Morgunblaðið - 03.10.1978, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1978
39
WashinKton, 2. okt. Reuter.
CARTER forseti bauð í dag Anwar Sadat, forseta
Egypta, og Menachem Begin, forsætisráðherra ísraels,
að senda sendinefndir til Washington 12. október til þess
að hefja viðræður um friðarsamning milli landanna. í
Tel Aviv er sagt að Moshe Dayan utanríkisráðherra verði
formaður ísraelsku nefndarinnar.
„Kraftaverkabarnið" Angelina Rose í Chicago sem var fóstruð í kviðarholi í stað móðurlífs og lifði af.
Líkurnar á því að hún kæmi í heiminn voru einn á móti 45.000. Foreldrar telpunnar. Giachino og
Catherine Donatello, eru með henni á myndinni.
í Kaíró var tilkynnt að Sadat
forseti hefði falið Mustapha
Khalil, sem hefur gegnt ýmsum
embættum og stundað kaupsýslu-
störf, að mynda fljótt nýja ríkis-
stjórn sem forsetinn segir að verði
að „bera byrði friðar sem er þyngri
en byrði stríðs.“
Sadat bar mikið lof á Carter
forseta, sagði að ef hann hefði ekki
beitt áhrifum sínum hefðu Egypt-
ar hætt við viðræðurnar í Camp
David og bauð honum formlega að
taka þátt í undirritun friðarsamn-
ings Egypta og Israelsmanna.
Hussein Jórdaníukonungur kom
í dag til Oman, síðasta áfangastað-
arins á ferð hans til hófsamra
Arabaríkja sem hann hvetur til að
Pólver jar handteknir á andófsmanna-
fundi við landamæri Tékkóslóvakíu
Varsjá, 2. október. Reuter.
JACEK Kuron, helzti
leiðtogi pólskra andófs-
raanna, skýrði frá því í dag
að þrír Pólverjar hefðu
verið handteknir við landa-
mærin, sem liggja að
Tékkóslóvakíu, þar sem
þeir áttu fund með
tékkneskum andófsmönn-
um í gær. Pólskir öryggis-
lögreglumenn komu aðvíf-
andi og leystu upp fund-
inn. Þetta var í þriðja sinn,
sem pólskir og tékkneskir
andófsmenn koma saman á
þeim kafla landamæranna,
sem gengur undir nafninu
„Pólsk-tékkneski vináttu-
vegurinn“, en þegnar
beggja ríkjanna hafa hing-
að til fengið leyfi til að
hittast þar án þess að
landamæraverðir krefjist
þess að fá að skoða
persónuskilríki. Vegar-
kaflinn er um það bil einn
kílómetri að lengd.
Að þessu sinni var greinilegur
viðbúnaður beggja vegna landa-
Lsraelar stöðvuðu óvinabát
Brirut. Jorúsalem 1. okt. Reuter.
AL FATAH, skæruliðasamtökin
sem lúta stjórn Yassirs Arafats,-
sögðu í gær, sunnudag, að þau
bæru ábyrgð á skæruliðagjörð í
höfninni í ísraelsku borginni
Eilat. Kváðust talsmenn samtak-
anna hafa siglt báti hlöðnum
sprengiefni inn á höfnina,
sprengt hann í loft upp og unnið
skemmdir á skipum og tækjum
við höfnina. Aftur á móti hefðu
tveir píslarvottar látizt í árás-
inni. Þessi frásaga kemur ekki
heim og saman við útgáfu ísraela
af þessum atburði og mun þeirra
hlið vera nær sannlcikanum að
sögn fréttamanna sem komu á
staðinn.
ísraelskur byssubátur náði á sitt
vald bát Palestínumannanna hvar
hann stefndi til Eilat drekkhlað-
inn sprengiefni. Eilat er fjölsóttur
ferðamannastaður og meiri um-
ferð þar nú vegna nýárshátíða-
halda Gyðinga og mikil umsvif þar
við höfnina við Agabaflóa. Um
borð í sprengjubátnum voru þrír
Palestínumenn og mun hafa vakað
fyrir þeim að komast á braut í
gúmbát og inn í Jórdaníu sem er
aðeins steinsnar frá Eilat.
ísraelar hafa mjög eflt varnir
sínar á sjó eftir síðustu hryðjuverk
Palestínumanna og fengu njósn af
ferðum sprengibátsins löngu áður
en hann kom til Eilats. Palestínu-
mennirnir náðust.
