Morgunblaðið - 18.11.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
eftirt>óriS.
Gudbergsson
Við heyrum frá
fæðingu
Margir foreldrar hafa án efa
tekið eftir því, hvernig mismun-
andi hávaði getur haft áhrif á
börn. Þau hrökkva við, þegar
þau heyra hvellan hávaða. Þau
fara skyndilega að gráta, þegar
einhver „frænkan" eða „frænd-
inn“ kemur í heimsókn og talar
hátt o.s.frv.
Börn heyra frá fæðingu, ef
þau eru ekki með einhvers konar
heyrnarskaða. Þau hafa yndi af
því, þegar við erum að raula,
tökum þau í fang okkar og
ruggum þeim, meðan við söngl-
um eitthvað sem við sjalf höfum
lært í æsku. Þau hafa greinilega
ánægju bæði af söngnum (þó að
við syngjum bara með okkar
nefi!) og orðunum, sem þau
heyra.
Við höfum áður rætt um það,
að fólk hefur samt hlotið
mismunandi veganesti með sér
trá æskuárum sínum. Og margir
vilja halda því fram, að unga
kynslóðin kunni ekki gömlu
barnasöngvana, heilræðavísurn-
ar og ljóðin, sern fólk lærði í
„gamla daga“ og tók hátiðlega.
Bækur hafa
bætt margt
Margir eru þeir, sem óska
rithöfundum jafnt sem öðrum
listamönnum lönd og leið, og
mönnum leyfist að hafa eigin
skoðanir á því. En sem betur fer
hefur margt varðveist í bókum,
sem annars væri týnt og tröllum
gefið. Og gömul ljóð, vísur,
rímur, heilræðavísur (eins og
Ungum er það allra best), eru nú
til í aðgengilegum bókum, þar
sem „unga kynslóðin“ gæti
rifjað upp það, sem „áður var“.
Það hefur líka ákveðið gildi
fyrir okkur að setjast niður,
slaka svolítið á, rifja upp eða
læra það, sem fyrri kynslóðir
hafa alist upp við. Það bæði róar
og hefur lífgandi ahrif á það
ungviði, sem við ætlum að bera
ábyrgð á og ala upp.
Best að byrja
sem fyrst
Ég held, að það leiki enginn
vafi á því, að best er að byrja
sem fyrst að „láta heyra frá
sér“. Strax við fæðingu ætti að
taka á móti börnunum með
hlýlegum „orðum". Tækin eru
lífsnauðsyn. Tækninni hefur
sem betur fer fleygt fram. Meira
er hugsað um líðan konunnar en
áður var og er það vel. En við
megum ekki gleyma að taka á
móti börnunum strax við inn-
göngu í þessa veröld með orðum,
með setningum, sem bjóða þau
velkomin og láta hug fylgja
máli. — með orðum, sem síðar
meir eiga eftir að flæða yfir þau
allt þeirra líf — mismunandi
skiljanleg og skilmerkileg.
Það er óhætt að byrja að
syngja og segja þeim sögur
strax frá upphafi, strax frá
fæðingu. Þau skynja fyrr en við
ætlum og heyra strax eftir
fæðingu, ef allt er með eðlileg-
um hætti miðað við aðstæður.
Hvað á að
segja eða lesa?
Mönnum er það misjafnlega
gefið að „segja“ sögur. Margir
eru aldir upp við það og eiga
Hvenær
er heppi-
legt að
byrja
með frá-
sögur?
auðvelt með frásögn, aðrir geta
helst ekki sagt sögur, en verða
þess í stað að lesa þær. Þó held
ég, að flestir foreldrar reyni í
upphafi að segja sögur. Þeir
finna fljótt, að það er tilgangs-
lítið að lesa hátíðlega fyrir eins
árs barn!
En við getum byrjað með að
sýna þeim myndabækur. Bækur
með stórum, einföldum mynd-
um, sem auðvelt er að „grípa“.
Myndirnar mega ekki vera of
flóknar, ekki of mikið, sem
gerist á sömu myndinni —
aðalatriðið þarf að koma skýrt
fram. Hér á íslandi er nú
talsvert úrval af sæmilega
góðum myndabókum í litum —
en því rriiöur fátt íslenskt.
Best er, að myndirnar séu um
og úr þeim veruleika, sem
barnið lifir og hrærist í. Það
þarf helst að vera hægt að
benda á eitthvað, tengja það við
eitthvað, sem barnið þekkir eða
kemur til með að þekkja. Litirn-
ir þurfa helst að vera skýrir og
greinilegir og endurtekning má
gjarna vera öðru hverju. Oft er
erfitt meðan börn eru lítil að
skýra út fyrir þeim ævintýri, en
líf, sem er tengt þeirra eigin lífi,
þeirra eigin veröld og veruleika,
á oft betur við þau. Þau þekkja
sjálfa sig í mismunandi
aðstæðum og kringumstæðum,
þekkja aftur „sínar eigin til-
finningar", þegar barn grætur
eða hlær o.s.frv.
Ævintýri og hvers konar
dæmisögur hafa mjög mikið
gildi er börnin vaxa og unnt er
að útskýra með meiri orðaforða
en fyrr.
Gildi endur-
tekningar
Mörgum foreldrum finnst nóg
komið, þegar börnin biðja um að
fá að heyra einhverja söguna í
10. eða 20. skipti! Þau skilja
varla, hvað það er í sögunni, sem
er svona skemmtilegt eða þess
virði að fá að heyra hana svona
oft. Og satt er það, að stundum
getur verið erfitt fyrir okkur að
finna það. En það ætti að vera
okkur nóg, að barnið biður um
•söguna — það er eitthvað við
hana, sem getur gefið því það,
sem það biður um — og það er
mismunandi undir hinum ýmsu
kringumstæðum barnsins og oft
háð tilfinningalífi þess, hvernig
því líður sjálfu.
