Morgunblaðið - 05.10.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
11
„Stórum hluta af tekjum hreppsfélags-
ins varið til hlutafj áraukningar í
fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækinu,,
„Þaö má segja aö málin hér
hafi bæði góða og vonda hlið.
Góða hliðin veit að atvinnu-
málunum sem eru að mínu mati í
mjög góðu lagi síðan skuttogar-
inn Kambaröst kom. Togarinn
hefur fiskað ágætlega og yfirleitt
er unnið í frystihúsinu 6 daga
vikunnar, þannig að atvinna
hefur verið óhemjumikil hér í
þorpinu s.l. ár. Eðlilega hefur
ekki alltaf hafst undan að vinna
fiskinn, en það hefur bjargast
með því að vinna stóran hluta
hans í salt, sem nú er reyndar
afskaplega erfitt sökum stöðunn-
ar á saltfiskmörkuðunum. Við
höfum reynt að finna leiðir til
þess að þurfa ekki að verka
fiskinn í salt, en þó ströndum við
alltaf á því, að það vantar meira
fólk,“ sagði Björn Kristjánsson
oddviti og hreppstjóri þegar Mbl.
ræddi við hann, og síðan bætti
Björn við: „Vonda hliðin er sú, að
nú liggjum við með miklar
birgðir af saltfiski, eins og
raunar flestir aðrir, sem fást við
fiskverkun og svo leggjast vaxta-
málin með ægiþunga á fyrirtæk-
ið, þar setn við erum nýbúnir að
byggj a okkar útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki á Stöðvarfirði
upp.“
Stöðfirðingar fengu á síðasta
ári nýjan skuttogara frá Noregi
og á sama tíma luku þeir við að
endurbyggja frystihúsið á staðn-
um, þannig að það er nú orðið
mjög fullkomið. Áður fyrr voru
mörg fiskvinnslu- og útgerðar-
fyrirtæki á stöðvarfirði, en þegar
Stöðfirðingar réðust í uppbygg-
ingu frystihússins og skuttogara-
kaupin sameinuðu þeir öll fyrir-
tækin í eitt.
Björn var spurður að því hvort
ekki væri alltaf eitthvað um
framkvæmdir á vegum hreppsins.
„Það er alltaf eitthvað um
framkvæmdir á vegum hreppsins,
en þær eru þó í lágmarki á þessu
ári. Sveitarstjórnin tók þá stefnu,
að verja stórum hluta þess
fjármagns, sem hún ræður yfir, í
atvinnuuppbygginguna og
treysta þannig grunninn fyrst.
Var því verklegum framkvæmd-
um sem liggja fyrir frestað um
sinn.
Við héldum borgarafund um
málið, og þar lagði sveitarstjórn-
in til að 15 millj. kr. af tekjum
sveitarfélagsins þetta ár og það
næsta yrði varið til þess að auka
hlutafé í útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækinu og var þetta
samþykkt einróma," segir Björn.
En þess má getá að gjaldtekjur
sveitarfélagsins eru 40 millj. kr. á
þessu ári.
— Hvernig hefur sameining
fyrirtækjanna gefist?
„Ég hef ekki trú á að neinum
blandist hugur um að sameining-
in var það eina rétta, því að við
stöndum ekki frekar sundraðir en
sameinaðir."
— Þú minntist á að af 40 millj.
kr. tekjum færu 15 millj. kr. beint
í að byggja upp höfuðfyrirtæki
staðarins; í hvað er öðrum
tekjum varið?
„Við höf.um nýlokið við mikla
holræsagerð og ennfremur
varanlega gatnagerð. Til þessara
framkvæmda þurfti vissar lán-
tökur, sem við erum nú að greiða
af. Þá eru ýmiss konar lögboðin
gjöld, sem hreppurinn verður að
standa skil á og þegar staðið
hefur verið gert, er ekki mikið
eftir."
— Er mikið byggt á Stöðvar-
firði um þessar mundir?
„Það er alltaf einhver hreyfing
í byggingarmálum, en þó hefur
ekki verið byggt mjög mikið s.l. 4
ár. Hér búa nú um 340 manns og
hefur íbúum fjölgað nokkuð. Þá
heyrir það til undantekninga, ef
ungt fólk hefur flutzt á brott
héðan á síðustu árum.
Af byggingarframkvæmdum
hreppsfélagsins er það helzt að
segja að fyrirhuguð er stækkun
skólans og er undirbúningur í
fullum gangi."
— Nú hefur togarinn Kamba-
röst fiskað mjög vel; hver var
aflinn fyrsta árið?
„Það er nú liðið rétt ár síðan
togarinn kom, og er hann nú í árs
skoðun hjá skipasmíðastöðinni í
Noregi. Heildarafli togarans mun
hafa verið á milli 3300—3400
tonn þetta ár. Skipstjórar á
togaranum hafa verið til skiptis
þeir Auðunn Auðunsson og Jens
Albertsson. Þegar minnst er á
togarann er ekki úr vegi að benda
á, að það er mjög þýðingarmikið
fyrir okkur að bæta hafnarskil-
yrðin. Höfnin er orðin alltof
þröng og viðlegurými í skjóli
hefur lengi verið alltof lítið. Það
verður að segjast eins og er að í
vetur vorum við einfaldlega
heppnir með veður og þar af
leiðandi gekk skipum nokkuð vel
að athafna sig í höfninni, en
annars er hætt við að illa hefði
farið.
