Morgunblaðið - 08.10.1978, Síða 1

Morgunblaðið - 08.10.1978, Síða 1
64 SIÐUR 229. tbl. 65. árg SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Austurstræti anda í Mexikó Myrtu fyrr- verandi for- setaframbjóð- Mexíkó. 7. október AP — Reuter GILBERTO Flores. íyrrverandi forsetaframbjóðandi í Mexíkó. og eiginkona hans fundust myrt í rúmi sínu í ga'rkvöldi. að því er mexíkanska iögreglan tilkynnti í morgun. Það var átta ára gömul sonar- dóttir Monoz sem fann þau hjónin í blóði sínu, en þau höfðu þá verið skorin á háls og munu hafa látizt samstundis að sögn lækna. Á árunum 1950 til 1960 gerði Monoz, sem var 72 ára er hann var myrtur, nokkrar tilraunir án árangurs til að hljóta kosningu sem forseti landsins. Hann hefur auk þess setið um áratuga skeið á þingi og gegnt þar mörgum ábyrgðarstöðum svo sem stöðu landbúnaðarráðherra. Um skeið var hann ríkisstjóri í Nayratiríki í Vestur-Mexíkó. Þá var Monoz allt til dauðadags formaður Sambands sykurframleiðenda í Mexíkó, en þau samtök eru mjög valdamikil þar í landi. I tilkynningu lögreglunnar seg- ir, að enn hafi ekki komið nein vísbending fram um ástæður fyrir þessu hryllilega morði. Bokassa keisari Bokassa rak son sinn í útlegð París — 7. október — AP GEORGES Bokassa. sonur keis- ara Miðafríkukeisarada'misins. er kominn til Parísar ásamt konu sinni og tveimur börnum. Ilann var til skamms tíma varnarmálaráðherra í stjórn föður síns. en segir hann hafa látið sig og fjölskyldu sína dúsa í stofufangelsi í 17 daga. Hafi keisarinn síðan vísað þeim úr landi og sé ástæðan fyrst og fremst sú. að hann sé orðinn svo tortrygginn og hræddur um eigið skinn að hann treysti ekki einu sinni sínum nánustu lengur. Bokassa eldri náði völdum í Miðafríkuríkinu í byltingu hers- ins árið 1965, lýsti það síðan keisaradæmi með sjálfan sig trónandi í hásætinu. I desember í fyrra lét hann krýna sig við makalausa athöfn, sem þrátt fyrir örbirgð landsmanna var íburðarmeiri en þekkzt hefur. Um leið útnefndi hann yngsta son sinn ríkisarfa, en alls á Bokassa þrjátíu börn. Líbanon: Ekkert lát á bardögum þrátt fyrir áskorun öryggisráðsins næstunni. Megi gera ráð fyrir að ítök Bandaríkjanna í ísraei komi að gagni, á sama hátt og Sovétrík- in séu líkleg til að beita áhrifum sínum í Sýrlandi. Hoss forsætisráðherra Líbanons hefur lýst ánægju sinni með þá ráðstöfun Kurt Waldheims fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna að fá Sadruddin Aga Kahn prins, fyrrum forstöðumann Flóttamannastofnunar SÞ, til að fara til Líbanons og reyna mála- miðlun, um leið og hann kannar hvernig hægt sé að haga mannúðarstarfi. Viðbrögð víða um heim eru mjög misjöfn vegna farar Smiths og Sithole, í fréttum frá Rhódesíu í morgun segir, að stjórnarsinnar telji för Smiths vera meiriháttar sigur fyrir stefnu hans þar í landi, en hvítir stjórnarandstæðingar telja hins vegar að för þeirra félaga verði aðeins til að auka blóðsúthellingar í landinu á næstu mánuðum. Beirút. 7. októbor. Reuter. AP. I áfram í rnorgun af engu minni ÞRÁTT fyrir áskorun öryggis- hörku en undanfarna daga. Þó er ráðs Sameinuðu þjóðanna frá því eins og nokkuð hafi dregið úr í gærkvöld um tafarlaust vopna- átökum milli sýrlenzkra her- hlé í Lihanon héldu hardagar | manna og kristinna hægri manna Misjöfn viðbrögð við för Ian Smiths New York, 7. október, Reuter. AP. IAN Smith, forsætisráðherra Rhódesíu, kom ásamt séra Ndabaningi Sithole, einum þriggja blökkumanna í stjórn Rhódesíu, til Bandaríkjanna í morgun. Meðan á dvöl þeirra stendur í Bandaríkjunum hyggst Smith reyna að fá stuðning Bandaríkjamanna við stefnu sína varðandi væntanlega meirihlutastjórn blökkumanna í landinu. í návígi í Beirút. Leiðtogar kristinna manna hafa harðlcga átalið öryggisráðið fyrir vopna- hlésáskorunina og segja að eina leiðin til að hinda enda á bardag- ana sé að sýrlenzka gæzluliðið, sem er í Líbanon í krafti Araba- bandalagsins, hverfi þegar úr landinu. en í staðinn komi alþjóð- legar friðargæzlusveitir. Almennt er talið að samstaða bæði Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna í vopnahlésályktun Öryggis- ráðsins auki nokkuð líkur á því að hægt verði að skakka leikinn á lan Smith. Auk þingmannanna 27 sem að heimsókn þeirra til Bandaríkjanna standa, hyggjast Smith og Sithole hitta Cyrus Vance, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, að máli og reyna að fá hann til fylgis við stefnu þeirra. Óljós biðstaða BaKUÍu. 7. okt. AP. ÞEGAR 29. einvígisskákin fór í bið var staðan óljós, en frammi- staða Kortsnojs, sem hafði hvítt. kom á óvart er hann ruddist skyndilega inn í vörn Karpovs. Við þetta veiktist nokkuð staða peða áskorandans. Biðskákin verður tefld á morgun. Kortsnoj er illa haldinn af kvefi og sólbruna, en ekki virtist það há honum við taflborðið í dag. Kortsnoj beitti enskri byrj- un og voru fyrstu leikirnir um fátt óvenjulegir. Síðari vatt Kortsnoj kvæði sínu í kross og greip til afbrigðis, sem lítið er notað, því að það veitir svörtum tækifæri til mannaskipta snemma í taflinu og greiðir þannig fyrir jafntefli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.