Morgunblaðið - 03.10.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. ÖKTÓBER 1978
Brezk sjávarútvegs-
sýning hefst í dag
BREZK ráðstefna og sýnins um
úthúnað tækniþróun fiski-
skipa hefst á Hótel Loftleiðum í
dag. en það er fiskveiðideild
hrezka sjávarúthúnaðarráðsins,
sem Kengst fyrir ráðstefnunni og
sýningunni, og lýkur ráðstefn-
unni annað kvöld, 4. október.
Á ráðstefnunni og sýningunni
gefst útgerðar- og skipstjórnar-
mönnum kostur á að skoða hluta
af framleiðslu þeirra brezku
fyrirtækja, sem framleiða út-
búnað fyrir fiskiskip. og enn-
Fjölmenni
hlýddi
á erindi
Hjörleifs
Hjörleifur Guttormsson líf-
fræðingur og iðnaðarráðherra
flutti í gær erindi í stofu 158 í
Verkfræði- og raunvísindadeild
Háskólans, sem hann nefndi
„Maður og umhverfi". Að sögn
Einars B. Pálssonar prófessors
var mikið fjölmenni við erindis-
flutning Hjörleifs og urðu
fjölmargir að standa, en alls
rúmar stofan 90 manns í sæti.
Erindi Hjörleifs er hið fyrsta
af 11 erindum um umhverfis-
mál á vegum Verkfræði- og
raunvísindadeildar. Næsta
erindi verður flutt 9. október
n.k. en þær ræðir Unnsteinn
Stefánsson prófessor í haffræði
„Sjórinn sem umhverfi."
fremur það nýjasta í þróun
útbúnaðarins.
Nítján brezk fyrirtæki munu
sýna framleiðslu sína og þjónustu
á myndum og fulltrúar þeirra og
sjávarbúnaðarráðuneytisins
verða á staðnum og svara fyrir-
spurnum.
Ráðstefnan verður sett kl. 10
árdegis í dag, og síðan verða
fyrirlestrar fram eftir degi. Á
morgun, miðvikudag, verða einnig
fyrirlestrar um búnað brezkra
skipa fram eftir degi, en ráðstefn-
unni verður slitið kl. 15.45.
Almenningur á kost á að skoða
sýninguna í Loftleiðahótelinu frá
kl. 19.30 til 21.30 á morgun,
miðvikudag.
Aukaþing SUS:
ÞINGFULLTRÍJAR á aukaþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna komu saman við minnisvarða
Bjarna Benediktssonar, Sigríðar Björnsdóttur og dóttursonar þeirra að lokinni messu í
Þingvallakirkju skömmu fyrir hádegi á sunnudag. Þar lagði Jón Magnússon, formaður SUS, blómsveig
að minnisvarðanum og minntist Bjarna heitins í stuttri ræðu. Myndin var tekin við það tækifæri.
Ljósm. Mbl. RAX.
Felldi tillögur um „endur-
nýjun á forystu” flokksins
A AUKAÞINGI Sambands ungra
sjálfstæðismanna, sem haldið var
á Þingvölium um hclgina, voru
felldar tillögur, sem voru efnis-
lega á þá leið. að mcð tilliti til
kosningaósigra Sjálfstæðisflokks-
ins á þessu ári væri þörí á
endurnýjun á forystu flokksins
eða „breytingum á skipan for-
ystumála flokksins.“ Ennfremur
var felld tillaga um að í stjórn-
málaályktun þingsins segði að
fram þurfi að fara „markviss
endurnýjun á forystu flokksins.“
Hins vegar var í ályktun þings-
ins um starfsemi og skipulag
Sjálfstæðisflokksins samþykkt að
við ríkjandi aðstæður væri fá-
Sjómenn á Höfn í Hornafirði:
„Sjómönnum verði tryggðar
sömu launahækkanir og aðrir”
Samþykkt að segja upp síldarverði
SJÓMENN á Höfn í Hornafirði
komu saman til fundar í Sindra-
bæ á sunnudag 1. október og í
fréttatilkynningu frá Farmanna-
og fiskimannasambandi Islands
segir. að þess hafi verið krafist,
að tekið verði fullt tillit til hinna
almennu launahækkana, sem orð-
ið hafi í landinu þegar fjallað sé
um kjör sjómanna.
