Morgunblaðið - 18.11.1978, Síða 22

Morgunblaðið - 18.11.1978, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1978 Friðunaraðgerðir hafa ótvírætt þeg- ar skilað árangri VERÐI írekari sóknartakmark- anir taldar nauðsynlegar á næstu árum telur aðalfundur LÍÚ að slíkar takmarkanir verði byKgð- ar á óbeinum samdráttaraðgerð- um. í ályktun LÍÚ um fiskvernd segir að við stefnumörkunina verði tekið tillit til tillagna Hafrannsóknarstofnunarinnar og hámarksveiði þorsks á næsta ári. Ályktunin er svohljóðandii „Aðalfundur LÍÚ 1978 telur, að verði frekari sóknartakmarkanir taldar nauðsynlegar á næstu árum, þá verði slíkar takmarkanir byggðar á óbeinum samdráttarað- gerðum, eins og verið hefur, einkum með lengingu á þeim tímabilum, sem þorskveiðar yrðu bannaðar. Með því móti verði hægt að draga úr sókninni, þannig að það valdi sem minnst truflandi áhrifum á atvinnulíf þeirra, sem byggja afkomu sína á sjósókn og fiskvinnslu. Telur fundurinn, að þær sam- dráttaraðgerðir, sem beitt hefur verið að undanförnu, með þorsk- veiðibanni á ákveðnum tímabilum, skyndilokunum veiðisvæða og stækkun möskva í botn- og flot- vörpum, og ekki sízt útfærsla landhelginnar, hafi ótvírætt skilað jákvæðum árangri. Þá telur fund- urinn, að nauðsynlegt verði að banna skuttogurum að koma með lausan fisk (þorsk) á millidekki til löndunar. Fundurinn beinir því til stjórn- valda, að um n.k, áramót liggi fyrir ákveðin stefna um leyfilega sókn í þorskstofninn á árinu 1979. Við stefnumörkunina verði tekið tillit til tillagna Hafrannsóknar- stofnunarinnar um þorskaflahá- mark á árinu 1979.“ „Rekstrarskilyrði útgerðarinnar eiga enn eftir að versna” Pípuorgel vígt í Hveragerðiskirkju Hveragerði, 15. nóvember. PÍPUORGEL var vígt í Hveragerðiskirkju á sunnudaginn. Guðsþjónusta hófst klukkan 14 og önnuðust messugjörð biskup íslands, herra Sigurbjörn Einars- son, og séra Tómas Guð- mundsson sóknarprestur. Ólafur Sigurjónsson lék á orgelið og kirkjukórinn söng. Eftir messu var boðið til kaffidrykkju í Hótel Hveragerði og klukkan 21 var hátíðinni haldið áfram með orgelleik og söng. Meðfylgjandi myndir eru frá hátíðarmessunni. Georg. óeining innan ríkisstjórnarinnar um samningsbundnar tollalækkanir HJÓRLEIFUR Guttormsson iðnaðarráðherra gat þess á almennum félagsfundi Fé- lags íslenzkra iðnrekenda 1 gær að ágreiningur væri innan ríkisstjórnarinnar vegna hugsanlegrar frestun- ar samningsbundinnar tolla- lækkunar á vörum frá EFTA- og EBE-ríkjum, en í samstarfssamningi ríkis- stjórnarinnar er svo kveðið á að frestað skuli tollalækk- unum um áramót vegna eindreginna tilmæla iðnrekenda. Iðnaðarráðherra sagði að þegar málið hefði verið til afgreiðslu í gær á ríkisstjórnarfundi og ljóst verið að ekki var meirihluti fyrir því að fresta tollalækkunum, hefðu ráðherrar Alþýðubandalags- ins lagt fram svohljóðandi bókun: Við teljum að eðlilegra hefði verið að fresta tollalækkun gagnvart EFTA og EBE frá 1. janúar 1979, eins og gert var ráð fyrir í samstarfsyfirlýsingu stjórnar- flokkanna. Þar sem ljóst er, að frestun tollalækkunar einhliða nýtur ekki nægilegs stuðnings innan ríkisstjórnarinnar, teljum við nauðsynlegt að grípa til annarra aðgerða, sem koma að sömu notum, til stuðnings íslenzk- um iðnaði. Jafnframt verði þess freistað að ná samningum um lengri aðlögunartíma gagnvart EFTA og EBE.