Morgunblaðið - 29.10.1978, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978
7
Nú víkjum viö aftur aö
sögunni um brúökaup
konungssonarins. Um
brúökaupssalinn gengur
konungurinn glaöur milli
gesta sinna, unz hann
kemur að einum, sem er
ekki klæddur brúökaups-
klæöum. „Vinur, hvernig
ert þú kominn hingaö inn
og ekki klæddur brúö-
kaupsklæðum,“ segir
hann. Hann lætur meö
þungum oröum vísa hon-
um úr salnum og fellir yfir
honum haröan dóm.
presta Gyðinga segir
hann, að jafnvel skækjur
muni ganga á undan þeim
inn í guösríkiö. Svo erfitt
er aö dæma í eigin sök og
meta rétt eigiö gull eöa
galla.
Sögulokin segja frá
manni, sem vísaö var úr
veizlusalnum út í „myrkriö
fyrir utan“. Miskunnarlaus
dómur? Vertu ekki viss
um þaö. Lögmálið mikla
er, að viö uþþskerum eins
og sáö var til, annaö ekki.
Stundin er hverful, lániö
inu fyrir utan hallardyrnar.
Hún sýnir okkur veglyndi
konungs, sem býöur
öllum til fagnaöarins í
brúökaupssalnum. Hún
sýnir okkur tregöu þeirra,
sem fyrstir eru boönir en
meta önnur gæöi meir.
Hún sýnir okkur gleði
hinna auömjúku, sem
óvænt eru boðnir til veizl-
unnar. Og loks sýnir hún
okkur manninn, sem var
ekki þannig búinn aö hann
væri hæfur til veizlunnar:
Brúðkaupsklœðin
En hvernig átti maður-
inn aö vera veizlubúinn?
Þjónar konungs fundu
hann úti á þjóðveginum og
beint þaðan fór hann til
veizlunnar. Munu allir ves-
alingarnir, sem þarna
voru, hafa veriö í hátíðar-
búningi? Þessi orð Jesú
voru ekki skráö fyrr en
áratugum eftir aö hann
mælti þau og hér hlýtur
eitthvaö aö vera málum
blandaö, e.t.v. tveim sög-
um steypt saman. Þá gátu
ræöur enginn lengur.
En hvers vegna þarf aö
varpa skugga á svo bjarta,
fagra mynd? Hví lýkur
sögunni ekki í veizlusaln-
um, þar sem olnboga-
börnin dvelja viö stundar-
gleöi og glaum og veg-
lyndur konungur gengur
glaöur um sal?
Athugum söguna nánar.
Inn í guðsríkið, veizlusal-
inn, ganga einnig hinir
óvæntu. Þessum orðum er
upphaflega beint til Gyö-
inga.
Þeir töldu sig Drottins
útvalda lýö og sjálfsagöa
hirö í höll himnakóngsins.
En þessi orö eru líka sögð
viö mig og þig: Inn í
guðsríkið ganga ekki einir
þeir, sem teljast og telja
sig trúuðu, góöu guðs-
börnin. Þangað komu
menn „frá austri og
vestri", eins og Jesús
segir í ööru guðsgjalli,
einnig þeir, sem enga von
áttu slíkrar vegsemdar,
menn sem aldrei hafði til
hugar komiö, að þeim yrði
boðið til slíks fagnaöar.
Sælir þeir, sem aö end-
uðu æviskeiöi hljóta
óvænt slíka umbun. Svo
fast kveöur Jesús að oröi í
ööru guösþjalli, aö við
sjálfumglaöa öldunga:
Þingmenn og æöstu
valt og lífiö veikt. Meö
daglegri athöfn, oröi og
hugsun erum viö aö vefa
sálinni þau klæöi, sem
ýmist gera hana verðuga
eöa óverðuga þess aö
ganga inn í gleöisalinn
þegar dyr jaröneska húss-
ins falla að stöfum í hinsta
sinn.
Hver eru braúðkaups-
klæðin? Þessi orö, eins og
mörg önnur, sem eftir
Kristi eru í guðspjöllunum
höfö, gera mér ókleift aö
samrýma boöskap þeirra
hinni lútersku náöarkenn-
ingu kirkju minnar, aö
maöurinn sé ófær þess
með öllu aö verðskulda
himnaríkiö, en að eigin
vild og af óveröskuldaöri
náö gefi Guö sumum
mönnum himnaríkisvist en
öörum ekki. Ummæli
Krists eru svo eindregin
um þaö, aö meö breytni
sinni vefi maðurinn sér
efniö í brúðkaupsklæðin,
eöa ekki.
Guömundur Böðvars-
son kaupm., sem mörgum
Reykvíkingum var að
góöu kunnur, var mikill
vinur gáfumannsins Guö-
mundar Björnssonar land-
læknis. Hann sagöi mér,
að þegar hann kvaddi vin
sinn á dánarbeði hans hafi
hann kvatt sig meö þess-
um orðum: „Þaö er enginn
vandi að deyja, en þaö er
mikill vandi að lifa“.
