Morgunblaðið - 03.10.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.10.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978 21 skorar eina af körfum sínum Akurnesingar heim- sóttu auglýsandann NÚ eru liðin nokkur ár síðan íþróttafélösum var heimilað að hafa auKÍýsingar á búninKum keppnisliða sinna. Ilefur reynsl- an verið sú að auglýsingarnar hafa fært félö«unum nokkrar tekjur og hefur þetta komið sér vel á tímum síaukins kostnaðar við rekstur iþróttafélatíanna. Reynslan hefur líka verið sú, að mörj; íþróttafélög hafa þurft að hafa mikið fyrir því að fá auglýs- ingar og í mörgum tilvikum gera fyrirtæki það af hreinni greiða- semi að auglýsa á keppninsbúning- um. Þess eru vafalaust engin dæmi að auglýsandi hafi gert jafn vel fyrir íþróttafélag og þýzka fyrir- tækið Grohe og umboðsaðili þess Þýzk-íslenzka verzlunarfélagið hefur gert fyrir Akurnesinga í sumar. Grohe-umboðið sneri sér til Akurnesinga snemma á þessu ári og óskaði eftir að fá að auglýsa á búningum liðsins í sumar. Fleiri fyrirtæki höfðu einnig áhuga á því að auglýsa hjá Skagamönnum en Grohe bauð bezt og fékk samning- inn. Aðalstöðvar Grohe eru í Þýzka- landi, skammt frá Köln. Þegar Akurnesingar drógust gegn Köln- arliðinu í Evrópukeppninni ákvað Grohe að bjóða liðsmönnum og eiginkonum þeirra í heimsókn til verksmiðjanna daginn eftir leik- inn. Var hópnum haldið í ágætum fagnaði þennan dag. Hópurinn skoðaði verksmiðjur fyrirtækisins í Hemer og Menden, þá glæsilegan hádegisverð og síðdegis lék Akra- nesliðið gegn starfsmannaliði Grohe. Lauk leiknum með sigri Akurnesinga 8:0 og skoruðu eftir- taldir leikmenn mörkin: Andrés Ólafsson 2, Árni Sveinsson, Sig- urður Halldórsson, Kristinn Björnsson, Matthías Hallgríms- son, Jón Gunnlaugsson og Karl Þórðarson. Að lokum var hópurinn leystur út með gjöfum. Grohe er einn stærsti framleið- andi heims á blöndunar- og hitastýritækjum, vöskum, baðkör- um og þvíumlíku. Kom það fram í máli forráðamanna verksmiðjunn- ar, að salan á vörum fyrirtækisins hefði aukist mjög á íslandi á undanförnum árum. Meðfylgjandi myndir tók undir- ritaður blaðamaður þegar Akur- nesingar heimsóttu Grohe-fyrir- tækið. Myndirnar eru frá heim- sókninni í verksmiðjur fyrirtækis- ins, hádegisverðarboðinu, leiknum milli Skagamanna og starfsmanna Grohe og loks er mynd sem sýnir Gunnar Sigurðsson, formann knattspyrnuráðs Akraness, af- henda framkvæmdastjóra Grohe fána ÍA. Á milli þeirra stendur Ómar Kristjánsson, umboðsmaður Grohe á íslandi. Við þetta sama tækifæri afhenti framkvæmda- stjórinn Gunnari 1000 mörk að gjöf til ÍA. - SS. Öll liðin hafa tapað leik REYKJAVÍKURMÓTINU í körfuknattleik var fram haldið nú um helgina og voru leiknar tvær umferðir. Sem vænta mátti voru flestir leikjanna æsispennandi, en enginn ójafn. ÖIl liðin hafa nú tapað leik og stefnir í úrslitaleik milli tveggja eða fleiri liða. En hugum nú að gangi leikjanna. KR - ÍS 88-91 (38-42) Stúdentar lögðu KR-inga að velli í fjörugum, en ekki mjög vel leiknum leik á laugardaginn. Stúdentar höfðu frumkvæðið nær allan leikinn, en skömmu