Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
Vamarliðsþyrl-
an sótti slasaðan
pilt til Klausturs
ÞYRLA varnarliðsins sótti við
hinar erfiðustu aðstæður slasað-
an pilt, sem hafði lent í bflveltu á
þjóðveffinum rétt hjá Ilolti á Síðu
og læknir óttaðist að hefði
skaddast á hrygg.
Þrír unjfir piltar um tvítugt
voru á Landrover frá Vegagerð-
„Duflið”
reyndist
vera kaf-
bátsloftnet
ATHUGANIR Landhelgis-
gæzlunnar benda til þess að
hluturinn, sem Gullberg fann
nýlega á floti við Vestmanna-
eyjar sé loftnet af kafbáti. Á
duflinuu stendur að það sé
framleitt í Bandaríkjunum.
Svona búnaður fannst einnig
hér við land árið 1974. Líkur
benda til þess að hlutur þessi
hafi verið skamman tíma í sjó.
inni, þegar jeppinn valt í hálk-
unni án þess þó að fara út af
veginum. Tveir piltanna hentust
út úr bflnum við það að hann valt.
Pilturinn sem slasaðist var úr
Mýrdalnum en það var læknirinn á
Kirkjubæjarklaustri sem kom á
vettvang ásamt lögreglu þar en
hins vegar var fenginn sjúkrabíll
frá Vík sem flutti piltinn til
Kirkjubæjarklausturs. Héraðs-
læknirinn taldi meiðsl piltsins á
hrygg svo alvarleg að hann fór
fram á að pilturinn yrði fluttur í
sjúkrahús í Reykjavík og hafði
Slysavarnafélag íslands þá milli-
göngu um að fá varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli til að senda
þyrlu eftir piltinum.
Lenti þyrlan á Klaustri um kl.
16 eða 5 tímum eftir að slysið varð
við töluvert erfiðar aðstæður, því
að dimmviðri var en allt gekk þó
vel, að sögn lögreglu á Kirkju-
bæjarklaustri, og í Reykjavík lenti
þyrlan með piltinn um kl. 17 í gær.
Hann var síðan fluttur í sjúkrahús
þegar í stað þar sem meiðsl hans
voru tekin til rannsóknar.
„Hugleiða þarf aukið
markaðssvigrúm í Evrópu
og hugsanlegan samdrátt
á Bandaríkjamarkaði”
— segir sjávarútvegsráðherra
„ÞAU VIÐIIORF. sem við þurfum
þannig sérstaklega að hugleiða
eru horfur á auknu markaðssvig-
rúmi í Vestur-Evrópu annars
vegar og líkleg aukning innlendr-
ar framleiðslu á Ameríkumark-
aði. sem kann að þrengja mark-
aðsaðstæður þar.“
Þetta mælti Kjartan Jóhanns-
son sjávarútvegsráðherra í ræðu á
aðalfundi LÍÚ í gær.
I þessu sambandi sagði Kjartan
að viðskiptafríðindi okkar fyrir
sjávarafurðir á Evrópumarkaðinn
í formi tollaívilnana yrðu æ
þýðingarmeiri á þeim árum, sem í
hönd færu. Vegna breytinga á
fiskveiðilögsögu við Atlantshaf
mundu þær þjóðir V-Evrópu, svo
sem Bretar, Vestur-Þjóðverjar,
Spánverjar og Portúgalir, sem
stundað hafi veiðar á fjarlægum
miðum, ekki geta annað eftirspurn
eftir fiski nema með innflutningi.
Sjávarútvegsráðherra sagði
ennfremur að ný 200 mílna fisk-
veiðilögsaga við Bandaríkin og
Kanada myndi leiða til aflataps
erlendra ríkja þar og leiða til
samsvarandi aukningar fiskveiða
vestanhafs. Rangt væri að álykta
að markaður okkar í Bandaríkjun-
um væri í hættu, en náið þyrfti að
hugleiða hvaða breytingar þessi
þróun vestanhafs hefði í för með
sér fyrir okkur íslendinga.
N-Atlantshafsflugleiðin:
Troels Bendtsen hefur opnað ljósmyndasýningu í kjallara Norræna hússins, og sýnir hann þarna ýmsar
myndir frá kvikmyndun Brekkukotsannáls hér á sínum tíma og svo fáeinar fjörumyndir. Troels var
aðstoðarmaður við töku Brekkukotsannáls og tók þá þessar myndir. Sýningin verður opin alla næstu
viku eða til 28. nóvember og um hclgar frá kl. 14 — 22 en á virkum dögum frá kl. 16—22. Myndirnar eru
til sölu. Ljósm. Mbl. Kristján.