“ Iðnaðarráðherra sagði að í bókun þessari fælist sú afstaða ráðherra Alþýðubandalagsins að úr því að ekki næðist samstaða um frestun tollalækkana, yrðu að koma til myndarlegar stuðnings- aðgerðir til að bæta samkeppnis- aðstöðu innlends iðnaðar, og vænti hann að öll ríkisstjórnin legðist þar á eina sveif. Málið er nú í athugun og munu tillögur starfs- hóps ráðuneyta verða skoðaðar í því ljósi, svo og aðrar hugmyndir, er fram koma. Ráðherra sagði ennfremur að á fundi ríkisstjórnarinnar í gær hefði jafnframt verið fallist á þá tillögu sína, að þess yrði freistað að ná samningum um lengri aðlögunartima gagnvart EFTA og EBE, áður en síðasta þrep tolla- lækkana kæmi til framkvæmda. Pétur Sveinbjarnarson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenzkra iðnrekenda, gerði athugasemd við þessa afgreiðslu í ríkisstjórninni og sagði að hvergi í neinu vest- rænu lýðræðisríki hefði viðkom- andi ráðherra iátið bjóða sér slíka meðferð heldur sagt af sér með það sama. » ----- Basar Hreyf- ils-kvenna Kvenfélag Hreyfils heldur sinn árlega basar í Hreyfilshúsinu sunnudaginn 19. nóv. og hefst hann kl. 2 e.h. Á basarnum er m.a. mikið af handunnum munum og kökum. Ágóði rennur í styrktarsjóð félags- ins. REKSTRARSKILYRÐI útgerð- arinnar eiga cnn eftir að versna að því er segir í ályktun aðalfund- ar LÍÚ. Brndir fundurinn á að nú liggji fyrir heiðni frá olíufélögun- um um 18% hækkun á verði gasoliu til fiskiskipa. Komi þessi hækkun til framkvæmda kostar hún útgerðina 1.800 milljónir króna á ári. Ályktun samhands- ins um rekstrarskilyrði útgerðar- innar fer hér á eftir: „Aðalfundur L.Í.Ú. 1978, vekur athygli á því að miðað við núverandi rekstrarskilyrði er hallarekstur þorskfiskveiðiflotans 4.200 milljónir króna. Bátar án loðnuveiða eru reknir með 3.400 milijóna króna halla á ári eða 11.3% af tekjum, minni skuttogarar með 180 milljón króna halla eða 1% af tekjum og stærri skuttogarar eru reknir með 679 milljón króna halla eða 8,4% af tekjum. Þessi hallarekstur er staðreynd, þrátt fyrir það að verðlag á útflutningsframleiðslu sjávarútvegsins er nú almennt með hæsta móti, og hækkanir ekki fyrirsjáanlegar. Fundurinn bendir á hinn mikla vanda bátaflotans í landinu, sér- staklega bátaflotans á svæðinu Vestmannaeyjar til Stykkishólms, en á því svæði hefur afli dregist saman um fjórðung á s.l. tveimur árum. Þá vill fundurinn vekja athygli á því, að rekstrarskilyrði útgerðar- innar í heild eiga enn eftir að versna frá því sem nú er, og til dæmis liggur nú fyrir beiðni frá olíufélögunum um ríflega 18% hækkun á -verði gasolíu til fiski- skipa. Þessi hækkun, komi hún til framkvæmda, mun kosta 1.800 milljónir króna á ári, og vegna áhrifa aflahluta þurfa tekjur útgerðarinnar að hækka um 3.000 mílljónir króna til að jafna þann útgjaldaauka. Þá er einnig ljóst, að enn frekari hækkun á olíuverði er yfirvofandi. í þessu sambandi vill aðalfundur L.I.Ú. beina því til yfirvalda, að skattheimta og dreifingakostnað- ur á olíu til fiskiskipa verði tekinn til endurskoðunar, en samtals nema útgjöld vegna þessara kostn- aðarliða 2.500 milljónum króna á ári.“ Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra á fundi FII: „Gripið verði til sérstakra aðgerða í stað tollalækkana” Jólakort Dómkirkjunnar KIRKJUNEFND kvenna Dóm- kirkjunnar hefur gefið út jólakort til ágóða fyrir starfið í þágu Dómkirkjunnar. — Er það lit- prentuð mynd af altaristöflu Dómkirkjunnar. Kortið er til sölu í Bókaverzl. Sigfúsar Eymundsson- ar, í Bókabúð Æskunnar, V.B.K. á Vesturgötu og hjá kirkjuverði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.