fyrir leikslok tóku KR-ingar við sér og komust yfir 82—83, en góður lokakafli stúdenta tryggði þeim sigur, 91—88. Leikur liðanna var nánast ein- vígi tveggja frábærra leikmanna þeirra Dirk Dunbars og KR- ingsins John Hudsons. Aðrir leikmenn féllu nánast í skuggann af leik þeirra. Dunbar sannaði það enn og sýndi að engum meðalleik- manni er fært að stöðva hann og virtist hann geta skorað þegar hann vildi og úr hvaða stellingu sem er. Vöðvabúntið Hudson lék stúdenta einnig grátt og munaði minnstu að honum tækist að vinna leikinn fyrir KR-inga, en Hudson skoraði 23 af síðustu 25 stigum KR-inga. Það veikti bæði liðin mikið að Jón Héðinsson lék ekki með stúdentum og Jón Sigurðsson lék ekki með KR-ingum. Stigahæstir stúdenta og bestir voru: Dunbar með 44 stig, Ingi Stefánsson með 20 og Steinn Sveinsson með 15. Hudson bar af KR-ingum og skoraði hann 53 stig. Eiríkur Jóhannesson komst næstur honum með 12 stig. Valur —Ármann 102—93 (54-49) Leikur Vals og Ármanns var slakasti leikur laugardagsins, en óhætt er að segja að bæði liðin hafi þó átt ágæta spretti inn á milli daufra kafla. Valsmenn höfðu frumkvæðið allan leikinn, en Ármenningar hleyptu þeim þó aldrei langt frá sér. I hálfleik var aðeins 6 stiga munur, en góður sprettur Valsmanna hristi Ármenninga það langt aftur úr að þeim tókst ekki að brúa bilið. Ármenningar leika mest upp á Stew Johnsan, en hann skoraði 52 stig í þessum leik og hefði vafalaust getað bætt 20 stigum við án verulegrar fyrirhafnar. Næstur honum kom Jón Björgvinsson með 19 stig. Valsmenn voru flestir jafnir að getu, en þó verður að segja að Þórir Magnússon hafi borið af meðan úthaldið entist honum og skoraði hann 31 stig. Næstir honum komu Torfi Magnússon með 18 stig og Kristján Ágústsson með 17 stig. Fram - ÍR 98-81 (48-42) Framarar sýndu það gegn IR-ingum að þeir eru ekkert 1. deildarlið, heldur úrvalsdeildarlið, því að leikur þeirra gegn ÍR var skínandi góður meginpart leiksins, og jafnvel þótt hann dytti niður þá áttu ÍR-ingar ekkert svar sem dugði. Kristinn Jörundsson sem nú lék meö ÍR-ingum gerði þó það sem hann gat til að rífa lið sitt áfram, en ekkert dugði: betra liðið vann örugglega. Staðan í hálfleik var 48—42 og það var aðeins í byrjun seinni • Landsliðshópurinn í hlaki. sem keppir í Danmörku. Blaklandslið valið ÍSLENSKA landsliðið í blaki heldur til Danmerkur i næstunni, Þar sem Norðurlandamótiö fer fram dag- anna 6—8 október. Landsliðs- mennirnir sjélfir fjármagna aö nokkru leyti ferðina, en BLÍ paö sem á skortir. Þann 6. október, leika íslendingar gegn Dönum, 7. október gegn Finnum og Norómönnum og aó lokum gegn Svíum Þann áttunda. í spjalli við fyrirliða landsliðsins, kom fram áð íslendingar reikna ekki meö að ríöa feitum hesti frá keppn- inni, þar sem Finnar, Svíar og Danir væru allir með mun sterkari lið heldur en íslendingar. Það er þó alltaf möguleiki gegn Norðmönnum. Þetta er í þriðja skiptiö sem íslendingar taka þátt í NM og hafa þeir ávallt hafnaö í neösta saetinu. Liö íslands aö þessu sinni skipa eftirtaldir leikmenn: Guömundur Pálsson