Morgunblaðið - 18.11.1978, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 18.11.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 19 Skattheimta á háu OFT ER rætt um að útsöluverð tækja hér á landi sé allhátt og er engin furða, allra sízt þegar eftirfarandi dæmi um toll- heimtu er athugað. Ef innkaupsverð t.d. rakvéla er 100 kr. þá er útsöluverðið um 412.25 kr. en af því renna 209.21 kr. (51%) til ríkissjóðs. Innifalið er þá t.d. söluskattur upp á 20% alls 68.71 þar af rúmlega 28 kr. vegna álagningar á tolla og vörugjald. Þetta er aðeins önnur hliðin á málinu. Hin er sú að á sama tíma kostaði slík vél í Fríhöfninni 189.10 eða um 10% lægra en skattheimta ríkissjóðs nam hér að ofan. Hefur þó verið tekið tillit til 111 kr. innkaups- verðs ella yrði munurinn um 63%. Þetta er ekki sagt hér til að sýna fram á of lágt verð í stigi Fríhöfninni heldur hitt að skattheimta ríkisins er allt of mikil á algengum hlutum eins og rakvélum. Svo tekið sé svipað dæmi til samanburðar þar sem aukning tollheimtunnar kemur vel í ljós má nefna samanburð á þróun innkaupsverðs og tolla á tímabilinu 1968 til 1978 og er þá miðað við þvottavélar og kæli- skápa. Innkaupsverðið hækkaði í ísl. kr. um 733% á þessu tímabili en tollheimtan um hvorki meira né minna en um 964%. Þess má geta að hækkun dollarans á sama tímabili nam 441%. Þetta með skattheimtuna er atriði sem vert er að gefa gaum að þegar verð í verzlunum hérlendis og erlendis er borið saman. Vönisýningar NOKKUÐ er nú um liðið sfðan síðast var birt yfirlit hér á síðunni um væntanlegar vörusýningar og er því meiningin að bæta nokkuð úr því með eftirfarandi lista. Nóvember Vörussýning á eldhús og baðvörum London 19.—26. nóv. Sjávarútvegssýning Osló 20.—26. nóv. Raf tækj avörusýning London 20.—23. nóv. Iðnaðarvörusýning Bella Center 28.-1/12 Húsgagnasýning Basel 30.-4/12 Desember Alþjóðleg umbúðavörusýning Bella Center 5.-9. des. Landbúnaðarsýning London 4.-8. des. Alþjóðleg flutningatækjasýning París 5.-13. Af sýningum sem verða haldnar í janúar má nefna bátasýningu (London), húsgagnasýningu (Birmingham) og sýninguu á framleiðslu- vörum pappírsvöruiðnaðarins. Rétt er að benda mönnum á að það getur borgað sig að athuga vel sýningarskrár hjá ferðaskrifstofunum þar sem sumar sýningarnar virðast fara á milli borga á meginlandinu, þannig að lækka má ferðakostnaðinn til muna. Vörunýjung NÝLEGA hóf Fíat-umboðið Ðavíð Sigurðsson h.f. kynn- ingu á nýrri tegund Fíat bíla, sem nefnast Fiorino. Bíllinn er mjög svipaður og 127 módelið en sérstaklega smíðaður sem sendiferðabíll og er áætlað verð tæplega 2.4 millj. kr. Allar nánari upplýsingar veitir Fiat-um- boðið í síma 85855. Fyrsta síldin til Stykk- ishólms Stykkishólmi 12. nóv. M.B. ÞÓRSNES S.H. 109, skip- stjóri Jónas Sigurðsson, kom með fyrstu síldina til Stykkishólms fyrir fáum dögum og var henni landað í fiskiðjuveri Þórsness h.f., en aflinn sem hann kom með var um 60 lestir og fór bæði í frystingu og salt. Var síldin góð og saltaðar voru allt um 290 tunnur. Þórsnes hélt strax aftur til veiða. Lionsklúbbur Stykkishólms reri til skelveiða um helgina seinustu og var farið á m.b. Ársæl og öfluðu félagsmenn 6 tonn af skel, og verður andvirðir látið renna til menningar- og liknarmála í kaup- túninu. Þá bauð Rotaryklúbbur Stykkis- hólms gömlu fólki í bænum til skemmtunar fyrir nokkru í félags- heimilinu og var þar margt manna saman komið við söng og dans og veitingar. Þótti þessi fagnaður takast hið besta og öllum til ánægju. Fréttaritari. Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Kaupgengi Yfirgengi pr. kr. 100- tniðað við innlausnar- verð Seðla- bankans. 1968 1. flokkur 2759.61 51.8% 1968 2. flokkur 2595.65 50.9% 1969 1. flokkur 1932.41 50.8% 1970 1. flokkur 1773.71 17.5% 1970 2. flokkur 1290.12 50.2% 1971 1. flokkur 1211.90 17.4% 1972 1. flokkur 1056.65 49.9% 1972 2. flokkur 904.03 17.4% 1973 1. flokkur A 688.52 17.4% 1973 2. flokkur 636.25 1974 1. flokkur 441.92 1975 1. flokkur 361.34 1975 2. flokkur 275.76 1976 1. flokkur 261.62 VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100- 1 ár Nafnvextir: 26% 77—79 2 ár Nafnvextir: 26% 68—70 3 ár Nafnvextir: 26% 62—64 *) Miðað er við auðseljanlega fasteign. Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RIKISSJOÐS: Sölugengi pr. kr. 100.- 1976 2. flokkur 208.28 1977 1. flokkur 193.45 1977 2. flokkur 162.02 1978 1. flokkur 132.06 1978 2. flokkur 100.00 + dagvextir HAPPDRÆTTISSKULDABREF: Sö,u^ pr. kr. 100- |JI. IV i. IUU. 1973 — B 571.47 (10% afföll) INÍRPtnHKmpéM ÍfUffif HP. VERÐBRÉFAMARKADUR LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaðarbankahúsinu). Sími 2 05 80. Opið alla virka daga frá kl. 13—16. Hefur þú heyrt um fyrirtækið sem tapaði 13.000.000 kr. árið 1977? Stjórnendurnir vissu það reyndar ekki fyrr en í apríl 1978. Hvers vegna ekki fyrr? Ástæðan er einfaldlega upplýsingaskortur, þar sem fyrstu og einu tölur um rekstrarárangur komu í Ijós í ársuppgjöri í apríl 1978. Sannast sagna áttu þeir alls ekki von á slíkri útkomu. Þeir bjuggust við að rekstur fyrirtækisins stæði í járnum. í apríl 1978 var heldur seint að þreyta um stefnu. Er fyrirtæki þitt eins á vegi statt? Veist þú fyrr en í apríl 1979 hvernig reksturinn gengur nú? HAGTALA H.F. býöur aðgengilega og hagkvæma lausn á þessum vanda: Tölvubókhald, sem sniöið er að þörfum stjórnenda og endurskoðenda, rekstrar- og efnahagsyfirlit á mánaðar eða ársfjórðungs fresti, ásamt lykiltölum, sem gefa til kynna hvar skórinn kreppir að í rekstrinum. HAGTALA HF götunarþjónusta Grensásvegi 13, Reykjavík, sími 8 17 06

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.