Morgunblaðið - 12.11.1978, Page 31

Morgunblaðið - 12.11.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. NOVEMBER 1978 79 Pottréttur hirð- arinnar (Fyrir 4) 750 gr. beinlaust svínakjöpt í smábitum 250 gr. sveppir 35 gr. smjörlíki salt, paprika, 1 dl. vatn, lítil dós belgbaunir lítil dós niðursoðnir tómatar, 3 dl. rjómi. Kjötið brúnað, sveppirnir skornir í tvennt og aðeins brugðið í smjörlíki áður en þeir eru settir í pott með kjötinu. Kryddi dreift yfir, vatni og dálitlu af tómatsafa hellt yfir. Rétturinn látinn krauma í ca. 45 mín. og þá er tómötum, baunum og rjóma bætt í. Kryddið eftir smekk og sósan jöfnuð ef vill. Boriö fram með rifnum osti, hrísgrjónum og franskbrauði. Haframjöls-döðlukaka IV2 bolli sjóðandi vatn, 1 boili haframjöl, IV2 bolli hveiti, 1 tsk, natron, 1 tsk kanill, 1 tsk, múskat, V2 bolli smjöriíki, 1 bolli sykur, 1 bolli ljós púðursykur, 2 egg, 1 tsk. vanilludropar, Vt bolli brytjaðar döðlur, 2 matsk. hunang, V\ bolli brytjaðir val- hnnetukjarnar til skrauts, ef vill. Sjóðandi vatni hellt yfir haframjölið, hrært í með gaffli, látið standa í 40 mín. og kælt. Deigið er venjulega hrært deig, haframjölið látið í síðast ásamt hveitinu. Bakað í venju- legu smurðu formkökumóti við meðalhita. Sápur af ýmsu tagi Það er kunnara en frá þurfi að segja, að framleiðendur snyrti- og hreinlætisvara aug- lýsa nú unnvörpum, að vörur þeirra innihaldi eingöngu nátt- úruefni og eru sápur þá ekki undanskildar. í New York er verslun, Casswell-Massey heitir hún og er við Lexington Ave„ sein í 200 ár hefur sérhæft sig í sápum og öðrum baðvörum, og þykir hafa hreint ótrúlegt úrval, eða yfir 100 tegundir. Þar eru á boðstólum hinar ólíkustu sápur, hvaðanæva að, og má nefna appelsínu- og gulrótarsápur frá Frakklandi, salat-sápu frá Ítalíu, eggjasápu frá Belgíu, tómatsápu frá Spáni (sápan er eins og tómatur í laginu), mjólkursápu og engi- fersölsápu framleiddar í Banda- ríkjunum. Einnig erihægt að fá þarna sápur fyrir ýmsar húðtegundir, svo sem breska tjörusápu fyrir feita húð og möndlu-olíusápu fyrir þurra húð. Fjólusápurnar „Violetta di Parma“ frá Ítalíu og „Violettes de Toulouse" frá Frakklandi þykja sérstakar lúxusvörur. í búðinni er líka að finna sápu sem heitir aðeins „Number Sik“, eða Nr. 6, og hefur verið á boðstólum síðan á dögum Georgs Washington. Gerðar voru tilraunir með fimm aðrar sáputegundir fyrir hann, sem ekki líkuðu, en sú sjötta, eða Nr. 6, hlaut náð fyrir hans augum og hefur haldið upprunalegu nafni og velli síðan. Verð: Litsjónvarpstækin frá hinu heimsþekkta fyrirtæki RANK sem flestum er kunnugt fyrir kvikmyndir, en þaö framleiðir einnig alls konar vélar og tæki fyrir kvikmyndahús og sjónvarpsstöövar um allan heim, og þar á meöal er nýjasta vél sjónvarpsins á íslandi, sem sendir út kvikmyndir í lit. 22“ m/fjarstýringu frákr. 412.000- 26“ m/fjarstýringu frá kr. 487.000,- Geriö samanburð á verði. Vitastíg 2 Reykjavík. Símar 25745 12870. Nýja saumavélin, sem gerir alla saumavinnu auðveldari en áður: NECCHI NECCHI SILT7K3 saumavélar eru búnar öllum kostum eldri véla auk ýmissa nýjunga. Með NECCHI SIL77IO saumavél er unnt að sauma nánast hvaða efni sem er - allt frá þunnum teygjuefnum til þykkra gállabuxnaefna. NECCHI SILTJIG saumavélar eru búnar mynsturveljara með liteinkenni. Þetta einfalda fyrir- komulag gerir allar stillingar við val á saumgerð fljótlegri og öruggari en áður hefur tíðkast. NECCHI SILCJia saumavélar eru með sérstökum búnaði, þannig að nálin hreyfist með því sem ncest fullum krafti á hvaða hraða sem er.Þannig er unnt að sauma jafnvel mjög þykk efni á litlum hraða. NECCHI SIL77KJ saumavél vegur aðeins um 12 kg með tösku og öllum fylgihlutum. Hún er því sérlega létt í meðferð og flutningi. Nákvcemt eftirlit við framleiðslu og sölu ásamt traustri þjónustu tryggja hámarksnotagildi NECCHI saumavéla. sfll NECCHI SIL7JKJ saumavélum fylgir nákvcemur leiðarvísir á íslensku Utn notkun-og viðháld. S i'« I tj Utsölustaðir víða um land. Einkaumboð á íslandi: FALKIN N Suðurlandsbraut 8 - sími 84670 Sendum bæklinga, ef óskað er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.