Morgunblaðið - 05.10.1978, Page 20

Morgunblaðið - 05.10.1978, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978 21 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22400. Askriftargjald 2200.00 kr. á mánuói innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakió. Verðlagsmál blaðanna 172. grein stjórnarskrárinnar segir m.a., að „ritskoðun og aðrar tálmanir fyrir prentfrelsi- má aldrei í lög leiða“. Það má ljóst vera, að í því felast „tálman- ir“ á prentfrelsi, ef opinber stjórnvöld reyna að skapa fjár- hagslega erfiðleika í útgáfu dagblaða með ákvörðunum í verðlagsmálum. Dagblöðin eru einn helzti vettvangur lands- manna fyrir lýðræðisleg skoð- anaskipti um menn og málefni um leið og þau miðla fréttum og margvíslegum upplýsingum, sem almenningur þarf á að halda, og veita víðtæka þjónustu, sem samfélag okkar getur ekki án verið. Með bráðabirgðalögum hefur ríkisstjórnin tekið sér vald til þess að ákveða allt verðlag í landinu ef henni sýnist svo, en ákvæði slíkra laga hljóta að víkja fyrir ákvæðum íslenzku stjórnar- skrárinnar. í því er fólgin mikil hætta fyrir lýðræðið í landi okkar, ef opinber stjórnvöld komast upp með að beita dagblöðin fjárhagslegum þvingunum í formi verðlagshafta. Það liggur í augum uppi, að þá getur ríkisstjórn, sem telur tiltekin blöð sér óvinveitt, reynt að koma þeim á kné með því að beita verðlagshöftum, sem byggja á geðþóttaákvörðunum en engum rökum. Slíkt kverkatak stjórnvalda á frjálsum blöðum í frjálsu Iandi er óþolandi, ekki einungis fyrir dagblöðin og þá, sem vinna við útgáfu þeirra, heldur og fyrir allan almenning í landinu. Um leið og stjórnvöldum hefur tekizt að koma frjálsum blöðum á kné er stutt í annars konar höft og þvinganir á daglegt líf fólks. Þetta er gert að umtalsefni hér nú vegna þess, að fyrir nokkru sendu öll blöðin tilkynningu til verðlagsstjóra um fyrirhugaða hækkun á áskriftargjöldum og lausasöluverði blaðanna. Dag- blöðin hafa aldrei viðurkennt, að verðlagsnefnd eða ríkisstjórn hafi ákvörðunarrétt um það gjald, sem þau taka fyrir þjón- ustu sína, vegna þeirra ákvæða stjórnarskrárinnar, sem að fram- an er vitnað til. Að jafnaði hefur verðlagsnefnd afgreitt þessar tilkynningar dagblaðanna á þann veg, að nefndin hefur ekki haft afskipti af þeim en blöðin hafa á hinn bóginn beðið með að láta nýtt verð taka gildi þar til sú afstaða verðlagsnefndar hefur legið fyrir. Vorið 1974 tilkynntu blöðin hins vegar verðhækkun án þess að bíða afgreiðslu verðlags- nefndar og var engum athuga- semdum hreyft af hálfu opin- berra aðila á þeim tíma, þannig ; ð fordæmi er fyrir slíkri ein- iða ákvörðun blaðanna, sem : uín hefur verið athugasemda- laus af stjórnvöldum. Nú bregður hins vegar svo við, að verðlags- nefnd undir forystu fulltrúa viðskiptaráðherra bregst við til- kynningu blaðanna á þann veg, að bóka þá skoðun verðlagsnefnd- ar, að blöðin hafi ekki heimild til hækkunar nema sem nemi helm- ingi af því, sem þau töldu nauðsynlega. Þessi afgreiðsla verðlagsnefndar er tvímælalaust andstæð ákvæðum stjórnarskrár- innar. I þessu sambandi má geta þess, að verðlagsnefnd hefur engin afskipti af verðlagningu annarra blaða, tímarita og bóka, sem hér eru gefin út, né verðlagn- ingu erlendra blaða, sem þó eru inni í vísitölunni og hafa hækkað mjög mikið undanfarna mánuði. Morgunblaðið lýsti því yfir í fyrradag, að það teldi blöðin hafa heimild til þess að ákveða sann- gjarnt verð til kaupenda án afskipta verðlagsnefndar. Hins vegar tók blaðið fram, að það mundi einungis hækka áskriftar- verð og lausasöluverð um 10% nú en áskildi sér allan rétt í þessum efnum og mundi leitast við að fá verðlagsnefnd til þess að endur- skoða afstöðu sína. M.