Morgunblaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978 Gáfu upplýsingar um upplag Vísis og Dag- blaðsins fyrir dómi OMEGA 203 LJÓSRITUNARVÉL Lausnin fyrir skrifstofuna er einföld, hraðvirk, áreiðanleg og hver sem er getur notfært sér hana. Pappírsforði á rúllu, stæró Ijósrits skorið eftir stærð frumrits og pappírsveró mjög hagstætt. Leitiö nánari upplýsinga YFIRHEYRSLUM var fram haldið í verðlagsdómi Reykjavíkur í gær ve>;na kæru verðlagsstjóra á hendur Dagblaðsinu h.f. og Reykjaprenti h.f. fyrir að hækka lausasölu- og áskriftarverð meira en verðlagsnefnd hafði samþykkt. Komu þá m.a. fyrir dóminn þeir Sveinn Reynir Eyjólfsson framkvæmdastjóri Dagblaðsins og Hörður Einarsson stjórnarformaður Reykjaprents (Vísir) og gáfu þeir upplýsingar um upplag blaðanna og seld eintök en þær upplýsingar kunnu að skipta máli ef blöðin verða sakfelld og reiknað verður út hve miklar tekjur þau hafa haft umfram það, sem verðlagsnefnd heimilaði. Dómarar f verðlagsdómi eru Sverrir Einarsson sakadómari og Egill Sigurgeirs- son hrl. Axel staðfesti að hann væri í stjórn Dagblaðsins h.f. Hins vegar kvaðst hann hafa verið erlendis þegar ákvörðunin um hækkun Dagblaðsins var tekin og hefði hann fyrst haft vitneskju um málið þegar hann las um það í blöðunum við heimkomuna fyrir 10 dögum. Hefði hann því hvergi komið hér nærri. Að svo búnu vék hann úr dóminum og var klukkan þá 13,41. Medalupplag Vísis 23 púsund eintök Sveinn R. Eyjólfsson framkvæmdastjóri Dagblaðsins mætir f dóminn. Skúli Pálsson hrl. til vinstri. Ljósm. Mbl. Krlstján. stjórnarformaður Reykjaprents hf, Seljugerði 9 Reykjavík, fæddur 23. marz 1938 í Reykjavík. Með honum mætti lögfræðingur Reykjaprents hf, Sveinn Snorrason hrl. Dómsformaður lagði tvær spurn- ingar fyrir Hörð, sem fallið höfðu niður er hann kom fyrir dóminn fyrra sinni, þ.e. hve mikil lausasala Vísis væri og hve margir áskrifend- ur væru að blaðinu. Hörður svaraði því til að erfitt væri að segja ákveðið til um lausasölu. Hins vegar kvað hann hann meðalupplag blaðsins vera 23 þúsund eintök á virkum dögum en suma daga færi upplagið um og yfir 30 þúsund eintök. Áskrifendur væru milli 10 og 11 þúsund á öllu landinu og hann kvað forráðamenn Vísis óánægða ef lausasalan færi niður fyrir 10 þúsund eintök á dag að meðaltali en endanlegar tölur fyrir október- mánuð myndu ekki liggja fyrir fyrr en seint í næsta mánuði. Hörður sagði eins og Sveinn Reynir Eyjólfsson að götusalan í Reykja- vík væri með minnsta móti um þessar mundir, líklega 1000—1500 eintök á dag. Hörður vék úr dóminum klukkan 13,52. Ingimundur Bergmann var sampykkur Klukkan 13,58 kom fyrir dóminn Ingimundur Bergmann Sigfússon forstjóri (Hekla hf), Grenimel 45, Reykjavík fæddur 13. janúar 1938 í Reykjavík. Ingimundur staðfesti að hann væri í stjórn Reykjaprents hf og hefði verið undanfarin 10 ár eða svo. Aðspurður um afskipti sín að verðákvörðuninni sagði Ingimund- ur, að Hörður Einarsson stjórnar- formaður félagsins hefði haft samband við sig og skýrt sér frá þeim hækkunum, sem orðið hefðu á rekstrarliðum blaðsins frá því síöasta blaðahækkun var leyfð. Einnig hefði honum verið sjálfum kunnugt um þær gengislækkanir, sem átt hefðu sér stað. Sagði Ingimundur að Hörður hefði lagt til að hækka áskrift og lausasölu- verð meira en verðlagsnefnd hafði ákveðið enda hefði ekki verið hjá því komizt vegna mikilla hækkana á rekstri blaðsins. Kvaðst Ingi- mundur hafa verið sammála Herði. Að svo búnu vék hann úr dómi og var klukkan þá 14,07. - SS. Klukkan 11,35 mætti fyrir dóm- inn Sveinn Reynir Eyjólfsson framkvæmdastjóri Dagblaðsins hf, Skaftahlíð 3, Reykjavík, fæddur 4. maí 1938 í Reykjavík. Með Sveini mætti lögfræðingur blaðsins, Skúli Pálsson hrl. Mætta var tilkynnt tilefni yfir- heyrslunnar. Hann staðfesti að hann væri framkvæmdastjóri Dag- blaðsins hf og ennfremur að verð blaðsins hefði verið hækkað svo sem tiltekið væri í kæru verðlags- stjóra til Verðlagsdóms. Sveinn kvaðst