Morgunblaðið - 03.10.1978, Side 40
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÖBER 1978
Tveggja ára fangelsi
fyrir kynferðisbrot
Hóf afplánun daginn
DÓMUR var í gær kvcðinn upp í
sakadómi Ilafnarf jarðar yfir
Stcingrími Njálssyni, scm gcrst
hafði sckur um kynferðisafbrot
gannvart unKum drengjum. Viir
StcinKrímur dæmdur í tvcKgja
ára fangelsi.
Afbrotin framdi Steingrímur í
Hafnarfirði og Hveragerði. Tældi
hann drengina, 9 og 12 ára, til sín
og neyddi þá til þess að hafa við
sig kynferðisleg mök. Þegar hann
framdi seinna afbrotið hafði hann
sem dómurinn féll
þegar verið ákærður fyrir fyrra(
afbrotið. Steingrímur hefur áður
hlotið dóma fyrir brot sama eðlis.
Finnbogi Alexandersson fulltrúi
bæjarfógetans í Hafnarfirði kvað
upp dóminn. Honum var ekki
áfrýjað, hvorki af Steingrími né
ákæruvaldinu. Var Steingrímur
fluttur að Litla-Hrauni strax í gær
og er hann byrjaður að afplána
dóminn. Þótti rétt með tilliti til
aðstæðna að láta hinn dæmda
hefja afplánun dómsins strax.
Höfuðborgarumferðin í gær:
26 árekstrar og
t jónið nam fjór-
um milljónum
Sumár- og haustloðna:
GEYSIMIKIL umferð var á
höfuðborgarsvæðinu í gær cins og
jafnan er íyrsta dag hvers mánað-
ar. Og árekstrarnir létu ekki á
sér standa. þeir urðu alls 26 í gær
í Reykjavík. Kópavogi og Hafnar-
firði. en sem betur fer urðu engin
slys á fólki.
Féll út-
1 ar •
Árekstrarnir urðu langflestir í
Reykjavík eða 21 að tölu frá
miðnætti til klukkan 22 í gær-
kvöldi, einn árekstur varð í
Kópavogi og 4 árekstrar í Hafnar-
firði. Sama dag í fyrra, þ.e.
mánudaginn 3. október 1977, urðu
15 árekstrar í Reykjavík og eitt
slys, ekið var á barn á Háaleitis-
braut. Nú er ekkert slys en
árekstrum hefur fjölgað ískyggi-
lega.
Aflinn nú 100 þús. lest-
um meiri en í fyrra
Er nú 240 þús. lestir
Féll út-
byrðis og
drukknaði
ÞEGAR skuttogarinn Klakkur
var að veiðum um kl. 19 í
fyrrakvöld á Surtseyjarsvæðinu,
vildi það óhapp til að ungur
skipverji féll útbyrðis og náðist
ekki inn aftur. Vonzkuveður var,
þegar slysið átti sér stað, og þrátt
fyrir mikla leit fundu skipverjar
á Klakki skipverjann ekki aftur.
Maðurinn hét Steindór Geirs-
son til heimilis að Faxastíg 4 í
Vestmannaeyjum. Hann var
fæddur 27. desember 1961 og var
því tæpra 17 ára.
Sjópróf vegna málsins fóru
fram hjá bæjarfógetaembættinu
í Vestmannaeyjum í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
tryggingafélaginu Ábyrgð eru
meðaltjónagreiðslur fyrir hvern
árekstur áætlaðar um 150 þúsund
krónur. Samkvæmt þessu má ætla
að tjón í árekstrum í gær hafi
numið tæpum fjórum milljónum
króna. I síðustu viku urðu sem
kunnugt er 122 árekstrar á höfuð-
borgarsvæðinu og tjónið þá vikuna
hefur því numið 18,3 milljónum
króna. Tölur, sem ökumenn ættu
að ihuga áður en þeir setjast næst
upp í bílinn sinn.
. Vegfarendum hefur tekizt vel að
halda slysum í skefjum en öllu
verr hefur gengið að fækka
árekstrunum. Það hlýtur að vera
takmarkið á næstu vikum að
fækka árekstrunum.
EFTIR hina miklu loðnuveiði á
laugardagsnótt og á laugardag er
sumar- og haustloðnuaflinn
kominn í 240 þúsund lestir, en á
sama tima í fyrra var aflinn 143
þús. lestir, þannig að nú er aflinn
um 100 þús. lestum meiri. Þess
má og geta hér, að samtals varð
loðnuaflinn á sumar- og haustver
tíðinni 1977 rösklega 260 þús.
lestir. þannig að aðeins vantar 20
þús. lestir á. að það mark náist nú
en sumar- og haustloðnuvertíð
stóð til áramóta í fyrra.
Um 50 skip hafa stundað loðnu-
veiðar að jafnaði í sumar, eða um
20 fleiri en í fyrra. Vitað er um eitt
skip, sem fengið hefur 10 þúsund
lestir eða meira. Er það aflaskipið
þekkta Sigurður RE 4, sem nú er
kominn með 10.050 lestir. Einhver
önnur skip munu vera komin með
um 9000 lesta afla.
Frá því um hádegi á laugardaf
og þar til síðdegis i gær tilkynntu
25 skip um afla, samtals 14.020
lestir. Flest skipanna fóru með
aflann til Austfjarða, nokkur fóru
í Faxaflóa og einhver lönduðu á
Norðurlandshöfnum, þar sem rými
var fyrir loðnu. Skipin, sem
tilkynntu um afla eru þessi:
Gullberg VE 590 lestir, Jón
Kjartansson SU 1150, Jón Finns-
son GK 560, Helga RE 270,
Guðmundur RE 820, Huginn VE
600, Gunnar Jónsson VE 320,
Sigurður RE 1400, Helga
Guðmundsdóttir BA 750, ísleifur
VE 450, Freyja RE 390, Loftur
Baldvinsson EA 800, Bjarni Ólafs-
son AK 1020, Dagfari ÞH 500,
Sæbjörg VE 470, Faxi GK 250,
Albert GK 580, Seley SU 370,
Súlan EA 600, Stapavík SI 500,
Arnarnes GK 550, Húnaröst ÁR
580, Harpa RE 200 og Sæberg SU
300 lestir.
