Morgunblaðið - 03.10.1978, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978
29
sumra þeirra a.m.k. í garð
Platons mun að verulegu leyti
mega rekja í eftirfarandi
áminningu hans varðandi
mannlegt líf í miklu menningar-
ríki, sem þá hafði orðið fyrir
þungbærum vinstri áhrifum, en
hana er að finna í „Politeia", V.
bók, 63. kafla:
„Gott og vcl. ungi vinur
minn, hvernig er því varið
með einræðið? Er ekki sann-
leikurinn sá, að lýðræðið
gengur sjálft sig til húðar í
óseðjanlegu frelsisæði?
Þegar feður temja sér að
láta börn sín blátt áfram lifa
og leika sér að eigin geð-
þótta, og óttast beinlínis að
vanda um við unglingana af
því að þeir eru hræddir við að
styggja þá?
Eða, þegar synirnar telja
sér leyfast það, sem feður
þeirra hafast að, hvorki virða
foreldra sína né skeyta um-
vöndunum þeirra, hafna öll-
um leiðbeiningum vegna þess
að þeir streytast við að
sýnast fullorðnir og geta
staðið á eigin fótum?
Eða, þegar kennararnir
skjálfa undir sömu kringum-
stæðum fyrir lærisveinum
sínum og smjaðra fyrir þeim
fremur en að beina þeim af
festu og með harðri hendi á
réttar brautir, með þeim
afleiðingum. að lærisveinarn-
ir skilja hvorki upp né niður
í slíkum kennurum?
í sannleika sagt erum við
þegar sokknir svo djúpt, að
ungdómurinn telur sig jafn-
oka hinna eldri, gerir meira
að segja uppsteyt gegn þeim í
orði og æði. en hinir eldri
slást í hóp hinna yngri og
leitast við að þóknast þeim
með því að láta sem þeir
heyri ekki þvaður þeirra og
sjái ekki ósæmilegt athæfi
þeirra eða taka jafnvel þátt í
ósómanum til þess að vekja
ekki grun um, að þeir séu
gleðispillar eða haldnir
myndugleikahugarfari.
A þennan hátt lamast sál
og mótstöðuafl allra ung-
menna. Þau verða þrjózku-
full og geta að lokum ekki
þolað. að af þeim verði
krafizt örlítillar hlýðni. Að
lokum taka þau siðan að
fyrirlíta lögin af því að þau
vilja ekki framar viðurkenna
neinn eða neitt yfir sér.
Og með þessum hætti leiðir
misnotkun hins lýðræðislega
frelsis beina leið í þrældóm
harðstjórnarinnar!“
Frá því að Platon reit þessa
áminningu sína og þangað til
Hellas var endanlega úr sögunni
sem heimsveldi og menningar-
ríki, liðu aðeins röskar tvær
aldir, og síðan um aðrar tvær
aldir þar til Grikkir voru svo
heillum horfnir, að Neró (keis-
ari Rómarríkis 54—68 e. Kr.)
lagði byggðir þeirra og borgir
undir sig með söng og hljóð-
færaslætti eingöngu.
Yfirleitt hefir mönnum gengið
óbjörgulega að læra af sögunni.
Þó hefir sú staðreynd síazt út,
að hún endurtaki sig afar
sjaldan nema annað hvort sem
skrípaleikur eða harmleikur.
Saga Hellas, og einnig Rómar-
ríkis, einhverra stórfenglegustu
heimsvelda mannkynssögunnar,
gæti vel verið að endurtaka sig
nú — sem skrípaleikur í austri
og harmleikur í vestri.
Og harmleikinn er tæplega
hægt að undirbúa og setja á svið
með kunnáttusamlegri hætti en
að kenna arftökunum, án þess
að blikna eða blána, að kenning-
ar og skoðanir „mesta, djúpúðg-
asta og frábærasta allra heim-
spekinga“ séu „viðbjóðslegar
og hreint og beint skelfilegar.“
„Skemmdarstarf-
semi var á fullu”
Sverris Runólfssonar — Lokaorð
Greinargerð
Áður í þessari greinargerð
sagðist ég hafa sætt mig við, að
mér hefði verið fyrirfram „kálað“
sem vegagerðarmanni hér á landi,
sem „mafían" ætlaði sér hvort sem
var. Það er nokkuð ergilegt að
verða að láta í minni pokann þegar
maður er búinn að vinna með og
fyrir þá færustu vegagerðarmenn í
heimi í yfir 20 ár. Einnig sagði ég,
að bréfaviðskipti, fundargerðir og
reikningar væru opin öllum sem
vildu, því eins og ég sagði, þá á
skattborgarinn heimtingu á að
vita hvert hver einasta króna fór.
Beint og óbeint komu 13 verktakar
\ið þessa tilraun. Þegar tal barst
að „Sverrisbraut", þá verður mér
stundum að orði, að ég hafi bara
ekkert ráðið við þessa ræningja.
