Morgunblaðið - 03.10.1978, Page 16

Morgunblaðið - 03.10.1978, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978 Geir Hallgrlmsson á aukaþingi SUS: Næsti landsfundur á að fjalla um stefnu flokksins og viðhorf á 9. áratugnum Þurfum að leggja fyrir þjóðina starfsskrá næstu ríkisstjómar Sjálfstæðisflokksins GEIR Hallgrímsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, flutti ræðu og svaraði fyrir- spurnum á aukaþingi Sam- bands ungra sjálfstæðis- manna, sem haldið var um helgina. Hér fer á eftir frásögn af þessari ræðui Geir Hallgrímsson hóf mál sitt með því að lýsa ánægju sinni með að fá þarna tækifæri til að hitta unga sjálfstæðismenn og ræða í þeirra hóp stjórnmálaástandið og einnig málefni Sjálfstæðisflokks- ins. „Ég minnist þess, að SUS hefur ekki oft haldið aukaþing en meðal annars komu ungir sjálf- stæðismenn saman til aukaþings fvrir 10 árum þegar sjálfstæðis- menn töldu sig hafa orðið fyrir áfalli að loknum forsetakosning- um þá. Það er ekki að tilefnis- lausu, að aukaþing SUS er kvatt saman nú. Við sjálfstæðismenn verðum að horfast í augu við, að í -fyrsta skipti frá stofnun flokksins höfum við misst meirihluta í borgarstjórn Reykjavikur og höfum aldrei frá upphafi náð jáfn lit'Iu fylgi við alþingiskosningar eins og nú í sumar,“ sagði Geir. „í þessu sambandi er mikilvægt að gera sér grein fyrir því hvað er framundan en þessi breyttu viðhorf hafa haft í för með sér ýmiss konar sundurþykkju innan Sjálfstæðisflokksins, sem ekki síst hefur komið fram, þegar þurft hefur að taka afstöðu til annarra stjórnmálaflokka,“ sagði Geir og hélt áfram: „Það skiptir miklu að flokksmenn standi saman og séu einhuga út á við.“ Breytingar á fyrir- komuiagi flokksforystu koma vel til greina „Sjálfstæðismenn þurfa að breyta mörgu í kjölfar kosninga- úrslitanna. Við þurfum að hyggja að skipulagi flokksins og það er ánægjulegt að fá að heyra tillögur ykkar, ungra sjálfstæðismanna, í þessu efni. Eg tel að tillaga sú, sem hér hefur verið til umfjöllunar á þinginu, um hina svonefndu þrígreiningu forystu flokksins komi til athugunar. En hún gerir ráð fyrir að ekki séu eingöngu kosnir formaður og varaformaður flokksins og þingflokksins heldur séu einnig kjörnir sérstaklega formaður og varaformaður mið- stjórnar flokksins. Þá hefur einnig borið mjög á góma að kjósa sérstaklega ritara flokksins á landsfundi og ritarinn væri jafn- framt formaður framkvæmdaráðs flokksins, sem væri fámennara en miðstjórn og kæmi saman oftar en miðstjórn. Hlutverk ritara og framkvæmdaráðs væri þá að hafa með höndum yfirstjórn flokks- starfsins. Eg tók líka eftir því, að í tillögum ykkar um breytingar á starfi og skipulagsháttum SUS er gerð tillaga um að kjósa formann og varaformann sambandsins sameiginlega á þingi þess. Mér finnst að þetta form sé að vísu nokkur þversögn við það fyrir- komulag, sem þið teljið flokknum æskilegast á landsvísu, en ég tel engu að síður að það gæti kannski komið til greina varðandi kosningu formanns og varafor- manns flokksins á landsfuridi. I þessu máli er mikilvægt að við komum okkur saman um hvaða leiðir við viljum fara í þessu efni og þá hvort við viljum gera þarna bre.vtingu á. Það má vera alveg ljóst, að formaður og varafor- maður flokksins geta ekki gegnt skyldum sínum gagnvart flokkn- um og flokksstarfinu þegar þeir eru báðir ráöherrar í ríkisstjórn. Það er hins vegar mikilvægt að flokksstarfinu sé sinnt eins vel og frekast er kostur en það verður því að finna þarna einhverja lausn þannig að