Morgunblaðið - 05.11.1978, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1978
27
k Frunnir tili/itf hnfnp vfirih nm inoflr pm pincrnncm n litcptnincni pn
Fremur hljótt hefur verið um
Megas að undanförnu, en í dag.
sunnudag, verður gerð nukkur
bragarbót þar á. bá heldur hetjan
tvenna hljómleika í Menntaskólan-
við Hamrahltð og leikur ein-
valalið popptónlistarmanna undir
hjá honum. Á hljómleikunum verð-
ur frumflutt vcrk eftir Megas. sem
nefnist „Drög að sjálfsmorði“ og
verða báðir hljómleikarnir hljóðrit-
ingar eru eingöngu á útsetningu, en
ekki á lögunum sjálfum."
Ástæðan fyrir því að ákveðið var
að halda hljómleikana í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð, er að sögn Páls
Baldvinssonar tónleikahaldara sú,
að upphaflega var falast eftir
Þjóðleikhúsinu. Svar barzt frá því í
september og var beiðninni synjað.
Þá var hafin leit að öðru húsnæði og
varð Menntaskólinn við Hamrahlíð
Drög Megasar að
sjálfsmorði ÍM.H.
aðir, með það í huga að síðar verði
hægt að gcfa út hljómleikabreið-
skt'fu.
Undanfarnar vikur hafa Megas og
aðstoðarmenn hans æft verkið í
Hljoðrita í Hafnarfirði og þar náði
Slagbrandur tali af Megasi. Að sögn
hans er verk þetta búið að vera
alllengi í smíðum, en fyrstu lög þess
samdi hann í kringum 1971. „Það var
síðan ekki fyrr en 1973 eða ‘74 að ég
ákvað að safna þessum lögum saman
í eitt verk,“ segir Megas. „Verkið er
17 lög og sum þeirra hef ég leikið á
tónleikum, en megnið af þeim hefur
ekki áður heyrzt opinberlega. Verkið
er ekki ópera á borð við Tommy og í
raun á nafnið ópera alls ekki við um
það. Það væri miklu nær að kalla
þetta bara „prógram". Það er visst
tema í verkinu, en enginn raunveru-
legur efnisþráður. Þetta „prógram"
hefur síðan verið að stækka eftir því
sem árin hafa liðið og ég hefði alveg
_ getað leikið sum þessara laga inn á
plötu, þau hefðu alveg passað inn í
annað, sem ég hef samið, en ég ákvað
að bíða með það. Það var síðan í vor,
sem sú hugmynd skaut upp kollinum
að hljóðrita verkið á hljómleikum, en
æfingar hófust þó ekki fyrr en í
september, en þá fyrst var ljóst
hverjir myndu leika með mér.“
Megas mun sjálfur sjá um allan söng
á hljómleikunum, en aðstoðarmenn
hans eru: Guðmundur Ingólfsson og
Lárus Grímsson, hljómborð, Björg-
vin Gíslason, gítar, Pálmi Gunnars-
son, bassi og Sigurður Karlsson,
trommur.
„Þegar ég samdi lögin í þessu
„prógrami“ þá samdi ég þau á gítar,
en síðar voru þau útsett fyrir
rokkhljómsveit. Auðvitað hefur
verkið tekið einhverjum breytingum
síðan æfingar hófust, en þær breyt-
fyrir valinu, en flestir aðrir staðir,
sem til greina komu, eru mjög
umsetnir. Salurinn í menntaskólan-
um hentar að mörgu leyti vel til
hljómleikahalds, en hann rúmar 600
manns. Hljómleikarnir í dag hefjast
klukkan 16.00, þeir fyrri og klukkan
21.30 þeir síðari. Miðaverð er 3500
krónur.
Hvað hljóðritun viðkemur, þá var
keypt hingað til lands sérstakt
hljóðblöndunartæki, en upptökutæki
öll eru úr Hljóðrita.
Hljóðnemar voru leigðir frá fyrir-
tæki í Bandaríkjunum, en um
hljómflutning og annað í þeim dúr
sér verzlunin Tónkvísl. Sem fyrr
segir verða báðir hljómleikarnir
hljóðritaðir, en síðar verður efnið á
væntanlega breiðskífu valið og
hljóðblandað. Má geta þess að Iðunn
hefur keypt útgáfuréttinn á þeirri
breiðskífu-.
in n %
ÞESSA dagana er verið að hefja
sýningar á fimmtu og síðustu
kvikmynd Bítlanna, „Let It Be“.