Læknirinn vissi aö dauð-
inn var á næstu grösum
og þá var honum þetta
ríkast í huga: Þaö er mikill
vandi aö lifa.
Er þaö ekki einmitt
þetta, sem Jesús vill aö
lokaorðin í sögunni af
brúökaupi konungssonar-
ins brýni fyrir okkur?
Sagan gerist bæöi í Ijós-
uöum veizlusal og í myrkr-
„Þaö er mikill vandi aö
lifa“.
Auömjúkir menn, já,
auðmýktin er fögur dyggð,
svo kenndi lávarðurinn,
sem í jötu var lagður. En
hvaö er auðmýkt?
Viö sáum og heyröum í
sjónvarpi fyrir nokkrum
dSgum listaverkiö um þá
gömlu og góöu konu í
Hamravík. Vera má aö
einhverjum hafi þótt hana
skorta nokkuö á auðmýkt-
ina eins og hún „hefur
uppi seglin sín“ þegar hún
talar við himnafööurinn og
kveöst ekki vita til þess,
aö hann eigi neitt hjá sér.
Meö þrotlausri trú-
mennsku hafði hún lifaö
langan ævidag viö erfiöi
og haröa glímu viö óblíöa
náttúru í hrjóstugri sveit,
sem hún elskaöi og var
bundin eins og stráin
moldinni. Hún haföi selt af
hendi öll börn sín önnur en
einn son, sem hún vonaði
að yröi maður, mann-
dómsmaður, sem bundinn
yröi æru og trú moldinni,
bjarginu, bárunni, sem
bundiö höföu örlög feðr-
um hans mann fram af
manni, Haföi ekki þessi
kona ofið sér efni í brúö-
kaupsklæðin? Mun
himnaföðurnum hafa verið
leitt aö hlusta á hana, þótt
hún heföi sitt hvaö viö
hann aö segja, sem var
ekki mælt af skaplausri
undirgefni? Mun hann
ekki hafa litiö híru fööur-
1 auga þetta barn sitt á
brimi sorfinni strönd norö-
ur viö Dumbshaf?
Viö erum börn, gleymin
og gálaus um margt. En
ótal vegarvillum sneyöir sá
hjá, sem samfylgd meö
konungssyninum á.
^^^■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■^
Kaupmenn
innkaupastjórar
Jólakortin vinsælu eru komin á markaöinn og
tilbúin til afgreiöslu.
Mjög fjölbreytt úrval.
Sendiö pantanir sem fyrst.
Litmyndir — Hafnarfiröi
Sími 54500
Bragðteffundir: —
Súkkulaði, karamellu,
jarðarberia og sítrónu.
vanillu.
Eyðublaðatækni
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiði í
eyðublaðatækni dagana 6. 11. — 10. 11. n.k.
Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9 til 12 árdegis og er
samtals 15 klst.
Þessir þættir veröa teknir fyrir:
Efni Letur
Setning Pappírsstaðlar.
Teikning og gerð eyðublaða.
Á námskeiðinu verður kynnt hvernig ná megi meiri árangri með
minni tilkostnaði með samræmingu og réttri notkun eyðublaða.
Námskeiðið er því tilvalið fyrir þá sem eru að taka í notkun nýja gerð
eyðublaða eða hafa í huga að endurskoða þau. Eins fyrir þá sem
vinna að gerð eyðublaða hjá prentsmiðjum.
Leiðbeinandi verður Sverrir Júlíusson rekstrarhagfræðingur.
Skráning þátttakenda í síma 82930.
Hringið og biðjið um að fá sendan ókeypis upplýsingabækling um
námskeið Stjórnunarfélags íslands.
Stjórnunarfélag Islands
A Stjórnunarfélag íslands .Jk
Endurtekið vegna mikillar eftirspurnar.
Dagana 6., 7., 8. og 9. nóv.
n.k. gengst Stjórnunarfélag
íslands fyrir námskeiði í
Bókfærslu I, sem samtals
stendur yfir í 22 klst. Leið-
beinandi er Kristján Aðal-
steinsson viðskiptafraéðingur.
Námskeiðið er sniðið fyrir
einstaklinga sem:
— hafa litla eða enga bók-
haldsmenntun
— vilja geta annast bókhald
fyrir smærri fyrirtæki.
— hyggja á eða hafa með
höndum eigin atvinnu-
rekstur og vilja geta
annast bókhaldið sjálfir.
Námskeiðið er einnig mjög
hagnýtt fyrir einstaklinga sem
vilja aðstoða maka sína við
rekstur, svo og konur sem eru
að halda út á vinnumarkaðinn
eftir að hafa sinnt heimilis-
störfum um lengri eða
skemmri tíma.
Allar nánari upplýsingar og skráning pátttakenda fer fram á
skrifstofu Stjórnunarfélagsins að Skipholti 37, sími 82930.
Hringið og biðjið um að fá sendan ókeypis upplýsingabækling um
námskeið Stjórnunarfélags íslands.