forystumenn flokksins geti einnig óskiptir helgað sig sérstaklega stefnumörkun í stjórnmálunum. Hvaða leið, sem við veljum í skipulagsmálunum, verður að vera skýrt hver ber ábyrgðina í hverju tilviki. Hugsjónir eru Það mikilvægasta En þó skipulagsmál eins stjórn- málaflokks séu þýðingarmikil, eru hugsjónir þær, sem flokkurinn berst fyrir, það mikilvægasta. Þær verða að taka breytingum í rás tímans, þó enn fylgjum við upp- haflegri stefnu. Við þurfum ekki að breyta stefnu flokksins heldur þurfum við að laga hana að breyttum viðhorfum á hverjum tíma.“ Geir sagði, að þegar hefðu verið lögð drög að því að leggja tillögur um breytingar á skipulagi flokks- ins fyrir formanna- og flokksráðs- fund flokksins, sem halda ætti um næstu mánaðamót og ætlunin væri að þessar tillögur yrðu auk til- lagna frá málefnanefndum flokks- ins ræddar í flokksfélögunum fyrir landsfund flokksins. „Eg er þeirr- ar skoðunar, að næsti landsfundur flokksins eigi að fjalla um stefnu Sjálfstæðisflokksins og viðhorfin á 9. áratugnum. Við eigum að marka stefnu okkar fyrir framtíðina og það þannig, að við séum reiðubúnir að leggja fram fyrir þjóðina starfsskrá næstu rikisstjórnar sem Sjálfstæðisflokkurinn tekur þátt í,“ sagði Geir. Formaöur flokksins veröur að njóta stuðnings út ó viö „Sjálfstæðismenn tala um að það þurfi að gera breytingar á forystu flokksins. Sá maður sem er í forystu flokksins þegar hann tapar Reykjavík og fær sitt rninnsta fylgi — hlýtur að verða gagnrýndur. Eg hlýt sem for- maður flokksins að bera ábyrgð á málum flokksins, hvort sem á móti blæs eða við erum í sókn. Eg hef sem formaður flokksins bæði hlotið meðbyr og mótbyr alveg eins og flokksmenn verða og að búast við. Þess vegna er ég staðráðinn í að gefa kost á mér til endurkjörs til formannsembættis Sjálfstæðisflokksins á næsta landsfundi hans. Landsfundur verður að ákveða hvort mér verður falin forysta flokksins áfram að ekki. Eitt vil ég biðja unga sjálfstæðismenn að vera mér sammála um: að formaður flokks- ins, hver sem hann er, eigi að njóta fylgis flokksfélaganna út á við. Það er nauðsynlegt, ef hann á að afla flokknum fylgis og ef hann á að koma fram sannfærandi gagn- vart þjóðinni. Við getum hins vegar gert upp okkar mál á landsfundum flokksins en við eigum að geta notað okkur vett- vang flokksfélaganna til að ræða okkar mál og ég vil gjarnan fá að heyra gagnrýni ykkar á mig og störf mín sem formaður flokksins. Við erum í þessum flokki til að geta rætt saman um skoðanir okkar og deilumál en við skulum ékkí láta áróður andstæðinganna ráða því hverja við veljum til forystu í okkar flokki. Það er ekki hægt að blekkja fólk til lengdar Eg vil líka að við ræðum hreinskilnislega um hvort Sjálf- stæðisflokkurinn sé að tapa fylgi unga fólksins. Ég er ekki að fullyrða að svo sé en ef það er rétt þá er þar bæði við flokksforustuna og samtök ungra sjálfstæðis- manna sem önnur samtök sjálf- stæðismanna að sakast. Við verðum líka að treysta á ykkur í því efni að þið komið viðhorfum ungs fólks á framfæri innan flokksins, þannig að taka megi tíllit til þeirra við mótun stefnu flokksins á hverjum tíma. Það er sagt, að fyrrverandi ríkisstjórn hafi brugðist stefnu Sjálfstæðisflokksins. Við náðum að vísa ekki fram öllum stefnu- málum Sjálfstæðisflokksins. En ef við lítum á þær kosningastefnu- skrár, sem lagðar voru fram fyrir síðustu alþingiskosningar og stefnu vinstri stjórnarinnar nú, sést að Sjálfstæðisflokkurinn hef: ur náð ýmsum málum fram. í sumar var ekki