Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
Reiknar meö aö
veröa hjá Stand-
ard næstu 3 ár
Þú reiknar þá með að verða
hjá Standard næstu 3 árin?
— Það er auðvitað möguleiki
að ég verði seldur frá Standard
á tímabilinu ef ég og Petit
komum okkur saman um sölu.
En eins og málin standa í dag
reikna ég með áð veröa næstu
þrjú árin hér í Liege.
Gera knattsþyrnumenn það
gott í Belgíu?
— Knattsþyrnumenn hafa
ágæt laun hér í Belgíu. Tvö lönd
skera sig nokkuð úr í þessum
efnum, Spánn og Ítalía en þar á
eftir koma Belgía, Þýzkaland og
Frakkland og gæti ég trúað að
laun séu svipuð í öllum þessum
þremur löndum. Hér á ég
auövitað við laun þeirra leik-
manna, sem eru á toppnum.
Er það leyndarmál hvað þú
berð úr býtum sem atvinnu-
knattspyrnumaður?
— Hér í Belgíu eru launakjör
trúnaðarmál milli félagsins og
leikmanns og því kemur ekki til
greina að skýra opinberlega frá
því hvað ég hef í laun hjá
Standard. Þetta eru skiljanlegar
reglur því að öðrum kosti væri
Ætlar að byggja
í Eyjum
Hefuröu fest peninga í fast-
eignum þann tíma sem þú hefur
verið í atvinnuknattspyrnu?
— Rétt eins og með launin
hef ég ekki áhuga á að gera
þetta að umtalsefni opinberlega.
Ég vil aðeins segja það að
auðvitað hef ég hugsað um að
verðtryggja peningana mína eins
og flestir aðrir. Ég hef keypt mér
dýran bíl (BMW) og fæ brátt
nýjan (Porsche), ég hef keypt
mér húsgögn, hljómflutnings-
tæki og þvíumlíkt og bráðlega
byrja ég að byggja einbýlishús
heima í Vestmannaeyjum. Bjarni
Marteinsson arkitekt er að
teikna fyrir mig hús á lóð, sem
ég fékk heima. Þetta er ansi góð
lóð, alveg uppi viö flugvöllinn.
Þetta veröur ekki nein höll, bara
einbýlishús af venjulegri stærð.
Átt þú íþúðina sem þú býrð í
hér úti í Belgíu eða hefur
Standard útvegaö þér hana?
— Standard hefur alltaf út-
vegað mér íbúðir alveg síðan ég
kom hingað fyrst fyrir fimm
árum. Þá var mér tekið eins og
hverjum öörum nýliða, ég fékk
litla íbúð og lítil laun. Fyrstu
vikurnar voru erfiðar, maður
varð að setja í sig hörku og
einsetja sér að komast í aðallið-
ið. Að öðrum kosti lá ekki annað
fyrir en snúa heim. Ég var
heppinn því ég fékk fljótlega aö
Sþreyta mig í aðalliðinu vegna
meiðsla hjá leikmönnum og
þegar tækifærið kom lét ég það
mér ekki úr greipum ganga. Ég
fékk góða dóma strax í fyrstu
leikjunum og hef verið fastamað-
ur í liðinu s.l. 5 ár. Ætli ég sé ekki
farinn að nálgast 300. leikinn
meö Standard. Eftir að ég komst
í aðalliðið fékk ég nýja íbúð í
miðborginni og þar bjó ég í 3 ár
en fyrir ári síðan fékk ég íbúðina
sem ég er núna í. Þetta er ágæt
íbúð í úthverfi, fallegu og rólegu
hverfi og hér kann ég vel við mig.
íbúðin er þriggja herbergja og
hún var alveg mátuleg fyrir mig
þegar ég bjó einn því mér leiðast
húsverk og þau myndu hlaðast
uþp ef ég flytti í einbýlishús. En
núna þegar fjölskyldan er farin
að týnast út til Belgíu er ég
farinn að svipast um eftir hent-
ugu einbýlishúsi.
Hefurðu heimþrá?
— Því neita ég ekki að
heimþráin sótti oft á mann þegar
maður var einn úti í Belgíu á
veturna. Þá var ekki annað að
gera en bíta á jaxlinn og bægja
öllum slíkum hugsunum frá sér.
Mamma hefur venjulega komiö
til mín á sumrin og verið hjá mér
fram á haustið og nú er Óli
bróðir fluttur út með fjölskyldu
sína og býr hérna í sama húsinu
svo aö heimþrá sækir varla á
mig í bráð.
Hjónaband ekki
í sjónmáli
Er hjónaband nokkuö í sjón-
Hljómflutningstækin góðu sett í gang og músíkin á fullt. Blaðamann
brestur pekkíngu til þess að skýra frá möguleikum tækjanna en
hann man þó að magnararnir, sem ekki sjást á pessari mynd, eru
150 wött.
Ásgeir á velli Standard. Félagið hefur verölagt Asgeir á 250 milljónir
króna, enginn smáskildingur þaðl
máli?
— Nei, ég hef engin slík
áform á prjónunum. Það er
nægur tími fyrir slíkt seinna meir.
Það hefur verið áberandi hjá
Standard finnst mér að þegar
útlendir leikmenn koma til
félagsins og þeir eru kvæntir
hafa iðulega komiö upp vanda-
mál með konurnar. Þær festa
ekki yndi hér í Belgíu, þær hafa
ekkert við að vera á daginn og
þegar við bætist að eigin-
mennirnir eru lítið heima við
verða þær óánægðar og það
kemur svo fram á spilamennsk-
unni hjá eiginmönnunum. Ég tel
því rétt að bíða meö öll hjóna-
bandsáform enn um sinn.