Yassir Arafat, leiðtogi A1 Fatah,
hótaði nýlega að samtök hans
myndu gerast umsvifameiri en
áður eftir að Camp David-sam-
komulagið var gert.
mæranna, og kröfðust verðir
framvísunar allra, sem leið áttu
yfir landamærin.
Tékkarnir, sem væntanlegir
voru til fundarins, voru allir úr
hópnum, sem undirritaði Mann-
réttindaskrá ‘77, þar á meðal
Jaroslav Sabat og Jiri Nemec.
Pólverjarnir voru úr svonefndri
„Sjálfsvarnarnefnd pólskrar
alþýðu“, og þeir, sem örugglega
voru handteknir, heita Adam
Michnink, Piotr Naimski og Jan
Litynski. Talið er jafnframt að
auk þeirra hafi tveir Pólverjar
verið teknir höndum.
A fyrri fundum hafa andófs-
menn beggja landanna bundizt
fastmælum um að vinna saman,
auk þess sem þeir hafa skorað á
andófsmenn í öðrum Aust-
ur-Evrópulöndum að slást í hóp-
inn. Þá hafa þeir verið með
ráðagerðir um að halda alþjóðlega
ráðstefnu um andóf.
taka sameiginlega afstöðu til
samkomulagsins í Camp David.
Qaboos Bin Said soldán í Oraan er
eini Arabaleiðtoginn sem hefur
lýst yfir stuðningi við samkomu-
lagið.
Hafez Al-Assad Sýrlandsforseti
fór í skemmtisiglingu í dag með
austur-þýzka kommúnistaleið-
toganum Erich Honecker á vötn-
um Austur-Berlínar og þeir héldu
áfram viðræðum sínum um sam-
vinnu harðlínu-Araba og Sovét-
blakkarinnar.
Fréttastofan ADN sagði að
viðræðurnar í dag hefðu staðfest
andstöðu landanna gegn friðarvið-
ræðum Egypta við Israelsmenn.
Assad sagði í ræðu sem hann hélt
eftir að hann kom til Aust-
ur-Berlínar í fjögurra daga heim-
sókn að samkomulagið í Camp
David væri skref í átt til stríðs
frekar en friðar.
Irakskur valdamaður, Saddam
Hussein, varaformaður býltingar-
ráðsins, kom í tíag til Jeddah til að
leggja áherzlu á tillögu íraka um
stofnun öflugs sjóðs til að fá
Egypta til að snúa baki við
samkomulaginu í Camp David.
Skæruliði
handtekinn
Mflanó, 2. okt. AP. Reuter.
ÍTALSKA lögreglan tilkynnti á
sunnudag að hún hefði handtek-
ið eftirlýstan skæruliða Antonio
Savino sem er grunaður um að
vera einn forvígismanna Rauðu
herdeildarinnar og auk annarra
hryðjuverka staðið að mannrán-
inu og morðinu á Aldo Moro.
Lögreglunni tókst að hand
sama Savino eftir harkalegan
skotbardaga þar sem bæði hann
og einn lögreglumaður særðust
alvarlega.
Savino sem er 29 ára gamall
slapp úr fangelsi í júní 1977 og
var áköf leit gerð að honum sem
ekki bar árangur.
Sviss:
Enn magnast úlf-
úð EBE og Breta
Carter býð-
urtilfundar
Ráðstaf anir til að
rýra gildi frankans
Ziirich — 2. októher — Reuter
SVISSNESKA stjórnin gerði í
dag víðtækar ráðstafanir til að
reyna að hamla gegn frekari
hækkun svissneska frankans
gagnvart ýmsum erlendum gjald-
miðli, en hinar miklu gengis-
hækkanir að undanförnu hafa
valdið útflutningsatvinnuvegun-
um erfiðleikum, um leið og
dregið hefur úr ferðum útlend-
inga til landsins. í tilkynningu
svissneska seðlabankans í dag
sagði meðal annars, að áframhald
yrði á miklum dollarakaupum, og
mætti jafnvel búast við því að þau
fa'ru enn vaxandi, en tilgangur-
inn væri að draga úr verðgildi
. frankans fljótt og örugglcga, þar
sem hann væri greinilega of-
mctinn.
