Morgunblaðið - 08.10.1978, Page 23

Morgunblaðið - 08.10.1978, Page 23
Stofnað lands- samband KFUM og KFUK NÝLEGA hafa KFUM og KFUK félögin á íslandi stofnað með sér landssamband, en áður var til Landssamband KFUM og það hefur nú verið lagt niður og félögin sameiginlega gengist fyrir stofnun nýs landssambands. Stofnfund sambandsins sóttu fulltrúar allra KFUM og KFUK félaga á landinu, sem eru í Reykjavík, Hafnarfirði, Vest- mannaeyjum, Akureyri og Akranesi, auk þess sem yngri deildir eru starfræktar í Kópavogi, Garðabæ, Seltjarnarnesi og í Keflavík. í byrjun næsta árs eru liðin 80 ár frá því sr. Friðrik Friðriksson stofnaði félögin og verður þess þá minnst. Hlutverki Landssam- bandsins er þannig lýst í lögum þess, að þvi sé ætlað að auka og efla kristilegt starf meðal ungs fólks í landinu og auka samstarf aðildarfélaganna svo sem með gagnkvæmum heimsóknum, miðlun fundarefnis, samræmdri útgáfu- og fræðslustarfsemi og almennri upplýsingamiðlun. For- maður Landssambandsins er Ástráður Sigursteindórsson skóla- stjóri. Gandhi spáð öruggu sæti Nýju Dehlí. 6. október. AP INDIRA Gandhi fyrrverandi for- sætisráðherra Indlands lagði inn framboðsgögn í dag vcgna auka- kosninganna f Chickmagalur 5. nóvember næstkomandi. Með þessu framboði hyggst frú Gandhi vinna sæti á þingi á ný, en hún hefur haft nokkuð hægt um sig frá því að hún missti völd sín og þingsæti í þingkosningunum á Indlandi í marz 1977. Kunnugir telja nær öruggt að frú Gandhi sigri í kosningunum í Chickmagalur. Chickmagalur er 1.800 kílómetra fyrir sunnan Nýju Dehlí. Fjöldi stuðnings- manna frú Gandhi hyllti hana og lék á hljóðfæri þegar hún lagði framboðsgögn sín inn. Sovézkur skip- stjóri sektaður fyrir veiðar í landhelgi Kanada St. Johns, Kanada. 6. október, AP. SOVÉSKUM togaraskipstjóra var í dag gert að greiða 2,000 Kanadadali í sekt eða sæta að öðrum kosti 30 daga fangelsisvist fyrir að veiða ólöglega í kanadískri fiskveiðilögsögu. Einnig var helmingur aflans gerður upptækur, en áætlað andvirði hans var um 29,000 dalir. Sami skipstjóri, Yevseny Gusev, var fyrr á árinu dæmdur til að greiða 1,000 dali í sekt fyrir að veiða með ólöglegum veiðarfærum í kanadískri fiskveiðilögsögu. Afli hans var einnig gerður upptækur þá. Gusev er skipstjóri á 2,300 rúmlesta togara sem ber nafnið Vyborgskya Storona. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978 23 Fjölritunarstofan Festa auglýsir Tökum aö okkur offsettfjölritun á eyöiblööum, bæklingum, pöntunarlistum, leikskrám og fleira. Einnig Ijósrit og koperingu. Fjölritunarstofan Festa Hamraborg 7, Kópavogi Sími: 41623. Hraðhreinsun Kópavogs Borgarholtsbraut 71, sími 43290 auglýsir: Frá 9. október er opiö frá kl. 9—12 og 13—16 mánudaga — fimmtudaga. Föstudaga 9—12 og 13—19. Laugardaga kl. 9—12. Hraðhreinsun — pressun — kílóhreinsun — pvottur Kynning á Christian Diar snyrtivörum a morgun, mánudag 9. október kl. 2-6. ^Hohsapótek snyrtivöradeild cLangholtsvegi 84 Simi35213 Hef opnað tannlæknastofu að Hraunbæ 102 (Heilsugæslustöðifini) sími 71500. Elín Guðmannsdóttir. Stjórnunarfélag íslands Námstefna um „fjármálastjórn fyrirtækja“ Stjórnunarfélag íslands mun gangast fyrir nám- stefnu um „fjármálastjórn fyrirtækja“ aó Hótel Sögu, 12. október og hefst hún kl. 10 árdegis. Dagskrá: Setning námstefnunnar — Ragnar S. Halldórsson formaöur Stjórnunarfélags íslands. Nýjungar á sviði fjármálafræöi — Prófessor Árni Vilhjálmsson Fjármálastjórn og bankaviðskipti — Helgi Backmann forstöðumaöur Hagdeildar Landsbanka íslands. Hádegisverður Fjármálastjórn hjá stærri fyrirtækjum — Höröur Sigurgestsson framkvæmdastjóri fjármálasviös Flugleiöa h.f. Fjármálastjórn hjá meöalstórum og smærri fyrirtækjum — Steinar Berg Björnsson framkvæmdastjóri Pharmaco h.f. Fjármálastjórn hjá borgarfyrirtæki — Björn Friöfinnsson fjármálastj. Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Kaffi Fjármálastjórn hjá ríkisfyrirtæki — Páll V. Daníelsson framkvæmdastjóri Fjármáladeildar Pósts- og símamálastofnunarinnar. Fjármálastjórn og veröbólga — Siguröur R. Helgason framkvæmdastjóri Hagvangs h.f. Pallborósumræöur Þeir sem hyggja á bátttöku hafi samband vió skrifstofu Stjórnunarféiagsins aó Skiphoiti 37, sími 82930. Já nú bjóðum vid 5 mismunandi gerdir af MAZDA 323 Frá því að Mazda 323 var kynntur árið 1977 hefur hann verið einn vinsælasti bíil- inn á markaðnum í sínum stærðarflokki, rómaður fyrir sparneytni, góða aksturs- eiglnleika og frábæra plássnýtingu. Nú þjóðum við 1979 árgerð af Mazda 323 i 5 mismunandi gerðum. Flestar gerðirnar eru nú með stærri og aflmeiri 1400cc vél, og 5 gíra kassa, sem er svar Mazda við hækkandi bensínverðí. Ennfremur eru allar gerðír fáanlegar með sjálfskiptingu, Mikið úrval Mazda 323 auðveldar hverj- um og einum að finna gerð við sitt hæfi. Einn af þeim hentar þér örugglega. Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum okkar í simum 81264 og 81299. SMIDSHÖFDA 23 simar. 81264 og 81299 lASÝti ^lOiclag kl. 10-5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.