Þú talar um að leikmennirnir
hér séu lítið heimavið.
— Það er venjulega svo hjá
félögum eins og Standard. Þaö
er æft tvisvar á dag flesta daga
og oft eru leikir tvisvar í viku og
þeim fylgja ferðalög innan Belgíu
og utan. Það fer því mikill tími í
knattspyrnuna á meöan
keppnistímabilið stendur yfir.
Hvað gerir þú í þeim fáu
frístundum sem þú hefur.
— Ég hef mikinn áhuga á
tónlist og ég hlusta á pjötur
þegar ég get því við komið. Ég er
nýlega búinn að kaupa mér mjög
fullkomin hljómflutningstæki frá
Pioneer því ég vil ekkert til spara
til að fá sem beztan hljómburð.
Þessi tæki kosta hér í búðum 2,5
milljónir íslenzkra króna svo
væntanlega kosta þau skilding-
inn heima á íslandi eftir nýjustu
hækkanirnar. Þá horfi ég einnig
mikið á sjónvarp því hér í Belgíu
get ég náð einum 14 sjónvarps-
stöðvum í Belgíu, Þýzkalandi,
Hollandi, Frakklandi og Luxem-
borg. í sjónvarpinu er fótboltinn
auövitað efstur á vinsældalistan-
um hjá mér. Ég hef ekki alltaf tök
á því að horfa á íþróttaþættina
og þess vegna keypti ég mér
tæki, sem getur tekið upp
sjónvarpsefni og svo spila ég
bara bandiö þegar ég kem heim.
Nú og svo fer ég á veiðar minnst
einu sinni í viku. Einn af
stjórnarmönnum Standard á
1000 hektara veiðiland og hann
hefur boöið mér að koma með
sér þegar ég vil. Ég skýt kanínur,
héra, dádýr og fasa og hef
geysilega gaman af. Má eigin-
mikil hætta á því að öfund skyti
upp hjá leikmönnum, sem ekki
hafa jafnmikil laun og hinir
leikmennirnir. Ég get aðeins sagt
þaö að ég er með nýjan samning
sem ég er ánægður með,
samning sem tryggir mér góð
laun.
Ég hef lesið það einhvers
staðar að þú sért einn þriggja
launahæstu leikmanna Belgíu.
Er þetta rétt?
— Ég get auðvitað engu um
þetta svarað því ég veit ekkert
um það hvað aðrir leikmenn hafa
í laun. En líklega er ég þó í efri
flokknum. (Því má skjóta hér að í
sviga, án þess að verið sé að
geta til um laun Ásgeirs, að
samkvæmt upþlýsingum sem
blm. aflaði sér nýverið hafa
launahæstu leikmenn Kölnar-
liðsins um hálfa milljón þýzkra
marka þrúttó í árslaun eða um
75 milljónir íslenzkra króna).
Samkvæmt öðrum heimildum
eru árslaun þessara sömu
manna um 40 milljónir króna og
erfitt að henda á því reiður hvor
talan er réttari.)
Úr fundaveizlunni, Asgeir, Bryndís, Þóra, Sígurvin, Olafur og Vilborg
lega segja að þetta sé algjör
della hjá mér.
Vantar
markaskorara
Ef við förum aðeins út í aðra
sálma Ásgeir. Standard gekk
mjög vel á síðasta keppnistíma-
bili en nú í haust hefur liðið átt
erfitt uppdráttar. Hvað veldur
þessu?
— Það eru ýmsar ástæður
fyrir þessu en tvær þeirra eru
veigamestar að mínu mati. í
fyrsta lagi byrjuðum við keppnis-
tímabiliö alltof snemma. Petit
framkvæmdastjóri leggur mikið
upp úr því að Standard leiki í alls
konar aukamótum áður en
keppnin í 1. deild hefst til þess
að fá peninga og þess vegna
byrjuðum við að æfa mánuði á
undan öllum öðrum liðum í
Belgíu. Það má eiginlega segja
að við höfum verið stanzlaust að
keppa í allt haust og á þremur
mánuðum höfum við leikið 25
leiki. Leikmennirnir eru orðnir
dauðþreyttir og þá er ekki von á
góðum árangri. Önnur ástæðan
er sú, að markakóngar liðsins
frá í fyrra, Riedl og Nickel, leika
ekki með núna. Þeir tveir voru
markhæstu mennirnir í belgísku
kanttspyrnunni í fyrra. Riedl er
meiddur og óvíst hvenær hann
getur byrjað aftur og Nickel var
seldur til þýzka liðsins Eintrackt
Braunsweig þar sem hann skor-
ar og skorar og er þessa
stundina markhæsti leikmaður-
inn í þýzku knattspyrnunni. í
staöinn voru keyptir þrír nýir
leikmenn en þeir hafa alls ekki
fyllt skaröið, sem Nickel skildi
eftir sig og reyndar hafa tveir
þeirra ekki komizt í aðalliðið
ennþá. Þaö var vægast sagt
undarleg ráðstöfun hjá Petit að
selja Nickel því það sem okkur
vantar fyrst og fremst er góður
markaskorari. Okkur gengur
ekkert að skora og áhangendur
Standard eru að veröa æfir. Ég
trúi ekki öðru en Petit taki upp
veskið og kaupi sterkan sóknar-
mann fljótlega. Petit hefur sagt í
blöðunum að hann vilji enga
stjörnuleikmenn, heldur vilji
hann byggja liðiö upp á jöfnum
mönnum en það gengur ekki
lengur að framlínumennirnir