Morgunblaðið - 05.10.1978, Síða 1
60 SÍÐUR MEÐ 20 SÍÐNA AKUREYRARBLAÐI
226. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Utför Jóhannesar Páls páfa:
Frá útför Jóhannesar Páls páfa I. — Viðhafnartjald var breitt yfir altarið við útför
páfa í gær, en athöfnin fór fram utan dyra í hellirigningu. Á myndinni má sjá kistu
páfa framan við altarið og á henni opna biblíu. Aftan við altarið sitja kardinálar en
til hliðar við þá eru erlendir gestir með regnhlífar á lofti. (Símamynd AP).
„Hann var sem
ljós, er lýsti
upp himininn”
Róm. 4. október. Reuter. AP.
JÓHANNES Páll páfi I. var lagður til hinztu hvfldar í dag að lokinni
virðulegri athöfn undir berum himni framan við Péturskirkjuna í
Páfagarði. Um eitt hundrað þúsund manns fylgdust með athöfninni,
sem fram fór f mikilli rigningu. þar á meðal fjöldi virðingarmanna frá
erlendum ríkjum og 95 kardinálar kaþólsku kirkjunnar. en þeir munu
eftir 10 daga koma saman til að velja nýjan páfa.
Carlo Confalonieri kardínáli
prédikaði við athöfnina og fór
hann mjög lofsamlegum orðum um
Jóhannes Pál páfa, sem aðeins sat
á páfastóli í 34 daga, styttri tíma
en nokkur páfi á þessari öld. Sagði
Confalonieri að hinn látni páfi
hefði á stuttum páfaferli sínum
áunnið sér hylli um heim allan,
jafnt meðal kaþólskra manna sem
annarra, fyrir hlýlegt fas sitt og
alþýðlega framkomu. Líkti
kardínálinn páfa við ljós sem
skyndilega hefði lýst upp himin-
inn.
Að athöfninni lokinni var kista
Jóhannesar Páls borin inn í
Péturskirkjuna og henni valinn
staður skammt þar frá sem
forverar hans, Páll páfi VI. og
Jóhannes XXIII., hvíla.
Meðal gesta við athöfnina voru
fulltrúar 108 ríkja þeirra á meðal
Lilian Carter, móðir Bandaríkja-
forseta, Súarez forsætisráðherra
Spánar og Christian Bonnet inn-
anríkisráðherra Frakklands.
Einnig voru við athöfnina Pertini
forseti Italíu og ýmsir fleiri
ítalskir ráðamenn.
Sjónvarpað var beint frá athöfn-
inni um allan hinn kaþólska heim.
500falla í Beirut
Öryggisráð S.Þ. fundar um ástandið í Líbanon
New York, Beirut, 4. október. AP. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna kom saman til
óformlegs fundar í New York í kvöld til að fjalla um
nýjustu atburði í Líbanon og hina miklu og mannskæðu
bardaga, sem orðið hafa í Beirut undanfarna daga.
Ráðið var kvatt saman að undirlagi Frakka, en
utanríkisráðherra Frakklands, Louis de Guiringaud,
reyndi í dag allt hvað hann gat að fá kristna hægri
menn og hersveitir Líbanonstjórnar til að taka
höndum saman og hætta bardögum við hermenn
Sýrlendinga í Beirut.
Nýnazismi í
A-Þýzkalandi
Vestur-Berlín,
4. október. Reuter.
LEIÐTOGI Gyðinga í Vest-
urBerlín. Heinz Galinski. sagði
í dag að unglingar í Aust-
ur bý/.kalandi aðhylltust naz-
isma í vaxandi mæli og sagðist
hann vita til þess að hópar
táninga hefðu haldið upp á
afmælisdag Hitlers í aprfl sl.
Sagði hann einnig að kirkju-
garðar Gyðinga í Aust-
ur-Þýzkalandi hefðu vcrið sví-
virtir með því að mála haka-
krossa á legsteina.
Asakanir þessar komu fram í
nýjasta hefti málgagns Gyðinga
í V-Berlín. Þar segir jafnframt,
að andgyðinglegur áróður fari í
vöxt i Austur-Þýzkalandi og
öðrum löndum handan járn-
tjaldsins. Segir Galinski að hér
sé um að kenna áhrifum frá
eldra fólki í A-Þýzkalandi, sem
aðhyllst hafi nazismann, en
einnig því að í Austur-Þýzka-
landi sé af hálfu stjórnvalda
haldið uppi linnulausum áróðri
gegn Ísraelsríki.
Búizt er við að Öryggisráðið
samþykki áskorun á alla aðila í
Líbanon um að leggja niður vopn
og að Frakkar leggi fram áætlun
um að draga úr skærum í landinu.
Fréttir frá Beirut hermdu i dag
að mjög harðir bardagar hefðu
Stokkhólmi, 4. október.
Reuter.
