Morgunblaðið - 03.10.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978
13
Ullarfatnaður frá íslandi sýnir í vesturheimi.
Myndin var tekin á tískusýningu í Peoria. Við
borðið fyrir miðju má sjá hvar Unnur Arngríms-
dóttir situr. Ljósm. Mbl. Tryggvi Gunnarsson.
r
Islenzkur ullar-
fatnaður kynnt-
ur í fjórum borg-
um vestan hafs
SÍÐUSTU viku hafa dvöldu í Bandaríkjunum á vegum
fyrirtækisins Hildu og Útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins þær Sigríður Ragna Sigurðardóttir og
Unnur Arngrímsdóttir og önnuðust þær þar
kynningar á íslenskum ullarfatnaði í vöruhúsum
fyrirtækisins Carson Pirie Scott & Co í fjórum
borgum. Einnig kynntu þær íslenskar ullarvörur í
sjónvarpsþáttum, á blaðamannafundum og í útvarps-
viðtölum. Samhliða þessum kynningum efndu
Flugleiðir til verðlaunasamkeppni og voru verðlaunin
ferð fyrir tvo til Islands.
Fyrsta kynningin var í
Ottawa í Illinois á mánudag
en síðan héldu þær til borgar-
innar Peoria í Illinois og
Urbana í sama fylki en síðasta
kynningin var í Michigan City
í Indiana á föstudag. Hefur
Sigríður Ragna verið kynnir á
sýningunum en Unnur hefur
haft umsjón með sýningum á
fatnaðnum.
Tilefni þessara
sýninga á vegum Carson Pirie
Scott & Co er að fyrirtækið
hefur á þessum fjórum stöðum
verið að opna sérstakar deildir
með íslenskan ullarfatnað í
vöruhúsum sínum á þessum
stöðum en þess má geta að
fyrirtækið er einnig með sér-
staka deild með íslenskum
ullarfatnaði í vöruhúsi sínu í
Chicago.
Seinna í vetur eða um
miðjan febrúar fer Unnur
Arngrímsdóttir til Bandaríkj-
anna ásamt 6 íslenskum
sýningarstúlkum og munu þær
sýna íslenskan ullarfatnað í
hádegisverðarboði, sem sitja
um 900 eiginkonur tannlækna,
sem þá sitja mikið tannlækna-
þing í Chicago. Verður sýning-
in á Hilton-hótelinu í borginni
en auk sýningar á íslenskum
Sigríður Ragna
Sigurðardóttir kynnir
íslenskan ullarfatnað á
sýningu í vöruhúsi
Carson Pirie Scott & Co í
borginni Peoria.
ullarfatnaði munu íslensku
sýningarstúlkurnar einnig
sýna íslenska þjóðbúninga.
Bændafundur i Vogalandi:
Bændur fái álag fyrir
hverja kind sem skorin er
Miðhúsum, 2. október.
Á FIMM klukkustunda fundi,
sem haldinn var í Króks-
fjarðarnesi á sunnudags-
kvöld, sem Sigurður Sigurðs-
son dýralæknir boðaði til
með bændum úr Stranda- og
Austur-Barðastrandarsýslum
kom eftirfarandi fram:
Svokallað Reykjaneshólf
mun vera eina hólf landsins,
þar sem enginn sauðfjársjúk-
dómur herjar nú á, en girð-
ingu er illa viðhaldið á
Þorskafjarðarlínu í Stein-
grímsfjörð og hætt er að
halda við svokallaðri Beru-
fjarðargirðingu.
Á fundinum kom eftirfar-
andi tillaga fram: „Fundur
haldinn í Vogalandi 1. októ-
ber 1978 skorar á sauðfjár-
sjúkdómanefnd, að koma
varnargirðingu úr Þorska-
firði í Steingrímsfjörð í
viðunandi horf, þegar á
næsta vori. Jafnframt skorar
fundurinn á sauðfjársjúk-
dómanefnd að girða Hjalla-
land inn í Reykjaneshólf.
Einnig telur fundurinn, að
þar sem girðingu er ekki
haldið við á viðunandi hátt,
verði eigendum þess sauðfjár,
sem skorið verður niður í
haust, bætt það tjón með
auknu álagi á hverja kind.“
Tillagan var borin upp í
þremur liðum og náðu þeir
allir fram að ganga og er því
þessum niðurskurðardeilum
lokið. Sveinn.
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI • - SÍMAR: 17152-17355
Heimsfræg
framleiðsla
ITT hefur fariö slíka sigurför
um heiminn aö óþarfi er hér aö
útlista gæöi ITT.
Gæöin þekkja allir.
Við bjóðum:
IN-LINE myndlampa, Kalt
einingarkerfi, Fullkomna fjar-
stýringu og öruggt viöhald.
Þegar þú berö saman verö og
gæöi viö aðrar tegundir lit-
sjónvarpstækja, þá kemstu aö
raun um aö ITT er rétta valið.
Ótrúlega
hagstætt tilboðsverð
Hagstæðir samningar við ITT verksmiðj-
una í Bretlandi, gera okkur mögulegt aö
bjóða yöur eitt vandaðasta litsjónvarps-
tækið á markaðnum, fyrir ótrúlega lágt
verð, eða frá kr. 438.000 fyrir 20“ tommu
tæki með fjarstýringu. Já viö endurtökum
fjarstýringin fylgir með í þessu verði.
Otrúlegt en satt!
Öruggt viðhald
Við leggjum mjög mikla áherslu á að veita
yður bestu mögulega viðhaldsþjónustu.
Auk þess sem sett hefur verið á fót
sérstök viðhaldsdeild fyrir litsjónvarpstæki
hjá okkur sjálfum, veitir Radíóbær, Ármúla
38, Reykjavík alla viöhaldsþjónustu á ITT
litsjónvarpstækjum.
Tryggið yður tæki strax í dag
rnyndiðjgn
KASTÞORf
Hafnarstræti 17 sími 22580,
Suðurlandsbraut 20 sími 82733.
ITT
tmM f