grundvöllur fyrir samvinnu okkar við vinstri flokk- ana og í því plaggi, sem við Gunnar Thoroddsen lögðum fram í viðræðum okkar við hina flokkana, var tekið fram, að aukin skatt- heimta kæmi ekki til greina af okkar hálfu. Við sjálfstæðismenn getum borið höfuðið hátt, því að það sem við sögðum fyrir kosning- ar hefur komið á daginn. Það sem við sögðum fólkinu fyrir kosningar var rétt — við þurfum ekki að biðjast afsökunar. En við þurfum að ganga út á meðal fólksins og sannfæra fólk um að við höfum haft rétt fyrir okkur. Það er hægt að blekkja fólk í skamman tíma en það gengur ekki til lengdar. Við skulum nota tímann í stjórnarand- stöðu til að sýna fólki fram á að við vorum ekki að blekkja það, eins og andstæðingarnir, en höfðum jákvæða stefnu fram að færa. Þá er oröið stutt í höftin Þegar Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag háðu sína kosningabar- áttu hljómaði krafan „Samninga í gildi“ en hver hafa orðið örlög þeirrar kröfu undir forustu ríkis- stjórnar þessara flokka. í fyrsta lagi hefur ríkisstjórnin ekki efnt fyrirheit sitt — mestu kosninga- blekkingu allra tíma — Samning- ana í gildi. En að því leyti sem reynt er að láta líta svo út hefur ríkisstjórnin falsað vísitöluna aðeins til að blekkja launþega og í þriðja lagi fela aðgerðir hennar í sér tilfærslu á fjármagni úr einum vasa í annan og skattborgurunum er ætlað að standa undir halla- rekstri atvinnuvegarina, sem ekki getur gengið til lengdar. Og í fjórða lagi vill þessi ríkisstjórn ráða því hvaða vörur fólk kaupir — þá er orðið stutt í næsta stig — höftin. Við sjálfstæðismenn viljum frelsi og að sjálfstæðir ein- staklingar fái að ráða málum sínum sjálfir. Eitt er víst, að ef núverandi ríkisstjórn á að takast að ná tökum á verðbólgunni samkv. þessari stefnu, verður hún að beita meiri þvingunum — meiri höftum eða ríkisstjórnarsamstarf- ið rofnar. Nú er því um að ræða skarpari skil en oft áður í íslenskum stjórnmálum. Við sjálfstæðismenn höfum tækifæri til að stíga að fullu það skref, sem ekki náðist á viðreisnarárunum. í síðustu ríkis- stjórn náðum við þó fram nýjum skattalögum, nýjum hlutafélaga- lögum, nýjum verðlagslögum og vaxtamálin voru leiðrétt og fleira má nefna. Þetta er árangur, sem ekki náðist fram á viðreisnarárun- um. Þegar við verðum búnir að ná okkar fyrra fylgi aftur — þá eigum við að vera undir það búnir að stíga skref til frekara frjálsræðis, raunar stíga skrefið til fulls. Veröum að vera tilbúnir í kosningu Ég er ekki einn þeirra, sem spá þessari ríkisstjórn skammlífis, þótt þjóðarinnar vegna sé þess óskandi. En allt bendir til að á ótraustum grunni sé byggt í stjórnarstarfi. Við sjálfstæðis- menn skulum vera undir það búnir að ganga til kosninga hvenær sem er. Við skulum sýna landsmönnum að við látum ekki hugfallast þó við töpum og núum ekki salti í okkar eigin sár og drögum þannig úr baráttuþreki okkar gagnvart andstæðingunum. Við skulum ekki rífa niður heldur gagnrýna á málefnalegan hátt. Það er ungra manna háttur að horfa fram á veg og við vonum að okkur takist sameiginlega að vinna á ný það fylgi, sem flokkurinn tapaði í síðustu kosningum. Ég óska ykkur ungum sjálfstæðismönnum allra heilla í störfum á þessu auka- þingi," sagði Geir Hallgrímsson að lokum. „Eg er staðráðinn í að gefa kost á mér til endurkjörs á landsfundt „Landsfundar er að ákveða, hvort mér verður falin forysta eða ekkt „Það skiptir miklu að flokksmenn standi saman og einhuga út á viðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.