Morgunblaðið - 29.10.1978, Page 30
AUGLYSINGASTOFA KRISHNAB 5.21
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978
Slys í heimahúsum
HINN 13—15. september 1978 var
haldin ráðstefana í Arósum í
Danmörku til þess að athuga á
hvaða hátt væri hægt að koma í
veg fyrir slys í heimahúsum og í
tómstundum. Árið 1977 var fram-
kvæmd rannsókn í öllum fimm
Norðurlöndunum og tók hún frá
3—9 mánuðum. Unnið var að
rannsókn þessari í ýmsum
smúkrahúsum Norðurlandanna.
Af þeim 31.296 slysum sem voru
skrásett voru 11.496 í Danmörku,
13.076 í Finnlandi, 1.394 í Noregi,
4.716 í Svíþjóð og í úrtaki frá
Islandi voru 614 slys.
Alls tóku þátt í rannsókninni 18
sjúkrahús og 3 læknamiðstöðvar. í
ráðstefnunni í Árósum tóku þátt
læknar, sérfræðingar í neytenda-
málum og embættismenn frá
öllum Norðurlöndum. (Fyrir hönd
íslands sátu ráðstefnuna Eiríka A.
Friðriksdóttir, hagfræðingur og
Ingólfur Hjaltalín, læknir).
Athugaðir voru aðalslysvaldar og
fyigja hér á eftir nokkrar niður-
stöður.
I öllum löndunum voru flest
slysin í tröppum og stigum.
Glerhurðir sýndu sig að vera
hættulegar. Sérfræðingar ákváðu
að áríðandi væri að gera nú þegar
nauðsynlegar ráðstafanir til að
fyrirbyggja slys.
I Danmörku urðu margir neyt-
endur fyrir slysum við að skera
frosið kjöt eða skiija að frosna
hamborgara. Var bent á þetta í
fjölmiðlum og forráðamenn í
kjötiðnaði beðnir að pakka frosnar
vörur á viðunandi hátt. Þar kom
og í ljós að menn skáru sig á
glerhurðum, sem brotnuðu og mun
Forbrugerraadet krefjast þess að
byggingarsamþykkt Danmerkur
V
Geriðybfcur dagamun á Askj:
3-iáb.-*jggS. g|§-
■ I i sa
m lA m i
IIU
, 9 n
' m Itó m
verði breytt og hurðir gerðar
tryggari.
Til sjúkrahúsa í Árósum komu
60 manns, sem dottið höfðu af
hestbaki og slasast þrátt fyrir að
þeir voru með reiðhjálm.
Konsumentverket (ne.vtendastofn-
un) í Svíþjóð vinnur að því að fá
framleidda og selda betri hjálma.
Rannsóknin á Islandi sýndi
fjölda eitrunarslysa barna, sem
höfðu drukkið eða borðað hrein-
lætisefni og lyf. I samtölum við
fjölskyldur barnanna kom fram að
engir læsanlegir skápar eru til í
nýtízkulegum íbúðum. (Teiknistof-
an Ármúla 6 h.f. hefur hannað
læsanlega skúffu í svefnherbergis-
skáp og læsanlegan skáp í eldhús-
um). Verða þessir geymslustaðir í
Verkamannabústöðum í Reykjavík
sem eru nú í byggingu.
Sérfræðingarnir á ráðstefnunni
í Árósum komust að þeirri niður-
stöðu, að nauðsynlegt væri að
sjúkrahúsin aðstoðuðu við fyrir-
byggjandi vinnu.
Sjúkrahúsin geta safnað upplýs-
ingum um slys og slysavalda.
Samvinna allra aðila — sjúkra-
húsa, neytendastofnana o.fl. er
nauðsynleg.
Nils Ringsted, skrifstofustjóri í
Konsumentverket, sem stjórnaði
samnorrænu rannsókninni, skýrði
frá því að upplýsingar þyrftu að
vera nothæfar hvar sem er jafnt
innanlands sem utan og notast
sem verkfæri til að fækka slvsun-
um.
f.h.
Norræna samvinnuhópsins um
neytendaöryggi.
Rie Brögger.
(Texti styttur og setningum í
svigum bætt við).
Upplýsingar gefur á íslandi Eiríka
A. Friðriksdóttir, Ljósheimum 22,
íb. 4D.
(Fréttatilkynning).
Við höfum sérhæft okkur í meðferð lamba og grísakjöts.
Við bjóðum kjötið marinerað á mismunandi máta. Oriental meðferð
okkar á kjöti gefur sérlega Ijúffengt bragð og
meyrar og safaríkar steikur.
Rússar
aðvara
fatlaða
Moskvu, 25. októbcr.
Reuter.
STOFNENDUR nefndar til
verndunar réttindum fatlaðra í
Sovétríkjunum. Yury Kiselyov
og Valery Fefelov, sögðu í dag
að þeir heðu fengið stuðning
fólks úr ölium Sovétríkjunum
við hugmyndir um stofnun
landssamtaka fatlaðra.
En þeir sögðu að lögreglan og
tryggingamáiaráðuneytið hefðu
varað þá við afleiðingunum ef
þeir hættu ckki baráttu sinni.
Fefelov sagði að aðstaða fatl-
aðra í Sovétríkjunum færi versn-
andi vegna þess að framfærslu-
kostnaður færi hækkandi.
Bridge-V íkingar
fara af stað
hraöafgreiðsla Asks
og heimsendingarþjónusta.
Síminn hjá heimsendingarþjónustu
Asks er 81344 og 38550.
ÆSKUR
IIIN ÁRLEGU hridgekvöld á
vegum Knattspyrnufélagsins
Víkings eru að hefjast og verða
þau eins og áður á mánudags-
kvöldum. í ár hefst vetrarstarfið
á mánudaginn klukkan 19.30 í
Víkingsheimilinu við Hæðargarð
með tvimenningskeppni. Allir
eru velkomnir mcðan húsrúm
leyfir.
r
MYNDAMÓTHF.
PRENTMYNDAGERÐ
ADALSTRETI • SlMAR: 17152-17355