Morgunblaðið - 18.11.1978, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
— Björn Emilsson skrifar um Kvartmíluíþróttina.
Svipmyndir frá æfingaspyrnu Kvartmfluklúbbsins. Ljósmyndir Jóhann Kristjánsson.
Chevy Monsa Gylfa Pústmanns. Einn sneggsti
bíll í bænum um þessar mundir. Teikning
greinarhöf.
/ MARGAR vikur hafa kvartmílingar horft
bænaraugum til himins. Ekki svo að skilja að
fieir séu haldnir ólæknandi hálsríg. Ástæóan ar
einfaldlega sú, að ekki hefur viðrað til
kvartmíluaksturs, brautin hefur verið of blaut
til spyrnukeppna. Til að hægt aé að ná árangri í
kvartmílukeppnum, verður svæðið að vera
algjörlega fiurrt.
Sunnudaginn 5. nóvember héldu kvart-
mílingar ekki vatni lengur og fjölmenntu út í
Kapelluhraun.
„Á leið
til fyrir-
heitna
landsinsá
„Takk fyrir matinn. Síðasta
máltíðin fyrir fyrstu kvart-
mílukeppnina. Ég hendist út í
freðmýrarfarartæki föður
míns. Á leið til fyrirheitna
landsins? Það getur ekki verið.
Uppblásnu vindsængursætin í
Lödunni angra mig ekki í
þetta skiptið. Hugurinn er
annars staðar. Þetta er eins og
í gamla daga: ... Bjallan
hringir, það er hánótt. Siggi
Jakobs er kominn. Strákarnir
verða uppi á gömlu mílu á
eftir. Ég er bókstaflega á
nærbuxunum þegar ég sest
upp í Challangerinn, slíkur er
spenningurinn.
Ég ranka við mér. Það hvín í
Lödunni, sem nú líður í átt að
Straumsvík á 80 km hraða.
Skiltið hægra megin við veg-
inn siglir framhjá. Á því
stendur 70 km. Ég dreg úr
ferðinni, sveigi til vinstri.
Fyrirheitna landið! Kvart-
mílubrautin blasir við. Hér er
múgur og margmenni. Á
svæðinu bregður fyrir harð-
snúnum kvartmílingum, eins
og Gauja GTX, Gylfa púst,
Palla V áttunda, Bigga bjöllu,
að ógleymdum konungi Ford-
anna, Barða Ágústssyni. Ég
get ekki beðið eftir að komast
út að brautinni. Það er eitt-
hvað um að vera við jólatréð.
Stjórnarmeðlimir þinga. Áður
en varir er ég meðal þeirra. En
þá dynur reiðarslagið. Brautin
er blaut. Hér verður ekki
keppt í dag. Þvílík vonbrigði.
Þetta var þá ekki síðasta
máltíðin. Enn er þingað. Að
lokum komast stjórnarmeð-
limir að niðurstöðu. Möguleiki
er að halda æfingu. Strákarnir
hafa gott af að fá innsýn í
raðtendrun jólatrésins. Ekki
væri heldur forsvaranlegt að
senda áhorfendur heim án
þess að hafa orðið vitni að
einni eða tveimur spyrnum.
Ákveðið er að láta einn bíl
fara í einu og ekki lengra en
200 metra. Farartækjum af
ýmsum gerðum er raðað upp,
allt frá 8 strokka Chevy
Monzum niður í mótorhjól.
Snævi þakinn fjallahringurinn
speglast í blautri brautinni.
Jólatréð tendrast. Fyrsti
bílinn hendist af stað. Um 15
bílstjórar beita hestum sínum
við tréð. Dagurinn líður með
mismunandi árangri bílstjór-
anna. Það er farið að rökkva.
Frostkristallar speglast í
brautinni. Kvartmílubrautin í
Kapelluhrauni hefur fengið
„olíuþefinn“ af því sem koma
skal í framtíðinni.
Ég sezt upp í freðmýrar-
farartækið og ek áleiðis heim.
Ladan er nú ekki sem verst.
Sjálfsagt einhver bezti bíll í
V-v nn m ■ . « A n A V T 1 /l X T A T* A
„Brautin er blaut"