Þrótti Gunnar Árnason Þrótti Valdimar Jónasson Þrótti Jason ívarsson Þrótti Böðvar Sigurösson Þrótti Benedikt Höskuldsson Þrótti Halldór Jónsson Is Indriði Arnórsson ÍS Friðbert Traustason ÍS Haraldur G. Hlöðverss. Laugdælir Leifur Harðarson Laugdætir Tómas Jónsson frá Noregi - 99- hálfleiks, sem ÍR-ingum tókst að jafna leikinn, en drifnir áfram af þjálfara sínum og besta leikmanni, Johny Johnson. leiddu Framarar öruggan sigur í höfn. Lang bestur Framara var John Johnson, en hann barðist af hörku í vörninni og skoraði sjálfur 39 stig. Þá voru Símon Ólafsson og Ómar Þráinsson einnig góðir. Skoraði Símon 21 stig, en Ómar 17 stig. Aðal-maður IR-inga var Paul Stewart og skoraði hann 40 stig en næstir honum komu Jóil Jörunds- son með 17 stig og Kristinn Jör. með 11 stig. Ármann — ÍS 115.111 (92:92 eftir venjulegan leiktíma). Eftir þrjá tapleiki Ármanns í Reykjavíkurmótinu og sigur ÍS yfir KR á laugardaginn áttu víst fæstir von á öðru en að stúdentar myndu sigra Ármann. Ár- menningar voru þó á annarri skoðun og gerðu alla spádóma að engu með því að sigra IS með 115 stigum gegn 111 í framlengdum og æsispennandi leik, en eftir venju- legan leiktíma var staðan 92:92. Leikurinn var alltaf jafn og munaði aldrei meira en 10 stigum á annan hvorn veginn. I leikhléi var staðan 51:44 Ármanni í vil. Ekki er hægt að segja annað en að þessi sigur hafi verið langþráður hjá Ármenningum, því að fyrir þennan leik höfðu þeir tapað 21 leik í röð. Galdramaðurinn Dirk Dunbar setti í leiknum nýtt met í stigaskorun með því að skora 61 stig fyrir ÍS en hann átti sjálfur eldra metið, 58 stig. Bandaríkja- maðurinn í liði Ármanns, Stewart Johnson, var langstigahæstur þeirra Ármenninga með 51 stig. ÍR - Valur 88.100 (48.47) Valsmenn mættu til leiks með nýjan bandarískan leikmann, Tim Dwyer, í sínum röðum, en sem kunnugt er, hvarf Rick Hockenos af landi brott án þess að kveðja kóng eða prest. Dwyer kom til Islands aðeins nokkrum klukku- stundum áður en leikurinn hófst og var greinilega þreyttur eftir erfitt ferðalag, en sýndi þó í leiknum að þar er enginn aukvisi á ferðinni. Svo að við víkjum að leiknum, þá byrjuðu ÍR-ingar af miklum krafti og höfðu yfirhönd- ina fram yfir miðjan fyrri hálfleik, en þá vöknuðu Valsmenn til lífsins og sigu framúr og í leikhléi var staðan 48:47 fyrir Val. í síðari hálfleik var aldrei vafi á því, hvort liðið var sterkara. Valsmenn sigu fljótlega framúr ÍR-ingum og sigruðu örugglega með 100 stigum gegn 84. Stigahæstir hjá Val voru Kristján Ágústsson með 29 stig, Torfi Magnússon með 25 og Tim Dwyer með 19. Fyrir ÍR skoruðu mest þeir Jón Jörundsson 33 og Paul Stewart 25. KR - Fram 89-88 (35-47) Þessi leikur var vafalaust leikur helgarinnar, rétt eins og flestir spáðu. Umdeilt atvik leiddi til þess, að KR-ingnum John Hudson var vísað af leikvelli og geysileg spenna í seinni hálfleik, hiti í leikmönnum og ákafi aðdáenda virtist ætla að leysa leikinn upp. En loks eftir framlengdan leik stóðu KR-ingar uppi sem sigurveg- arar með minnsta mun: 89—88. Framarar hófu leikinn af miklum krafti og