Morgunblaðið - 23.09.1978, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978
37
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
I0100KL. 10—11
, FRÁ MÁNUDEGI
Berufjörð og víðar. Ónefndur
þjóðflokkur af meginlandinu hefir
þann leiða sið að snuðra upp um
öll fjöll og öræfi til þess að safna
steinum og flytja heim til sín.
Bifreiðar eru fluttar til Seyðis-
fjarðar með skipi og eftirlitið þar
kannski ofviða þeim, sem um það
fjalla. Verra er það, að þessir
útlendingar gera út leiðangra til
þess að safna steinum, og hafa
með sér bók á móðurmáli sínu,
sem skráir alla helstu steinastaði
landsins, sem eru áhugaverðir.
Mér er sagt að landið hafi breytt
um svip víða vegna yfirtroðslu
þessa fólks. Það hirðir ekki um
þótt melar og móar séu skornir
hjólförum, og brenna svo birkið til
þess að elda ofan í sig, ekki kaupa
þeir mat nema út úr neyð, og þá
helst rúgbrauð.
Ég tel fulla ástæðu til þess að
stungið verði við fæti í þessum
efnum, og algjört bann sett við því
að útlendingar geri hingað út
leiðangra til þess að stela fallegum
steinum. Fálkaþjófurinn var góm-
aður, kannski alltof seint. En
koma ekki aðrir og gera hið sama?
Fagursteinar á öræfum þessa
lands eru eins og blómin, þeir
skreyta umhverfið og allir heiðar-
legir menn ættu að láta þá í friði,
en njóta þess að skoða þá í sínu
rétta umhverfi. Ég skora á þau
yfirvöld, sem þetta varðar og í
rauninni alla landsmenn að vera
vel á verði, láta þetta gráðuga fólk
ekki rýja landið að þeim perlum
sem skreyta það. Við verðum að fá
verndarlöggjöf og eftirlit með því
hvað er flutt úr landi, það gætu
verið safnmunir og eðalsteinar,
jafnvel fálkaungar og egg, svo að
eitthvað sé nefnt. Ég vona að
þessar línur veki einhverja til
umhugsunar áður en of seint er, ef
það er ekki orðið of seint. Betra er
þó hálfur skaði en allur.
Þökk fyrir birtinguna,
Starri.“
• Réttmæt
ábending
„Moldarbingur hindrar út-
sýni“ var fyrirsögn ábendingar
fólks í Fossvogshverfi í Reykjavík
vegna hættu á tilteknu götuhorni
og vegna þeirrar ábendingar sendi
Umferðarráð eftirfarandi:
„Starfsfólk Umferðarráðs, þakk-
ar þarfar ábendingar þeirra Ásu
Jónsdóttur og Guðmundar Hann-
essonar um moldarhaug á mótum
Eyrarlands og Bústaðavegar í
Reykjavík.
Það er hárrétt, að þegar þau
höfðu samband við okkur, vísuðum
við málinu til umferðaryfirvalda
borgarinnar, enda eru þau sá aðili
sem fólki ber til að snúa sér til
með ábendingar sem þessar, er
varða umferðina í Reykjavík.
Hinsvegar, og af gefnu tilefni,
þar sem nafn Umferðarráðs hefur
hér verið nefnt, fór ég undirritað-
ur strax í morgun á staðinn og ók
niður Eyrarlandið og síðan aftur
upp það á Bústaðaveginn, til að sjá
með eigin augum það sem um er að
vera. Og ábending þeirra Ásu og
Guðmundar á fyllsta rétt á sér,
þarna er hætta á ferðum. Ég talaði
strax við forstöðumenn verktaka-
fyrirtækjanna (en þau reyndust
vera tvö), og ætluðu þeir umsvifa-
laust að gera þarna úrbætur á.
