Morgunblaðið - 08.10.1978, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.10.1978, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978 SLAGBRANDUR MORAZ GEIVGll í MOODY BLSES Hljómborðsleikarinn Patric Moraz, er áður lék með hljómsveitinni Yes, hefur nú gengið í hljóm- sveitina Moody Blues. Mor- az kemur í stað Mike Pinders, sem hefur sagt að hann hafi enga löngun til að fara í hljómleikaferða- lag um hinar ýmsu heims- álfur, en til stendur að Moody Blues hefji ferðalag sitt um miðjan október. Hljómleikaferðalagið er hið fyrsta sem þeir í Moody Blues hafa farið í mörg ár og raunar eru þetta fyrstu hljómleikarnir, sem hljóm- sveitin heldur í fimm ár. Trommuleikari Moody Blues, Greame Edge, sagði að Moraz myndi engin áhrif hafa á tónlist hljóm- sveitarinnar. Hans hlut- verk væri aðeins að leika hana eins og hinir hefðu samið hana. Hljómleikaferðalagið hefst í Vestur-Þýzkalandi 19. október. Samhliða ferðalaginu mun hljóm- sveitin senda frá sér tveggja laga plötu og ber hún nafnið „Driftwood“ og er væntanleg á markaðinn í Bretlandi 6. október. Lagið samdi Justin Hay- ward, en hann á drjúgan þátt í þremur breiðskífum, sem eru ofarlega á blaði hvað vinsældir snertir í Bretlandi, nefnilega „Classic Rock,“ „War Of The Worlds“ og plötu Moody Blues „Octave“. Moraz kvað hljómleika- ferðalag sitt með Moody Blues ekki munu hafa nein áhrif á sólóleikara feril hans, en í nóvember er væntanleg, ný plata með Moraz. „Ég hef farið í hljómleikaferðalag með Nice, Yes og nú Moody Blues,“ sagði Moraz. „Það eina sem upp á vantar, er að ég fari í hljómleika- ferðalag með Led Zeppelin.“ Moody Blues eins o« hljómsveitin er skipuð í dag. Moraz er lengst til hæKri í efri röð. Tínicunót Þegar eitthvað nýtt er hafið er vaninn að setja fram markmið og stefnur. Þó að nú hefjist nýr kafli í sögu Slagbrands með nýjum mönnum er ekki þar með sagt að við hyggjumst gera neina byltingu og að allt verði betra en áður. Það sem til stendur er að Slagbrandur birtist í blaðinu á tveim síðum á hverjum sunnudegi. Efnið kemur til með að verða klassískt, popptónlistin verður eftir sem áður í forsæti, og munum við reyna að sinna innlendu og erlendu efni til jafns í því tilfelli. Slagbrandur verður byggður upp á fréttum úr tónlistarlífinu, viðtölum sem koma til með að verða af og til við íslenska aðila, greinar um erlenda listamenn, þar sem áhugi tónlistarunnenda er ekki síðri á erlendri tónlist. Allar íslenskar plötur hljóta umsögn á meðan þær berast Slagbrandi og má búast við að þær taki nokkuð drjúgt rými fram að áramótum. Auk þess stefnum við að því að taka eina erlenda plötu fyrir vikulega eftir því sem pláss leyfir. Vinsældalistabirtingar eru í athugun, og allt eins líklegt að eitthvað verði um þá. Auk alls þessa höfum við í hyggju að taka fyrir ýmis félagsleg vanda- og dægurmál eftir því hvernig viðrar á þeim vettvangi. Og þar að auki allt hitt sem á eftir að koma upp meðan á samstarfinu stendur. Svo vonumst við líka til þess að fá ærlega svörun frá lesendum og fá að vita um óskir, þarfir og skoðanir þeirra. — Umsjónarmenn. Doomed stofnuð nrrustnm Damned Hljómsveit að nafni Damned kannast eflaust nokkrir við. Hún