Morgunblaðið - 08.10.1978, Page 1
64 SIÐUR
229. tbl. 65. árg SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Austurstræti
anda í Mexikó
Myrtu fyrr-
verandi for-
setaframbjóð-
Mexíkó. 7. október AP — Reuter
GILBERTO Flores. íyrrverandi
forsetaframbjóðandi í Mexíkó. og
eiginkona hans fundust myrt í
rúmi sínu í ga'rkvöldi. að því er
mexíkanska iögreglan tilkynnti í
morgun.
Það var átta ára gömul sonar-
dóttir Monoz sem fann þau hjónin
í blóði sínu, en þau höfðu þá verið
skorin á háls og munu hafa látizt
samstundis að sögn lækna.
Á árunum 1950 til 1960 gerði
Monoz, sem var 72 ára er hann var
myrtur, nokkrar tilraunir án
árangurs til að hljóta kosningu
sem forseti landsins. Hann hefur
auk þess setið um áratuga skeið á
þingi og gegnt þar mörgum
ábyrgðarstöðum svo sem stöðu
landbúnaðarráðherra. Um skeið
var hann ríkisstjóri í Nayratiríki í
Vestur-Mexíkó. Þá var Monoz allt
til dauðadags formaður Sambands
sykurframleiðenda í Mexíkó, en
þau samtök eru mjög valdamikil
þar í landi.
I tilkynningu lögreglunnar seg-
ir, að enn hafi ekki komið nein
vísbending fram um ástæður fyrir
þessu hryllilega morði.
Bokassa keisari
Bokassa rak son
sinn í útlegð
París — 7. október — AP
GEORGES Bokassa. sonur keis-
ara Miðafríkukeisarada'misins.
er kominn til Parísar ásamt
konu sinni og tveimur börnum.
Ilann var til skamms tíma
varnarmálaráðherra í stjórn
föður síns. en segir hann hafa
látið sig og fjölskyldu sína dúsa
í stofufangelsi í 17 daga. Hafi
keisarinn síðan vísað þeim úr
landi og sé ástæðan fyrst og
fremst sú. að hann sé orðinn
svo tortrygginn og hræddur
um eigið skinn að hann treysti
ekki einu sinni sínum nánustu
lengur.
Bokassa eldri náði völdum í
Miðafríkuríkinu í byltingu hers-
ins árið 1965, lýsti það síðan
keisaradæmi með sjálfan sig
trónandi í hásætinu. I desember
í fyrra lét hann krýna sig við
makalausa athöfn, sem þrátt
fyrir örbirgð landsmanna var
íburðarmeiri en þekkzt hefur.
Um leið útnefndi hann yngsta
son sinn ríkisarfa, en alls á
Bokassa þrjátíu börn.
Líbanon:
Ekkert lát á bardögum þrátt
fyrir áskorun öryggisráðsins
næstunni. Megi gera ráð fyrir að
ítök Bandaríkjanna í ísraei komi
að gagni, á sama hátt og Sovétrík-
in séu líkleg til að beita áhrifum
sínum í Sýrlandi.
Hoss forsætisráðherra Líbanons
hefur lýst ánægju sinni með þá
ráðstöfun Kurt Waldheims fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna að fá Sadruddin Aga Kahn
prins, fyrrum forstöðumann
Flóttamannastofnunar SÞ, til að
fara til Líbanons og reyna mála-
miðlun, um leið og hann kannar
hvernig hægt sé að haga
mannúðarstarfi.
Viðbrögð víða um heim eru mjög
misjöfn vegna farar Smiths og
Sithole, í fréttum frá Rhódesíu í
morgun segir, að stjórnarsinnar
telji för Smiths vera meiriháttar
sigur fyrir stefnu hans þar í landi,
en hvítir stjórnarandstæðingar
telja hins vegar að för þeirra
félaga verði aðeins til að auka
blóðsúthellingar í landinu á næstu
mánuðum.
Beirút. 7. októbor. Reuter. AP. I áfram í rnorgun af engu minni
ÞRÁTT fyrir áskorun öryggis- hörku en undanfarna daga. Þó er
ráðs Sameinuðu þjóðanna frá því eins og nokkuð hafi dregið úr
í gærkvöld um tafarlaust vopna- átökum milli sýrlenzkra her-
hlé í Lihanon héldu hardagar | manna og kristinna hægri manna
Misjöfn viðbrögð
við för Ian Smiths
New York, 7. október, Reuter. AP.
IAN Smith, forsætisráðherra Rhódesíu, kom ásamt séra
Ndabaningi Sithole, einum þriggja blökkumanna í stjórn
Rhódesíu, til Bandaríkjanna í morgun. Meðan á dvöl
þeirra stendur í Bandaríkjunum hyggst Smith reyna að
fá stuðning Bandaríkjamanna við stefnu sína varðandi
væntanlega meirihlutastjórn blökkumanna í landinu.
í návígi í Beirút. Leiðtogar
kristinna manna hafa harðlcga
átalið öryggisráðið fyrir vopna-
hlésáskorunina og segja að eina
leiðin til að hinda enda á bardag-
ana sé að sýrlenzka gæzluliðið,
sem er í Líbanon í krafti Araba-
bandalagsins, hverfi þegar úr
landinu. en í staðinn komi alþjóð-
legar friðargæzlusveitir.
Almennt er talið að samstaða
bæði Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna í vopnahlésályktun Öryggis-
ráðsins auki nokkuð líkur á því að
hægt verði að skakka leikinn á
lan Smith.
Auk þingmannanna 27 sem að
heimsókn þeirra til Bandaríkjanna
standa, hyggjast Smith og Sithole
hitta Cyrus Vance, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, að máli og
reyna að fá hann til fylgis við
stefnu þeirra.
Óljós
biðstaða
BaKUÍu. 7. okt. AP.
ÞEGAR 29. einvígisskákin fór í
bið var staðan óljós, en frammi-
staða Kortsnojs, sem hafði hvítt.
kom á óvart er hann ruddist
skyndilega inn í vörn Karpovs.
Við þetta veiktist nokkuð staða
peða áskorandans. Biðskákin
verður tefld á morgun.
Kortsnoj er illa haldinn af
kvefi og sólbruna, en ekki virtist
það há honum við taflborðið í
dag. Kortsnoj beitti enskri byrj-
un og voru fyrstu leikirnir um
fátt óvenjulegir. Síðari vatt
Kortsnoj kvæði sínu í kross og
greip til afbrigðis, sem lítið er
notað, því að það veitir svörtum
tækifæri til mannaskipta
snemma í taflinu og greiðir
þannig fyrir jafntefli.