Morgunblaðið - 08.10.1978, Side 29

Morgunblaðið - 08.10.1978, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÖBER 1978 29 rekstur heimamanna jókst smátt og smátt eftir síldarævintýrið og hefur síðan aukist æ meir. Þess ber að gæta í sambandi við fiskvinnsluna, áð í upphafi var hráefnisöflunin frekar fálmkennd, einn bátur var hér fyrir og annar var keyptur. Þessir bátar reyndust ekki nógu góð togskip og við urðum fljótlega með í skuttogara- útgerðinni og nú eru gerðir héðan út tveir skuttogarar, auk þess sem Hreiðar Valtýsson gerir út tvo báta.“ — Finnst þér þú ekki vera oft einangraður á Seyðisfirði yfir vetrartímann, þegar kannski hvorki er hægt að komast hingað né fara, nema þá sjóleiðina? „Fyrir mína parta verð ég að segja, að mér hefur fundist ég vera hvað einangraðastur þegar farið er að vora og Fjarðarheiði kannski illfær vegna aurs. Ég hef ekki fundið svo mikið til þessa yfir sjálfan veturinn, en sem sagt, það hefur komið fiðringur í mig á vorin eins og farfuglana." — En er ekki oft erfitt að veita bankaútibúi úti á landi forstöðu, sérstaklega þegar að kreppir. „Þó að hér hafi oft verið erfiðir tímar, hafa þau ár sem ég hef dvalið á Seyðisfirði verið verulega þroskandi. Þá er Austurland einhver fallegasti staður, sem ég þekki. Eftir einangrunina á vet- urna, er hreint dásamlegt að komast upp á Hérað, þar hefur hver blettur sinn sjarma og það sama má segja um Austfirðinga almennt. Ég kann yfirleitt vel við þá sem ég hef kynnst. Þú spyrð um hvort ekki sé erfitt að veita litlu bankaútibúi á erfiðum tímum. Því er til að svara, að ég get ekki beint dæmt um það. Hins vegar er það staðreynd, að fram á þennan tíma, hefur maður ekki getað skotið sér undan neinu og oft þarf maður að taka ákvarðanir um hlutina á stund- inni, hvort sem það er á nóttu eða degi,“ sagði Matthías að lokum. - Þ.Ó. ig að við getum ekið fiskinum beint í kæligeymslu með lýfturun- um, en alls tekur kælimóttakan 200 tonn. Þa erum við með eigið netaverkstæði og vélaverkstæði, þannig að við erum sjálfum okkur nógir. Það er alltaf verið að endurbæta fiskiðjuverið, eftir því sem ráð leyfa, og nú síðast er verið að setja stál utan á húsið og vonum við að það gjörbreyti öllu hugarfari í umhverfismálum kringum fisk- iðjuverið. Frystihús eiga að vera eins ssnyrtileg og sjúkrahús." — En ertu ekkert hræddur um að eitthvað dragi úr fiskveiðum á næstunni, samanber spár fiski- fræðinga? „Eftir að erlendir togarar hurfu hér af miðunum, hefur afli fremur aukist heldur en hitt og svo ' framarlega sem rétt er á spilunum ' haldið, sé ég ekki betur en að Austfirðingar geti staðið sig með prýði.“ — Segðu mér, Ólafur, voru síldarárin ekki ógleymanlegur tími? „Þau eru kannski ógleymanleg, en ekkert sérstaklega skemmtileg, í það minnsta ekki fyrir mína parta. Þessi ár voru erfið fyrir mig. Ég átti mikið af kunningjum í flotanum og ef einhvern kunningja minna vanhagaði um eitthvað, þá var hringt í mig og þessi ár svaf ég með símann á náttborðinu. En maður var hraustur þá og þoldi allt. Þá fannst mér ólíkt skemmti-' legra að fara á vetrarvertíð til Vestmannaeyja, en því miður er þar nú engin raunveruleg vertíð, árið er ein samfella," sagði Ólafur að lokum. — j, () Á dögunum var ég dreginn út í horn í spilasal Domus Medica á keppniskvöldi eins af bridgefélögunum í Reykjavík. Reyndur spilari, ágætur kunn- ingi með nokkra landstitla upp á vasann. hafði ýmislegt að segja um óheppni sína. Og vangaveltur um spilin höfðu bersýnilega ekki bætt skap hans. „Hún er erfið við að eiga þessi veika grandopnun, sem allir ungu mennirnir eru að leika sér með,“ sagði hann og dró úr vasa sínum miða, sem á var hripuð hönd vesturs: S. DG63 H. K4 T. ÁD652 L. 93 Allir voru utan hættu og gjafarinn, sem var suður, opnaði á einu grandi. „Ég var næstur með þessa skrap-hönd,“ skýrði þessi ágæti kunningi, „og vissi að andstæðingarnir notuðu Bridge eftir PÁL BERGSSON þrautreyndir spilarar, ófeimnir við háu sagnstigin. í fyrsta spilinu fór suður tvo niður á einu grandi og í því næsta skaut suður félaga sínum í slemmu, sem tapaðist eftir góða vörn austurs. Og hann hélt áfram: „Ég var orðinn nokkuð öruggur með mig og farinn að hugsa um að opna létt í þriðju hendinni í þessu spili. En þá