Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
55
Jón Nikulásson frá
Kirkjubœ — Minning
Fæddur 6. ágúst 1903.
Dáinn 1. júlí 1978.
Lengi hef ég ætlað að setjast
niður og skrifa nokkur orð til
minningar um Jón, en fram-
kvæmdin ekki orðið að sama skapi,
enda á ég erfitt með að trúa því að
hann skuli vera farinn frá okkur.
Ég á ekki fáar minningar frá
uppvaxtarárunum þar sem Jón
tengist að meiru eða minna leyti,
hann var mér alltaf eins og afi,
þolinmóður og góður. Sem barni
finnst manni alveg sjálfsagt að
allir séu manni góðir, það er ekki
fyrr en ég varð fullorðin að ég
gerði mér grein fyrir að þetta var
ekki algilt eða sjálfsagt, og
þarafleiðandi var kannski ekki
alltaf borgað í sama í þá góðu daga
t- óþekktaranginn var stundum
gæðunum yfirsterkari, en það
haggaði Jóni ekkert, það voru ekki
fáar ferðirnar sem hann þurfti að
fara á eftir mér upp í klettana í
Herjólfsdal til þess að ég færi mér
ekki að voða, eða taka mig með út í
Elliðaey með kindurnar, o.fl. o.fl.
Á hverju sumri frá 2ja ára aldri
sigldi ég með honum til Eyja, það
sem ég var í sveit hjá honum og
Sölu og Gunný, og fékk tækifæri
til að upplifa margt sem ekki mörg
börn fá tækifæri til. Jón var ekki
aðeins sagður góður og tillitssam-
ur við mig heldur alla sem á vegi
hans voru, enda fáir vinafastari og
tryggari, þótt ekki væri hann
margorður eða hávaðasamur.
Jón fæddist að Kljá í Helgafells-
sveit árið 1903 og voru foreldrar
hans Guðrún Bjarnadóttir og
Nikulás Þorsteinsson. Vegna erfið-
leika heima fyrir fluttist Jón
aðeins 7 ára að aldri til Bolungar-
víkur þar sem hann var tekinn í
iHef opnaöi
Lögmannsskrifstofu
aö suöurlandsbraut 18, 3. hæö. Sími: 84433.
Jón Halldórsson héraðsdómslögmaður.
Playtex
vörurnar eru komnar.
Vinsamlegast endurnýjiö pantanir ykkar.
Hafursfell, heildverzlun, sími 20480.
Sumarbústaðarland
Sumarbústáöarland til leigu ca. 45 til 50 km frá
Reykjavík. Landiö er ca. 2500 fm. Landiö er skipulagt
og leigist til langs tíma, vegalagning og giröing komin.
Tilboö sendist Mbl. fyrir miövikudag merkt: „Bústaöur
— 1898“.
Við Bergþórugötu
3ja—4ra herb. portbyggö rishæö um 95 ferm. í
steinhúsi til sölu, sér hitaveita og suöursvalir. Útb.
7 millj.
Upplýsingar í símum 35441 og 18546 í dag og
næstu daga.
fóstur af móðursystur sinni. Bol-
ungarvík átti mjög sterk ítök í
honum alla tíð og ég fékk að heyra
margar sögur þaðan.
1940 fluttist Jón til Vestmanna-
eyja þar sem hann kvæntist
eftirlifandi konu sinni, Salgerði
Arngrímsdóttur frá Kirkjubæ, þar
sem þau síðan bjuggu. Þau eignuð-
ust eina dóttur, Guðrúnu, sem er
gift Einari M. Einarssyni og eiga
þau 3 dætur. Jón átti aðra dóttur,
Sonju, áður en hann fluttist til
Vestmannaeyja, býr hún í Gríms-
nesi.
Jón var lengi sjómaður á fiski-
bátum, einnig á Herðubreið og
Herjólfi, og í kjölfar þess var hann
að sjálfsögðu sífellt í snúningum
fyrir Pétur og Pál, þar sem bæði
þessi skip gengu á milli lands og
Eyja, og allt þótti jafn sjálfsagt.
Við eldgosið í Eyjum ‘73 fluttust
þau Jón og Sala til Reykjavíkur
þar sem Gunný og Einar tóku á
móti þeim opnum örmum og
studdu þau í erfiðleikunum sem
því öllu fylgdi.