ö.o: Morg- unblaðið vill leitast við að leysa þá deilu, sem upp er risin milli blaða og stjórnvaldá, með friði og væntir þess, að sú afstaða verði til þess, að stjórnvöld horfist í augu við þau rök sem liggja til grundvallar upphaflegri tilkynn- ingu blaðanna allra um hækkun. Hins vegar hafa Vísir og Dag- blaðið hækkað verð til kaupenda um 20%. Gefið hefur verið í skyn, að stjórnvöld vilji koma til móts við rekstrarvandamál blaðanna með einhvers konar styrkjum. Morg- unblaðið tekur ekki við ríkis- styrkjum til útgáfu sinnar. Blað- ið selur ýmsum aðilum. á vegum ríkisins um 200 eintök, og er áskriftargjald þeirra greitt úr ríkissjóði. Það er endurgjald fyrir þjónustu en ekki styrkur. Morg- unblaðið mun ekki taka við nokkrum ríkisstyrkjum til útgáfu sinnar og hafnar þeirri leið með öllu. Hin eðlilega afgreiðsla á mál- efnum blaðanna er sú, að þau hækki verð á þjónustu sinni eins og nauðsynlegt er í þeirri óða- verðbólgu, sem hér ríkir og veldur miklum vandræðum í rekstri yfirleitt allra fyrirtækja í landinu. Morgunblaðið lítur svo á, að verðlagsnefnd hafi engan rétt til að blanda sér í þá ákvörðun blaðanna, heldur sé það kaupendanna að meta, hvort þeir vilja halda áfram að kaupa blöðin á hærra verði. Afstaða ’kaupenda er það aðhald, sem blöðin hafa, og það aðhald, sem dugar. Morg- unþlaðið væntir þess, að stjórn- völd verði reiðubúin til þess að leysa þessa deilu á þann veg, sern samrýmanlegt er ákvæðum stjórnarskrárinnar. Kristján Albertsson: Heimska á íslandi Vitleysan er þó okkar versti fjandi. Matthias Jochumsson I. Maður skyldi halda að öllum sæmilega skynibornum mönn- um hlyti að vera ljóst að mesta gæfa íslands í veraldlegum efnum, önnur en hin auðugu fiskimið, er í því fólgin að svo skuli til haga fyrir guðsmildi að land vort liggur í þeim sí- minnkandi hluta jarðar sem ekki er á valdi einhverra harðstjórnar-gaura — þeim hluta heims þar sem menn búa við mest frelsi í hugsun og athöfn, lífskjör eru best og menning stendur með mestum blóma. Maður skyldi halda að auðskilið væri hve mikil ham- ingja er lítilli þjóð, sem einskis væri megnug frelsi sínu til varnar ef á hana yrði ráðist, að vera aðili að varnarbandalagi hins vestræna lýðfrjálsa heims, og njóta sérstakrar verndar voldugs stórveldis sem í öllu virðir rétt hennar, hag og sóma, og hefur reynst Islandi vel í hvívetna. Maður skyldi halda að allir ættu að geta orðið sam- mála um að lítilli þjóð í stóru landi, sem óvarið hlyti þegar í upphafi átaka um heimsyfirráð að verða bitbein sem um yrði barist, verður aldrei lagt til lasts þótt hún þiggi vernd sem er knýjandi nauðsyn. En þótt almennt megi segja að ekki skorti þjóð vora góða greind, og ekki hverskonar ágæta hæfileika, stendur samt með einhverju móti undarlega á um íslenskan þroska, eða vilja, til skynsamlegrar hugsunar. Einum vitrasta og góðgjarnasta manni sem land vort hefur átt, Matthíasi Jochumssyni, fannst um aldamótin vitleysan vera versta mein sinnar þjóðar. Og fleiri hafa furðað sig á því að ekki ógreindari þjóð skuli jafn- framt vera töluVert heimskari en hún eftir öllum sólarmerkj- um eiginlega ætti að vera. Rögnvaldur Pétursson, einn hinn merkasti Vestur-íslend- ingur á sinni tíð og tryggðavin- ur sinnar ættjarðar, skrifaði Stephani G. Stephanssyni 1913, og hafði þá dvalið um skeið á íslandi: „Eg held að það sé stórt vafamál hvort í víðum heimi sé samankomið meira vit, mann- vit, á jafnstórum bletti sem Reykjavík. En það skrítilega um leið er það, að þar er meiri óláns-bjánaskapur, slysinn aulaskapur, en á nokkrum öðrum stað í veröldu hér.