hætti fyrir nokkru, en nú hafa þrír fyrrverandi meðlima hennar stofnað nýja hljómsveit, Doomed. Þremenningarnir eru Dave Vanian, Rat Scabies og Captain Sensible, en fjórði meðlimur Doomed er Henry Badowski. Badowski lék áður með kaftcininum í hljómsveitinni King. Nú hefur hljómsveitin í huga að leggja af stað í hljómieikaferðalag um Bret- land í október og seinna á árinu er ætlunin að skreppa til annarrra landa Evrópu. Þá er Doomed á höttunum eftir góðum hljómplötu- samningi, en allt er óljóst um þróun mála á þeim vettvangi. Fjórði meðlimur Damned Brian James stofnaði skömmu eftir að hljómsveit- in hætti sína eigin hljóm- sveit, og bar hún nafnið Tanz Der Youth. En nú er sú hljómsveit einnig hætt en um áform James er ekkert vitað. PÉTUR OG ÚLFURINN (Steinar hf SMÁ201) Flytjenduri Philadelphia Orch- estra undir stjórn Eugene Ormandy, sögumaður Bessi Bjarnason. „Pétur og úlfurinn“ er án efa það verk Sergei Prokofieff sem mestar vinsældir hefur hlotið. Þessi útgáfa Steina hf. er að því er ég veit best fyrsta hljómplötuútgáfan á verkinu hérlendis með íslenskum sögu- manni, þó verkið hafi oftsinnis verið sýnt. Mig minnir að verkið hafi þó tvisvar verið tekið upp hjá útvarpinu, í annað sinn af Helgu og/eða Huldu Valtýsdætrum, og í hitt sinnið í flutningi Lárusar Pálssonar og voru sögumenn í báðum þessum tilfellum. Var flutningur sögumanns með ágætum. Flutningur Bessa Bjarnason- ar er í þessu tilfelli kannski ekki eins tilþrifamikill og maður skyldi ætla af manni með hans hæfileika. Hér og þar hefði þurft meiri kraft í frá'sögnina og meiri blæbrigði. En hér er maður eflaust farinn að bera saman við það sem aðrir hafa gert best við verkið án þess að líta á galla þeirra sem kunna að vera á öðrum sviðum. Flutningur tónlistarinnar og hljómgæði hennar eru óaðfinn- anleg. Það kann eflaust mörgum að finnast lélegt að ekki sé notuð okkar eigin sinfóníu- hljómsveit til undirleiks. En um það er það að segja að forsvars- mönnum hljómsveitarinnar var á sínum tíma boðin hlutdeildin en höfnuðu þeirri samvinnu af einhverjum ástæðum. Hvað um það, svo virðist sem margir hafi beðið eftir að verk þetta kæmi út á íslensku og flestir sem heyrðu verkið sem krakkar hafa jafngaman af verkinu og yngri kynslóðin sem nú tekur eftir því í fyrsta sinn. Þó er eitt neikvætt við þessa útgáfu. Verkið er það stutt að það hefði auðveldlega komist á eina plötuhlið og þá hefði ekki þurft að stoppa flutninginn á meðan plötunni er snúið við. Svar útgefandans við því virðist vera lægra verð en á öðrum plötum, sem er á sinn hátt virðingarvert. Annars má benda á aðra útgáfu, ekki síður merkilega. Það er reyndar sama upptakan, Philadelphia Orchestra undir stjórn Eugene Ormandy, en þar er sögumaður enginn annar en David Bowie, þess má líka geta að á þeirri plötu tekur verkið eina hlið, en á hinni hliðinni er „Young Person’s Guide To The Orchestra" eftir Benjamin Britten, sem hefur líka náð næst „Pétri og úlfinum" í að ná áhuga yngstu hlustendanna á band slíkrar tónlistar. En þess má líka geta að hulstur Péturs Halldórssonar á íslensku útgáfunni er eitt al- smekklegasta og veglegasta hér- Pjetnr og nlfarn- ir „Plaiaðir” Það gerist