Járnblendiverksmiðjan:
10-12 skipa-
félög vilja
flutningana
SENN líður að því að tilboð í
flutninga fyrir Járnblendifélagið
verði opnuð og samkvæmt því sem
Jón Sigurðsson forstjóri Járn-
blendifélagsins tjáði Morgunblað-
inu í gær, eru það 10—12 skipafé-
lög, bæði innlend og erlend, sem
hafa sent inn tilboð í þessa
flutninga. Sagði Jón, að það yrði
ekki fyrr en í næstu viku, sem í
ljós kæmi hvaða félög væru með
lægstu tilboðin og fyrr væri ekkert
hægt að segja um þetta mál.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins:
Opinn fyrir hugmyndum um breytt
fyrirkomulag forystu flokksins
ÞAÐ kom fram í ræðu, sem Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins. flutti á aukaþingi
Samhands ungra sjálfstæðismanna
í fyrradag. að hann er opinn fyrii
ýmsum hugmyndum, sem fcla í sér
breytingar á núverandi uppbygg-
ingu forystu Sjálfstæðisflokksins.
Þær hugmyndir. sem fram hafa
komið um þetta efni eru helstari
• Auk formanns og varaformanns
flokksins veröi sérstakur ritari
kjörinn á landsfundi. sem jafn-
framt verði formaður fram-
kvæmdaráðs fiokksins.
• Auk formanns flokksins og
formanns þingflokksins verði
kjörinn á landsfundi formaður
miðstjórnar og varaformaður
með sama hætti og í tveimur fyrri
tilvikunum.
• Formaður og varaformaður
fiokksins verði kjörnir sameigin-
lega á Iandsfundi flokksins en
ekki hvor í sínu lagi eins og nú.
Geir Hallgrímsson sagði að hann
teldi þá tiilögu aukaþings SUS um
að taka upp svokallaða þrígrein-
ingu koma tii athugunar. Þá hefði
einnig mjög borið á góma að kjósa
sérstaklega ritara flokksins á
landsfundi og hann væri þá einnig
formaður framkvæmdaráðs flokks-
ins en það væri hlutverk ritarans
og framkvæmdaráðsins að hafa með
höndum yfirumsjón flokksstarfs-
ins. Þetta framkvæmdaráð væri
fámennara en miðstjórn og kæmi
oftar saman en hún. Geir vék einnig
í ræðu sinni að þeirri tillögu að
kjósa formann og varaformann
SUS sameiginlega á þingi þess og
sagði að sér þætti þeíta form vel
geta komið til greina varðandi
kosningu formanns og varafor
manns flokksins á landsfundi.
„Það má vera alveg ljóst,“ sagði
Geir. „að formaður og varaformað-
ur flokksins geta ekki gegnt
skyldum sfnum gagnvart flokknum
og flokksstarfinu. þegar þeir eru
báðir ráðherrar í ríkisstjórn. Það
cr hins vegar mikilvægt að flokks-
staríinu sé sinnt eins vel og frekast
er kostur en það verður því að finna
þarna einhverja lausn. þannig að
forystumenn flokksins geti einnig
óskiptir helgað sig sérstaklega
stefnumörkun f stjórnmálunum.
Hvaða leið, sem við veljum í
skipulagsmálunum. verður að vera
skýrt hver bcr ábyrgðina í hverju
tilviki.“
í þcirri samþykkt aukaþings
SUS, sem Gcir vitnaði til í ræðu
sinni segir að við rfkjandi aðstæður
sé fámennisstjórn í flokknum og til
þess að þar geti orðið á breyting
þyrfti að konia til algjör uppstokk-
un á forystumynstrinu. Taldi þing-
ið hið æskilcga mvnstur vera
svokallaða þrískiptingu forystunn-
ar þannig að auk formanna og
varaformanna flokksins og þing-
flokks yrði formaður og varafor-
maður miðstjórnar kjörnir sérstak-
lega á landsfundi og þarna yrði þá
um að ræða sex persónur f jafn
mörgum trúnaðarstöðum.
Kunnugt er að nefnd sú er Birgir
ísleifur Gunnarsson veitir forstöðu
og var kjörin að afloknum kosning-
um í sumar til að gera tillögur um
breytingar á skipulagi Sjálfstæðis-
flokksins er í þann veginn að ljúka
störfum og verða tillögur hennar
lagðar fyrir formanna- og flokks-
ráðsfund flokksins um næstu
mánaðamót. Mun nefndin gera ráð
fyrir f tillögum sfnum að á lands-
fundi verði kjörinn ritari flokksins,
scm vcrði einnig formaður fram-
kvæmdaráðs flokksins.
Sjá ræðu Geirs Hallgrímssonar
bls. 16
Alvarlegt
umferðarslys
á Selfossi
ALVARLEGT umferðarslys varð á
Selfossi um kl. 18 í gær. Bifreið
sem var á leið í austurátt eftir
Austurvegi lenti á 12 ára gömlum
pilti, sem var á reiðhjóli. Við
höggið slasaðist pilturinn mikið og
var fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans og síðan á gjörgæzlu-
deild, þar sem gerð var á honum
mikil aðgerð í gærkvöldi. Var
pilturinn talinn illa slasaður á
höfði.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
er ekki vitað með vissu hvernig
slysið bar að.