“ Væri með öllu ólíklegt að glöggskyggn Vestur-íslendingur sem hingað kæmi á vorum dögum gæti hugsað eitthvað svipað? Gæti honum ekki að minnsta kosti komið furðulega fyrir í hvert óefni er komið, stjórn efnahagsmála í ekki stærra né margflóknara þjóðfé- lagi — eftir nálega samfellt góðæri áratugum saman? Vér búum nú einir að bestu fiski- miðum heims, afurðir landsins eru í háu verði, ekkert atvinnu- leysi, og getum varið öllu sem aflast til að mennta þjóðina sem best og láta henni liða vel — þurfum engu að verja til her- varna, en sá kostnaður hvílir þungt á öllum öðrum þjóðum álfunnar. Vér ættum að geta verið miklum mun farsælli þjóð en raun er á. Hvað er þá að — af hvaða orsökum er velmegunar- þjóðfélag á góðæristímum orðið að veraldarundri fyrir að því er virðist ólæknandi fjármálaöng- þveiti? Flestir skirrast við að nefna hinar raunverulegu or- sakir. En Sveinn Jónsson aðstoðarbankastjóri Seðlabank- ans gengur hreint til verks í grein sinni í Morgunblaðinu 19. sept. s.l. og hygg eg að ekki verði í stuttu máli gerð réttari grein fyrir meginorsök vand- ræðanna: j,Öllum má ljóst vera, að vandi Islendinga í dag felst ekki í raunverulegum efnahags- vandamálum, eins og illu ár- ferði, aflabresti eða verðfalli á útflutningsmörkuðum ... Hinn raunverulegi vandi íslendinga í dag felst í slagsmálum ein- stakra þjóðfélagshópa um skiptingu þeirrar ríkulegu framleiðslu sem til fellur í þjóðarbúinu á hverju ári. Þessi slagsmál hafa sífellt verið að harðna og þess gætir í vaxandi mæli, að reglan „tilgangurinn helgar meðalið", sé frumregla slagsmálanna." I Danmörku, Noregi og Sví- þjóð hefur gengi dollara og sterlingspunds ekki haggast veruleg frá því síðari heims- styrjöld lauk. Launþegasamtök þessara landa ganga ekki fram- an að þjóðarbúinu og krefjast þess sem þeim þóknast að heimta, og með dólgslegum hótunum: Peningana eða lífið! Verkalýðsforusta þessara landa hefur i þjónustu sinni kænustu hagfræðinga sem segja til um hve langt megi ganga í kaup- kröfum án þess hætt sé á að af hljótist gengisfall — sem meðal annara afleiðinga jafngildi stuldi af öllu sparifé almenn- ings. Slíkt aðhald hefur ber- sýnilega aldrei komið til greina á íslandi, eða þá einskis mátt sín. Þess vegna hefur krónan okkar fallið og fallið, og stöðugt orðið styttra bil þangað til sparifjáreigendur voru féflettir enn á ný. Og svo aumur er orðinn okkar vesalings innlendi gjaldmiðill, að nú þarf að greiða 307 krónur fyrir dollara, sem í stríðslok kostaði þó aðeins sex krónur og fimmtíu aura. II ísland hefur nú Evrópumet ef ekki heimsmet í óðaverðbólgu og sífelldum gengisfellingum — og allir vita að þessi óheilla þróun er nær eingöngu sjálf- skaparvíti, en enginn hvenær ósómanum linni. Því hér er sannarlega úr vöndu að ráða. Fólki hefur verið innrætt að það megi aldrei sætta sig við minna en svo, að ekki sé því hverju sinni úthlutað meiru fé — en til er. En hins vegar mun svo vera, að hvenær sem nokkuð er frá liðið síðustu gengisfellingu, þá veiti fólki engan veginn af að fá meira fé en til er — því einhvernveginn hefur tekist að gera Island að einu af dýrustu löndum í heimi. III Og svo eru hér til samtök sem kallast Félag herstöðvarand- stæðinga og stundum láta all- mjög á sér bera, krefjast úrsagnar íslands úr Nato og vilja að hafnað sé hervernd Bandaríkjanna. En