Morgunblaðið - 08.10.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978
13
Erfitt fyrir verðlags-
dóm að ákveða um
st j órnarskr ármál
- segir ritstjóri Dagbladsins
„ÉG vil segja það eitt að það ræmda vörn yrði að ræða hjá
hijóti að vera mjög erfitt fyrir
verðlagsdóm að ákveða um
stjórnarskrármál — að hugsa í
þeim anda og ég held að það
gerist varla fyrr en á síðari
dómsstigum." sagði Jónas Kristj-
ánsson ritstjóri, þegar Mbl.
spurði hann álits á kæru verð-
lagsstjóra á hendur Dagblaðinu
og Vísi til verðlagsdóms.
Jónas kvað ekki hafa verið rætt
um það milli forráðamanna Dag-
blaðsins og Vísis að um sam-
þessum aðilum fyrir verðlagsdómi,
en þó kynni slíkt að koma upp.
Jónas kvaðst þó síður gera ráð
fyrir því að til slíks kæmi. Fyrir
verðlagsdóm hefur verið stefnt
öllum forsvarsmönnum þessara
tveggja dagblaða, sem viðlátnir
eru, og sagði Jónas að af hálfu
Dagblaðsins myndu mæta hann
sjálfur og stjórnarformaðurinn,
Björn Þórhallsson.
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
tali af forráðamönnum Vísis til að
fá viðbrögð þeirra við stefnunni.
Bílamálun
Guðmundar Einarssonar
Opnum í nýju húsnæöi á Smiöjuvegi
40, Kópavogi, sími 74540.
Leik aldrei með
Víkingi framar
— segir Arnór Guðjohnsen
ARNÓR Guðjohnsen leikmaðurinn ungi og snjalli úr
Víkingi sem gert hefur samning við belgíska félagið
Lokaren, er fyrsti íslenski leikmaðurinn sem gerir
atvinnumannasamning í knattspyrnu þannig, að
hann er gjaldgengur eftir sömu reglum og gilda um
Belgíumenn sjálfa.
Arnór f landsleik með ungl-
ingalandsiiði íslands.
Ferill Arnórs sem
knattspyrnumanns hófst á
Húsavík þar sem hann lék
með Völsungi, þá aðeins 6
ára gamall. Er Arnór
fluttist til Reykjavíkur
gekk hann í IR og lék fyrir
félagið í eitt ár.
Arnór gekk síðan í Vík-
ing og hóf að leika með
félaginu í 4. flokki. Arnór
vakti snemma athygli fyr-
ir leikni sína í knattspyrn-
unni og orðstír hans barst
víða. Nú hefur hann skrif-
að undir atvinnumanna-
samning í Belgíu
Mbl. hafði samband við
Arnór í gær í gær, og
spurði hann um það mál
sem upp hefur komið
vegna félagaskiptanna.
Arnór sagði: — Þessi
leiðindamál eiga vonandi
eftir að skýrast. Ég hefði
ekki trúað því að óreyndu,
að svona yrði komið fram
við mig. Ég vil að það komi
fram, að leiki ég aftur
heima á íslandi leik ég
ekki með Víkingi. í það
félag fer ég aldrei aftur.
Mér líkar dvölin hér í
Lokaren vel. Við æfum
tvisvar á dag og eru
æfingarnar allstrangar.
Sel
þig inn í dæmió
Sparilán Landsbankans eru í
reynd einfalt dæmi. Þú safnar
sparifé með mánaðarlegum
greiðslum í ákveðinn tíma, t.d. 24
mánuði og færð síðan sparilán til
viðbótar við sparnaðinn. Lánið
verður 100% hærra en sparnaðar-
upphæðin, — og þú endurgreiðir
lánið á allt að 4 árum.
Engin fasteignatrygging, aðeins
undirskrift þín, og maka þíns.
Landsbankinn greiðir þér al-
menna sparisjóðsvexti af sparn-
aðinum og reiknar sér hóflega
vexti af láninu . Sparilánið
er helmingi hærra en sparnaóar-
upphæðin, en þú greiðir lánið til
baka á helmingi lengri tíma en það
tók þig að spara tilskylda upphæð.
Biðjið Landsbankann um
bæklinginn um sparilánakerfið.
Sparifjársöfnun tengd rétti til lántöku
Sparnaður þinn eftir Mánaðarleg innborgun hámarksupphæð Sparnaður í lok tímabils Landsbankinn lánar þér Ráðstöfunarfé þitt 1) Mánaðarleg endurgreiðsla Þú endurgreiðir Landsbankanum
12 mánuði 25.000 300.000 300.000 627.876 28.368 á 12 mánuðum
18 mánuði 25.000 450.000 675.000 1.188.871 32.598 á 27 mánuðum
24 mánuði 25.000 600.000 1.200.000 1.912.618 39.122 á 48 mánuðum
1) í tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytst miðað við hvenær sparnaður hefst, Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
LANDSRANKINN
Sparilán-tiygging í framtíð