Morgunblaðið - 18.11.1978, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
27
Tvær „Há-
spennu-
sögur” frá
Skuggsjá
SKUGGSJÁ hefur gefið út tvær
nýjar bækur í bókaflokknum
Iláspennusögurnar. Eru það bæk-
urnar „ógnardagar í október
1941“ eftir Hansson og „Baráttan
um þungavatnið“ eftir Knut
Haukelid.
„ógnardagar í október 1941“
segir frá atburði úr síðustu
hcimsstyrjöld. er framin voru
óhugnanlegustu fjöldamorð styrj-
aldarinnar, þegar allir karlmenn.
sem bjuggu í' bænum Kragujevac
í Júgóslavíu voru tcknir af lífi.
Með því að myrða samdægurs
7.000 af 30.000 íbúum bæjarins
hugðust bjóðverjar knýja hina
herskáu og uppreisnargjörnu
Serba til hlýðni og undirgefni. En
þetta óhugnanlega hlóðbað hafði
þveröfug áhrif. Skæruliðarnir
börðust enn hatrammlegar en
fyrr og samstaða og baráttuvilji
fólksins magnaðist.
Per Hansson er þekktur og
vinsæll höfundur hér á landi.
Skuggsjá hefur áður gefið út 4
bækur hans. Teflt á tvær hættur,
Tíundi hver maður hlaut að
deyja, Höggvið í sama knérunn og
Trúnaðarmaður nazista nr. 1, oj
fjalla þær allar um atburði úr
síðustu heimsstyrjöld.
„Baráttan um þungavatnið" er
einnig frásögn af atburði tengdum
síðustu heimsstyrjöld. Hún segir
frá því, er Þjóðverjar voru á
mörkum þess að geta framleitt
vetnissprengju. En til að ná því
marki þurftu þeir þung vatn.
Eina þungavatnsverksmiðjan í
Evrópu var í Vemork í Noregi.
Hún var því Þjóðverjum ómetan-
lega mikilvæg, enda vel og tryggi-
lega varin. Allt þetta vissu banda-
menn og því sendu þeir hersveitir í
svifflugum til árása á verksmiðj-
una. Svifflugurnar lentu í illviðri
og hermennirnir fórust. Var þá
sérþjálfuð sveit norskra skæruliða
send til að vinna verkið. Aðgerð
þeirra heppnaðist og var talin með
meiri hetjudáðum heimsstyrj-
aldarinnar síðari.
„Vikivaki”,
nýtt blað
framhalds-
skólanema
Komið er út nýtt blað, „Viki-
vaki“, sem nokkrir nemendur í
framhaldsskólum í Reykjavík og
Kópavogi standa að. Ritnefnd þess
skipa Anton P. Þorsteinsson,
Benedikt Hjartarson, Jónas Egils-
son og Sighvatur Karlsson.
í ritstjórnargrein segir m.a. um
tilgang blaðsins:
„Tilefnið er viðleitni til þess að
sporna gegn yfirgangi þeirra
manna er kommúnistar kallast.
Okku#*frjálshyggjumönnum er oft
að vísu álasað fyrir lítinn áhuga á
félagslífi innan skólanna. Þetta
má vera rétt að nokkru leyti en
þess ber að gæta að við ramman
reip er að draga þar sem kommar
eru annarsvegar, sbr. grein M.H.
hér í blaðinu og skólablöð SFMS
s.l. vetur. En þá urðu greinar, sem
ekki voru ritnefnd að skapi fyrir
slíku aðkasti að mesta skömm er
að... Má líta á þessar gerðir
alræðissinna í beinu samhengi við
orð eins frambjóðanda Abl. fyrir
síðustu kosningar: „í skólunum fer
innrætingin fram“, og í einni af
skruddum Maos stendur einhvers-
staðar að sérstaka áherslu þurfi að
leggja á pólitískt uppeldi ungs
fólks!"
... að eigi maöur gamla,
ónýta gúmmíhanzka er
ágætt að klippa einn fing-
ur af og setja á endann af
kústskafti, pá helzt kústur-
inn stöðugur, pegar hon-
um er hallaö upp að vegg.
stórri teskeiö af hunangi í
frekar stóran bolla af
soönu vatni ásamt saft af
tveimur sítrónum og
drekka paö síöan eins
heitt og mögulegt er.
... að pegar búin er til
rabarbarasulta er ágætt aö
setja aö hluta púöursykur í
stað hvíts sykurs. Sultan
fær fallegri lit og verður
bragömeiri.
... aö pegar skorinn er
laukur vill lyktin oft sitja
lengi á höndunum og
hnífnum. Þetta má foröast
meö pví að skola hendurn-
ar og hnífinn úr köldu
vatni, áöur en þvegiö er
meö sápu.
... að vanti heftiplástur á
smáskeinu, og hann er
ekki til, má nota í staöinn
nýja eggjahvítu, eftir aö
sáriö hefur veriö vandlega
hreinsaö. Eggjahvítan
stífnar fljótlega. En ein-
ungis má nota eggjahvítu
úr nýbrotnu eggi.
uppleysa og fjarlægja
gamalt og storknaö lím
meö ediki.
... aö hægt er aö gufu-
sjóöa blómkál t.d. um leiö
og kartöflurnar eru soönar,
meö pví aö setja paö ofan
á vel pvegnar kartöflurnar.
Þannig sparast m.a.
vítamín.
...aö mjólkin sýöur ekki
upp úr, ef maður smyr
kantinn á pottinum að
innan meö smjöri eöa feiti.
Ef lítið barn er á heimil-
inu og maður vill hindra
aö það komist inn í
einhver herbergi, s.s.
eins og baöherbergi eöa
útidyr, er hægt aö leysa
málin á pann hátt, aö
handfangiö er skrúfað af
hurðinni og pví er snúiö
um fjóröung. Þá geta
aðeins fullorönir og
stærri börn opnað hurö-
ina.
Þessar hillur er mjög einfalt að búa til. Útvegið ykkur góða kassa, alla
jafn stóra. Fáið ykkur síðan sparsl og sparslið allar ójöfnur í burtu, og
Þá er ekkert annað eftir en að mála kassana. Síðan má raöa peim alla
vega upp.
• Teikningar
barnanna...
Hvaö getum við gert við teikningarnar, sem börnin eru að
gefa okkur? Margar peirra eru góðar og ef pær eru settar ofan
í skúffu pá njóta pær sín ekki. En hér er eitt ráð: Límið
teikningana (eða tvær teikningar saman) á pappaspjald og
límið gegnsætt plast ofan á myndina. Þá er hægt aö nota hana
sem diskamottu.