Þá er það svo að alltaf er
landað töluverðu magni af loðnu
hér yfir vetrartímann, en eins og
hafnarmálin eru hér í dag, fer
það ekki saman að landa hér
loðnu og bolfiski. í vetur komu
hingað 6000—7000 lestir af loðnu,
en verksmiðjan bræðir á milli 100
og 200 tonn á sólarhring, okkur
fannst þetta vart nógu mikið í
vetur, því að stundum höfum við
fengið mun meiri loðnuafla,"
sagði Björn að endingu.
Fyrirlestur um
byggingar-
hætti í Skotlandi
Dr. Alexander Fenton. for-
stöðumaður skoska Þjóðminja-
saínsins í Edinborg. flytur opin-
heran fyrirlestur í Arnagarði
(stofu 201) laugardaginn 7.
október kl. 16.00. Fyririesturinn
nefnist „Byggingarhættir á Norð-
ur-Skotlandi. samhengi og
þróun".
Dr. Fenton á að baki langan
starfsferil við þá deild safnsins
sem helguð er atvinnumenningu
og bjargræðisvegum skoskrar
alþýðu á liðnum öldum og hefur
skrifað mikinn fjölda vísindalegra
ritgerða um þau efni. Á næstunni
mun koma út eftir hann mikið rit
um skosku eyjarnar. Skoska Þjóð-
minjasafnið er nær tveggja alda
gömul stofnun og hefur Alexander
Fenton verið skipaður forstöðu-
maður þess nú fyrir skömmu.
Fyrirlesturinn er fluttur í boði
Minningarsjoðs Ásu G. Wright.
Varð hált á
bóndósinni
Lundúnum. 3. október. Reuter.
PETER nokkrum Jeakins, sem á
tveimur árum tókst að stela
varningi úr glæsiverzlunum
Lundúnaborgar fyrir kvartmilljón
sterlingspunda, varð á endanum
hált á bóndós, og lauk þar með
gripdeildum hans. Jeakins var í
dag dæmdur í þriggja ára fangelsi,
en geðlæknir sem kallaður var til
ráðuneytis bar fyrir rétti að
sakborningurinn væri haldinn því
sem kalla mætti „kynferðislegri
stelsýki".
Jeakins sagði í réttinum, að á
stundum hfföu honum fundizt sem
hann væri með huliðshjálm, til
dæmis þegar hann hefði stolið
málverki meðan væntanlegur
kaupandi var að virða það fyrir
sér. Öðru sinni bar hann fé á
dyravörð stórverzlunar og bað
hann síðan að hjálpa sér með
sjónvarpstæki út í leigubíl.
Jeakins, sem er 33 ára gamall,
játaði á sig 23 þjófnaði, meðal
annars á Minton-postulíni, sjald-
gæfum bókum og fornum glitvoð-
um.
Ferli Jeakins lauk með því að
vörður í stórverzlun sá hann grípa
bóndós og pakka af þvottaefni.
Hann veitti þeim fingralanga
eftirför og hleypti úr dekkjunum á
reiðhjóli hans til að tryggja að
hann slyppi ekki.
IB-lánin:
Nokkrar
nýjungar
566.880
.001.100
Þessar tölur sýna breytingar á ráðstöfunarfé
eftir 6 og 12 mánaða sparnað.
IB lánin hafa vakiö veröskuldaöa athygli.
Þau eru raunhæf leið til lána fyrir almenning.
En til þess að þau haldi kostum sínum þarf að endur-
skoða kerfið reglulega, m.a. með tilliti til verðlags-
þróunar.
Þetta hefur Iðnaðarbankinn einmitt gert. Því hefur
verið ákveðið að gera eftirtaldar breytingar;
2. Hámark mánaðarlegra innborgana hefur verið endur-
skoðað. Gildir það um nýja reikninga og er sem hér segir:
16 mánaða flokki kr. 30.000
(12 mánaða flokki kr. 40.000
f 18 mánaða flokki kr. 50.000
[ 24 mánaða flokki kr. 60.000
(36 mánaða flokki kr. 60.000
[ 48 mánaða flokki kr. 60.000
1. Stofnaður hefur verið nýr 18 mánaða flokkur.
Hámarks innborgun er kr. 50.000. Ráðstöfunarfé (eigin
sparnaður ásamt IB-láni) að loknu sparnaðartímabili,
með slíkri innborgun, nemur þá 1.8 milljón króna auk
vaxta.
3. Þá hefur Iðnaðarbankinn ákveðið, að fengnum fjölda til-
mæla, að gefa fólki kost á að lengja sparnaðartímabilið,
enda lengist þá lánstíminn og upphæð IB-lánsins
hækkar að sama skapi.
Nánari upplýsingar veita IB ráðgjafar hver á sínum
afgreiðslustað — þeir vita allt um IB lán.
Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaðarbankinn
Aðalbanki og útibú