Tjónið vegna
flugslyssins
Hlutur Tryggingar
sjálfrar er aðeins brotabrot
—meginhlulinn endurtrgggður erlendis
„Meginparturinn af
þessum tryggingum er
endurtryggður erlendis
þannig að hlutur félagsins
sjálfs er aðeins brotabrot af
öllu saman og nær því alls
ekki að vera 1 prósent,“
sagði Hannes 0. Johnson
framkvæmdastjóri
Tryggingar hf. er Mbl.
spurði hann í gær, hver
hlutur Tryggingar væri í
tjóninu vegna slyssins á Sri
Lanka, en flugvél, áhöfn og
farþegar voru tryggð hjá
Tryggingu.
„Meginparturinn er endur-
tryggður í Bretlandi, hjá
Lloyds," sagði Hannes. „En
Lloyds eru samtök
tryggingaraðila og þau dreifa
svo meginpartinum aftur út
frá sér.“
Eins og fram hefur komið í
Mbl. var flugvélin tryggð
fyrir 13 milljónir dollara,
sem eru jafnvirði 4,1
milljarða króna. Hannes 0.
Johnson kvaðst ekki geta
gefið upplýsingar um upp-
hæðir annarra trygginga, þar
sem það væri viðskiptavinar-
ins, Flugleiða, að gefa slíkar
upplýsingar.
Hörður Sigurgestsson fjár-
málastjóri Flugleiða, sagði
félagið ekki vilja ræða þessi
mál að svo stöddu, en gat
þess, að farþegatryggingar
hefðu verið samkvæmt
alþjóðlegum reglum og venj-
um og tryggingar starfsfólks
Flugleiða í samræmi við
kjarasamninga.
Hörður Einarsson hrl.
ráðinn ritstjóri Vísis
Lyfturnar í
Bláfjöllum
SKÍÐALYFTURNAR í Blá-
fjöllum verða opnar um helgina
svo fremur að færð og færi
þangað verði í lagi. Skíða-
áhugafólki skal þó bent á að
upplýsingasími um skíðaiyft-
urnar og færið í Bláfjöllum er
breyttur frá því sem var —
síminn núna er 25582.
Hörður Einarsson hæsta-
réttarlögmaður hefur nú verið
ráðinn ritstjóri að Vísi með
ólafi Ragnarssyni í stað Þorst-
eins Pálssonar að því er Vísir
skýrir frá í gær.
Hörður hefur undanfarin
misseri verið. stjórnarformaður
Reykjaprents, útgáfufélags Vís-
is, en hann lauk lögfræðiprófi
frá Háskóla íslands árið 1966.
Hann starfaði um tíma á
Morgunblaðinu sem blaðamaður
en rak síðan um árabil eigin
lögmannsskrifstofu í Reykjavík.
Eiginkona Harðar er Steinunn
Ingvadóttir og eiga þau fimm
börn.
Aukning f arþega fyrri hluta
ársins er ekki nema 12%
Mikil tilf ærsla á flutningum farþega
úr leiguflugi yfir í áætlunarflugið
STARFSEMI Alþjóðasambands
flugfélaga var á fundi sambands-
ins í' Genf á dögunum skipt
nánast í tvo hluta, þar sem annar
hluti samhandsins er sá sem
annast mun öll önnur hagsmuna-
mál félaganna er snerta far-
gjaldasamningana en hinn hluti
sambandsins er svo sá sem hcfur
eingöngu með fargjöldin að gcra.
og er hverju flugfélagi frjálst að
eiga þar aðild að og lúta far
gjaldaskipan IATA cða standa
þar fyrir utan en þá vcrður
viðkomandi flugfélag að ganga
sjálft frá loftferðasamningum og
fargjöldum við stjórnvöld þeirra
landa. sem þau vilja fljúga til.
Birgir Þorgilsson, farsölustjóri
og sölustjóri fyrir Evrópu hjá
Flugleiðum, sem sat þennan fund
af hálfu Flugleiða, sagði þegar
hann var spurður um álit sér-
fræðinga á þróun fargjalda að það
væri almennt hald manna að
fargjöldin myndu fara hækkandi,
en þó einkanlega á þeim leiðum,
þar sem fargjöld hafa lækkað mest
að undanförnu, eins og á
Norður-Atlantshafs-flugleiðinni.
Birgir kvað aukninguna á
N-Atlantshafsleiðinni þar sem
átökin í fargjaldamálum hafa
orðið mest, alls ekki hafa orðið svo
gífurlega þrátt fyrir hin lágu
fargjöld, þannig að t.d. fyrstu 6
mánuði þessa árs hefði aukningin
ekki orðið nema 12% hjá öllum
flugvélunum á þessari leið, hvort
sem væri í leigu eða áætlun en
hins vegar hefði orðið mikil
tilfærsla í flutningi farþega úr
leigufluginu yfir í áætlunarflugið,
þar sem aukningin væri mun meiri
en þetta, en 12% aukning í fluginu
í heild væri ekki meiri en oft hefði
verið áður.
Hörður Einarsson
Hörður mun taka við störfum
á ritstjórn Vísis 1. janúar en þá
tekur Þorsteinn Pálsson við hinu
nýja starfi sínu hjá Vinnuveit-
endasambandinu.
©
INNLENT