En þetta er þó sagt í nokkru gamni
því oftast fékk ég mín 16% ofan á
kostnað, samkvæmt samningi við
Vegagerðina. Það er aðeins vegna
þess, að þegar ég sá hvernig átti að
standa að þessari tilraun, sat ég
fast og sagðist ekki hreyfa mig
fyrr en ég fengi samning upp á
prósentur af öllu verkinu, sem
kallað er á ensku cost plus. Það
getur verið að sumir álíti, að ég
hefði átt að gera tilraunina fyrir
vissa upphæð, sem hefði verið
sjálfsagt, ef ég hefði aðeins tekið
að mér „Blöndun á Staðnum" í
verkinu, sem aðeins tók 4 klukku-
tíma.
Enginn vill láta gera sig gjald-
þrota ef hann kemst hjá því og af
þeim sökum einungis tók ég að
mér allt verkið. Það var og er verið
að reyna að drepa mig fjárhags-
lega með því að neita að borga
prósentur af öllu eins og samning-
urinn segir. Einnig er neitað að
borga fyrir aukavinnu sem ég
framkvæmdi.
Eins og kom fram áður ollu
einhver dularfull öfl því, að ég
fékk ekki sum tækin nema á
sunnudögum. Einnig fékk ég ekki
asfalt haustið 1975 þegar tilbúið
var að leggja slitlagið, sem er álíka
og maður væri að byggja hús.'
Hann væri búinn að setja raftana,
borðin undir pappann og pappann
undir þakplöturnar en þá kæmi
einhver og segði, að þakplöturnar
fengust ekki fyrr en að ári liðnu.
Ég býst við að það yrði lítið eftir
af pappanum, borðunum og jafn-
vel röftunum eftir veturinn, án
þakplatanna. Já: þetta er aðeins
eitt dæmið af tugum, hvernig
skemmdarstarfsemin gegn þessari
tilraun var á fullu frá byrjun til
enda. Og er ég tilbúinn að rökræða
það hvenær sem er og við hvern
sem er.
Sementsbundna burðarlagið
stóð óvarið í heilt ár, frá því ágúst
1975 til haustsins 1976. Hér álít ég
að hafi verið reynt að eyðileggja
tilraunina. Veturinn 1975—76 var
einhver mesti umhleypingavetur í
mannaminnum. Þess vegna er
óskiljanlegt að sementsbundna
burðarlagið skyldi ekki eyðileggj-
ast meir. Það hefur aðeins 4%
sement í sér en venjuleg steypa
hefur ca. 15% . Strax vorið ‘76 var
athugað hvaða viðgerðir þyrfti að
gera á kaflanum. Ráðgaðist ég um
það við fjóra verkfræðinga, og
varð niðurstaðan sú, að þær þyrfti
að gera sem fyrst. En nú kom bobb
í bátinn. Vegagerð ríkisins til-
kynnti mér (í bréfi 20. apríl 1976)
að ekki mætti eyða meiru en þrem
milljónum í allt sem eftir var, þ.e.
í viðgerðir og slitlag á allan
kaflann. Þessi tilkynning kom mér
mjög á óvart, því að vitað var að
slitlagið eitt myndi kosta 4—6
milljónir, eftir þykkt. Eftir
þriggja mártaða þras á fundi þann
6. júlí með Vegagerðinni og
eftirlitinu var því ákveðið að
leggja slitlagið á án þess að gera
áður við það sem þyrfti. En að
sjálfsögðu var það neyðarúrræði
sem varð að taka sökum hinnar
naumu fjárveitingar. Að hinu
leytinu hefur fengist reynsla á
það, hvernig óvarið sementsbundið
burðariag með aðeins 4% sementi
stenzt íslenzka vetrarveðráttu.
Verður að segja eins og er, að ekki
virðist mega breyta út af þeirri
reglu um sementsbundið burðar-
lag að setja slitlag strax á. Oft er
þó brugðið út af þeirri reglu, og
þekki ég nokkur dæmi um slíkt frá
Kanada, en þá er þykkt sandlag
borið á burðarlagið áður en
umferð er hleypt á. Það þykir ekki
óeðlilegt að nota allt að 10%> af
sementi í burðarlag og væri
athyglisvert að reyna, hvernig það
reyndist hér. Þegar ekki fékkst
asfalt til að setja á burðarlagið
haustið 1975, skrifaði ég Vegagerð-
inni, þar sem ég fór fram á, að
athugað yrði, hvort æskilegt væri
að opna kaflann fyrir umferð. Að
setja umferð á sementsbundið
burðarlag er sama og fá auka
völtun, sem vitaskuld styrkir
burðarlagið. Það fékkst aldrei svar
frá Vegagerðinni við þessu. Ég hef
áður útskýrt þær níu mismunandi
tilraunir, sem éru í gangi á þessum
1200 metra vegarkafla og sagði
þegar slitlagið hafði verið sett á,
að ef einn fermetri af hverri
tegund heppnaðist, þá væri björn-
inn unninn.
Myndir teknar 7. maí 1977 sýna
greinilega að það eru ansi margir
fermetrar í hverri tilraun sem eru
óskemmdir og þessvegna er með
þessari tilraun sannað að með
fullkomnum tækjum gætum við
fengið malbikað vegakerfi á stutt-
um tíma. Ef menn ynnu saman
staðinn fyrir á móti hvor. öðrum.
