Morgunblaðið - 30.09.1978, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
61
itéitSt, • J K /1 ! : d
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
fyrir eru og á lóö sem tilheyrir
húsinu? Þetta ættu þeir sem leyfi
veita fyrir þessum verzlunar-
rekstri að athuga. Fyrir nú utan
þaö hversu mikill óþrifnaður er á
þessu títtnefnda horni vegna þessa
viðskiptamáta sem yfir stendur
14—15 stundir dag hvern og sá
gnýr sem fylgir þegar bílar stanza
bíða í lausagangi, kannski margir í
einu eða eru ræstir á ný með
miklum glumrugangi svo undir
tekur í nágrenninu.
Enn er það annað mál, sem mig
fýsir að fá lagað hér við stíginn, en
það er þegar skorin var sneið af
malbikinu við eystri brún þessa
stígs við Verzlunarskólann og þar
lagt nýtt malbik, en langleiðin út
að Bjarnastíg er óunnin enn og
illgengt ef fara þarf yfir götu.
Umferðarþunginn liggur austan
megin þessa stígs vegna bílastæð-
anna vestan megin. Þegar eitthvað
er um að vera í skólanum er
bílamergðin slík að freistast er til
að leggja bílum báðum megin
götunnar milli Hellusunds og
Bjargarstígs og lokast þar stund-
um næstum því útgönguleið úr
íbúðarhúsunum. Slíkt er óhæfa ef
koma þyrfti t.d. sjúklingi að eða
frá húsi skyndilega. Sé vegarbrún
merkt gulum lit má ekki leggja bíl
þar við og því síður á gangstétt,
slíkt er tvöfalt brot. Ef kært er til
lögreglunnar, sem vafalaust veit
af þessu, beitir hún sektúm, en
lítur að öðru leyti vægt á brot í
þessum tilvikum, sem framin eru
þegar alger örtröð er við skólann.
Eg vona að þetta géti vakið
menn til umhugsunar og þeir sem
hér gætu átt hlut að máli tekið til
sín, þó segja megi að réttara hefði
e.t.v. verið að snúa sér beint til
viðkomandi yfirvalda.
6555-4097“.
• Svartir sauðir
„Ég vil benda Sigurði Arn-
grímssyni á að í grein minni um
fjölkvæni er minnst á að þeir
einstaklingar sem hafa fjölkvæni í
hávegum eru teknir út af sakra-
menntum. Ég veit einnig að það
eru alltaf svartir sauðir í öllum
kirkjum. Því miður er heildin of
oft dæmd eftir þessum svörtu
sauðum. En við því er ekkert hægt
að gera. Ef einhvern langar til að
vita meira þá get ég til dæmis bent
Þessir hringdu . . .
• Hver velur
prestana?
Maður nokkur spurði hver það
væri sem veldi presta til að flytja
morgunbænir og annað efni í
útvarp og sjónvarp. Finnst mér
sagði maðurinn, að vel mætti velja
fleiri, þ.e. presta úti um land en
mér finnst aðallega hafa verið
Reykjavíkurprestar í þessum fjöl-
miðlum, og sakna ég þó t.d. sr.
Emils Björnssonar.
Velvakandi fékk þær upplýsing-
ar hjá útvarpi að það leitaði til
hinna ýmsu presta eftir að annast
morgunbænir og væri reynt að
dreifa því sem mest, en eðlilega
gengi stundum illa að fá til þess
presta utan af landi vegna fjar-
lægðar. Um útvarpsmessurnar er
hins vegar það að segja að nefnd á
vegum prestanna sér um að velja
presta til að annast þær. Um
sjónvarpið hefur gilt sú regla að fá
nokkurn veginn til skiptis presta
og leikmenn til að annast helgi-
stundirnar að kvöldi dags, og þá
nokkur skipti í einu.
á bæklinginn „Hvað um mormóna"
sem hluti af þessari grein var
tekinn úr. Með fyrirfram þökk,
Ásthildur Geirsdóttir.“
• Hræddir við
flugvélar?
„Kæri Velvakandi.
Ekki eru allar þjóðir hræddar
við flugvélagný og væri skrítin
sjón að sjá hræðslusvip á borgar-
búum í Reykjavík þegar heyrðist
til flugvélar, eins og algengt er í
Reykjavík. Það vill nefnilega svo
til að margar vélar sem fljúga um
loftin blá hafa að geyrna dauða og
eyðileggingu innanborðs sem varp-
að er á saklaus fórnarlömb úti í
heimi.
Þjóðir, sem hafa stranga refsi-
löggjöf á hendur þeim sem morð
fremja, halda á loft boðorðunum
og hafa presta í þjónustu sinni til
að kenna vilja Guðs en senda
heilan her til að tortíma þúsund-
um manna. Prestar þessara þjóða
eru látnir biðja um Guðs blessun
þeim til handa sem hafa það að
atvinnu að slátra fólki.
Það er sem sé ekki sama hvernig
þú drepur, fyrir hvern og til hvers.
Morðingi er sá kallaður sem
verður manni að bana vísvitandi
og er hann lokaður inni og jafnvel
tekinn af lífi. En maður sem flýgur
um loftin blá með hræðileg
eyðingarvopn og varpar vísvitandi
dauða og eyðiieggingu á þúsundir
manna, hvað ætli sé gert við hann?
Honum er fagnað sem hetju og
föðurlandsvin.
Er fólk orðið svo heilaþvegið og
siðlaust að það greini ekki gott frá
illu? Jú, það veit nokkurn veginn
hvað er rétt og hvað er rangt.
Gallinn er bara sá að það hefur
lokað sig inni í myrkrinu.
Einar Ingvi Magnússon."
HOGNI HREKKVISI
«... ©1978
0 McNaught Synd., Ine.
*...Oú»‘l TtOHDA bK-Tl... WfAR. ”
53? SIG6A V/öGA í Á/LVERAk
<íy ytetfYtÚM foJL
o& /yiAtSLa. ‘yraja
/fp£v 4JU&
Stjórnunarfélag íslands
Vinnur Þú eftir áætlun?
Metur þú arösemi verkefna?
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir nám-
skeiði um „Arðsemi og áætlanagerð" að
Hótel Esju dagana 5., 6. og 7. október n.k.
og stendur námskeiðið í 21 klst. Leiöbein-
andi á námskeiðinu er Eggert Ágúst
Sverrisson viðskiptafræðingur sem um
árabil hefur starfaö viö rekstrarráðgjöf hjá
ráðgjafafyrirtækinu Hagvangi hf.
Á námskeiðinu er lögö áhersla á raunhæf dæmi úr íslensku
atvinnulífi. Námskeiöið er ætlaö:
— framkvæmdastjórum
— skrifstofustjórum
— verkstjórum
— og auk þess stjórnendum stofnana og öðrum áhugamönnum
sem vilja tileinka sér nútíma aöferðir viö rekstur fyrirtækja.
Allar nánari upplýsingar og skráning þátttakenda fer fram á
skrifstofu S.F.Í. aö Skipholti 37, sími 82930.