í hennar stað skuli sjálfstæði landsins verndað með hlutleysisyfirlýs- ingu (enda þótt alkunnugt sé hve illa slíkar yfirlýsingar hafa dugað smáþjóðum, og þótt ólíkt væru stærri og máttarmeiri en íslenzka þjóðin) — ennfremur fullkomið traust á vægð og góðmennsku þess stórveldis sem nú eykur vígbúnað sinn í norðurhöfum af mestu kappi — og fyrir skemmstu hefur séð þann leik á borði að koma sér á laun upp herstöð á Svalbarða, landi sem lýtur norskum yfir- ráðum — Norðmönnum til mikillar skelfingar. Svo sem frægt er var eitt sinn talið rétt að fyrirgefa misindis- mönnum með þeim orðum, að þeir vissu ekki hvað þeir gerðu — og ekki þarf að efa að svo sé um allan þorra herstöðvarand- stæðinga (þótt fullvíst megi telja að í þeirra fylking séu líka menn sem vita hvaða málstað þeir þjóna — slíkir menn eru til í öllum löndum. Meginröksemd þeirra manna sem hamast gegn amerískri hervernd er sú staðhæfing, að dvöl útlends hers í landi voru sé ósamrýmanleg sjálfstæði Is- lands. Eg held að þurfi ís- lenskan heila til að láta sér detta slíkt i hug. í Vestur-Þýskalandi eru banda- rískar herstöðvar og allir vita að tilgangur þeirra er að undirstrika svo að ekki veröi um villst, að árás á landið sé jafnframt árás á Bandaríkin — og eins væri um árás á ísland meðan þar er bandarísk her- stöð. Margsinnis hefur komið fram að jafnt blöðum sem stjórnarvöldum Vestur-Þýska- lands stendur ógn af þeirri tilhugsun að bandaríski herinn verði kvaddur heim. Og eg tel óhætt að fullyrða að enginn mundi þar í landi telja minnstu sjálfstæðisskerðingu í hervernd vinveittrar bandalagsþjóðar — og víst heldur ekki einföldustu kommúnistar. En á íslandi var svo komið fyrir nokkrum árum að ekki var annað sýnt en að til stæði að gera land vort varnarlaust og láta skeika að sköpuðu um hvað af kynni að hljótast. Þá var það að 12 menn gengust fyrir undirskriftum um land allt til að mótmæla því að varnar- samningnum. við Bandaríkin yrði sagt upp. Varið land kölluðu tólfmenningarnir sam- tök sín. Enginn þeirra var virkur þátttakandi í stjórn- málabaráttu, enginn í neinu framboði, neinni liðsbón fyrir sjálfan sig til vegs og valda. Aðgerðir þeirra til varnar frelsi og giftu landsins var eitt drengilegasta framtak í opin- beru lífi á íslandi á síðari tímum. Og fyrir þetta framtak kom í ljós svo almenn skömm á þeirri heimsku, sem verst var í landi voru, að síðan hefur hún einskis mátt sín. Þeir tólfmenningar voru ausnir því níði að þeim þótti rétt að láta höfunda þess sæta ábyrgð fyrir dómstólum. Þá yar stofnaður sjóður til að greiða úr sektir fyrir níðritendur, og nefndur Málfrelsissjóður íslands. Tæpast er hægt að hugsa sér óviðfelldnara tilefni til stofnunar sjóðs með slíku nafni. Það sem nú hefur gerst á Svalbarða ætti að geta minnt á hvað orðið getur á eylöndum í norðurhöfum, jafnvel á friðar- tímum. Ef ísland hafanði hervernd þyrfti enginn að efa hvernig fara mundi fyrir landi og þjóð, og hvort sem bráðlega yrði barist að nýju um heim allan, eins og Kínverjar óttast að verða muni, eða friður helst, og þá farið hægar í sakir, en jafnt og þétt, eitt og eitt land tekið í einu, þegar óhætt þykir. Sem betur fer bendir sumt til þess að leiðtogum, sem telja sig verða að halda áfram að amast við varnarliði á íslandi, sé samt nú orðið ekki eins leitt og þeir láta — og hafi kannski aldrei verið. Og þá má ef til vill segja að héðan af skipti litlu þótt öðru hverju sé stofnað til hávaða og gauragangs og ljóts munn- safnaðar — ef þess er jafnan vandlega gætt að aldrei komi til neinna heimskulegra aðgerða af hálfu þings né stjórnar. Enda myndi reynast óhægara um vik að svipta landið einu frelsisvernd sem því getuT hlotnast — eftir að sannast hefur að þjóðin skilur hvað í húfi væri ef að slíku yrði hrapað. K.A. Vilja að heilbrigðisyfirvöld eigi aðild að ráðstöfun vistrýma fyrir aldraða MORGUNBLAÐINU heíur borizt til birtingar álykt- un, sem samþykkt var á sameiginlegum fundi stjórnar og læknaneíndar Öldrunaríélags íslands 27. september s.l.