Morgunblaðið - 01.11.1978, Side 1
32 SÍÐUR
249. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fjárlagafrumvarpið lagt fram:
Tekjuskattar hækka
- Milljarða fjárvöntun
FJÁRLAGAFRUMVÁRPIÐ fyrir árið 1979 var la>?t fram á Alþingi í gær. IleildarútKjöld ríkissjóðs skv.
frumvarpinu nema rúmlega 198 milljörðum króna en heildartekjur um 206 milljörðum. Á
blaðamannafundi. sem Tómas Árnason fjármálaráðherra efndi til í gær lýsti hann því yfir. að þingflokkur
Alþýðubandala>ísins hefði samþykkt að standa að því að legga frumvarpið fram. en Geir Gunnarsson sagði
í viðtali við Morgunblaðið að þingflokkurinn hefði ekki samþykkt eitt eða neitt. Fjármálaráðherra vitnaði
einnÍK til þess að formaður Alþýðuflokksins hefði lýst frumvarpinu sem stjórnarfrumvarpi en formaður
þinsflokks Alþýðuflokksins sagði í viðtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. að Alþýðuflokkur væri andvígur
tveimur mejfinatriðum frumvarpsins. (Sjá nánar um þennan ágreininsí stjórnarflokkanna á baksíðu og
miðsíðu).
Helztu atriði, sem fram koma í
fjárlagafrumvarpinu eru þessi:
• Gert er ráð fyrir því að tekjur
ríkissjóðs á næsta ári af inn-
heimtum tekjuskatti verði rúm-
lega 70'7, hærri en á yfirstand-
andi ári, aukizt úr 20.2 milljörð-
um í 35.2 milljarða. Hlutdeild
beinna skatta í heildartekjum
ríkissjóðs eykst úr 18.2% á
þessu ári í 22.1% á næsta ári
skv. þessu frumvarpi.
• 3.5 milljarða gat er í fjárlaga-
frumvarpinu vegna þess, að
ríkisstjórnin hefur ekki ákveðið,
hvort hún framlengir tekju-
skattsaukann og eignaskatts-
aukann eða hvort hún aflar
þeirra tekna með öðrum hætti
en því er lýst yfir að ný
tekjuöflun verði „ígildi fram-
lengingar skattaákvæða bráða-
birgðalaganna".
t 2.8 milljarða gat er í frumvarp-
inu vegna þess, að áætluð
framlög til niðurgreiðslna nema
um 18 milljörðum en þurfa að
nema rúmlega 20 milljörðum til
þess að standa undir fyrirheit-
um ríkisstjórnar um auknar
niðurgreiðslur 1. desember n.k.
I Skattbyrði einstaklinga er 3
milljörðum meiri en ella þar
sem skattvísitalan er ákveðin
skv. frumvarpinu 143 miðað við
100 á yfirstandandi ári og
miðuð við framfærsluvísitölu en
ætti að vera 151 ef hún fylgdi
launahækkun.
Beint framlag úr ríkissjóði til
vegamála er fellt niður. Það
nemur í ár rúmlega 1300
milljónum króna og heföi því
átt að nema um 1800 milljónum
á næsta ári miðað við breyting-
ar á verðgildi krónunnar.
Framlög til verklegra fram-
kvæmda minnka verulega.
Sjá nánar um fjárlaga-
frumvarpið á bls. 18. Við-
töl á bls. 17.
VantraiiststiUaga á
stióm Irans felld
Teheran, 31. október — AP Reuter
STJÓRN JAAFAR Sharif Em-
ami. forsætisráðherra írans. hélt
velli í þinginu í dag. þegar greitt
Nær dauða
en lífi í far-
angri þotu
London, 31. októbcr, Kcutcr.
UNGUR Bandartkjamaður
fannst nærri dauða en lífi í
farangursgeymslu Jumbóþotu
breska flugfélagsins British
Airways, er hún lenti í London í
dag cftir að hafa flogið alla leið
frá Detroit í Bandaríkjunum.
Bandaríkjamaðurinn, sem heit-
ir Thomas Brady, fannst innan
um farangur með regnfrakka
einan til skjóls, en kuldinn í
slíkum farangursgeymslum getur
verið gífurlegur.
Er hleðslumenn flugfélagsins
fundu hann í dag, þjáðist hann
mjög af svokallaðri „háfjalla-
veiki“, en það er mjög alvarlegur
sjúkdómur sem fjallgöngumenn
fá stundum þegar þeir klífa mjög
há fjöll. Einnig hafði hinn lági
þrýstingur haft mjög slæm áhrif
á Brady, en í farangursgeymslu
slíkra véla er enginn búnaður til
að halda þrýstingi óbreyttum.
