Morgunblaðið - 18.11.1978, Síða 7

Morgunblaðið - 18.11.1978, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 7 r Samningana í gildi, — eöa hvaö? Blaðamadur Vísis tók ráðherra tali í gærmorg- un, Þegar Þeir tíndust inn á ríkisstjórnarfund, og spurði: Hvað tá launÞegar mikla hækkun 1. desem- ber? Sjálfsagt hefur hann vænzt Þess, að svarið yrði einfalt og eins hjá öllum: Eins og samningar segja til um. Eða var Það ekki grundvallaratriði í stjórnarsamningnum eins og lofað var fyrir kosningar, að samningarnir skyldu taka gildi og verða í gildi, meðan vinstri ríkisstjórn sæti? Svo skildist laun- Þegum að minnsta kosti. En Það var annar gáll á Rauðku, Þegar spurt var um launahækk- unina 1. desember. Steingrímur Her- mannsson: „Helzt sem minnsta. Mér heyrist á mönnum aö Þeir séu tilbúnir aö sleppa krónu- töluhækkun.“ Olafur Jóhannesson: „Þaö er alltaf öruggast aö búast við einhverju illu, Því aö gott skaðar ekki.“ Magnús Magnússon: „Sem minnst. Hækkunin má ekki vera meiri en 3—4%.“ Hjörleifur Guttorms- son: „Vil engu spá.“ Tómas Arnason: „Vil engu spá.“ Ragnar Arnalds (um flokksráösfund AIÞýðu- bandalagsins um helg- ina). „Viðhorfin verða rædd og hvaða hluti eigi að leggja sérstaka áherzlu á. Það er of sterkt til orða tekið að við munum setja úrslitaskil- yrði um stjórnarsam- starf." Svavar Gestsson (um sama): „Við setjum ekki úrslitakosti. Hvaö hækk- un viðvíkur vil ég ekki spá núna.“ Benedikt Gröndal: „Við verðum að leitast við að leysa petta með sam- starfi allra aöila. Um Þessi mál er áherzlumun- ur milli flokkanna, en grundvallarsamkomulagið er Þyngra á metunum.“ Og grundvallarsam- komulagið á að nást um Það, að samningarnir gangi ekki í gildi og verði Því fjær Því, sem lengra líður. Er samkvæm- ursjálfummér, segir Benedikt „Loksins rennur upp Ijós fyrir Þeim Morgun- blaðsmönnum," segir Benedikt Davíðsson, for- maður verkalýðsmála- ráðs AlÞýðubandalagsins í Þjóðviljanum í gær. Og honum er mikið niðri fyrir, enda hissa á Því, að mönnum heyrist hann hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri, Þegar hann segir í Tímanum nú: „Ég tel Það mjög brýnt, aö gripið veröi til ein- hverra ráðstafana, Þann- ig að sú hækkun, sem koma á á kaup sam- kvæmt kjarasamningum, veröi bætt með öðrum hætti en í formi beinna launahækkana, sem ekki yrðu Þá verðbólguhvetj- andi.“ Í munni hans heitir Þaö nú, að hann og verka- lýðshreyfingin hafi á sín- um tíma gert ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar „nákvæmlega Það sama“ boðlll Þei eru ekki geölausir Þessir menn, sem Þannig tala frá einum tfma til annars, — eða hvað? L J Innilegar þakkir til þeirra sem heiöruöu mig á sjötugs afmæli mínu 5. nóvember s.l. með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Lifið öll heil. ÓSKAR EGGERTSSON, A ndakílsárvirkjun, Borgarfirði. ’Hestar Tapast hafa 2 hestar frá Skálmholti, í Villingaholts- hreppi, móbrúnn, 4ra vetra, stór og fallegur, rauöur, 6 vetra, stór og fallegur. Á lend rauöa hestsins eru merktir stafirnir SB. Taliö er aö sést hafi til hestana við Tungu í Gaulverjabæjarhreppi, fyrir u.þ.b. 2 vikum síöan. Þeir, sem upplýsingar geta veitt, eru beönir aö hringja í síma 16101, í vinnutíma eöa á kvöldin í síma 85952. Hestamenn Geldinganesiö veröur smalaö í dag laugardaginn 18. nóv. og veröa hestar í rétt kl. 13—14. Þaö er nauösynlegt aö þeir, sem eiga hesta þar taki hesta sína. Bílar veröa á staönum til flutninga. Hestamannafélagiö Fákur. Badminton Af sérstökum ástæöum eru eftirtaldir tímar lausir hjá Badmintondeild Víkings: Þriöjudagar kl. 18.15. Miövikudagar kl. 19.00. Föstudagar kl. 16.50 og 17.40. Laugardagar kl. 16.40. Upplýsingar í síma 38524. Badmintondeild Víkings. Látib blómin tala Ath: Breyttur opnunartími. Höfum nú opið frá kl. 9—9. •> •> Handklæði og baðmottur Mikiö úrval af handklæöum og baömottum nýkomiö. Þykk ensk handklæöi einlit og mynstruö. Þykkar og vandaðar þýskar baömott- ur: Margir litir og stæröir. Hagstætt verö. Nýborgp Armula 23 — Sími 86755

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.