« íslendingar hafa um nokkurt skeið átt yfir að ráða fleiri vistrýmum fyrir aldraða á stofnunum en gengur og gerist meðal nágrannaþjóða okkar á Norðurlöndum. Mestur hluti þessara vistrýma lýtur stjórn þeirra félagasamtaka og einstaklinga sem að miklum dugnaði komu þeim á fót. Vegna hins mikla kostnaðar, sem reksturinn hefur í för með sér, hefur hann á undanförnum ára- tugum verið greiddur nær eingöngu af opinberum aðil- um, aðallega í formi lífeyris vistrýmisþega og daggjalda til sjúkrarýma. Þrátt fyrir hinn mikla vistrýmafjölda, sem Islendingar hafa yfir að ráða, eru víða erfiðleikar á heimilum og ýmsum sjúkrastofnunum varðandi sjúka, sem sumir hverjir þyrftu vistunar við. Af því tilefni vill stjórn og læknanefnd Öldrunar- fræðifélags íslands beina þeim tilmælum til heil- brigðisyfirvalda að þau eigi aðild að ráðstöfunum vist- rýma fyrir aldraða í land- inu og stuðli að því að sá kostnaður, sem fer í rekstur þeirra, nýtist þeim einstakl- ingum, sem mesta þörfina hafa hverju sinni. Benda má á að vistrýmaþörf af þessu tagi fer minnkandi meðal þeirra nágranna- þjóða okkar sem tekist hefur að skipuleggja heil- brigðisþjónustu fyrir aldr- aða á víðtækari hátt en áður gerðist, einkum með fyrirbyggjandi aðgerðum utan stofnana og sérhæf- ingu öldrunarþjónustu við sjúkrahúsin. Stjórn og læknanefnd Öldrunarfræði- félagsins vill einnig minna á að landslög um heilbrigð- isþjónustu á Islandi kveða á um að þegnar landsins skuli eiga jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ sé á, samrýmist ekki því sjónarmiði að einangra aldraða sjúka fjarri helstu sjúkrastofnunum landsins. Halldór Guðiónsson: Draugaganour Það fór sem mig uggði að kurteisleg blaðaskrif væru lítt til þess fallin að setja niður drauga. Blöðin eru með þeim ósköpum gerð að það gle.vmist óðar hvað í þeim stóð, nýtt efni, sem lífið leggur blöðunum og þau hljóta að birta, ríður flestum menjum skrifa gærdagsins úr hugum lesenda. Af þessu ræðst það annars vegar að menn hneigjast til ábyrgðarleysis í skrifum sínum; þeir geta treyst því að ýkjur þeirra eða misferli muni gleymast; en hins vegar það að leiðr'éttingar eða endurbætur á eldri skrifum falla ómerkt. Þannig eru blöðin miklu verri umræðu- miðill en venjulegar samræður eða bækur. í venjulegum samræðum getur sérhver þátttakandi svarað fyrir sig þegar í stað eða beðið frekari skýringa. Þegar umræða fer fram í bókarformi geta menn rökrætt við bókina sjálfir eða borið hana saman við aðrar bækur. Blöðin eru því sérstaklega frjór vettvangur fyrir agaleysi hvers konar, tilgangsleysi og tímasóun auk þess sem þau gefa óprúttnum mönnum tækifæri til að reyna að blekkja lesendur án þess að þeir eigi á hættu að aðrir geti véfengt þá á raunhæfan hátt. Til þess að kveða niður drauga þótt smáir séu verður að hafa á hendi trúverðugri ritningar en dagblöðin. Það er því í nær algeru vonleysi um árangur að ég reyni aftur að svara Hannesi Gissurarsyni. Ég geri mér engar vonir um að það sem ég hef að segja hafi áhrif á Hannes sjálfan. Ég hef þrisvar rætt við