því miður ekki oft hér á Fróni að út komi hljómplötur með einstaklingum, sem ekki hafa fyrr skotið upp kollinum í pop-heiminum. Ein slík er þó nýkomin út (eða er að koma út) og ber hún nafnið Pjetur og Úlfarnir „Plataðir". Þeir sem skipa þá hljómsveit eru fjórir nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð og heita þeir Eggert Pálsson, Kjartan Ólafsson, Kristj- án Sigurmundsson og Pétur Jónas- son, auk þess sem þeir bera allir nafnið Úlfur, í það minnsta segir svo á plötuumslaginu. En áöur en lengra er haldið er bezt að víkja lítillega að plötunni. Það sem fyrst og fremst vekur athygli við plötuna er að hún er lítil 33 snúninga plata, en ár og dagar eru síðan lítil plata kom út hérlendis. Á plötunni eru fjögur lög, „Stjáni saxafónn", „Where No Plants Grow“, „Borðstofubúkí" og „La Cartera Negra". Öll lögin, utan hið fyrst talda eru frumsamin, en texta við tvö laganna gerði Ásgeir Rúnar Helgason. • „La Cartera Negra" er nokkuð sérstakt lag, þar sem það er sungið á spænsku og á Pétur Jónasson heiðurinn af þeirri textasmíð og lagið syngur hann náttúrulega sjálfur. Að sögn þeirra, sem eitthvað til spænsku þekkja, mun lag þetta verið samið um tösku eina svarta, sem fylgt hefur hljómsveitinni í gegnum súrt og sætt. En textinn höfðar til íslenzkra ferðamanna og þá vænt- anlega þeirra er til Spánar fara. Lagið sjálft er með spænsku yfirbragði og slagverk setja skemmtilegan blæ á það. Um önnur lög er það að segja að þau eru furðugóð, sérstaklega þótti undirrituðum „Borðstofubúkí" skemmtilegt. En annað lag, „Stjáni saxafónn" á þó sennilega eftir að verða vinsælla, enda hefur það allt til þess að bera. Hljóðfæraleikur allur er góður, en lögin virka nokkuð hrá á hlustandann, af þeirri ástæðu að þau eru ekki ofhlaðin. Með þessu er átt við að ekki hefur verið farið út í þá sálma að bæta kórum og strengjum við sjálf lögin, eins og svo mjög tíðkast Kemur tími... Neil Young er einn af þeim erlendum listamönnum sem margir íslendingar bíða eftir plötum með þegar eitthvað er liðið frá útkomu þeirrar síðustu. Síðasta plata Neil Young, hin ágæta „American Stars And Bars“ kom út í júní 1977, svo nú er liðið hátt á hálft annað ár síðan. í desember 1977 hóf Neil Young upptökur í Nashville á breiðskífu, sem bera átti heitið „Gone With The Wind“ ásamt hljómsveitinni Stray Gators og átti hún þá að koma út í apríl 1978. Skömmu síðar fréttist af annarri plötu, hljómleikaplötu, sem Neil Young tók upp ásamt hljómsveitinni Ducks (sem skipa nokkrir fyrri Moby Grape meðlimir). Sú plata átti að vera tvöföld og koma út skömmu eftir áramót. I febrúar kom svo sú frétt að „Gone With The Wind“ hefði verið lögð á hilluna að sinni en plata ásamt Crazy Horse „Com- es A time“ ætti þess í stað að koma út í mars. Síðan hefur „Comes Time“ verið frestað í hverjum einasta mánuði, og var síðast áætluð í októberlok. Ekkert hefur frekar heyrst af hinum plötunum tveim. Þess má líka geta að hann hefur áður tekið upp nokkrar plötur sem aldrei hafa sést. Fyrir þá sem frekari áhuga hafa birtast hér heiti laganna sem eiga að vera á „Comes a Time“. Four Strong Winds, Goin’

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.