Endurtekningin hefur því
ákveðið gildi fyrir börnin — og
segi saga lítið, hafi hún tak-
markaðan boðskap eða sé lítið
tengd því lífi sem barnið getur
skilið, biður barnið ekki um
hana aftur í bráð. Góð saga
situr í undirvitund barnsins og
eykur á hugmyndaflugið, það
heldur áfram með söguna — Og
svo getur það endurtekið söguna
fyrir brúðunum sínum, mönnun-
um sínum, böngsunum sínum
o.s.frv. Þess vegna er líka jafn
nauðsynlegt fyrir skóla og
heimili að eiga góðar bækur,
sem auka hugmyndaflug þeirra
og auðga tilfinningalífið — eins
og að eiga leikföng, kennslutæki
og íþróttaáhöld!
Lokaorð
Þættir um lestur fyrir börn
hafa nú orðið fleiri en ég ætlaði.
Margt er ósagt enn. I fátækra-
hverfi einu í Bandaríkjunum var
gerð tilraun með nokkrar fjöl-
skyldur, þar sem mæðrunum
var greitt fyrir að lesa fyrir
börnin sín á hverjum degi,
minnst tiu mínútur á dag.
Tilraunin sýndi ótrúlegan
árangur meðal þessara barna,
sem fengu annars svo litla
hvatningu og uppörvun. Orða-
forði þeirra jókst til muna á
stuttum tíma miðað við hinn
hópinn", sem ekkert fékk frekar
en áður.
Ef við getum hjálpað börnun-
um með því að sýna þeim
myndabækur, lesa fyrir þau
stuttan texta, vekja áhug'a
þeirra á bókum og bókalestri,
getum við átt okkar þátt í því að
koma í veg fyrir vandamál með
lestur eða minnka þau — áður
'en lestur og lærdómur verður
þeim raunverulegt vandamál.
Ég lýk þessu með fáeinum
orðum, sem Astrid Lindgren
skrifar í einni af bókum sínum:
„Best var þó þegar Berit fann
ævintýrabókina sína. Hún
þefaði af henni, og svo gekk hún
á milli okkar hinna. Allir fengu
að finna lyktina. Það er alltaf
svo gaman að finna lyktina af
nýjum bókum. Við getum fundið
það á lyktinni, hvað það verður
gaman að lesa þær.“
Rannsóknir lækna í Bandaríkjunum benda eindregið til
þess, að hæfileiki barna til þess að skilja mál hefjist
þegar á fósturskeiðinu og að börn bregðist mismunandi
við tali fólks aðeins fáeinum klukkustundum eftir
fæðingu. (Rannsóknir frá Boston 1974).
_____________________17_
Móðir mín —
Húsfreyjan
— annað bindi komið
HJÁ Skuggsjá er komin út bókin
Móðir mín — Húsfreyjan. annað
bindi, sem Gísli Kristjánsson
hefur ritstýrt og séð um útgáfu á,
svo sem einnig var um bók með
sama heiti, er út kom í fyrra.
Fimmtán höfundar eiga efni í
þessari bók, börn þeirra mæðra,
sem um er ritað. Eftirtaldir þættir
eru í bókinni:
Sólveig Þórðardóttir frá
Sjöundá eftir Ingimar Jóhannes-
son; Jóhanna Kristín Jónsdóttir
frá Álfadal eftir Jóhannes Davíðs-
son; Steinunn Frímannsdóttir frá
Helgavatni eftir Huldu Á.
Stefánsdóttur; Hansína Benedikts-
dóttir frá Helgavatni eftir Huldu
Á. Stefánsdóttur; Hansína
Benediktsdóttir frá Grenjaðarstað
eftir Guðbjörgu Jónasdóttur
Birkis; Björg Þ. Guðmundsdóttir
frá Höll eftir Sigurð S. Haukdal;
Hlíf Bogadóttir Smith frá Arnar-
bæli eftir Sigríði Pétursdóttur;
Svanhildur Jörundsdóttir frá
Syðstabæ eftir Guðrúnu Páls-
dóttur; Aðalbjörg Jakobsdóttir frá
Húsavík eftir Guðrúnu Gísla-
dóttur; Jakobína Davíðsdóttir frá
Hrísum eftir Davíð Olafsson;
Sigríður Jónsdóttir Bjarnason
eftir Hákon Bjarnason; Ásdís
Margrét Þorgrímsdóttir frá
Hvítárbakka eftir Þorgrím V.
Sigurðsson; Kristín Sigurðardóttir
frá Skútustöðum eftir Hall
Hermannsson; Þórdís Ásgeirsdótt-
ir frá Knarrarnesi eftir Vernharð
Bjarnason; Dóra Þórhallsdóttir
frá Laufási eftir Þórhall
Ásgeirsson; Grethe Harne
Ásgeirsson eftir Evu
Ragnarsdóttur.
í Móðir mín — Húsíreyjan, sem
út kom í fyrra, var eingöngu sagt
frá konum í sveitum landsins,
bændakonum, en í þessari bók er
sagt frá konum úr ýmsum starfs-
stéttum.
Bókin er 255 blaðsíður og auk
þess 16 myndasíður.
Á leið í skóla
gœtiðoð
lMA»a «___
unoTii oeggia
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
PARKER (2J HANNIFIN
Char-Lynrf
Öryggislokar
Stjórnlokar
Vökvatjakkar
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-ÞJÓNUSTA