Morgunblaðið - 05.10.1978, Page 40
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
Fiskverðshækkun 5%
Aðför að sjómönnum
segir Óskar Vigfússon
YFIRNEFND Verðlagsráðs
sjávarútvegsins ákvað á fundi
sínum í gær að lágmarksfiskverð
1.10.—31.12. skyldi hækka um
5%. í bókun fulltrúa kaupenda
scgir að þeir hafi greitt þessari
ákvörðun atkvæði sitt í trausti
þess að ríkisstjórnin standi við
fyrirheit samstarfsyfirlýsingar
sinnar að hún muni bcita sér
fyrir iækkun framleiðsiukostnað-
ar útflutningsatvinnuveganna og
í hókun fulltrúa seljenda segir að
á 12 siðustu mánuðum hafi
fiskvcrð hækkað um 36% meðan
kaupgjald í landinu hafi hækkað
um 50—70% og kjör sjómanna
því versnað.
Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambandsins sagði í
samtali við Mbl. að megn óánægja
væri með þessa ákvörðun og
sjómenn teldu sig ekki bundna
þeirri hvatningu ASÍ að falla frá
samningsuppsögnum. Taldi Óskar
vera hér um að ræða aðför að
sjómannastéttinni.
Ingólfur Ingólfsson forseti FFSÍ
sagðist síður gera ráð fyrir að
gripið yrði til nokkurra aðgerða
vegna hins nýja fiskverðs, en taldi
vanda þann er leysa þyrfti um
áramótin stærri með því að ekki
var hækkað meira að sinni og taldi
hallað á sjómenn. Sjá bls. 18
Nemendur í Hagaskóla
koma hjólandi til skóla
síns, en þeir sem stunda
nám og störf í Háskólan-
um virðast kjósa að ferð-
ast um í bflum.
Ljósm. Ól.K.M.
Fisksölur hefjast í Grimsby:
Löndunarmenn samþykktu að
hefja landanir úr fiskiskipum
LÖNDUNARKARLAR í Grimsby
samþykktu í fyrrakvöld að opna
Grimsby á ný fyrir sölum ís-
lenzkra fiskiskipa og nú er
ckkert því til fyrirstöðu að
íslcnzk skip hefji fisksölur þar á
ný. en þau hafa ekki selt fisk í
Grimsby frá því að þorskastríðið
hófst 1972.
Nokkuð er síðan að útgerðar-
menn og sjómenn í Grimsby
samþykktu að opna Grimsby
Laugardagskvöldsfárið í
Háskólabíói á laugardag
HÁSKÓLABÍÓ tekur nk. laugardag til
sýninga bandarísku myndina Laugar-
dagsfárið eða „Saturday Night Fever,"
sem náð hefur meiri vinsældum meðal
unga fólksins en dæmi eru til og er með
tekjuhæstu kvikmyndum í sögunni.
Laugardagskvöldsfárið hefur einnig
vakið athygli fyrir þá sök, að í
myndinni varð aðalleikarinn, John
Travolta, stórstjarna á einu kvöldi, ef
svo má segja, en í myndinni leikur
hann plötusnúð enda er diskóteklífiö —
músíkin og tízkan sem þar þrífst
bakgrunnur myndarinnar. Fræg rokk-
hljómsveit, Bee Gees, sér um tónlistina
í myndinni að verulegu leyti en
hljómplata með þessari tónlist og
einstök lög á henni lögðu undir sig
vinsældalistana fljótlega eftir að
mvndin kom fram.
íslenzkum skipum, en löndunar-
mennirnir neituðu hins vegar að
hefja landanir. Héldu þeir síðan
fund með Austin Mitchell þing-
manni Grimsby í fyrramorgun og
var þá samþykkt að þá um kvöldið
skyldi fara fram atkvæðagreiðsla
um hvort þeir hæfu landanir úr
íslenzkum skipum eða ekki.
Alls eru löndunarmennirnir 240
talsins og féllu atkvæði þannig að
120 samþykktu að hefja landanir
úr ísl. skipum, en 70 sögðu nei.
Gert er ráð fyrir því að fyrstu
íslenzku skipin selji í Grimsby
þegar í næstu viku.
