Morgunblaðið - 12.11.1978, Page 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 1978
Sjötugur:
Guðjón Sigurðsson bakara-
meistari á Sauðárkróki
Eftirfarandi afmælisgrein
Ilarðar Pálssonar á Akranesi um
Guðjón SÍKurðsson bakarameist-
ara á Sauðárkróki er endurprent-
uð vej;na mistaka sem urðu við
uppsetninjiu ífreinarinnar hér í
blaðinu.
Einn besti vinur minn og
velgerðarmaður frá æskudögum
mínum á Sauðárkróki, Guðjón
Sigurðsson bakarameistari, er
sjötugur í dag. Á þessum timamót-
um í lífi hans langar mig að færa
honum og fjölskyldu hans alúðar-
þakkir fyrir áratuga vináttu og
tryggð og þá ekki síst ómetanlega
aðstoð og leiðsögn á æskuárum
mínum.
Þegar ég var að alast upp á
mölinni á Króknum var ekki
auðvelt fyrir unga drengi að fá
vinnu og þaðan af síður að komast
í iðnnám. Því varð það hlutskipti
margra að leita fyrir sér um
atvinnu, iðnnám eða aðra mennt:
un fjarri heimkynnum sínum. I
raun og veru var það blóðtaka
fyrir staði á borð við Sauðárkrók
að missa unga fólkið af þessum
sökum burt, því að margt af því
ílentist annars staðar. — Og enn í
dag er nauðsynlegt að sveitar-
stjórnir og yfirvöld gefi gaum að
því hversu mikilvægt er að skapa
ungu fólki góð skilyrði til starfs og
mennta heima fyrir.
Það var lán mitt á þessum
dögum að Guðjón bauð mér að
koma til sín og nema bakaraiðn. —
Guðjón var og er enn mikill
fagmaður. Keennsla hans og
leiðsögn var með ágætum og hefur
reynst mér heilladrjúg. Hin rika
tilfinning hans fyrir faginu hlaut
að seytla inn í þá sem með honum
unnu. Hann var afar duglegur og
ósérhlífinn og atorka hans hreif
aðra með til starfs og dáða.
Handtök hans voru örugg og
nákvæm þó að hann vildi láta
hlutina ganga og kynni betur við
að menn létu hendur standa fram
úr ermum.
Guðjón Sigurðsson fæddist að
Mannskaðahóli á Höfðaströnd.
Foreldrar hans voru hjónin Guð-
björg Sigmundsdóttir frá Bjarna-
stöðum í Unadal og Sigurður
Sveinsson frá Þrastarstaðagerði á
Höfðaströnd. — Hann nam
bakaraiðn hjá Snæbirni Sigur-
geirssyni bakarameistara á
Sauðárkróki, stundaði framhalds-
nám í Kaupmannahöfn, kom síðan
aftur heim og tók við forstöðu
Sauðárkróksbakarís sem hann
hefur stjórnað síðan.
En Guðjón hefur haft fleiri járn
í eldinum. Hann er mikill félags-
málamaður og vegna góðrar
greindar voru honum falin marg-
vísleg trúnaðarstörf fyrir bæjar-
félagið. Hann var og er einarður
sjálfstæðismaður og einn skelegg-
asti málsvari flokksins sem ég hef
haft kynni af. Hann átti sæti í
bæjarstjórn Sauðárkróks í áratugi
og var lengst af forseti bæjar-
stjórnar og í bæjarráði. Hann
taldi ekki eftir sér sporin fyrir
bæjarfélagið og mörg eru þau
framfararmálin sem hann beitti
sér fyrir. — Minnist ég þess
sérstaklega þegar hitaveitufram-
kvæmdir voru á döfinni á Sauðár-
króki hversu mikið hjartans mál
honum var að hafist yrði handa
við þær og þeim lokið. Þurfti mikla
bjartsýni til í fátæku bæjarfélagi
að ráðast i slíkt stórvirki sem
hitaveita var á þeim árum.
Sauðkræklingar eiga þeim mönn-
um, sem forgöngu höfðu um þá
framkvæmd, miklar þakkir að
gjalda.
Löngum hefur verið leitað til
sveitarstjórnarmanna um marg-
víslega fyrirgreiðslu fyrir ein-
staklinga og félög. Var Guðjón þar
síður en svo undantekning. Fjöldi
manna leitaði til hans, nærri því
að segja hvenær sem var sólar-
hringsins, og var hann óþreytandi
að leiðbeina mönnum og greiða úr
margs konar vandamálum og
skipti hann engu hvaða stjórn-
málaskoðanir þeir höfðu er til
hans leituðu. Ekki taldi hann eftir
sér tímann sem í þetta fór, jafnvel
þótt klipið væri af stuttum
hvíldarstundum.