Á undanförnu ári hefur gengi
svissneska frankans, sem orðinn
er sterkasti gjaldmiðill heims,
hækkað um þrjátíu af hundraði
gagnvart bandaríkjadal.
Meðal þeirra ráðstafana, sem
stjórnin í Sviss hefur nú gripið til í
því skyni að koma jafnvægi á
gjaldeyrismálin, eru rýmri reglur
en áður um ksup útlendinga á
hlutabréfum í svissneskum fyrir-
tækjum.
BRETAR hafa varað erlenda
togara alvarlega við því að virða
ekki útfærslu verndunarsvæðis-
ins í Norðursjó um helgina, og
hóta því að hver sá togari, sem
staðinn verði að veiðum innan
bannsvæðisins — hvort sem hann
er frá Danmörku eða öðrum
löndum — varði tafarlaust
Briissd, 2. okt. Reuter
EFNAHAGSBANDALAG Evrópu
birti í dag bréf frá Finn Olof
Gundelach, talsmanni EBE í
fiskveiðimálum, þar sem hann
hvetur Breta til að hafast ekki að
varðandi fiskveiðimálin og varar
við því, að Efnahagsbandalagið
áskilji sér rétt til að grfpa til
þeirra ráðstafana sem það telji
nauðsynlegar.
í Reuterfréttum segir að þetta
megi hiklaust túlka sem hótun
vegna hinnar ósveigjanlegu af-
stöðu Breta sem John Silkin
sjávarútvegsráðherra hefur boðað
undanfarið og frá hefur verið sagt,
færður til hafnar og síðan verði
stefnt að lögsókn. Slík brot varða
allt að 50 þúsund sterlingspunda
sektum, eða sem svarar rúmum
30 milljónum ísl. króna. auk
upptöku afla og veiðarfæra.
Bretar segja að á svæðinu, sem
nú hefur verið friðað austur af
Skotlandi, séu mikilvægar hrygn-
.g talið er að með þessu kunni svo
að fara, að EBE höfði mál á
hendur Bretum fyrir Evrópudóm-
stólnum í Luxemburg. Bréfið var
stílað til brezku sendinefndarinn-
ar í Briissel. Þar sagði, að nefndin
myndi ekki staðfesta sex verndun-
artillögur, sem brezka stjórnin
hefur óskað eftir að fá blessun
yfir. Má búast við því að ástæður
sem kalla má af pólitískum toga
ráði þar eigi síður en verndunar-
sjónarmið, segir í Reuterfrétt.
Virðist því allt benda til að
nefndin sé ekki fúsari að staðfesta
svo einhliða tillögur en John Silkin
er að fallast á sameiginlega
ingarstöðvar spærlings, en Danir
hafa að undanförnu sótt mjög á
þessi mið, og fer fiskurinn aðal-
lega í bræðslu. Hafa þessar
aðgerðir Breta valdið mikilli
óánægju meðal danskra sjómanna,
og krefjast þeir þess að Fram-
kvæmdanefnd Efnahagsbanda-
lagsins stefni Bretum fyrir Evr-
ópudómstólinn.
fiskveiðistefnu sem gæfi brezkum
sjómönnum ekki forréttindastöðu
innan 50 mílna lögsögu eins og
þeir hafa alltaf krafist.
Gundelach lagði í bréfi sínu til
við Breta að þeir gæfu gaum að
hugmyndum bandalagsins
varðandi verndun fiskstofna; þar
væri stungið upp á að draga úr
veiðum á sumum fisktegundum og
myndi líklega verða affarasælla
þegar til lengdar léti.
I bréfi Gundelachs er vísað á
bug ákvörðun Breta um að minnka
um helming veiðar á fiskstofnun-
um sem verndunar njóta svo sem
ýsu og kola. Sams konar samþykkt
hefur verið gerð af hálfu annarra
EBE-ríkja en Gundelach sagði, að
samkvæmt Haagsamkomulaginu
frá 1976 væri aðeins hægt að
fallast á slíkar aðgerðir einhliða ef
ógerningur væri að ná samstöðu
með sameiginlegu átaki.
Brezkir embættismenn, sem
voru spurðir hvort þetta væri
fyrsta stigið í málshöfðunarundir-
búningi á hendur þeim, sögðu að
þetta væ(á augljóslega viðvörun
sem yrði að setja fram áður en að
slíku kæmi.
Bretar hóta erlendum togurum
Lundúnum - 2. október - Reutcr.