Fjárlagafrumvarpió samþykkt segir Tómas Arnason:
Y firlýsing f jármálaráð-
herra kemur mjög á óvart
— segir Sighvatur Björgvinsson formaður þingflokks Alþýðuflokksins
Sú yfirlýsing Tómasar Árna-
sonar fjármálaráðherra í hlaða-
viðtali í gær. að fjárlagafrum-
varpið fyrir 1979 haíi verið
samþykkt í ríkisstjórninni á
þriðjudag, olli miklu uppnámi í
þingflokki Alþýðubandalagsins í
gær en afstaða Alþýðubandalags-
ins mun vera sú að engar
endanlegar ákvarðanir hafi verið
teknar um meginatriði fjárlaga-
frumvarpsins. Brynjólfur
Sigurðsson settur hagsýslustjóri
segir í blaðasamtali í gær. „Allar
meginákvarðanir í sambandi við
fjárlagafrumvarpið haía þegar
vcrið teknar, og er nú unnið að
því af fuilum krafti að koma
Ökumaður á 132 km
hraða á Reykjanesbraut
AREKSTRUM í Rcykjavík
virðist ekki fækka, en í gær
urðu þeir 20 frá því snemma í
gærmorgun þar til kl. 22.30 í
gærkvöldi. Ekki urðu ncin slys.
Fimmta októbcr í fyrra urðu
árekstrar í Reykjavík 11 en
slys tvö. í Kópavogi varð
enginn árekstur né heldur í
Hafnarfirði.
Óskar Ólason yfirlögreglu-
þjónn hafði þetta að segja um
umferðina í Reykjavík.
— Við erum alveg undrandi á
hegðun sumra ökumanna, sagði
Óskar, ekki sízt vegna þess
mikla áróðurs sem haldið hefur
verið uppi að undanförnu og
þeirrar hvatningar, sem allir
vegfarendur hafa fengið um að
sýna aðgæzlu.
— Algengt er að ökumenn
séu teknir í radar á 80—90 km
hraða í íbúðahverfum og úr tók
steininn í morgun kl. 11.29 er
ökumaður kom inn í radarinn á
Háaleitisbraut á 108 km hraða.
Lagt var strax hald á ökuskír-
teini hans og viðurkenndi öku-
maðurinn brot sití og kvaðst
hafa verið að reyna bifreið sína,
sem er sérhönnúð fyrir mikinn
ökuhraða. Á svipuðum tíma var
utanbæjarmaður tekinn fyrir 90
km hraða akstur á Laugavegi
milli Kringlumýrarbrautar og
Nóatúns og þar yfir gangbraut.
Einnig um þetta leyti voru
vegalögreglumenn við radar-
mæiingar á Reykjanesbraut við
Straumsvík og þar tóku þeir á
skömmum tíma fjóra ökumenn
sem allir óku yfir 100 km hraða
og sá er hraðast fór ók á 132 km
hraða og var hann færður til
lögreglunnar i Hafnarfirði er
lagði hald á ökuskírteini hans.
Þessi ökumaður viðurkenndi
hraðann, en hafði það til afsök-
unar að hann hefði verið að aka
skipsverja til skips og hefðu þeir
verið of seinir.
— Oft heyrir maður um það,
sagði Óskar ennfremur, að
hegðun gangandi vegfarenda sé
ámælisverð og það ber sannar-
lega að viðurkenna, en það
afsakar ekki ofsaakstur sumra
ökumanna nema síður sé. Eg
segi sumra ökumanna, því þegar
rætt er almennt um ökumenn þá
má ekki gleyma því, að þeir eru
flestir til fyrirmyndar
Lögreglan vill fá að koma á
framfæri þökkum til þessara
ágætu manna en jafnframt
segir hún þeim, er engar reglur
virða, stríð á hendur og mun
lögreglan gera allt, sem í hennar
valdi stendur til að hafa hendur
í hári þeirra er af sér brjóta í
umferðinni, sagði Óskar Ólason
frumvarpinu í prentun." Gera má
ráð fyrir fundum forystumanna
stjórnarflokkanna um þetta mál í
dag.
Mbl. tókst ekki í gær að ná tali
af Lúðvík Jóepssyni formanni
AlþýÖubandalagsins, en Sighvatur
Björgvinsson formaður þingflokks
Alþýðuflokksins sagði í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, að sér kæmi
þessi yfirlýsing fjármálaráðherra
mjög á óvart." Eg veit ekki til þess
að það sé búið að taka ákvarðanir
um meginatriði fjárlagafrum-
varpsins fyrir 1979, hvað þá
samþykkja slíkt frumvarp. Það
hefur alla vega ekki verið sam-
þykkt af Alþýðuflokknum."
Sighvatur benti á að veigamiklir
þættir fjárlagafrumvarps, eins og
tekjustefnan og mörkun skatta-
stefnu, yrðu ekki ákveðnir án
samþykkis þingflokks Alþýðu-
flokksins og hann hefði engar
slíkar samþykktir gert.
Þegar Mbl. spurði hvort ætlunin
væri að styðjast við drög að
fjárlagafrumvarpi frá tíð fyrri
ríkisstjórnar sagði Sighvatur, að
það hefði komið til tals að byggja
að einhverju leyti á þeirri vinnu
varðandi ýms atriði en þó gæti
ekki farið hjá því að ný ríkisstjórn
markaði eigin stefnu í veigamikl-
um atriðum eins og þeim sem að
framan greinir.