náðu strax öruggu frumkvæði, sem KR-ingar áttu ekkert svar við. Leikur Fram var á við það besta, sem við eigum að venjast hjá íslensku félagsliði. Virtist sama hver Framara var, KR-ingar fengu engan þeirra stöðvað. En þegar 7 sekúndur voru til leikhlés gerðist það að Símon Ólafsson skoraði umdeilda körfu. Hudson kastaði boltanum til Sigurðar Vals Halldórssonar dómara. Sigurður, sem virtist vera óviðbúinn þessari sendingu, fékk boltann í öxlina og skipti það engum togum; Hudson var vísað af leikvelli. Dómur þessi var mjög vafasamur og hefði gult spjald verið nær sanni ef eitthvað hefði átt að gera í málinu. Þegar flautað var til leikhlés var staðan 35—47. I upphafi seinni hálfleiks komu KR-ingar til leiks í líki berserkja og skipti þá engum togum að munurinn var strax kominn niður í 4 stig. Var þessi barátta KR-inga nánast með ólíkindum og enginn barðist betur en hinn snjalli Jón Sigurðsson, sem lék méð þrátt fyrir meiðsli á hné. Á 18. mínútu komust KR-ing- ar loks yfir 72—71 og skiptust liðin á forystunni, en þegar 6 sekúndur voru eftir var staðan 78—77 fyrir Fram. Jón Sig. skoraði þá 2 stig, og kom KR í 79—78, en braut um leið á Flosa Sigurðssyni. Flosi fékk þá hclgina. Iludson var mjög í sviðsljósinu, bæði var hann rekinn af ieikvelli, auk þess sem hann skoraði rúm 40 stig. (Ljósm. — GiGi) tvö vítaskot og hitti hann í öðru skotinu og jafnaði leikinn. í framlengingunni skiptust liðin á að skora, en Frömurum mistókst eitt vítaskot og það gerði út um leikinn. Eftir mikið fjaðrafok um hvort skýrsla leiksins hefði verið rétt skrifuð, féllust menn á að úrslitin hefðu verið 89—88 KR í vil. Stigahæstur KR-inga var Jón Sigurðsson og var hann jafnframt besti maður vallarins. Skoraði Jón. 28 stig. Framarar áttu allir góðan dag og eru vafalaust menn framtíðar- innar. Bestur þeirra var þó John Johnson og skoraði hann 33 stig. ÁG/gíg Opiö bréf til HSÍ: Forkastanleg vinnubrögð Mbl. hefur borizt eftirfarandi til birtingar: EINKENNILEGT RETTARFAR lega grein fyrir þessu máli eins og það lítur út frá okkar bæjardyrum. DOMARI MÆTTI EKKI Á s.l. vori fóru fram tveir leikir í handknattleik milli meistaraflokka karla Breiðabliks í Kópavogi og Þórs frá Akureyri. Til þessara leikja var stofnað til að fá úr því skoriö hvort liðið ætti aö leika í 2. deild á því keppnistímabill sem nú er að hefjast. Fyrri leikur liöanna fór fram að Varmá 23. apríl og sigraði Þór með einu marki. Bar þar ekkert sérstakt til tíðinda, en öðru máli gegndi um síöari leikinn, sem fram fór á Akureyri 4. maí. Sá leikur hefur nú nýlega, eöa heilum 130 dögum seinna, verið dæmdur ógildur. Það er skoðun stjórnar Handknatt- leiksdeildar Þórs, aö tilurö kæru Breiðabliks, aö leikurinn yröi dæmd- ur ógildur, málsmeðferö dómstóls HSÍ og niðurstaða dómsins sé með slíkum endemum aö engin dæmi séu slíks. Þar sem Þór gafst enginn kostur á að fylgjast með málsmeöferö fyrr en dómur var fallinn, hvað þá aö dómstóllinn sæi ástæöu til að heyra álit Þórs á málsatvikum, þá verður ekki hjá því komizt að gera opinber- Þegar umræddur leikur átti að