Þessi kvikmynd var það næst
síðasta sem þeir tóku upp í
sameiningu, áðúr en þeir hættu.
Sagt er að Bítlarnir hafi ákveðið
að gera .heimildamynd um sjálfa
sig þar sem það lá í loftinu að þeir
væru að hætta. Hugmyndin var
góð og Michael Lindsey-Hogg
kvikmyndastjórnandi var fenginn
til þess að stjórna kvikmyndatök-
unni. í kjallara Apple var útbúið
Myndin var svo að mestu tekin upp
í kjallaranum, auk þess sem „Get
Back“ var tekið upp uppi á þaki
Apple-hússins.
Myndin sýnir hljómsveitina
saman, þeirra innbyrðis samband
og samband þeirra við aðra.
Myndin sýnir líka nokkuð hvernig
vinna í stúdíói gengur fyrir sig. En
þótt myndin sýni að tónlistin hafi
verið enn jafn góð, sýnir hún líka
að samband þeirra var að bresta,
það sorglegasta var að samband
þeirra John Lennon og Paul
_ _ .. j
Loksins sýnd hér
tæpum áratug eftir
frumsýningu erlendis
í myndinni sjást orðasennur,
leiðindi þeirra og þunglyndi.
Einnig sést í myndinni hversu
einkalíf þeirra er orðið samtvinn-
að vinnu þeirra og til trafala.
Þó að sagt sé að margir gallar
séu á myndinni sjálfri sem slíkri
er hún afar merkileg sem heimild-
armynd um lokatímabil þeirra, þó
útkoman sé ekki að fullu raun-
veruleg.
Hér er um að ræða mynd sem
enginn popptónlistarunnandi má
láta fara fram hjá sér.
• •
Onnur eins eyðimörk og brezki vinsældalistinn þessa vikuna
hefur ekki sézt f langan tíma. John Travolta og Olivia
Newton-John í efsta sæti listans og John Travolta í öðru
sætinu. Donna Summer í þriðja sætinu og Boney M. í sæti
númer fjögur. Það er vonandi að þessu diskó-æði fari að linna. Loks í
fimmta sæti rofar aðeins til en þar eru írsku rotturnar Boomtown Rats
á ferð. Á brezka listanum eru tvö ný lög með þeim Frankie Miller og
Jacksons.
Bandaríski listinn er lítið skárri. Nick Gilder situr sem fastast í
efsta sæti listans. en önnur lög hjakka mikið til í sama farinu. Sem og
á brezka listanum eru tvö ný lög á þeim bandan'ska og þau flytja
Ambrosia og Foreigner.
Það kemur víst fæstum á óvart að Smokie eru komnir í efsta sætið á
vestur-þýzka listanum. Öllu meiri athygli vekur að á þessum lista eru
f jögur lög, með Clout (nýtt og ekki nýtt), Commodores, Genesis og Suzi
Quatro.
London
1. ( 1) Summer nights Travoltaog
2. ( 3) Andy
3. ( 7) MacArthur park
4. ( 2) Rasputin
5. ( 5) Rat trap —
6. ( 4) Lucky stars
7. (10) The public image
8. (16) Blame it on the boogie
9. ( 8) Sweet talkin’ woman
10. (19) Dalin’
Olivia Newton-John
John Travolta
Donna summer
Boney M.
Boomtown Rats
Dean Friedman
Public Image Ltd.
Jacksons
ELO
Frankie Miller
New York
1. ( 1) Hot child in the city
2. ( 3) MacArthur park
3. ( 2) Kiss you all over
4. ( 4) You needed me
5. ( 5) Whenever I call you „friend"
6. (13) Double vision
7. ( 7) Beast of burden
8. (12) How much I feel
9. ( 9) Who are you
10. (10) You never done it like that •
Nick Gilder
Donna Summer
Exile
Anne Murray
Kenny Loggins
Foreigner
Rolling Stones
Ambrosia
Who
Captain og Tennille
Bonn
1. (2) Mexican girl
2. ( 1) You’re the one...
3. (11) Substitute
4. ( 3) Summer night city
5. ( 9) Dancing in the city
6. ( 4) Rasputin
7. ( -) Three times a lady
8. (18) Many, too many
9. (12) Again and again
10. ( -) The race is on
Smokie
Travolta og O. Newton-John
Clout
ABBA
Marshall og Hain
Boney M.
Commodores
Genesis
Status Quo
Suzi Quatro
*