í ályktun fundarins segir, að á
sama tíma og laun almennt í
landinu hafi hækkað um 50—70%
hafi laun sjómanna við síldveiðar
hækkað lítið sem ekkert.
Þá er þess krafist að vísitölu-
kerfinu verði breytt þannig, að það
tryggi jöfn kjör sjómanna og
annarra launþega og er forystu-
mönnum samtaka sjómanna falið
að vinna að því í þeirri nauðsyn-
legu endurskoðun á vísitölukerf-
inu, sem nú stendur fyrir dyrum.
Þá fól fundurinn forystumönn-
um sjómanna að segja upp gild-
andi verði á síld.
Á sunnudag var ennfremur
haldinn fundur með sjómönnum á
Djúpavogi og þar var samþykkt að
skora á stjórnvöld að gera þær
ráðstafanir, sem tryggi sjómönn-
um kjarabætur til jafns við aðra
launþega. Einnig var samþykkt
Iskorun til sjávarútvegsráðherra,
að hann heimili sölu á sívarinni
síld á erlendum markaði.
mennisstjórn í flokknum og nauð-
synlegt væri að fá fram breytingu
á því en til þess að svo gæti orðið
þyrfti „algjöra uppstokkun á
forustumynstrinu að koma til.“
Bent var á í ályktuninni að
æskilegt væri að taka upp svokall-
aða þrískiptingu forystunnar eða
að auk formanns og varaformánna
flokksins og þingflokks væru
kjörnir formaður og varaformaður
miðstjórnar flokksins.
í allsherjarnefnd þingsins, sem
hafði til umfjöllunar stjórnmála-
ályktun þingsins, lagði Þorvaldur
Mawby fram tillögu þess efnis að í
framhaldi af því sem lögð væri
áhersla á að Sjálfstæðisflokkurinn
hæfi þegar undirbúning að ítar-
legri og samræmdri stefnumörkun
kæmi eftirfarandi: „Samhliða fari
fram markviss endurnýjun á
forystu flokksins." Var samþykkt í
allsherjarnefndinni með 9 atkvæð-
um gegn 5 aö þetta skyldi standa í
ályktuninni. Þegar stjórnmála-
ályktunin kom til afgreiðslu á
þinginu urðu töluverðar umræður
um þetta atriði og töldu margir
ræðumanna að þing SUS væri ekki
vettvangur til að beina spjótum
sínum að forystu flokksins með
þessum hætti. Landsfundur
flokksins ætti að taka ákvörðun
„Bara glópalán”
Rúmlega sjötugur maður vinnur hæsta
vinning í Getraunum, 740 þúsund krónur
„ÞETTA er bara alger
tilviljun. eintómt glópalán,“
sagði Njáll Guðnason 1 samtali
við Mbl. í gærkvöldi, en þá
hafði nýlcga komið í ljós að
Njáll hafði hlotið 12 rétta í
Getraununum og hlotið í verð-
laun 740 þúsund krónur. hæstu
verðlaun í Getraunum til þessa.
Njáll var sá eini, sem fékk 12
rétta og hlaut hann því 1.
verðlaun óskipt.
„Ég hef verið með í getrauna-
starfseminni frá byrjun og svo
hef ég líka selt getraunaseðla
fyrir hann Árna son minn en
hann hefur verið með seðla fyrir
Val og ég er verkstjóri í
Afurðasölunni og hef selt
strákunum þar seðla," sagði
Njáll. „Ég hef tvisvar unnið
áður, en þá aðeins smáupp-
hæðir,“ bætti hann við.