hann í síma um skrif hans um Pál Skúlason og reynt að leiða honum fyrir sjónir að skrifin voru ómakleg, röklaus og heimskuleg. A meðan á seinasta símtalinu stóð sat hjá mér maður sem vissi við hvern ég var að tala. Þetta síðasta samtal bar engu meiri árangur en hin fyrri, ef til vill vegna þess að símasambandið slitnaði án míns tilverknaðar áður en samtalinu var lokið. Sá sem hjá mér sat getur borið að ég skellti ekki á Hannes og reyndar líka það að ég var alls ekki reiður útaf samtalinu heldur skemmti mér hið besta við það. Ég gat þess reyndar við gest minn að nú myndi Hannes líklega bera það á mig að ég hefði skellt á hann símanuip. Með því að gera einmitt þetta hefur Hannes verulega aukið sjálfstraust mitt, ég er ekki aðeins svo heppinn að símakerfi Háskólans leggur mér lið, heldur er ég líka forspár. Annars veit ég ekki hvaða erindi þessi smáskrítna saga á fyrir augu almennings nema þá sem skemmtilegheit, eða dæmi um taumlausa ímyndun Hannesar Gissurarsonar, en hvorugt er, að mér virðist, markvert fyrir al- menning, þótt það sé dæmigert um löng samskipti okkar Hannesar. Við Hannes erum allgóðir kunn- ingjar, jafnvel góðkunningjar á stundum, eins og lesendur geta séð af tíðum símasamtölum okkar síðustu vikurnar. Við erum það góðir kunningjar að ég myndi taka upp fyrir hann hanskann ef veist væri að honum í blöðum með ómaklegum hætti. En auðvitað væri það háð mínu mati hvað teljast bæri svo ómaklegt að ástæða væri til svara. Þannig mundi ég gera það að skilyrði fyrir svörum af minni hendi að veist hefði verið að persónu Hannesar beint, t.d. með því að kalla hann níðskrifara, loddara eða skrumara. Annað skilyrði einfaldara er það að ég hefði sjálfur heyrt eða lesið ummælin sem ég vildi andmæla. Nú vill svo til að Hannes ber það á mig að ég hafi nítt hann með því að kalla hann níðskrifara, loddara og skrumara. Þetta hef ég aldrei gert hvorki viljandi né óviljandi. Ég hef aldrei vikið einu orði á prenti að persónu Hannesar í heild fyrr en þá núna rétt áðan að ég nefndi að hann væri nokkuð taumlaus og hefði oft verið mér til skemmtunar. Það er reyndar rétt að ég sagði að grein Hannesar um Pál Skúla- son væri níð. Ég vil banna honum að draga þá ályktun að hann sé í mínum augum níðskrifari. Ég hef að sjálfsögðu manna mestan rétt til að banna Hannesi slíkar rökfærslur þar sem þær snúast um það sem ég einn veit með fullri vissu. Þá var — þvert gegn túlkun Hannesar á orðum mínum, — að greinin um Pál væru mistök eða villa í hugsun sem Hannes gæti leiðrétt. - Það er reyndar ævinlega fráleitt að dæma persónu til fullnustu af einu verki hennar eða jafnvel Ilalldór Guðjónsson. fleirum. Ef sálmaskáld hefði ort eina klámvísu eða tíu, en þúsund og einn sálm, væri þá skynsamlegt að einkenna hann sem klámskáld? Hitt er þó enn fráleitara að dæma verk manna eingöngu eftir per- sónulegum eiginleikum þeirra aðe afstöðu eða eftir félagslegum aðstæðum og skoðunum sem ekki koma verkunum við. Þannig er það fáránlegt að hafna ritverki, mál- verki eða tónverki manns af því að hann er drykkfelldur eða sálsjúk- ur, vinstrimaður eða hægrimaður, ljóshærður eða þeldökkur. Hannes drýgir í grein sinni um Pál báða þessa rökglæpi. Annars vegar hafnar hann öllu því sem Hegel, Heidegger og Sartre hafa sagt vegna einstakra ummæla þeirra eða athafna, en reynir hins vegar að rýra verk Páls með því að dylgja um persónu hans og heild- arafstöðu. Ég hef heldur ekki kallað Hannes loddara eða skrumara. Ég sagði hins vegar að í greininni um Pál hefði hann beitt brögðum