Kostnaðaráætlunin sem skrifuð
var fyrir tilraunina var skrifuð
vorið 1974 og vitaskuld byggð á
hvað ætti aö vera hægt ef allt væri
með felldu og á dagvinnu einungis.
En eins og margir vita og sagt
áður fékk ég ekki sum tækin nema
á sunnudögum.og ekki var hægt að
vinna án þeirra. Einnig þegar ég
.sá að ég var ekki að fá nerna einn
þriðja af afkastagetu véla fór ég
fram á að borga mönnunum fyrir
tólf tíma en vinna þá aðeins átta.
Það fékkst ekki og var mér sagt að
ég nryndi setja „pressu á vinnu-
markaðinn." Þetta er alrangt, því
reynslan er sú að það er aðeins
sóun á peningum að vinna eins
langan vinnudag eins og íslending-
ar yfirleitt gera. Vegna þess hve
afköst rninnka, svo gífurlega með
þreytu manna. En nú ef við lítum á
útkomu þessarar tilraunar þá
sanna fyrstu 400 metrarnir að
sunnan, að það er hægt að þynna
malbikað slitlag a.m.k. tvo þriðju.
Þegar sementsbundið burðarlag er
notað undir. Tilraunin sannar
einnig að ónauðsynlegt er að
skipta eins mikið um jarðveg og
yfirleitt er gert hér. Þegar sem-
entsbundið burðarlag er notað, því
að á ca. 100 metra kafla þar sem
ekki var skipt um jarðveg hefur
engin viðgerð verið gerð til þessa
dags. Blöndun á staðnum tæknin
er fljótvirkasta vegagerðartækni
sem til er og hér á landi er mjög
nauðsynlegt vegna veðráttu að
geta lagt sem flesta km. á þeim fáu
góðviðrisdögum sem við höfum. Ég
vil taka það hér aftur fram að
vélin var aðeins fjóra klukkutíma
að blanda þennan 1200 metra
vegarkafla.
Til að lifa fjárhagslegu sjálf-
stæðu efnahagslífi er nauðsynlegt
að hafa gott vegakerfi, því vegirnir
eru slagæðar þjóðarinnar. Banda-
ríkjamenn segja: „Við höfum góða
vegi ekki vegna þess að við erum
ríkir, heldur erum við ríkir vegna
þess við höfum góða vegi“. Þessi
skrif mín hafa verið nokkurskonar
úttekt á baráttu minni fyrir betra
vegakerfi og svar við þeirri tregðu
vegagerðarmanna hér á samvinnu.
Þessi tregða kom fyrst í ljós með
birtingu greinargerðar Vegagerð-
ar ríkisins þann 20. nóv. 1970 þar
sem efast var um ágæti aðferðar-
innar „Blöndun á staðnum". Ég
býst nú við að flestir sem þurfa að
keyra mikið um landið.séu sam-
mála mér, að eitthvað verður að
gera, og það sem fyrst. Ég mun
halda baráttunni áfram þangað til
við höfum tveggja akreina malbik-
aða vegi hvora leið um allt landið.
Með breiðum köntum báðum meg-
in vegarins sem eykur öryggið að
miklum mun. Þegar ég kom heim
eftir langa fjarveru reyndi ég að
verða þjóðinni að gagni með minni
reynslu í vegagerð. Mér tókst það
víst ekki sem bezt að áliti sumra
vegagerðarmanna. Og þó: því mér
er oft þakkað fyrir að hafa ruslað
upp í þessu öllu og vakið athygli á
því hvað gott vegakerfi er nauð-
synlegt til uppbyggingar góðs
samfélags. Þeir möguleikar sem
koma í ljós eftir að við fáum góða
vegi um landið eru algjörlega
ótrúlegir fyrir efnahagslíf þjóðar-
innar. Mér er svo nákvæmlega
sama hver gerir þá. Það er
sannfæring mín að ef vel væri
stjórnað hér á landi þá gæti okkar
þjóðfélag verið það allra besta i
heimi. Þ.á m. fjárhagslega best
stætt í heimi og það á dugleg þjóð
skilið. í byrjun þessa máls fór ég
aðeins fram á að Vegagerð ríkisins
skrifaði undir þá skuldbindingu að
hún færi ekki út í þessa tækni í sjö
ár.
Það ætti að vera auðvelt fyrir
þá að skrifa undir þetta núna.
Þessi ósk er aðeins til að tryggja
aö ég fái frið til að afskrifa þær
vélar sem ég kæmi með. Þetta er
mín sanngjarna ósk enn þann dag
í dag. Ég hef samt gaman af þessu
öllu. En ég vil vara peningalitla
hugsjónamenn við að þaö getur
verið hættulegt að kveikja ljós hjá
leðurblökum. Og í því sambandi vil
ég. benda á þann mann sem kynnti
hér rafmagn fyrstur manna en dó í
einu herbergi upp á hanabjálka-
lofti norður á Akureyri, með eitt
kerti sér til hitunar og birtu.
Ég þakka kvnninguna.
S.R.