Morgunblaðið - 03.10.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTOBER 1978
3
Ungir sjálfstæðismenn:
18 ára kosti-
ingaaldur
AUKAÞING SUS, sem haldiö var
um helgina, samþykkti ályktun,
þar sem hvatt er til þess að
kosningaaldur verði lækkaður í 18
ár. Ályktun SUS-þings er svo-
hljóðandi:
„Þing S.U.S. haldið á Þingvöll-
um 30. september — 1. október
telur tímabært að lækka kosninga-
aldur í 18 ár. Þingið telur að fólk
sem orðið er 18 ára sé fullfært til
að móta skoðanir sínar í þjóðmál-
um og því eðlilegt að kosninga-
aldur sé miðaður við þann aldur."
Séra Kristján Róbertsson tók við starfi sóknarprests Fríkirkjunnar við guðsþjónustu á sunnudag og
jafnframt lét séra Þorsteinn Björnsson af störfum. Við guðsþjónustuna skírði séra Þorsteinn síðasta
barnið, sem hann skírir í kirkjunni. Ljósm. Mbl.i RAX.
----» ♦ »
Þórsnes seldi
fyrir 15,8 m. kr.
VÉLBÁTURINN Þórsnes 2. SH
frá Stykkishólmi seldi 53 lestir af
hlönduðum fiski í Cuxhaven í gær,
fyrir 100 þús. mörk, eða 15,8 millj.
kr. Meðalverð á hvert kg er kr. 293.
Mörg skip eiga að selja erlendis í
þessari viku og í dag selja t.d. 5
skip í Englandi og Þýzkalandi.
Grunnskólakennarar fara af fundinum í Gamla bíói og afhenda samþykkt fundarins í stjórnarráðinu.
Um 30% grunnskólakennara
á fundi um kennaradeiluna
Skemmdir í fár-
vidri í Ólafsvík
Menntamálaráðherra er með tillögu til
lausnar en fjármálaráðherra fastur fyrir
SAMBAND grunnskólakennara
héit fjöimennan fund í Reykjavík
í gær. þar sem samþykkt var
ítrckun á fyrri ályktun sam-
bandsins um jafngildi kennara-
prófs til launa án tillits til þess á
hvaða tíma það hefur verið tekið.
Þessi samþykkt var síðan afhent
ráðherrum þeim er með máiið
hafa að gera en menntamálaráð-
herra hefur lagt tillögur um
lausn þessa máls fyrir fjármála-
ráðherra og er nú beðið ákvörð-
unar hans.
Að sögn Valdimars Gestssonar,
skólastjóra, er fundur grunnskóla-
kennaranna í dag einsdæmi, því að
þarna voru saman komin milli
25—30% grunnskólakennara í
landinu, þrátt fyrir að til fundar-
ins var boðað með fárra daga
fyrirvara, svo að Valgeir kvaðst
telja að þetta sýndi vel hversu
málið brynni almennt á stéttinni.
Engin frekari tímamörk voru
ákveðin á fundinum í gær, en
fulltrúaráð sambandsins hefur
verið boðað saman í síðasta lagi
nk. föstudag liggi þá ekki fyrir
úrlausn í þessu máli, sem grunn-
skólakennarar telja sig geta fallizt
á. Á þessum fundi mun fulltrúa-
ráðið meta stöðuna og taka
ákvörðun um frekari aðgerð, en
hann kvaðst fastlega vænta þess
að þá lægi fyrir af ríkisvaldsins
hálfu einhver tillaga um leið til að
semja um lausn á þessu máli.
Vaigeir kvað þá grunnskóla-
kennara hafa fengið þau svör frá
menntamálaráðherra, að hann
vildi leysa þetta mál og hefði lagt
tillögu í þá veru fyrir fjármálaráð-
herra, sem hefði hins vegar taliö
mjög erfitt eins og málum væri
háttað að ganga til samninga við
kennarana. Valgeir kvaðst ekki
geta sagt hvaða leið kennarar
myndu fara ef fjármálaráðherra
vildi ekki breyta afstöðu sinni. Til
álita kæmi að fara með túlkunar-
atriði í kjarasamningum fyrir
kjaranefnd á nýjan leik en hann
kvaðst þó gera ráð fyrir því, að það
yrði síðasta úrræðið. Hann tók
fram, að grunnskólakennarar
hefðu aldrei gert kröfu um að
málið yrði leiðrétt í einu vetfangi
heldur að séð yrði fyrir endann á
því á samningstímabilinu.
Valgeir sagði, að Samband
grunnskólakennara hefði fengið
lauslegar upplýsingar um það í
hverju tillögur menntamálaráð-
herra til lausnar málinu væru
fólgnar en það væri á grundvelli
þess að starfsaldur væri fyllilega
metinn eftir launaflokkum. í því
væri fólgið, að niðurstaðan yrði
hin sama og k^nnarar væru að
berjast fyrir, þannig að kennarar
væru að losa sig út úr stigakerfinu
að mestu, sem þeir hefðu búið við
frá 1970 og væri nánast arfur frá
starfsmatinu.. Það væri álit for-
ráðamanna bæði Sambands
grunnskólakennara og Landssam-
bands framhaldsskólakennara að
það væri vænlegásta lausnin fyrir
stéttina og losaði þennan stóra
hnút sem væri í lægsta launaflokki
grunnskólakennara, þar sem unnt
væri að finna fólk með mjög
langan starfsaldur að baki.