loddarans og skrumarans. Ég hélt að Hannes hefði beitt þessum brögðum af leiðréttanlegu^ hirðu- leysi eða fávisku. Ég hélt alls ekki að brögðin væru órjúfanlegur hluti af afstöðu hans allri, en svör hans bera vott um að svo kunni þrátt fyrir allt að vera. Ég reyndi einmitt að vara Hannes við því að beita þessum brögðum. Ef hann beitir þeim nógu oft verður hann að lokum að teljast aðeins loddari og skrumari Til gamans og skýringar á ofansögðu er rétt að geta þess að við samningu fyrri greinar minnar um níð Hannesar studdist ég við ritgerð um þrætur eftir þýska heimspekinginn Arthur Schopenhauer. Því má með sanni segja að ég hafi beitt brögðum snillingsins Schopenhauers. Má af þessu draga þá ályktun að ég sé snillingurinn Schopenhauer? Greinilega ekki, ég er af eðlis- fræðilegri og ættfræðilegri nauð- syn Halldór Guðjónsson af náð stjórnvalda kennslustjóri Háskól- ans, af sannfæringu sjálfstæðis- maður, af virðingu fyrir réttu máli hundleiður á skrifum Hannesar Gissurarsonar. Ég drap á það hér áðan að mér þætti það forsenda þess að ég ræddi af alvöru eða ritaði um ummæli annarra að ég hefði heyrt ummælin eða lesið þau. Þessi almenna siðaregla mín — sem ég skil ekki hvernig breyta mætti — á sérstaklega við um þau skrif sem Hannes álasar mér í síðustu grein fyrir að hafa ekki svarað fyrir nokkrum árum. Hann spyr tvisvar hvar ég hafi verið fyrir fjórum árum og beitir þá brögðum dr. Þorsteins Sæmundssonar er hann réðst að Jóhanni Hannessyni. (Að gefnu tilefni tek ég hér fram að af þessu má ekki álykta að sami rass sé undir Hannesi og Þorsteini). Ég veit satt að segja ekki hvar ég var, en ég er viss um að ég las hvorki greinarnar í Stúdentablaðinu né heldur þær greinar í dagblöðunum sem málaferli spruttu síðan af. Þar sem mig skortir þannig bæði upplýsingar um verustað minn og málavexti skortir mig allar for- sendur til að álykta nokkuð um afstöðu mína til þessara mála eða um málin sjálf. Nokkuð sama máli gegnir reyndar um skrif Hannesar um Hjalta Kristgeirsson og Gísla Pálsson, fyrri greinina las ég að vísu mjög lauslega en hina alls ekki, en ég veit varla nokkur deili á þessum mönnum tveimur eða verkum þeirra, því þykir mér siðlegast að þegja um þá með öllu. En af þögn minni má þó að sjálfsögðu enga ályktun draga um réttmæti þess sem Hannes skrif- aði um þá. Þar sem ég hef nefnt dr. Þorstein Sæmundsson á nafn hér að ofan og þar sem hann hefur áður í þessari deilu sagt að ég fari með rökleysu vil ég segja þetta. Ég tel dr. Þorstein vera einhvern heiðvirðasta, grandvarasta og drenglyndasta mann sem ég þekki. Ef hann þykist einhvern tíma þurfa liðsinnis míns í réttu máli sem ég þekki eða get kynnt mér væri mér sæmd að veita það. En ég get líklega ekki án allra fyrirvara tekið undir allar skoðanir hans. Og ég get áreiðanlega ekki falið honum endanlegan dóm um hvað eru rök og hvað ekki. Um rök veit ég engu minna en dr. Þorsteinn. Að lokum þetta: Ég er ekki málsvari allra sem verða fyrir níði eða öðrum ómaklegum miska. Ég hef aldrei verið skipaður til slíkrar umhyggju af öðrum og ég hef enga löngun til að skipa mig sjálfur. Vegna embættisleysis míns í þessu efni fæ ég ekki séð að mér hafi borið skylda til að taka málstað dr. Þorsteins og samstarfsmanna hans fyrir nokkrum árum, þótt mér hafi reyndar þá fundist málstaðurinn góður og finnist svo enn. Og menn hljóta að vera afar ákafir og kappsfullir ef þeir telja eðlilegt að ég lofi nú að taka til máls fyrir fjórum árum síðan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.