það fyrirvaralaust.
Sjálfstæðisstefnan er í öllu
gjörólík stefnu stjórnarflokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherzlu á einstaklinginn, virðingu
hans og frelsi. Sjálfstæðisflokkur-
inn vill takast á við og leysa
efnahagsvandann á grundvelli
frjáls markaðsbúskapar en ekki
með ríkisforsjá sósíalismans.
Heimdallur telur að í stjórnar-
andstöðu verði flokkurinn að gera
sitt ítrasta til að leiða í ljós
muninn á sinni stefnu og stefnu
svokallaðra vinstri flokka.
Heimdallur telur að leggja verði
áherzlu á eftirfarandi atriði meðal
annars.
Ekki verði kvikað frá þeirri
stefnu að ísland taki þátt í
varnarsamstarfi vestrænna lýð-
ræðisríkja og að varnir landsins
séu tryggðar á hverjum tíma á
þann hátt sem nauðsynlegt er.
Islendingar verða að muna að
frelsi og sjálfstæði eru gæði sem
aðeins fáar þjóðir njóta og þessara
gæða þarf að gæta.
Heimdallur fordæmir hvers
konar alræðis- og kúgunarstjórnir
undir hvaða fána sem þær sigla.
Heimdallur telur að því aðeins
verði með árangri tekist á við
efnahagsmál íslendinga að þjóðin
sjálf og forsvarsmenn hagsmun’a-
samtaka viðurkenni þá einföldu
staðreynd að ekki verður meiru
eytt en aflað er. í góðæri verður
því að leggja til hliðar fyrir mögru
árin, sem ætíð koma, og sníða sér
að öðru leyti stakk eftir vexti.
Sparnaður og ráðdeild voru jafnan
og eru enn miklir mannkostir.
Baráttan við verðbólguna er og
verður forgangsverkefni á sviði
efnahagsmála næstu árin. Takist
ekki að efna til þjóðarsamstarfs í
þeirri baráttu er til einskis barizt
og verðbólgan mun halda áfram að
spilla fjármálalífinu, skaða ein-
staklingana og eyðileggja eðlilegt
verðmætamat þjóðarinnar.
Mikilvægur þáttur í baráttunni
við verðbólguna er samdráttur í
ríkisútgjöldum og fjárfestingum,
sem leiðir til lækkaðra skatta. Þá
verður og að tryggja hag þeirra
sem spara og leggja þannig til
fjármagn til rekstrar- og fram-
kvæmdalána í þjóðfélaginu.
Auðsætt er að á næstu áratug-
um þarf að skapa þúsundum
vinnandi handa atvinnutækifæri.
Sjávarútvegur og landbúnaður
geta vart tekið við öllum þeim sem
atvinnu þurfa á næstunni. Efling
íslenzks iðnaðar er því mjög brýnt
verkefni. Ekki er óeðlilegt að
erlent áhættu-fjármagn sé nýtt til
stóriðjuframkvæmda en alíslenzk-
ur iðnaður hlýtur þó að sitja í
fyrirrúmi. Nauðsynlegt er að allar
greinar atvinnulífsins njóti jafn-
ræðis og arðsemi ráði sem mestu
um reksturinn.
Ekki verður þó gengið fram hjá
því að við uppbyggingu atvinnu-
lífsins verður að taka fullt tillit til
gæða sem ekki erú beinlínis
fjárhagsleg. Þannig verður að
gæta ítrustu virðingar í umgengn-
inni við landið, sem er okkar
dýrmætasta eign. Og taka verður
tillit til þess að vaxandi áherzlu
ber að leggja á aðrar hliðar
mannlífsins en þær, sem mældar
verða á kvarða hagvaxtar- og
peningatekna. Heimdallur telur að
Sjálfstæðisflokknum beri stefnu
sinnar vegna að hafa forystu um
að koma á sáttum í þjóðfélaginu í
ofangreindum málum.
Þá vill Heimdallur vekja athygli
á nokkrum öðrum afmörkuðum
stefnuatriðum sínum.
Heimdallur telur að þegar í stað
' verði að leiðrétta misvægi í
atkvæðisrétti landsmanna. Kosn-
ingarétturinn eru mannréttindi og
öllum mönnum bera jöfn mann-
réttindi. Þá er og æskilegt að
rækilegar umræður fari fram um
hvort lækka eigi kosningaaldurinn
í 18 ár.
Heimdallur vill í ljósi þess að
Alþýðubandalagið fer nú með
menntamál ítreka að Heimdallur
telur, að einstaklingar, frjáls
samtök þeirra og sveitarfélög hafi
sem mest sjálfræði og frumkvæði í
skóla- og fræðslumálum. Ríkis-
valdið setji aðeins rúman laga-
ramma um það hvernig menntun
skuli háttað.
Heimdallur telur að frjáls fjöl-
miðlun, þar með frjálst útvarp, sé
eðlilegur þáttur í tjáningarfrels-
inu og frjálst útvarp sé í raun
sambærilegt við frelsi til útgáfu
ritaðs máls. Ríkiseinokun og þar
með ritskoðun á þessu sviði ber að
afnema.
Heimdallur telur að frjáls sam-
keppni í atvinnurekstri tryggi
neytendum bezta þjónustu og
lægsta verð. Frjálsri samkeppni er
oft stefnt í hættu með samruna
fyrirtækja í sömu starfsgreinum,
sem geta þannig orðið einráð á
markaðnum og þar með ráðið
verðmyndun sem getur leitt til
þess að hagur neytenda sé fyrir
borð borinn. Samtenging nokkurra
stórfyrirtækja á sviði íslenzkra
samgangna hlýtur að vera hvatn-
ing til athugunar á þessum
atriðum. Heimdallur telur sér-
staklega óeðlilegt að ríkið sé á
einhvern hátt aðili að slíkum
fyrirtækja samsteypum og að
ríkinu beri þegar í stað að hætta
þátttöku í öllum atvinnurekstri
sem rekinn er á samkeppnisgrund-
velli.
Svipuð hætta gerir ótvírætt vart
við sig í verzlunar- og iðnrekstri
þar sem Sambandið, sem er aðili
að erlendum auðsamsteypum, er
víða einrátt í verzlunarmálum.
Að undanförnu hafa störf Al-
þingis og alþingismanna verið
mjög til umræðu. Heimdallur
telur að bæta verði aðstöðu
þingsins til eftirlits- og aðhalds-
starfa. Jafnframt verði þingmenn
ekki kjörgengir í stjórnir opin-
berra stofnana og ráða.
Heimdallur vill að lokum leggja
áherzlu á að frelsi og farsæld
íslenzku þjóðarinnar er bezt
tryggð með því að hver einstakl-
ingur fái þroskað og notið hæfi-
leika sinna í frjálsu og mannúð-
legu þjóðfélagi. Rækta ber og
varðveita menningararf þjóðar-
innar, stuðla að viðgangi vísinda
og lista, efla góða siði og gagn-
kvæma virðingu manna, stuðla að
sáttum og samvinnu stétta og
landshluta, en eyða öfund og
illgirni, stéttaátökum og óbilgirni,
sem nú er svo mjög reynt að rækta
með þjóðinni.