hefjast kom í Ijós að annar dómarinn var ekki mættur. Var þá gerð gangskör að því að leita að honum en án árangurs. Nú voru góð ráð dýr; leikmenn Breiöabliks komnir um langan veg og enginn dómari nær- tækur, sem hafði landsdómararétt- indi. Var nú komin upp svipuð staða og leikmenn Þórs höfðu oft staöið frammi fyrir fyrir sunnan, að skipaðir dómarar létu ekki sjá sig. í slíkum tilvikum hafði Þór oft samþykkt að fá nærtæka dómara til aö bjarga málum þótt þeir heföu ekki fyllstu réttindi. Með þetta í huga var Breiðabliksmönnum bent á að í salnum væri maður sem heföi héraösdómararéttindi en væri þrátt fyrir þaö vanur aö dæma erfiða leiki. Gekk nú hvorki eða rak og hálf klukkustund liöin frá því leikurinn átti að hefjast. Fyrir Þór var það að sjálfsögöu ekkert sérstakt kappsmál að leika leikinn þennan dag og helst heföi Þór kosið aö fresta leiknum og fá dómara með fullum réttindum. Fyrir Breiöablik gegndi aö sjálfsögðu öðru máli; ferðalag fyrir hundruö þúsunda er auövitað þungt lóö á vogarskálina þegar liö tekur ákvörö- un um þaö hvort leika skuli leik þótt dómarar hafi ekki fyllstu réttlndi. Að lokum tjóðu Breiðabliksmenn sig fúsa að leika leikinn, þótt annar dómarinn hefði ekki fyllstu réttindi. Við viljum í þessu sambandi lýsa því sem ósannindum, aö þeim Breiða- bliksmönnum hafi ekki verið kunnugt um þennan vankant á réttindum annars dómarans en á því þrástagast þeir í langri greinargerö til dómstóls HSÍ. Við gerum okkur grein fyrir því, að það er alvarlegur hlutur aö bera á félaga í íþróttahreyfingunni aö þeir segi ósatt, en viö staöhæfum það sem að framan er sagt er rétt. Barnaskapur okkar var einasta sá, að fá ekki skriflegt samþykki Breiöa- bliksmanna fyrir dómurunum. Þaö er í þessu sambandi athyglis- vert að leikurinn dróst í meira en hálfa klukkustund og ef Breiöabliks- menn stóöu í þeirri trú að báöir dómararnir væru með full réttindi, eftir hverju var þá beðið? Leikurinn fór síöan fram og sigraði Þór með fimm marka mun. Engar fregnir bárust af því að Breiðabliks- menn heföu fengið á bak orða sinna og kært leikinn fyrr en seint í sumar, en þá hafði Þór ráðið þjálfara og mikið starf hafiö fyrir keppni í 2. deild. KÆRA LÖGÐ FRAM Dómstól HSÍ barst kæra frá Handknattleiksdeild Breiðabliks vegna leiksins meö bréfi dags. 5. maí. Skömmu síðar ritar deildin annaö bréf til dómsins og lá því fyrir dómstólnum 4'/2 vélrituö síða frá Breiðablik. Þaö hefði því ekki verið til mikils mælst aö Þór fengi aö leggja orð í belg, því málið er höfðað gegn Þór. En slíkt var ekki gert og verður ekki annaö sagt en að réttarörygginu sé nokkuð áfátt; í Sovétríkjunum fá þó sakborningarnir aö hlusta. í stuttri greinargerð dómarans (þess sem hafði full réttindi) kemur fram það álit hans, að það komi honum vægast sagt á óvart að Breiöabliksmenn skyldu reyna að kæra leikinn þegar gangur hans sé hafður í huga. En hvað sém því líður er hitt einnig Ijóst, að dómstóllinn hafði markað stefnu í nákvæmlega samskonar máli einum og hálfum mánuöi áður en umræddur leikur fór fram. ________FORDÆMI FENGID _________ í marz s.l. kæröu Haukar leik við Þór í fyrstu deild kvenna m.a. á þeim forsendum að annar dómarinn full- nægði ekki ítrustu kröfum. Það vill svo til að hér var um sama manninn að ræða og Breiðabliksmenn byggðu kæru sína á. í niðurstöðum dómsins segir um þetta m.a.: „Alkunnugt er að fjölmargir leikir í yfirstandandi landsmóti eru ýms- ist dæmdir af einum dómara eða af réttindalausum dómurum. Meö hliösjón af þessu pykir fráleitt að láta vankanta af pessu tagi varða ógildingu leiks“. (Leturbr. Þórs) Af þessu er Ijóst, aö dómstóllinn hafði kveðið upp stefnumarkandi dóm, a.m.k. að því er tók til yfirstandandi landsmóts. Hins vegar var kunnugt um þá skoöum dóm- stólsins og stjórnar HSÍ að fyrir næsta landsmót yrðu dómaramálin færö í fastara form og undir þaö skal tekið. Með tilliti til þessa dóms er vitað aö margar kærur um svipuð tilvik sáu aldrei dagsins Ijós; dómstóllinn hafði markað stefnuna, eða hvaö? STEFNULEYSI OPINBERAD Það kom því eins og þruma úr heiöskíru lofti þegar sami dómur kemst aö því aö ógilda skyldi seinni leik Þórs og Breiöabliks, en í þeim dómi segir m.a.: „Þykir sjálfsagt að taka kröfu UBK til greina og hinn kæröi leikur sé því endurtekinn, enda annar dómarinn réttindalaus." (sic) (Leturbr. Þórs). Vont er þeirra ranglæti, en verra þeirra réttlæti. Formaður dómsins hefur látið hafa það eftir sér opinberlega að bréfa- skipti dómstólsins og stjórnar HSÍ í millitíöinni um ástandið í dómaramál- um hafi ráðið um breytta afstööu dómsins. Slíkt er auövitaö aumlegt yfirklór; það er hverjum manni Ijóst, að því aöeins hefur slíkt þýöingu, aö félögunum sé tilkynnt um innihald slíkra bréfa og breytta stefnu. Lög öðlast t.d. ekki gildi fyrr en landslýö hafa verið birt þau. Það er skoðun stjórna Handknatt- leiksdeildar Þórs, aö hér hafi dómstóllinn brotið þær reglur, sem hver sómakær dómstóll kappkostar að halda í heiðri. Það er einnig skoöun okkar aö þessi dómur sé virðingu handknattleiksins ekki sam- boðinn enda virðast dómarar ofur- seldir duttlungum og stefnuleysi. AÐ LÆRA AF REYNSLUNNI Við gerum okkur Ijóst að þessum dómi er ekki hægt að áfrýja og leikurinn verður endurtekinn. En það mega þeir Breiðabliksmenn vita, að við höfum mikið lært. Við héldum t.d., aö einlægast væri aö útkljá málin á leikvellinum en ekki í réttarsalnum, við stóðum í þeirri trú aö orð íþróttamanna væru jafngild undirskrift. En því miður neyðumst við til að endurskoða þessa afstööu okkar. Reynslunni ríkari munum við mæta aftur til leiks og þá aöeins meö eitt í huga: AÐ SIGRA. En þaö er trú okkar, aö fleiri geti numið nokkurn lærdóm af reynslu okkar. Það er t.a.m. full ástæöa fyrir næsta þing HSÍ aö leiða hugann aö því hvort einfalt dómskerfi, þrátt fyrir augljósa kosti, hafi ekki fólgnar í sér það margar hættur að ástæöa sé til aö hafa þau tvö. Reynslan sú sem fékkst af þeim dómi, sem hér hefur verið gerður að umtalsefni bendir til þess að skoöa þurfi þessi mál ofaní kjölinn; heiður handknattleiksins er í veði. Stjórn Handknattleiksdeildar Þórs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.