opnaði suður á tveim laufum, sem sýndi lauflit og þokkalega opnun, og ég hætti öllum sagnhugleiðingum. Spilið virtist mundu liggja illa fyrir andstæðingana og ég bæti hér sögnunum við á blaðið." Saga úr Domus Suður 2 Lauf 2 Grönd 5 Spaðar 6 Grönd Norður 2 Tíglar 4 Grönd 6 Spaðar pass. 12—14 punkta grand utan hættu. Auðvitað sagði ég pass með alla þessa tapslagi. Norður hikaði örlítið áður en hann passaði einnig. Makker sagði tvö hjörtu og þá kom vandinn. Suður, sá er opnaði, passaði og mér fannst ég vera í óþægilegri stöðu með þessa hönd. Gott hefði verið að hafa sagt tvo tígla í upphafi en þá væri sjálfsagt að segja pass núna. Þrír tíglar hefðu varla misskilist. Makker hefði skilið þá sögn sem ein- hvers konar stuðningssögn við hjarta en það var dálítið lagt á spilin og punktarnir þrír í spaðanum hefðu gjarna mátt vera kóngur. Jæja, ég sagði pass minnugur þess, að yfirslagirnir eru oft dýrmætir í tvímenning." Það þurfti ekki mikinn spá- mann til að vita, að ákvörðunin var röng. En fullur hluttekning- ar spurði ég um framhaldið. „Það var ekki nóg með, að gameið stæði alltaf. Makker fékk ellefu slagi þegar vörnin var ekki upp á það besta. Þó átti hann aðeins 11 punkta. En suður átti tvo hæstu spaðána og spilaði út ásnum.“ Vestur S. DG63 H. K4 T. ÁD652 L. 93 Austur S. 84 H. ÁG10953 T. 107 L. ÁD9 inn. Vörnin hafði þá fengið aðeins einn slag á spaða en í staðinn tvo á lauf þar sem suður átti kónginn eins og gera mátti ráð fyrir eftir opnunina. Og ekki gaf hann mér tæki- færi til að benda á hve opnunar- sögnin, eina grandið veika, hafði átt mikinn þátt í góðri skor andstæðinganna og gert honum sjálfum erfitt fyrir. Næsta spil var komið á blaðið, en ég sný hér áttum til hagræðis fyrir lesend- ur. Austur gaf, allir utan hættu. Tveir tíglar voru biðsögn og með tveim gröndum sagði suður frá háspilum í tveim litum utan laufs. Fjögur grönd spurðu um ása og suður kvaðst eiga tvo ásamt laufkóngnum. „Ég spilaði út hjartaáttu og mér varð ekki um sel þegar ég sá spil norðurs koma á borðið. Sagnhafi tók útspilið með ásn- um í borðinu og síðan fékk ég að henda mörgum spilum í spaða- slagina. Eftir tvö eða þrjú afköst hugsaði ég næstum upp- hátt, að makker yrði að eiga laufdrottninguna en allt kom fyrir ekki. Með fimm spil á hendi var staðan þessi. „Eftir spaðaásinn skipti suður í tígul, drottningin fékk slaginn, hjartadrottningin kom frá norðri í kónginn og eftir að hafa tekið fjórum sinnum tromp spilaði austur spaða. Suður vildi slaginn en eftir það gat vörnin ekki fengið fleiri. „Þrír yfirslagir dugðu lítið,“ hélt blessaður maðurinn áfram. „Á hinum borðunum voru allir í fjórum hjörtum svo andstæð- ingarnir fengu topp fyrir að gefa ellefta slaginn." Því má skjóta hér inn, að vinurinn var þegar byrjaður að skrifa upp næsta spil. Hann lét mig um að sjá hvernig vörnin gat og átti að fá þriðja slaginn. Þegar austur hafði tekið tromp- in og spilaði spaðanum var betra fyrir suður að gefa slag- Norður S. KDG9875 H. ÁD93 Vestur Norður S. - H. D93 Austur T. 10 ^ L. 3 Vestur S. - H. - T. 10 L. 3 S. — H. KG Austur T. Á L. G763 Suður T. 8 L. 85 S. 4 H. 84 T. ÁDG63 T. G7642 S. 1032 H. KG76 T. 8752 L. 85 S. - H. - T. K L. ÁKD10 Suður S. Á6 H. 1052 T. K94 L. ÁKD109 Kunninginn lét móðan mása meðan ég virti fyrir mér spilið. Hann hafði setið í vestur í fyrstu umferð tvímennings- keppni og verið nokkuð heppinn í tveim fyrstu spilunum. Ánd- stæðingarnir voru sterkir og „Næsta slag fékk ég að eiga á tígulásinn. En um leið sýndi suður mér spilin sín og ég gafst upp. Sex grönd unnin og hroða- legt núll,“ sagði þessi ágæti kunningi um leið og hann kvaddi. Þar sem ég lét í ljós samúð mína með þessa óheppni kunn- ingjans, sem er auðvitað að öllu leyti ímynduð, hef ég trú á, að hann láti mér í té efnivið í fleiri greinar af þessu tagi í vetur. OMEGA 203 LJÓSRITUNARVÉL SMA EN KNA Lausnin fyrir skrifstofuna er einföld, hraóvirk, áreiöanleg og hvehsem er getur notfært sér hana. Pappírsforði á rúllu, stærð Ijósrits skorið eftir stæró frumrits og pappírsverð mjög hagstætt. Leitið nánari upplýsinga o Olympia Intemational KJARAINI HF skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8, sími 24140

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.