„Ég fylli vanalega út 2 seðla
en í þetta skipti breytti ég útaf
og fyllti út 3 seðla og vinningur-
inn kom einmitt á aukaseðil-
inn,“ sagði Njáll. „Ég nota engin
kerfi við þetta, spái aðeins í það
hvernig liðunum gengur og
reyni að spá í samræmi við það,
en auðvitað vill það bregðast
eins og gengur."
Njáll sagðist hafa áhuga á
íþróttum þótt hann hefði ekki
stundað þær sjálfur. „Ég fór
mikið á knattspyrnuvöllinn í
gamla daga, sérstaklega þegar
hann Árni sonur minn var að
leika með Val og landsliðinu en
núna er ég mikið til hættur að
fara á völlinn enda orðinn
rúmlega sjötugur."
Njáll sagðist ekkert vera
búinn að ákveða hvað hann
ætlaði að gera við peningana,
líklega væri bezt að geyma þá til
elliáranna. En hann kvaðst að
Iokum vera ákveðinn í því að
halda áfram að taka þátt í
getraunum.
Guðrún Þorsteinsdóttir og Njáll Guðnason
um hverjir veldust til forystu í
flokknum og þar væri vettvangur
til að fjalla um mál, sem þetta.
Þorvaldur Mawby sagði í ræðu að
hann teldi að skapa þyrfti svigrúm
til breytinga á forystu flokksins.
Kjartan Gunnarsson, Jón Magnús-
son og Kjartan Jónsson báru fram
tillögu um að fyrrnefnd setning
um „endurnýjun á forystu flokks-
ins“ yrði felld út úr stjórnmála-
ályktuninni og var það samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum
gegn 4.
Þá báru þeir Ásgeir Hannes
Eiríksson og Einar Pétursson
fram tillögu í allsherjarnefndinni
að inn í stjórnmálaályktunina
kæmi setning þar sem segði að
ungir sjálfstæðismenn vildu
gjalda varhug við að „taka ekkert
tillit til framkomins vilja kjósenda
flokksins í skoðanakönnun sam-
fara prófkjöri við val á framboðs-
lista til Alþingis í Reykjavík sl.
vetur.“ Var samþykkt í allsherjar-
nefndinni að taka þetta inn í
ályktunina með 9 atkvæðum gegn
5 en við afgreiðslu stjórnmála-
ályktunarinnar á þinginu var
þetta fellt út úr henni með öllum
greiddum atkvæðum gegn tveim.
Á þinginu báru þeir Jón Bragi
Gunnlaugsson, Guðmundur
Snorrason og Örn Kærnested fram
tillögu þar sem sagði að í í þeim
kosningum sem fram fóru í maí og
júní síðastliðnum hafi kjósendur
kveðið upp „þann dóm að forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins hafi
ekki staðið við gefin loforð eða
stefnu Sjálfstæðisflokksins síðast-
liðin fjögur ár.“ Þá sagði í
tillögunni: „Aukaþing SUS telur
með tilliti til hinna miklu kosn-
ingaósigra að endurnýjunar sé
þörf á forystu flokksins og slíka
breytingu forsendu þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn öðlist á ný þann
sess í íslensku þjóðfélagi sem hann
á skilið."
Við umræður um tillögu
þremenninganna bar Friðrik
Sophusson fram aðra tillögu, þar
sem sagði að með tilliti til
kosningaósigra flokksins á þessu
ári teldi aukaþingið „þörf breyt-
inga á skipan forystumála flokks-
ins. Þess vegna vekur þingið
sérstaka athygli á ályktun þings-
ins um starfsemi og skipulag
Sjálfstæðisflokksins, þar sem farið
er fram á algjöra uppstokkun á
forystúmynstrinu." Þegar tillaga
Friðriks lá fyrir drógu Jón Bragi,
Guðmundur og Örn sína tillögu til
baka en lýstu yfir stuðningi við
tillögu Friðriks.
Tillaga Friðriks kom hins vegar
til atkvæða og var felld með 33
atkvæðum gegn 28 atkvæðum.