Morgunblaðið - 03.10.1978, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.10.1978, Blaðsíða 31
i MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978 31 Hver skilur herrans hulinn veg? Jóhann S. Hannesson, frv. skólameistari, er ljóðskáld. Síð- asta ijóðblóm hans birtist í Morgunblaðinu 23. þ.m. og er svona: „Ég hef stolið æru manns er því sjálfumglaður svona er að vanta vit og sans og vera blaðamaður." Jóhann leggur ljóðið í munn Hannesi Gissurarsyni, en í síðari grein sinni, 27. sept., telur hann Þorsteini Sæmundssyni heimilt, að hann „heimfæri níðvísu mína um Hannes Gissurarson upp á ýmsa, sem í þeim tóku þátt“ (þ.e. skrifum um aðstandendur Varins lands). Hér seilist Jóhann um hurð til lokunnar, því að bersýnilega er hann að ljósta þá sem mögnuð- ust höfðu orðin um forvígis- menn Varins lands. Ætla má að Jóhann hafi Svavar Gestsson, frv. ritstjóra í huga, en hann var einna ötulastur á ritvelli þess- ara fögru bókmennta og hlaut fyrir kárínur. Þessi afstaða Jóhanns er næsta auðskilin. Hann er virðingarmaður og þolir hvorki brigsl né svigur- mæli. En svo skýtur skökku við. Jóhann hefur átt þátt í að stofna bókmenntasjóð og verið formaður hans. Úr sjóðnum eru veitt bókmenntaverðlaun, hækkandi eftir því sem ritverk- in stangast meir á við landslög. Svavar Gestsson hlaut drjúga fúlgu úr sjóði þessum og þótti vel til þeirra hafa unnið. Nú er Svavar Gestsson al- þingismaður og ráðherra. í sjónvarpsþætti taldi hann það einsýnt að allir færu að lands- lögum, jafnvel þeir sem yrðu fyrir barðinu á þeim og teldu þau, vægast sagt, hæpin. Með lögum skal land byggja. Öðruvísi mér áður brá. En þáttur Jóhanns S. Hannes- sonar, frv. skólameistara, verður mönnum ráðgáta. Hann verðlaunar ritmennsku sem hann læst fordæmæ Jón A. Gissurarson MORGt AThug^emrfal^. 1 Johaniu S. Ti\ ritstjórnar þvi '•'i' AZTX\eo\ málsUrtur, jonmuu - -í-—f MorgunblaöiS urai»ekki sí9t veltþeimmikiMy Hanne3 se»st undanfarnar . ^ grein- vera mále'na P1 ^ vega aS om sínum ogj skjátl persónum. Eg heM hann sé ist um s)á'fan , ? legur og ámóta þar ámóta "'á'efn^4in6ta rétt sanngjarn " ; u^sari afbökuóu með'^mégtr>^ió mér detta hug aö!\e®a honum í p>unn: sSjsSr—. hann hlýtur þ»r Og J um þaö.heldurWlégtóöUum^ þjóömál deila m4\staöur bráöligg1 á aö þess^ ^ þaft þykist ég vita andsUeöu hans. V i nsamlegast, ióh«ui8.Hwm Brúðhjónin Anne Mac Dougall og Ruairidh Halford- MacLeod. bundið Suðureyjarbrúðkaup í blaðinu Stornoway Gazette á Suðureyjum er sagt frá brúðkaupi, og í miðri frásögn ber fyrir augu nafnið „Iceland". Brúðguminn Ruairidh Hal- ford-MacLeod, er nefnilega sonur Aubrey Hal- ford-MacLeod, sem var sendiherra á Islandi á árunum 1966—77 og á hér því ýmsa vini. Ruairidh er annar í röðinni af sonum hans. Hann var í þrjú ár í skosku herdeildinni „Queens Own Highlanders" við Persaflóa og í Edinborg, en eftir það starfaði hann fram til 1976 við hið þjóðlega iðnfyrirtæki Suðureyja, sem framleiðir og selur Harris Tweed. Hann er mikill áhugamaður um sögu og MacLeod- ættbáj,kinn, sem víða hefur dreifst frá Suðureyjum, er m.a. ritari ættarblaðsins, sem út kemur tvisvar sinnum á ári. Nú vinnur hann við félagsmálastofnun Skotlands í Perth og þar hitti hann konuefni sitt, sem nefnist Anne McDougall frá Skotlandi, og er kennari. Brúðkaupinu er lýst í Stornoway Gazette. Hefur það farið fram að þjóðlegum suðureyskum sið. Á undan og eftir athöfninni í Duirnish-sóknarkirkj- unni voru leikin á sekkjapípu lög ætta brúðhjónanna „McDougalls Gathering" og „MacLeods Salute". Veislan með móttöku og dansi fór fram í garði Dunvegan-kastala, þar sem mættir voru ættarhöfð- ingjar MacLeodanna, Donaldanna, McDougallanna og MacLeodar frá Kanada, Bandaríkjunum og Ástralíu. Og brúðhjónin yfirgáfu kastalann í báti undir stjórn „John MacLeods of the MacLeods" og Iain MacCrimmon af sekkjapípuleikurum ættarinn- ar í marga ættliði frá Kanada lék viðeigandi lag á sekkjapípu. Ann saumaði sjálf brúðarkjólinn sinn úr sérhönnuðu og sér ofnu „Airisaid“-afbrigði hefð- bundnum af MacDougall-vefnaði og brúðarslæðuna bar fyrst langalangamma brúðgumans 1871. Brúðarvöndurinn var gerður af hvítum klukkulyngs- blómum, sem er í skjaldarmerki MacDougallanna, og úr eini, sem er ættarblóm MacLeodanna og ræktað af móður brúðgumans í Harris. Gestirnir báru í barmi vendi úr klukkulyngi og eini. Það er gaman að heyra hvernig næstu nágrannar okkar Islendinga, Suðureyingar, halda brúðkaup og halda sína þjóðlegu siði í heiðri. Baráttunefnd 1. des. með liðsmannafundi FRAMKVÆMDANEFND - Bar- áttunefndar 1. desember hefur ákveðið að hefja hauststarfið með liðsmannafundi í Bláa sal Hótels Sögu á morgun, miðvikudag, kl. 20.30, þar sem kjörin verður ný framkvæmdanefnd og ræft um starfið framundan, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá nefndinni. Nefndin var stofnuð á sl. ári og stóð þá fyrir fundi 1. desember. í fréttatilkynningunni kemur fram, að nefndin hyggist einnig beita sér fyrir aðgerðum nú 1. desember undir kjörorðunum: Verjum sjálf- stæði íslands; Gegn erlendri stór- iðju; Island úr NATO-herinn burt og Gegn heimsvaldastefnu og stríðsundirbúningi risaveldanna, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. ORÐ í EYRA SELTJARNARNESIÐ (Alla Þórbergur) Seltjarnarnesið er lítið og lágt; lifa þar margir sem eiga bágt og aldrei ná drykkjum áfengum án þess að standa í biðröðum. I bæjarstjórn margur er býsna klár og brögðin og ráðin veit upp á hár og ekkert sér hollara íbúum þar en áfengissölu og kláðabar. Fyllisvín ramba þar eitt og eitt. Ösköp leiðist oss það að sjá að fleiri skuli ekki falla á kné fyrir kóng vorum Bakkuse. Já, Seltjarnarnesið er lítið og lágt; lifa þó sumir dálítið hátt. Á kvöldin heyrast þar kynja- hljóð: Ég komst ekki í ríkið, frú mín góð! JUDO í Gerplu ER ÆÐI eykur orku og lipurö. Innritun ísíma 74925 *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.