Valgeir kvað ekki afráðið með
neinar frekari aðgerðir nema þær
sem þegar væru hafnar og væru í
alla staði löglegar, því æfinga-
kennslan við Kennaraháskólann
væri algjörlega aukavinna kenn-
ara.
Frystihúsa-
nefndin tekin
til starfa
NEFND sú, sem sjávarútvegsráð-
herra skipaði til að gera úttekt á
stöðu frystihúsa á Suðurnesjum og
í Vestmannaeyjum hefur nú hafið
störf. Formaður nefndarinnar,
Gamalíel Sveinsson viðskipta-
fræðingur, sagði í samtali við Mbl.
að ekki væri vitað hvenær nefndin
lyki störfum, enda hefði henni ekki
verið sett nein tímasetning. Kvað
hann mikla vinnu vera framundan
hjá nefndinni og væri unnið af
fullum krafti, en rekstrargrund-
völlur hvers húss á svæðinu yrði
kannaöur.
Ólafsvík, 2. september.
EFTIR margar kyrrviðrasamar
vikur gerði hér ofsaveður af
suðaustri aðfararnótt sunnudags.
Hvassast var á milli kl. 1 og 3 um
nóttina. og var þá fárviðri.
Nokkrar skemmdir urðu vegna
Mál Landa-
kots verða
athuguð
— segir fjármálaráðherra
„MÁL Landakotsspítala munu
sjálfsagt koma til kasta fjármála-
ráðuneytisins á næstunni, en ég
hef ekki haft aðstöðu til þess
ennþá að kynna mér mál þess
sjúkrahúss sérstaklega," sagði
Tómas Árnason fjármálaráðherra
er Mbl. spurði hann í gær, Hvort
erfiðleikar spítalans vegna van-
efna á greiðsluloforðum ríkisins
hefðu komið til kasta hans.
„Það hefur komið í ljós á þessu
ári,“ sagði fjármálaráðherra, „að
kostnaðurinn við spítalana, bæði
bæjar og ríkis, hefur farið mjög
fram úr áætlunum svo það kemur
út af fyrir sig ekki á óvart að það
hafi bitnað á greiðslum til Landa-
kots sem annarra sjúkrahúsa."
veðurofsans. Hjá Hraðfrystihúsi
ólafsvíkur brast t.d. gafl í
nýreistri bogaskemmu og plötur
fuku af húsinu. Ekki er nema
vika síðan skipað var út 50
lestum af skreið úr skemmunni
og urðu þar því ekki skemmdir á
afurðum.
Hálfuppslégin steypumót fuku
hjá Vegagerð ríkisins við Fossá.
Nokkuð var um að sandur og möl
fyki á bíla. Ymislegt lauslegt fauk
um þorpið en ekki varð verulegt
tjón af því. Á bænum Tröð í
Fróðárhreppi munaði minnstu að
þakið fyki af íbúðarhúsinu því
viðir skekktust.
Oft er „stóri sunnan“ grimmur
hér, en mönnum kemur saman um
að þetta hafi verið með því
harðasta.
Fréttaritari
Hvetja til stofmmar
varnarsamtaka
skattgreiðenda
Á aukaþingi Sambands ungra
sjálfstæðismanna. sem haldið var
um helgina. var samþykkt álykt-
un. þar sem fagnað er hugmynd-
um. sem fram hafa komið um
varnarsamtök skattgreiðenda og
hvetur þingið til stofnunar slíkra
samtaka. Ályktun ungra sjálf-
stæðismanna um þetta efni er
svohljóðandii
Hesthús
og hlaða
brunnu
ELDUR kom upp í hlöðu á bænum
Arnarstöðum í Hraungerðishreppi
laust eftir klukkan sjö á laugar-
dagskvöldið. Slökkviliðið fór frá
Selfossi, um 3 km leið, og hóf
slökkvistarf. Hey hafði verið sett í
hlöðuna fyrr um daginn og var
mikill eldur í henni. Tókst ekki að
bjarga hlöðunni né áföstu hesthúsi
fyrir 20 hesta. Brunnu bæði húsin
og 500 hestburðir af heyi, sem voru
í hlöðunni. Hvortveggja var
vátryggt.
„Aukaþing S.U.S. haldið að
Þingvöllum 30. september — 1.
október 1978 fordæmir harðlega
þá skattastefnu sem ákveðin er í
bráðabirgðalögum ríkisstjórnar
vinstri flokkanna frá 8. september
s.l.
Þingið átelur sérstaklega aftur-
virkni skattanna og telur að
siðleysi af því tagi sem hér um
ræðir grafi undan réttaröryggi
borgaranna og fari í bága við
grundvallaratriði íslenzkrar
stjórnskipunar.
Jafnframt telur þingið að skatt-
píning sú, sem ríkisstjórnin beitir
nú þá þegna landsins, er talið hafa
samvizkusamlega fram til skatts
og hafa lagt á sig mikla viðbótar-
og aukavinnu, sé með öllu óverj-
andi. Fagnar þingið framkomnum
hugmyndum um varnarsamtök
skattgreiðenda og hvetur til stofn-
unar slíkra samtaka, er hafi það
að markmiði að létta skattbyrði
almennings í landinu og draga að
sama skapi úr umsvifum ríkisins.
Þingið varar einnig eindregið
við því, að skattgreiðendur séu
Játnir standa undir atvinnu-
rekstrinum og telur fráleitt að
fara á ný út á braut millifærslu-
kerfisins eins og ríkisstjórnin
hefur nú gert.“