Húsið þeirra var eitt af þeim
fyrstu sem fóru undir hraunið, þar
sem það var eitt af Kirkjubæjar-
húsunum, þetta var ekki bara
venjulegt hús, heldur byggt af
þeim sjálfum og Sala búin að gera
ynd'slegan blómagarð allt í kring,
við þær erfiðu aðstæður sem þar
voru til þess að fá blóm til að
dafna, nálgaðist það kraftaverki.
Það urðu því mikil viðbrigði að
flytjast í blokk í Reykjavík, en þau
gerðu samt heimilislega og hlýlega
íbúðina sína þar, en það var aldrei
það sama, Jón hafði aldrei nein orð
um það heldur var þetta nokkuð
sem maður fann. Á meðan á
gosinu stóð var Jón lengst af við
hjálparstarf úti í Eyjum, og eiga
margir honum gott að gjalda
síðan. Jón var lengi búinn að eiga
við erfið veikindi að stríða, en það
var ekki neitt sem hann hafði orð
á, hjúkrunarfólk og aðrir sem
hjálpuðu honum fengu aldrei
nema gott orð og hans hjartans
þakklæti.
Það er svo miklu meira að
minnast en erfitt að koma frá sér
á pappír, mig langar til þess að
þakka fyrir allt sem mér féll í
skaut, og votta ykkur öllum, Sölu,
Gunný, Einari og börnunum mína
innilegu samúð og hluttekningu.
Gerður Pálmadóttir.
Gerplu
ÞAÐ ER ÆÐI
eykur orku
og lipurö.
Innritun í síma 74925
Afmœlis- off
minningargreinar
AF GEFNU tilefni skal það enn ítrekað, að
minningargreinar, sem birtast skulu í Mbl., og
greinarhöfundar óska að birtist í blaðinu útfarardag,
verða að berast með nægum fyrirvara og eigi síðar en
árdegis tveim dögum fyrir birtingardag.
t
FANNEY JÓNSDÓTTIR
trá Bíldudal,
Hjallavegi 23,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 3. október kl. 13:30.
Dntur, tangdaaynir,
barnaborn og aðrir vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát, minningarathöfn
og útför fööur okkar,
SIGURÐAR Þ. SVEINSSONAR,
frá Áai í Vopnafirði.
Fyrir hönd vandamanna.
Syatkinín frá Áai.
t
Faöir okkar,
INGIBERGUR JÓNSSON,
Veaturgötu 65,
veröur jarösettur frá Fossvogskirkju, mánudaginn 2. október kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands eöa
aörar líknarstofnanir.
íría Niaaen,
Sigurður Ingibergaaon.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR,
sem lést aö Sólvangi laugardaginn 23. sept. veröur jöröuö frá Þjóökirkjunni (
Hafnarfiröi þriöjudaginn 3. okt. kl. 14.00.
Jðna Markúadðttir, Grímur Bacmann,
Kjartan Markúaaon, Guðrún Guðmundadðttir,
Gunnar Markúaaon, Sigurlaug A. Stefánadóttir,
Helgi Maríaaaon, Dóra Óakaradóttir,
og bamabðrn.
t
Innilegar þakkir flytjum viö öllum þeim, er auösýndu okkur samúð og vinarhug
viö andlát og jaöarför dóttur okkar og systur,
INGIBJARGAR SÓLVEIGAR HLÖOVERSDÓTTUR,
Birna Júlíuadóttir, Hlöðver Oddaaon,
Kríatján Hlöðveraaon, Svanhildur Hlööveradóttir,
Guðríður Hlöðveradóttir.
t
Hjartanlega þökkum viö öllum sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö
andlát og útför konu minnar, móöur okkar, tendamóður og ömmu,
JENNÝAR MAGNÚSDÓTTUR,
Sólvallagötu 19
Halldór Gíalaaon,
Vilborg Halldóradóttir, óli Tyne,
Magnúa Halldóraaon,
Guðrún Halldóradóttir, Chriater Edenfjörd,
Gíali Halldóraaon,
Halldór Halldóraaon,
og Lennart Halldór.
t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför,
EMILS E. GUÐMUNDSSONAR,
Elaý Emiladóttir, Arnar Sigurðaaon,
Emilía S. Emilsdóttir, Hreiöar Þórhallsson,
Edda Emiladóttir, Rudolf Thorarensen,
Kolbrún E. Biela, Harry Biela,
Guömundur Ó. Emilsson, Eygló Kriatjánedóttir,
Valur Emilaaon, Guðrún Valtýadóttir,
Sigrún E. Delavante, Ómar Emilaaon, Michael Delavante,
Smári Emilaaon, Nanna Magnúadóttir.