Það væri óskandi að fleiri
landsmenn færu að dæmi þeirra
Ásu og Guðmundar og bentu á það
sem betur mætti fara í umferðinni
og fylgdu því eftir. Þetta er
einmitt það sem vantar, hugtakið
„mér kemur þetta ekki við“ ætti
ekki að vera til í þessu sambandi,
frekar en svo mörgu öðru.
Með þökk fyrir birtinguna.
Óli H. Þórðarson,
framkv.stj. Umferðarráðs."
Þessir hringdu . . .
• Varasamt
horn
Miðaldra kona sem oft segist
vera á ferðinni í miðborg Reykja-
víkur vildi fá að vara við götuhorni
einu. Er það horn Lækjargötu og
Hafnarstrætis, þar sem gangbraut
er yfir Lækjargötuna, sunnan
Hafnarstrætis. Sagði konan, sem
segist fara yfir þessa gangbraut
daglega, oft hafa orðið að taka til
fótanna og eiga þeim fjör að launa
því bílar sem koma frá Hafnar-
stræti og beygja til suðurs inn á
Lækjargötuna séu oftast á svo
mikilli ferð að þeir geti engan
veginn stöðvað sig og sé fólk á
gangbrautinni verði það að bregða
hart við og forða sér. Nýlega er
búið að reisa þarna hús eitt mikið
og skyggir það töluvert á útsýni og
veldur án efa mjög aukinni
slysahættu.
• Mannanöfn
á dýrum
Velvakandi hefur verið beðinn
fyrir þau ummæli við sögu sem
hefur að undanförnu verið lesin í
Morgunstund barnanna í útvarp;
ekki sé að öllu leyti viðkunnanlegt
að gefa dýrum mannanöfn t.d.
Kata kiðlingur og Helgi hundur
o.s.frv., og sé þetta að nokkru leyti
löstur á annars ágætri sögu Jóns
frá Pálmholti og megi ekki taka
þessa ábendingu sem óvægna
gagnrýni heldur aðeins hugmynd
til umhugsunar.
• Að gefnu
tilefni
Athugulh
„Ef maður kemur á almennan
veitingastað sem mikið er sóttur
daglega er þá þrifnaður af því ef
farið er á salerni, að það gjósi móti
manni þvaglykt? Vilja ekki þeir er
slíka staði starfrækja, grennslast
eftir hvort þessi „ilmur“ viðgengst
hjá þeirra fyrirtæki? Auðvelt er
að koma í veg fyrir slíkt.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Wijk
aan Zee í janúar kom þessi staða
upp í skák þeirra Najdorfs,
Argentínu, sem hafði hvítt og átti
leik, og Van der Sterrens, Hol-
landi.
40. Hxe6! - fxe6,41. Dd7 - Hbl+
Hér átti skákin að fara í bið, en
svartur kaus að gefast upp, því að
eftir 42. Kh2 - Dgl+, 43. Kg3
getur svartur ekki skákað.
HÖGNI HREKKVÍSI
"E R í»v\ LOKiOl11
BOGASKEMMUR
Hp Tilboð óskast í stórar bogaskemmur. Skemmurnar
'pí verða sýndar á Keflavíkurflugvelli, föstudaginn 29. sept.
kl. 14—16.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, þriðjudaginn 3.
okt. kl. 11 árdegis.
Sala varnarliðseigna.
Fólksflutningabifreiðar til sölu
Mercedes Benz 0309 árgerö 1973 21 sæta, Luxus
og Mercedes Benz 0309 árgerö 1977 21 sæta
(stór afturhurö).
Báöir bílarnir í mjög góöu ásigkomulagi.
Upplýsingar í símum 97-8361 og 91-2861 á
kvöldin.
blaðburðarfólki
Austurbær:
Laugavegur 1-33,
Skólavöröustígur
Baldursgata
Sóleyjargata
Skúlagata
Laugarásvegur 38 - 77
Vesturbær:
Kvisthagi,
Miöbær,
Hjaröarhagi I og II.
Brávallagata.
Skerjafjöröur
/sunnan flugvallar
Uppl. í síma 35408.