Ekki er hægt að skrifa svo grein
um Guðjón Sigurðsson að ekki sé
minnst á störf hans fyrir Leikfélag
Sauðárkróks. Svo sem flestum er
kunnugt hefur leiklist verið stund-
uð á Króknum í rúm 100 ár. Hefur
þar korhið við sögu fjöldi fólks og
ber þar hátt nafn Guðjóns. Hann
hefur verið virkur þátttakandi í
störfum Leikfélagsins í marga
áratugi og farið þar með fjöldann
allan af hlutverkum. Væri gaman-
leikrit sett á svið þótti ómissandi
að Guðjón færi með eitt aðalhlut-
verkið. Minnisstæður er hann mér
í mörgum hlutverkum en þó man
ég hann best sem Jón bónda í
Gullna hliðinu. Um skeið var það
fastur liður í skemmtanalífinu á
Sauðárkróki að leika revíur sem
Guðjón hafði samið, stundum
ásamt nokkrum vinum sínum.
Farið var þar gamansömum orð-
um um bæjarlífið á Króknum og
dregnar upp skopmyndir sem
mörgum eru enn í fersku minni.
Sýningar þessar voru u mjög vel
sóttar og lífguðu gráan hversdags-
leikann.
Guðjón Sigurðsson hafði gott
eyra fyrir hljómlist og söng um
áratugaskeið í Kirkjukór Sauðár-
króks og í karlakór meðan hann
starfaði. Hann lét þau orð falla að
þeim stundum, sem hann átti með
söngfélögum sínum, væru bundnar
ljúfustu endurminningar hans.
Enn fremur starfaði Guðjón í
Rótarýklúbbi Sauðárkróks.
Iðnaðarmannafélaginu og Ung-
mennafélaginu Tindastóli. I öllum
þessum félögum og mörgum fleiri
var hann starfsamur og drjúgur
liðsmaður.
Það er ókleift að minnast
Guðjóns Sigurðssonar svo að ekki
sé getið heimilis hans. — Hann er
giftur Olínu Björnsdóttur frá
Skefilsstöðum, einhverri ágætustu
dugnaðarkonu sem ég hef kynnst.
Heimili þeirra hefur ætíð verið
mjög stórt og þar afar gestkvæmt.
Frú Ólína hefur alla tíð haft með
höndum veitingastarfsemi og jafn-
an verið fengin til að standa fyrir
veislum á Sauðárkróki ef mikils
hefur þótt við þurfa. Sem dæmi
um dugnað hennar og ósérhlífni
vil ég geta þess sem ég veit af
tilviljun að það hefur verið venja
hennar að ganga ekki til náða á
Þorláksmessukvöld heldur vinna
alla nóttina enda í mörg horn að
líta á þeim bæ fyrir jólin.
Vafalaust hefur hún svo gengið
síðust heimilisfólksins til hvíldar á
jólanótt.
Ég kynntist heimili Guðjóns og
Ólínu mjög náið þar sem ég
borðaði þar öll námsár mín.
Heimilisbragurinn var að mörgu
leyti sérstæður, sjaldan færra en
tylft manna við borðið og fjörugar
og andaríkar samræður krydduðu
góðar máltíðir. Trúlegt þykir mér
að kynni mín af þessu heimili hafi
að nokkru mótað mig ungan og
verið mér gott veganesti.
Ég endurtek þakkir mínar til
þeirra hjóna og árna þeim allra
heilla og Guðs blessunar á ókomn-
um ævidögum.
Hörður Pálsson.
Slátrað 47 þús. fjár
hjá K.Þ. á Húsavík
Húsavík 10.11.
TÍÐARFAR hefur verið mjög gott
í haust og hagstætt bændum en
gæftir hafa þó verið heldur
óstöðugar til sjávarins. Göngur
gengu vel en fé er óvíða komið á
gjöf. Hér hefur engan snjó sett
niður það sem af er vetri, aðeins
má merkja smá fannir í giljum.
Hjá Sláturhúsi K.Þ. var slátrað í
haust um 47 þúsund fjár og
reyndist fé vel til frálags. Meðal-
þungi dilka var 14,6 kg eða sami og
sl. ár, en þá voru skrokkarnir
vegnir með nýrnarmörnum, sem
ekki er gert nú svo útkoman er nú
betri.
í dag eins og undanfarna daga
er hægviðri, bjartviðri, en nokkuð
kalt.
Fréttaritari.
Kynntu sér meng-
unar- og slysa-
vamir í áliðnaði
RAGNAR Halldórsson forstjóri
ísals og yfirtrúnaðarmaður verk-
smiðjunnar, Örn Friðriksson,
sóttu nýlega fund í Noregi um
umhverfisverndunarmál, slysa- og
mengunarvarnir í áliðnaði.
Fundur
þessi var haldinn að tilhlutan
norrænna álframleiðenda. Á fund-
inum voru ræddar ýmsar nýjungar
á þessu sviði, sem væntanlega verða
teknar upp hjá ísal í einhverjum
mæli á næstunni.
Lítið
barn
l«H|i
hefur
lítið
sjónsvid