Brady mun að sögn lækna ná
sér að fullu eftir ævintýrið og
verður fluttur til Detroit á
morgun með áætlunarflugvél
British Airways.
var atkva'ði um vantraust á hana,
í kjölfar hinna miklu hræringa í
landinu að undanförnu. Munur-
inn í atkvæðagreiðslunni var þó
mun minni en í þeim tveimur
atkvæðagreiðslum sem fram hafa
farið að undanförnu.
Það hefur valdið stjórn landsins
gífurlegum áhyggjum að um 37
þúsund verkamenn hjá bensín-
framleiðslufyrirtæki stjórnarinn-
ar eru í verkfalli og tap ríkisins
þess vegna er í kringum 20
milljarðar íslenzkra króna á dag,
en fluttar eru út um 5 milljónir
tunna af bensíni daglega.
Skálmöldin hélt og áfram í
þorpum og bæjum víöa um landið
og eitt dagblaða landsins segir
m.a. frá því að þingmaður einn
hafi farið fyrir 2000 manna liði
sem réðst gegn andstæðingum
keisarans í nágrenni Teheran og
hafi a.m.k. 65 manns látið lífið í
þeim átökum. Svipaða sögu mun
Dollar enn
á niðurleið
London. Tokyo, 31. októbcr. AP. Rcutcr.
STAÐA dollars versnaði cnn á
gjaldeyrismörkuðum víða um heim
í dag. Gagnvart japanska jcninu
komst hann í enn citt lágmarkið frá
stríðslokum. eða 175.70 jen hver
dollar. en áður hafði hann lægst
komist í 176.50 jen.
Við opnun gjaldeyrismarkaðar í
Zurich í morgun komst dollar þar í
metlægð, eða 1.4650 frankar fyrir
hvern dollar.
vera að segja úr öðrum héruðum
landsins, þar sem allt logar í
bardögum.
Á fundi með fréttamönnum í
Washington í dag lýsti blaðafull-
trúi Carters Bandaríkjaforseta því
yfir að Carter og Bandaríkjastjórn
styddu aðgerðir keisarans heils-
hugar, og vonuðust til þess að
honum og fylgismönnum hans
tækist að koma á lögum og reglu í
landinu innan tíðar.
Jóhannes Páll páfi 2. reisir landa sinn, Stefano Wyszynski kardínála.
upp þegar sá síðarnefndi ætlaði að krjúpa fyrir hinum nýja páfa er
þeir hittust fyrir skömmu.
ísrael — Egyptaland:
Friðarsamningar í
Ósló 9. desember?
Jerúsalem, Washington. ReuterAP.
MENACHEM Begin. forsætisráðherra ísraels. sagði í dag að hann vonaðist til þess að geta undirritað
friðarsamninga við Egypta í Ósló 9. desember n.k. þegar hann hittir Anwar Sadat. forseta Egyptalands. en
þeir félagar fá friðarverölaun Nóbels afhent 10. desember í Ósló.
Til þess að hraða enn samning-
um á fundum viðræðunefnda
Israelsmanna og Egypta í Was-
hington, hyggst Begin koma við
þar á morgun á leið sinni til
Kanada. Haft er eftir áreiðanleg-
um heimildum að Begin muni
hitta Carter forseta að máli í
viðkomu sinni i Washington og
þeir muni bera saman bækur
sínar, vegna þess missættis sem
risið hefur nú á síðustu dögum
með Israelsmönnum og Banda-
ríkjamönnum.
Begin sagði að þótt nokkur ljón
væru enn í veginum, sæi hann
ekkert því til fyrirstöðu að hann
og Sadat gætu undirritað nýjan
friðarsamning rikja þeirra í Ósló.
í síðustu fréttum frá Washing-
ton segir hins vegar að blaðafull-
trúi Carters hafi lýst því yfir að
Carter hefði alls ekki í hyggju að
hitta Begin þegar hann kemur til
Bandaríkjanna á morgun, honum
hefði einfaldlega ekki verið boðið
til Hvíta hússins.
Ekki bárust neinar áreiðanlegar
fréttir frá fundi 21 arabaríkis í
Baghdad í Irak í dag, en þar þinga
utanríkisráðherrar allra ríkja
Arababandalagsins utan Egypta
lands um aðgerðir í baráttunni
gegn Israel. Fundurinn er fyrir
luktum dvrum.