Morgunblaðið - 25.10.1978, Page 30
30
----S-----------------------------------
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
t
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
X
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
t
♦
♦
♦
Þessi skemmtilega mynd var tekin í leik KR og UMFN í
körfuknattleik um síðustu helgi. Það er John Hudson,
sem átti stóran þátt í sigri KR, sem er kominn i
dauðafæri undir körfunni og engu líkara er en að hann
ætli að skalla boltann ofan í körfuna.
Maraþonknatt-
spyrna í Keflavík
ÍBK mun á laugardaginn standa fyrir maraþonknattspyrnukeppni
og hefst hún í leikfimisal barnaskólans klukkan 14.00. Keppni til
fjáröflunar fyrir UMFK og munu félagsmenn ganga í hús næstu daga
og safna áheitum. Keflvíkingar munu hafa fullan hug á að hnekkja
meti Vestmannaeyinga, sem léku innanhúsfótbolta í 24 klst. eigi alls
fyrir löngu. Ýmsir kunnir knattspyrnumenn munu leika þennan
langa knattspyrnuleik, svo sem Gísli Torfason og ólafur Júh'usson,
auk þeirra Friðriks Ragnarssonar, Þofðar Karlssonar, Ingibergs
Óskarssonar og Guðjóns Þórhailssonar.
Leiknismenn
sundurleiknir
LIÐ Leiknis í handbolta reið ekki feitum hesti frá
íþróttaskemmunni á Akuryeri um helgina, en þá lék liðið
bæði gegn KA og Þór í 2. deild íslandsmótins i handbolta.
Er skemmst frá að segja, að Leiknir tapaði báðum leikjum
sínum og virkaði liðið svo slakt, að fljótara yrði að telja upp
hvað ekki er að hjá liðinu heldur en hitt.
Á laugardaginn lék Leiknir gegn
KA og var þar um rótarburst að
ræða, KA vann með 17 marka
mun, 30—13, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 14—6. Það var
aðeins dálítið framan af fyrri
hálfleik, sem Leiknir hélt eitthvað
í við KA, en síðan ekki söguna
meir og var sigurinn svo auðveld-
ur, að lið KA verður ekki dæmt af
leiknum. Alfreð var markhæstur
leikmanna KA, með 9 mörk, en Jón
Hauksson skoraði 6 mörk.
Á sunnudeginum léku Leiknis-
menn síðan gegn Þór og þó að
síðarnefnda liðið hafi virkað
æfingalaust og slakt, hafði það
ávallt frumkvæðið í lélegum leik
og Þór sigraði örugglega með 17
mörkum gegn 15, staðan í hálfleik
var 9—7 fyrir Þór. Sigtryggur
Guðlaugsson var markhæstur hjá
Þór með 6 mörk.
Sigb. G.
Dæmi aldrei
framar hjá Víkingi
segir hinn landskunni dómari Hannes Þ. Sigurðsson
— ÞAÐ er rétt, ég hef tekið þá
ákvörðun að dæma ekki framar
hjá handknattleiksliði Vfkings,
sagði Hannes Þ. Sigurðsson, sá
landskunni dómari, aðspurður í
samtaji við Morgunblaðið í gær.
— Ég tók þessa ákvörðun eftir
að hafa dæmt úrslitaleik Víkings
og Vals í Reykjavikurmótinu í
síðustu viku. Eftir að þeim leik
lauk varð ég fyrir því að einn
leikmaður Víkings hljóp mig um
koll og var ég heppinn að hljóta
ekki meiðsli af. Var þetta mjög
vftaverð framkoma af hálfu þessa
leikmanns og hefur Ilandknatt
leiksráði Rcykjavíkur verið send
skýrsia um málið, sagði Hannes
og hann hélt áfram. Ég hafði í lok
þessa úrslitalciks dæmt vítakast
á lið Víkings, sem var fullkom-
lega réttur dómur að mínu mati.
Einum leikmanni Vals var illa
brugðið og gróflega hindraður í
góðu marktækifæri og ekki um
annað að ræða en vítakast. Ég
var í góðri aðstöðu til að sjá
hvernig brotið var á leikmannin-
um og var ekki í vafa um dóminn.
Það er augljóst að æ minni
virðing er borin fyrir leikstjórnar-
HEIMSMEISTARARNIR í
handbolta, Vstur-Þjóðverjar,
unnu um helgina 4 þjóða mót,
þar sem auk þeirra tóku þátt
Tékkar, Danir og Júgóslavar.