hafa verið á sjúkrahúsi þegar hækkunin var framkvæmd en hún hefði verið borin undir hann á sjúkrahúsinu og hann verið henni samþykkur. Sveinn sagði að áður en hann hefði farið á sjúkrahúsið hefði verið rætt um viðbrögð við viðhorfi verðlagsnefndar í málinu og sú stefna mörkuð, sem loka- ákvörðun var byggð á. Kvaðst Sveinn hafa haft frumkvæðið ásamt Jónasi Kristjánssyni rit- stjóra en Björn Þórhallsson stjórn- arformaður hefði tekið þátt í viðræðum um málið á seinni stigum. Sveinn sagði að málið hefði ekki verið rætt á stjórnarfundi enda ekki venjan að svona mál væru afgreidd á slíkum fundum. Meðalupplag Dagblaðsins 28 púsund eintök Sveinn var nú spurður um upplag Dagblaðsins, hver lausasalan væri dag hvern og hve margir áskrifend- ur væru að blaðinu. Sveinn sagði að meðal upplag blaðsins væru 28 þúsund eintök á virkum dögum og 33 þúsund eintök á mánudögum. Tölvuskráðir áskrifendur væru 15 þúsund, þ.e. áskrifendur á Reykja- víkursvæðinu og stærstu kaupstöð- um úti á landi en áskrifendur á minni stöðunum væru ekki á Klukkan 13,42 kom fyrir dóminn öðru sinni Hörður Einarsson hrl. Hörður Einarsson stjórnarfor maður Reykjaprents hf. Ingimundur Sigfússon á hraðferð inn í réttarsalinn. Svar verðlagsstjóra til Verðlagsdóms tölvuskrá. Sveinn sagði að lausa- sala á götum í Reykjavík væri með minnsta móti um þessar mundir vegna þess hve fá börn seldu blaðið vegna skólanna, en á móti kæmi að sala ykist á blaðsölustöðunum. Kvaðst Sveinn gizka á að götusalan væri nú um 1500 eintök og lausasal- an í allt um 10 þúsund eintök dag hvern að meðaltali. Sveinn óskaði að taka fram að lokum að það hefði ráðið afstöðu hans að ekki hefði verið hægt að gefa Dagblaðið út með því stórkost- lega tapi, sem ákvörðun verðlags- nefndar hefði valdið og einnig hefði hann talið verðákvörðun nefndar- innar ekki grundaða með eðlilegum hætti. Sveinn vék úr dóminum kl. 12.00. Axel var erlendis SVO SEM fram hefur komið í Morgunblaðinu lögðu lögfræðing- ar Reykjaprents hf og Dagblaðs- ins hf spurningar fyrir verðlag- stjóra um verðlagsmól dagblað- anna. Svar vcrðlagsstjóra til vcrðlagsdóms var lesið í dómin- um í gær og er það svohljóðandii Verðlagsdómur Reykjavík c/o sakadómari Sverrir Einars- son. Með tilvísan til bréfs yðar dagsett 13. október 1978, þar sem þér óskið eftir tilgreindum upplýs- ingum vegna kæru Verðlagsskrif- stofunnar á hendur stjórnum og framkvæmdastjórum Dagblaðsins hf og Reykjaprents hf sendi ég yður eftirfarandi svör. Á 318. fundi verðlagsnefndar lagði ég fyrir beiðni frá dagblöð- unum í Reykjavík um hækkun á gjaldskrám. Eg lagði þessa beiðni fyrir nefndina án þess að gera grein fyrir afkomu blaðanna eða gera tillögu um afgreiðslu beiðn- innar. Ástæðan fyrir því að ég gerði ekki tillögu um afgreiðslu erindisins var sú, að mér hefur virzt sem verðlagsnefnd hafi oft viljað ganga lengra til móts við beiðnir dagblaðanna og ekki gert niðurskurð á beiðnum þeirra á sama hátt og oft er gert við önnur fyrirtæki. Ég hef því að undan- förnu látið verðlagsnefnd sjálfa um afgreiðslu á erindum dagblað- anna. Ég tel mér skylt að geta þess, að fyrir umræddan fund verðlags- nefndar sem og fyrir aðra fundi hennar átti formaður nefndarinn- ar viðræður við mig um þau mál, sem á dagskrá voru, þar á meðal mál dagblaðanna. Ég gerði honum grein fyrir því, að eftir því sem ég bezt vissi hefði afkoma dagblað- anna á árinu 1977 verið æði misjöfn eins og oft áður en Morgunblaðið, Dagblaðið og Vísir hefðu haft nokkurn hagnað á árinu. Ennfremur ræddum við þær hækkanir, sem dagblöðin hafa fengið á þessu ári og þróun helztu kostnaðarliða almennt á sama tímabili. Klukkan 13,36 kom fyrir dómínn Axel Kristjánsson framkvæmda- stjóri (Rafha), Bæjarhvammi 2, Hafnarfirði fæddur 21. september 1908 í Reykjavík. Axel Kristjánsson. Olympia Intemational KJARAIM HF skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8, sími 24140 SMÁ EN KNÁ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.