TILKYNNT verður á morgun í
Stokkhólmi hver hlýtur Nóbels-
vcrðlaunin í bókmenntum í ár, að
verið í borginni í allan dag og hefði
aldrei verið barizt þar jafnhart
síðan í borgarastyrjöldinni í land-
inu 1975-76.
Útvarpsstöð hinna hægri sinn-
uðu falangista sagði í dag að um
500 manns hefðu beðið bana eða
því er sænska vísindaakademían
tilkynnti í dag. Tilkynnt verður
um hverjir hljóta Nóbelsverðlaun
í öðrum grcinum síðar í mánuðin-
um.
særzt frá því bardagarnir hófust
fyrir dögun í morgun. Sýrlenzkar
hersveitir og herflokkar kristinna
manna beittu stórskotaliði, skrið-
drekum og eldflaugum í bardögun-
um í dag og hefur þegar orðTð
gífurleg eyðilegging í Beirut vegna
skothríðarinnar.
Stjórn Eliasar Sarkis forseta
kom saman til skyndifundar í dag
BANDARÍKJASTJÓRN
hefur ákveðið að veita Ian
Smith forsætisráðherra
Rhodesíu vegabréfsáritun
til Bandaríkjanna og mun
hann halda þangað um
næstu helgi í fylgd með
blökkumannaleiðtoganum
sr. Sithole í boði banda-
rískra öldungadeildarþing-
manna.
í forsetahöllinni en höllin varð í
morgun fyrir harðri skothríð sem
m.a. leiddi til þess að sjö varð-
menn þar særðust. Óvíst er til
hverra ráðstafana stjórnin getur
nú gripið, en neyðarástand ríkir í
borginni og liða íbúar hennar, þair
er ekki hafa flúið, nú miklar
hörmungar vegna stríðaástands-
ins, sem þar ríkir.
Bandaríkjastjórn hefur ekki
viðurkennt stjórn Smiths og hefur
vegabréfsáritun honum til handa
af sumum verið talin jafngilda
óbeinni viðurkenningu á stjórn-
inni. Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, Tom Reston,
sagði hins vegar í dag að alls ekki
væri um neina slíka viðurkenningu
að ræðá, og teldi stjórnin að
heimsókn Smiths og annarra
leiðtoga bráðabirgðastjórnarinnar
sem nú situr í Rhódesíu gæti
komið að gagni við lausn
Rhodesíudeilunnar.
Nóbelsverðlaun í bók-
menntum tilkynnt í dag
Ian Smith til
Bandaríkjanna
Washington, Salisbury,
4. október. A.P. Reuter.
Rauðu herdeildirnar
þ jálf aðar í A-Evrópu?
París, 4. október. Reuter.
ÍTALSKUR vinstrisinni sagði í
dag í blaðaviðtali, sem í dag er
birt í París, að hryðjuverka-
samtökin Rauðu hcrdeildirnar
á Ítalíu nytu herþjálíunar í
búðum t einu ríkja Aust-
ur-Evrópu. Renzo Rossellini,
sem er einn stofnenda sjóræn-
ingjaútvarpsstöðva á Ítalíu,
segir í viðtali við franska
vinstriblaðið Le Matin, að á
Ítalíu sé nú starfandi „raun-
verulegur sovézkur flokkur“,
sem hafi það að markmiði að
grafa undan þjóðskipulagi á
Italíu. Segir Rossellini að við
lok síðari heimsstyrjaldar hafi
mikilvægur hluti ítölsku and-
spyrnuhreyfingarinnar fallið í
hendur sovézka Rauða hernum,
og hafi Sovétmenn síðan beitt
fyrir sig þessum armi við að
eyðileggja ítaiskt þjóðh'f í
núverandi mynd. Sagði hann að
hópur þessi hefði verið vakinn
upp að nýju á síðari hluta
síðasta áratugar og hefði nú
víða fótfestu í röðum öfgasinn-
aðra vinstri manna. Segir
Rossellini, að þessi sé uppruni
Rauðu herdeildanna sem nú
njóti hernaðarlegs stuðnings
Austantjaldslandanna. en
þangað eigi þær rætur að
rckja.
Bandarísku öldungadeildarþing-
mennirnir, 27 talsins, sem buðu
Smith og blökkumannaleiðtogun-
um til Bandaríkjanna, segjast
telja rétt að þeir fái tækifæri til að
kynna viðhorf sín þar í landi eins
og skæruliðaleiðtogunum Nkomo
og Mugabe hafi verið heimilað.
Mikil.ánægja ríkti í Salisbury
með ákvörðun Bandaríkjastjórnar
í dag, en Sovétríkin fordæmdu
þessa ákvörðun mjög harðlega og
kváðu hana beinan stuðning við
kynþáttaaðskilnaðarstefnu
Smiths. í London var tilkynnt að
Bretar hefðu ekkert á móti heim-
sókn Smiths til Bandaríkjanna, en
hann fengi eftir sem áður ekki að
koma til Bretlands, heldur ekki á
leiðinni til Bandaríkjanna.