Þjóðverjarnir unnu Tékka
24-16 (10-7), Dani 18-16
(7—9) og Júgóslava 17—15
(8—8). Júgóslavar urðu f 2.
sæti, unnu Dani 16—13 (11—7)
og Tékka 19—16 (11—9). í eina
ieíknum, sem ógetið er um,
unnu Tékkar Dani með 16
mörkum gegn 13, staðan í
hálfleik var 11-7 fyrir Tékka.
Með þessari keppni settu
heimsmeistararnir nýtt met,
hafa unnið 28 leiki í röð síðan
líðíð varð meistari í Danmörku
fyrr á þessu ári.
.....» ........
Dómaranám-
skeið í sundi
Ákveðið hefur verið að efna
til DÓMARANÁMSKEIÐS í
sundíþrótt ef nægileg þátttaka
fæst.
Námskeiðið verður haldið í
Reykjavík dagana 13., 14. og 16.
nóvember 1978 og hefst alla
dagana kl. 20.00 (kvöldnám-
skeið). Allar nánari upplýsing-
ar veitir Torfi Tómasson,
Hlíðarbraut 13, Kópavogi, sími
42313 sem jafnframt tekur á
móti þátttökuskráningu en hún
verður að hafa borist til hans
eigi síðar en 12. nóv. ’78.
Stjórn SSÍ.
• Hannes Þ. Sigurðsson.
UM HELGINA var haldið ung-
lingamót í badminton f húsi
félagsins. Mót þetta nefndist
„Vetrardagsmót unglinga 1978“,
í tilefni vetrarkomu, og tóku þátt
f því um 60 unglingar frá TBR,
KR, ÍA og Val.
Urslit í einstökum greinum urðu
sem hér segir:
Hnokkar — tátur — tvenndar-
leikur.
Haraldur Sigurðsson og Þórdis
Erlingsdóttir TBR sigruðu Árna
Þór Hallgrímsson og Katy Jóns-
dóttur í A 15/7 og 15/6.
Hnokkar — tvfliðaleikur.
Árni Þór Hallgrímsson og Ingólfur
Helgason ÍA sigruðu Harald
Sigurðsson og Þórð Sveinsson TBR
18/6 og 18/14.
Tátur — tvfliðaleikur.
Katy Jónsdóttir og íris Smára-
dóttir ÍA sigruðu Þórdísi Klöru
Bridde.og Rannveigu Björnsdóttur
TBR 9/15,15/6 og 15/1.
Sveinar — mevjar —
tvenndarleikur.
Þorsteinn Páll Hængsson og Drífa
þætti kappleikja, og nú er svo
komið að erfitt er að fá menn til að
dæma íþróttakappleiki.
Ástæðan fyrir því að ég hætti að
dæma kappleiki hjá Víkingi, er sú,
að það veitir mér enga ánægju
lengur, sagði Hannes að lokum.
— Þetta var óviljaverk, og
ekkert illt meint með þessu, sagði
Víkingurinn Viggó Sigurðsson er
blaðið innti hann eftir atviki þessu
í gær. — Ég ætlaði mér að ná til
knattarins og spyrna honum í loft
upp til að láta í ljós óánægju mína
með vítakastdóminn í lok leiksins
sem ég taldi vera hreina gjöf til
Valsmanna. En er ég hugðist ná til
boltans rakst ég illa utan í Hannes
og hann datt um koll, sagði Viggó.
Þr.
Daníelsdóttir TBR sigruðu Pétur
Hjálmtýsson og Ingu Kjartans-
dóttur TBR 15/10 og 18/16.
Sveinar — tvíliðaleikur.
Ari Edwald og Tryggvi Ólafsson
TBR sigruðu Þorstein Pál Hængs-
son og Gunnar Björnsson TBR
15/11 og 15/10.
Meyjar — tvfliðaleikur.
Inga Kjartansdóttir og Þórdis
Erlingsdóttir TBR sigruðu
Elísabetu Þórðardóttur og Elínu
Helenu Bjarnadóttur TBR 15/7 og
18/14.
Telpur — tvfliðaleikur.
Kristín Magnúsdóttir og Bryndís
Hilmarsdóttir sigruðu Sif Frið-
leifsdóttur og Örnu Steinsen KR
15/4 og 18/15.
Drengir — tvfliðaleikur.
Þorgeir Jóhannsson TBR og Gunn-
ar Jónatansson Val sigruðu Skarp-
héðin Garðarsson og Gunnar
Tómasson TBR 18/16 og 15/6.
Piltar — stúlkur —
tvenndarleikur.
Guðmundur Adolfsson og Kristín
Magnúsdóttir TBR sigruðu Reyni
Guðmundsson og Sif Friðleifsdótt-
ur KR 15/4 og 18/15.
Skemmtileg keppni
á unglingamóti TBR